Bændablaðið - 26.02.2009, Qupperneq 25
25 Bændablaðið | fimmtudagur 26. febrúar 2009
Dagana 15.-19. febrúar sl. sótti
níu manna íslenskur hópur
áburðarfræðinámskeið á vegum
fyrirtækisins Flex Fertilizer
System í Hollandi. Með í för
voru jarðræktarráðunautarnir
Ingvar Björnsson á Búgarði og
Jóhannes Hr. Símonarson hjá
Búnaðarsambandi Suðurlands.
Tilgangurinn var að kynna sér
nýja tegund áburðar sem fyr-
irtækið Novum ehf. á Íslandi
hyggst flytja hingað til lands
í vor og jafnvel síðar fram-
leiða hér á landi fyrir íslensk-
an markað. Á námskeiðinu
var farið yfir almenna áburð-
arfræði, samspil næringarefna,
túlkun jarðvegsefnagreininga,
sérstöðu Flex áburðarins auk
þess sem verksmiðja fyrirtæk-
isins í Hollandi var heimsótt.
Flex áburðurinn er fljótandi
áburður en slíkur áburður hefur
ekki verið á markaði á Íslandi í
hefðbundnum landbúnaði fram
að þessu. Íslenskir garðyrkju-
bændur hafa þó að einhverju leyti
notað fljótandi áburð á undan-
förnum árum. Fljótandi áburður
er ekki nýr í sjálfu sér og er all-
nokkuð notaður í öðrum löndum.
Almennt hefur fljótandi áburður
þann kost að hann þarf ekki að
bíða eftir vætu til að leysast upp
auk þess sem auðvelt er að búa til
sérstaka blöndur af slíkum áburði
sem henta hverju búi eða jafnvel
hverri spildu ef nægar forsendur
eru til staðar til að ákvarða slíkt.
Fljótandi áburður getur verið
hvort heldur sem er jarðvegsá-
burður sem er borinn á í upphafi
gróanda eða við sáningu eða sem
laufáburður sem er borinn á eftir
að spretta er komin talsvert af
stað. Dreifing á fljótandi áburði
fer fram með úðadælum sem fáir
bændur eiga en einstaka búnaðar-
félög eiga slíkar dælur auk þess
sem áburðardreifing sem þessi er
tilvalin verktakavinna.
Flex áburðurinn byggir á
einkaleyfi danska efnafræðings-
ins Flemming Padkær sem telur
sig hafa þróað aðferð til að koma
í veg fyrir að næringarefnin í
áburðinum gangi í efnasamband
við önnur efni í jarðveginum og
tapist þannig, s.s. með uppguf-
un, útskolun eða með mjög fastri
bindingu við jarðvegsagnirnar.
Næringarefnin eiga þar með að
vera til staðar í jarðveginum á
því formi sem plönturnar taka
þær upp í gegnum rætur. Gangi
þetta eftir má ætla að spara megi
áburðarefni s.s. fosfór (P) sem
getur bundist mjög fast í íslensk-
um jarðvegi og verið ónýtanlegur
plöntum þó svo að jarðvegsefna-
greiningar sýni að nóg sé af fos-
fór í jarðvegi.
Forsvarsmönnum Flex áburð-
arins er mjög umhugað um að
vita hvaða næringarefni eru til
staðar í jarðveginum og telja for-
sendu góðrar áburðargjafar vera
góð jarðvegssýnataka og ítarleg
túlkun þeirra. Erum við undirrit-
aðir því að sjálfsögðu algjörlega
sammála, sama hvernig áburður
er síðan notaður.
Ingvar Björnsson
Jóhannes Hr. Símonarson
Hópurinn í Hollandi samankomin eftir velheppnaða kvöldmáltíð. Frá
vinstri: Jón Steinar Konráðsson, starfsmaður Novum, Grettir Hjörleifsson
verktaki, Karl Hreggviðsson bóndi, Sigurður Ágústsson verktaki og bóndi,
Ingólfur Arnarson skógarbóndi, Sveinn Sigtryggsson bóndi , Jóhannes Hr.
Símonarson ráðunautur, Benedikt Magnússon frkv.stjóri Novum og Ingvar
Björnsson ráðunautur.
Nýjung á áburðarmarkaði
Sérblandaður fljótandi áburður
Þorrablót
Barð-
strendinga
Þorrablót Barðstrendinga var hald-
ið í Birkimel laugardaginn 14.
febrúar. Vel var mætt á blótið, alls
um 140 manns, og komust færri
að en vildu. Eins og meðfylgjandi
myndir Guðlaugs Albertssonar
sýna, þá virðist ekkert skorta á að
fólk hafi skemmt sér vel á blótinu.
Bætt mjólkurgæði
- betri afkoma!
Kennari: Snorri Sigurðsson
framkvæmdastjóri búrekstrarsviðs
LbhÍ
Tími: 26. feb. kl. 10:00-16:30 á
Möðruvöllum í Hörgárdal
Verð: kr. 14.000
Útimatjurtir – grunnnámskeið
fyrir byrjendur
Í samvinnu við Garðyrkjufélag
Íslands og Græna geirann
Kennari: Gunnþór K.
Guðfinnsson umhverfisstjóri
Ölfusi
Tími: 28. feb, kl. 9:00-15:00 hjá
LbhÍ á Reykjum, Ölfusi
Verð: kr. 12.000
Ræktun áhugaverðra krydd-,
lauk- og matjurta í eigin garði
Í samstarfi við Garðyrkjufélag
Íslands, Reykjavíkur- og
Akureyrardeild og Græna geirann
Kennari: Auður Jónsdóttir
garðyrkjufræðingur
Tími: Boðið verður upp á þrjú
námskeið:
I: 28. feb. kl. 9:00-15:00 í Búgarði
á Akureyri
II: 21. mars, kl. 9:00-15:00 á
Hvanneyri
III: 4. apr. kl. 9:00-15:00 hjá LbhÍ
á Reykjum, Ölfusi
Verð: kr. 12.000
Heimavinnsla mjólkurafurða
- Skref 1. Almenn kynning
Kennari: Þórarinn Egill
Sveinsson mjólkurverkfræðingur
Tími: 5. mars, kl. 13:00-16:00 í
Sveinbjarnargerði í Eyjafirði.
Verð: kr. 4.000
Umhirða opinna svæða II
Kennarar: Kristinn H.
Þorsteinsson garðyrkjufræðingur
og Magnús Bjarklind
skrúðgarðyrkjumeistari
Tími: 6. mars, kl. 9:00–15:45 hjá
LbhÍ Reykjum Ölfusi
Verð: kr. 13.000
Svalir og sjálfbærni
Í samstarfi við Garðyrkjufélag
Íslands og Græna geirann
Kennarar: Guðríður Helgadóttir
forstöðumaður LbhÍ Reykjum, G.
Brynja Bárðardóttir brautarstjóri
LbhÍ og Hafsteinn Hafliðason
garðyrkjufræðingur
Tími: 7. mars, kl. 9:00-15:00 hjá
LbhÍ á Reykjum, Ölfusi
Verð: kr. 12.000
Trjá- og runnaklippingar I
Kennari: Einar
Friðrik Brynjarsson
skrúðgarðyrkjumeistari
Tími: 7. mars, kl. 9:00-15:45 hjá
LbhÍ á Reykjum, Ölfusi
Verð: kr. 12.000
Trjá- og runnaklippingar II
Kennari: Þorkell Gunnarsson
skrúðgarðyrkjumeistari
Lystigörðum
Tími: 9. mars, kl. 9:00-15:45 hjá
LbhÍ á Reykjum, Ölfusi
Verð: kr. 12.000
Fóðrun og uppeldi kvígna
Kennarar: Grétar Hrafn
Harðarson lektor við LbhÍ og
Jóhannes Sveinbjörnsson
dósent hjá LbhÍ
Tími: 10. mars kl. 10:00-16:00 á
Sauðárkróki í Skagafirði
Verð: kr. 15.500
Grunnnámskeið í
blómaskreytingum
Kennari: Guðrún Brynja
Bárðardóttir brautarstjóri LbhÍ
Tími: 19.-20. mars, kl. 9:00-16:00
á Reykjum, Ölfusi
Verð: kr. 25.900
Umhirða grassvæða
golf- og knattspyrnuvellir
Kennarar: Einar
Friðrik Brynjarsson
og Magnús Bjarklind
skrúðgarðyrkjumeistarar og
garðyrkjutæknar
Tími: 20. mars, kl. 9:00–15:45 hjá
LbhÍ á Reykjum Ölfusi
Verð: kr. 13.000
Þjálfun keppnis-
og sýningahrossa -
sýnikennsla
Kennari: Jakob Sigurðsson
reiðkennari
Tími: 20. mars, kl. 17:00-19:00,
21. og 22. mars, kl. 9:00-17:00 á
Mið-Fossum í Borgarfirði
Verð: kr. 6.000
Ræktum okkar eigin ber
Í samstarfi við Garðyrkjufélag
Íslands, Reykjavíkur- og
Akureyrardeild og Græna geirann
Kennarar: Guðríður Helgadóttir
forstöðumaður LbhÍ Reykjum,
Jón Kr. Arnarson verkefnisstjóri
LbhÍ og Helgi Þórsson
umhverfisfræðingur
Tími: Boðið verður upp á tvö
námskeið:
I: 21. mars, kl. 9:00-15:00 hjá
LbhÍ á Reykjum, Ölfusi
II: 28. mars, kl. 9:00-15:00 í
Búgarði á Akureyri
Verð: kr. 12.000
Notkun varnarefna
í landbúnaði
og garðyrkju
Kennarar: Ýmsir sérfræðingar á
viðkomandi sviðum.
Tími: 23.- 24. mars kl. 9:00-16:00
hjá LbhÍ í Reykjavík
Verð: kr. 36.500
Ræktun matjurta í
heimagróðurhúsum
Í samstarfi við Garðyrkjufélag
Íslands og Græna geirann
Kennarar: Hafsteinn Hafliðason
garðyrkjufræðingur, Edda
Þorvaldsdóttir ræktandi
og Ingólfur Guðnason
garðyrkjufræðingur Engi
Tími: 28. mars, kl. 9:00-15:00 hjá
LbhÍ á Reykjum, Ölfusi
Verð: kr. 12.000
Allar nánari upplýsingar má finna á www.lbhi.is/namskeid
Skráning fer fram á endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000
Námskeið
fyrir þig!
Gerum góða
gistingu betri
– gæðaátak hjá Ferða-
þjónustu bænda
Á síðasta ári réðst Ferðaþjónusta
bænda í þriggja ára verkefni
á sviði gæðamála í samstarfi
við fyrirtækið Better Business.
Markmið verkefnisins er að gera
stöðumat á aðbúnaði og þjónustu
hjá félögum innan Ferðaþjónustu
bænda út frá sjónarhorni gesta,
þrjú ár í röð. Um er að ræða
svokallaðar hulduheimsóknir
sem geta gefið okkur verðmætar
upplýsingar sem miða að því að
styrkja stöðu samtakanna á sviði
gæðamála og auka samkeppn-
ishæfni félagsmanna.
Alls tóku 22 félagar í Ferða-
þjón ustu bænda þátt í verkefninu
síðastliðið sumar og voru niður-
stöðurnar kynntar á Uppskeruhátíð
ferðaþjónustubænda sem haldin
var í nóvember síðastliðinn. Það
var mjög fróðlegt að sjá umsagnir
gesta og einkunnargjöf þeirra fyrir
einstaka þætti en þar var bæði að
finna hrós og ábendingar um það
sem betur mátti fara.
Fimm bæjum voru veitt sérstök
viðurkenningarskjöl fyrir góðan
árangur en þeir fengu heildar-
einkunn yfir 8,5 og telst það vera
mjög vel af sér vikið. Þessir bæir
eru Heydalur í Mjóafirði, Engimýri
í Öxnadal, Brunnhóll á Mýrum,
Hótel Hellnar á Snæfellsnesi og
Smyrlabjörg í Suðursveit. Þessi
frammistaða mun eflaust hvetja
rekstraraðilana áfram við að halda
áfram á sömu braut og verða öðrum
hvatning til að gera betur.
Annað verkefni sem var í gangi
á síðasta ári miðað að því að fjölga
umhverfisvottuðum fyrirtækj-
um innan Ferðaþjónustu bænda.
Árangur þess hefur verið að koma
í ljós undanfarna mánuði því nú
hefur Green Globe vottuðum fyr-
irtækjum á vegum Ferðaþjónustu
bænda fjölgað úr þremur í sjö, auk
þess sem eitt fyrirtæki til viðbótar
uppfyllir viðmið Green Globe og
bíður nú eftir staðfestingu um vott-
un. Í dag eru eftirfarandi fyrirtæki
Green Globe vottuð: Hótel Hellnar,
Hótel Anna, Brunnhóll á Mýrum,
Ferðaþjónustan Hjalli í Kjós,
Heydalur í Mjóafirði, Gauksmýri í
Húnaþingi auk þess sem skrifstofa
Ferðaþjónusta bænda er einnig
vottuð. Það er svo Geirland á Síðu
sem bíður eftir að fá staðfestingu á
vottun.
ehg
Hjónin Sigurbjörn og Laufey frá
Smyrlabjörgum taka við viðurkenn-
ingu frá Bjarna hjá Better Business
og Berglindi hjá Ferðaþjónustu
bænda.