Bændablaðið - 22.04.2009, Side 15
15 Bændablaðið | miðvikudagur 22. apríl 2009
Kosningar 2009
BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 22. APRÍL 2009
Kosningar til Alþingis fara fram 25. apríl næstkomandi
við all undarlegar aðstæður. Eftir hrun bankanna síð-
astliðið haust hefur umræðan í þjóðfélaginu tekið all
miklum stakkaskiptum. Í stað þess að fjölmiðlar séu
undirlagðir af fréttum um gengi hlutabréfa, stórveislur
viðskiptajöfra og kaup á fasteignum í Danmörku hefur
Auðlindin verið endurvakin hjá Ríkisútvarpinu og
fjölmiðlar fjalla um prjónaskap og matjurtarækt í viku
hverri. Bændur greina velvilja í þjóðfélaginu og krafan
um íslenska framleiðslu er hávær. Þrátt fyrir erfiðleika
í landbúnaði vegna þröngrar fjárhagsstöðu og hærra
verðs á aðföngum er ljóst að ef bændum tekst að kljúfa
erfiðleikana gætu verið mikil sóknarfæri falin í auknum
áhuga almennings á innlendri búvöru þegar til fram-
tíðar er litið. Sömuleiðis virðist áhugi stjórnmálamanna
hafa aukist á málaflokknum.
Bændablaðið hafði samband við formenn stjórnmála-
flokkanna og lagði fyrir þá fjórar spurningar tengdar
íslenskum landbúnaði. Hvorki Borgarahreyfingin né Lýð-
ræðishreyfingin hafa formenn innan sinna raða og svara
þær hreyfingar því ekki að þessu sinni. Spurningarnar
voru jafnframt sendar Frjálslynda flokknum og ítrekað ýtt
á eftir svörum frá formanni flokksins en þau bárust ekki.
Formenn hinna flokkanna fjögurra, Framsóknarflokks,
Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Vinsti grænna svöruðu
spurningunum svo sem sjá má.
Jóhanna ein á báti í ESB málum
Ljóst er að velvilja gætir í garð íslensks landbúnaðar hjá for-
mönnunum fjórum og greina má samhljóm með þeirra skoð-
unum og stefnu Bændasamtaka Íslands í veigamiklum atrið-
um. Þó ber að nefna að Jóhanna Sigurðardóttir formaður
Samfylkingarinnar telur að Ísland eigi að sækja um aðild að
Evrópusambandinu og er sú skoðun í samræmi við stefnu
flokksins. Jóhanna nefnir í svari sínu að íslenskur landbún-
aður geti átt margvísleg tækifæri með inngöngu í sambandið
og leggur áherslu á að í viðræðum við Evrópusambandið þurfi
sérstaklega að gæta að hagsmunum landbúnaðarins. Þessi
skoðun Jóhönnu og Samfylkingarinnar er í beinni andstöðu
við stefnu Bændasamtakanna sem lagst hafa einörð gegn aðild
að Evrópusambandinu. Formenn hinna flokkanna virðast ekki
á sama máli og Jóhanna, altént má ekki greina slíkt í svörum
þeirra og Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins
virðist beinlínis vara við slíkum áformum í svari sínu.
Formennirnir nefna allir, utan Jóhanna, fæðuöryggi þjóð-
arinnar í svörum sínum og ljóst virðist að þeir eru sér meðvit-
aðir um mikilvægi þess að búvöruframleiðsla verði tryggð hér
á landi til framtíðar í því skyni að tryggja það öryggi. Þá virð-
ast formennirnir jafnframt mjög meðvitaðir um mikilvægi
íslensks landbúnaðar fyrir byggðir landsins, menningu og
sjálfsmynd. Sjá svör formannanna á blaðsíðu 18.
Formennirnir jákvæðir í garð íslensks landbúnaðar
18 »
Evrópusambandið, ástandið í þjóðfélag-
inu, efnahagsástandið, atvinnuleysið,
skuldsetning bænda, matvælafrum-
varpið, fákeppni í smásölu, jökla-
bréf og nýsköpun í landbúnaði var
meðal þess sem fundargestum var
efst í huga á fjórum kosningafund-
um sem Bændasamtök Íslands efndu
til fimmtudagskvöldið 16. apríl sl.
Fundirnir voru á Selfossi, í Hlégarði í
Mosfellsbæ, Borgarnesi og á Akureyri
og þá sóttu alls vel á fjórða hundr-
að manns. Umræður voru líflegar og
stóðu alls staðar fram undir eða fram
yfir miðnætti.
Skipulag fundanna var með
þeim hætti að fyrst hélt fulltrúi
Bændasamtakanna stutt erindi um
stöðu íslensks landbúnaðar og við-
horf samtakanna til kosningabarátt-
unnar en síðan héldu fulltrúar þeirra
flokka og hreyfinga sem bjóða fram
til Alþingis stuttar ræður þar sem þeir
gerðu grein fyrir afstöðu sinni til mál-
efna landbúnaðarins. Í lokin voru svo
fyrirspurnir og almennar umræður.
Ef marka má þessa fundi skort-
ir ekkert á áhuga bænda og ann-
arra íbúa dreifbýlisins á pólitík.
Frambjóðendurnir voru spurðir grimmt
um afstöðu sína til hagsmunamála
bænda og margir gátu ekki hamið sig
heldur héldu ræðu þegar þeir áttu að
bera fram fyrirspurn. Mál manna var að
svona fundir væru af hinu góða, enda
sjaldgæft orðið að fulltrúar flokkanna
leiði saman hesta sína á almennum
fundum í kosningabaráttunni.
Niðri í vinstra horni eru myndir frá
Selfossi þar fyrir ofan úr Borgarnesi,
uppi í hægra horni frá Akureyri og þar
fyrir neðan úr Mosfellsbæ.
Fjörugir fundir
með
frambjóðendum