Bændablaðið - 22.04.2009, Qupperneq 18
BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 22. APRÍL 2009 18 KOSNINGAR 2009
1. Hvaða reynslu hefur þú af
íslenskum landbúnaði?
Ég hef því miður ekki mikla
beina reynslu af íslenskum land-
búnaði en ég hef áhuga á að safna
í þann reynslubanka. Ég hef aftur
á móti mikið yndi af hvers konar
útivist og reyni að fara í göngur og
renna fyrir fiski þegar ég get. Við
búum í fallegu og mikilfenglegu
landi og það eru mikil forréttindi að
fá að njóta þess með ferðalögum og
útiveru.
2. Hversu miklu máli skipt-
ir landbúnaður fyrir íslenskt
atvinnu- og þjóðlíf að þínu mati?
Það er engin tilviljun að land-
búnaður sé flokkaður sem önnur af
undirstöðuatvinnugreinum Íslands.
Landbúnaður tryggir matvæla-
öryggi Íslands og að landið hald-
ist í byggð og ef hrunið frá því í
fyrra hefur kennt okkur eitthvað,
þá er það trúlega sú lexía að sam-
hliða allskonar skýjaborgum í fjár-
málaheiminum er brýnt að tryggja
undirstöðuatvinnugreinar lands-
ins. Landbúnaðurinn er þar að
auki órjúfanlegur hluti af sjálfs-
mynd íslensku þjóðarinnar.
3. Hvaða málefni íslensks
landbúnaðar munu skipta mestu
máli á komandi árum?
Það verður að tryggja að
landbúnaður verði áfram
öflugur og gróskumikill.
Sjálfstæðisflokkurinn vill skapa
íslenskum landbúnaði það starfs-
umhverfi að hann geti séð íslensk-
um neytendum fyrir hollum og
öruggum búvörum á hagstæð-
um kjörum. Við þær aðstæður
sem landbúnaðurinn stendur nú
frammi fyrir, þarf að huga að
ýmsum möguleikum til að tryggja
næga matvælaframleiðslu í land-
inu. Létta þarf greiðslubyrði lána
og tryggja eðlilega bankafyr-
irgreiðslu fyrir landbúnaðinn sem
og aðrar atvinnugreinar.
Við sjálfstæðismenn hvetj-
um til þess að þegar verði hafinn
undirbúningur að heildstæðum
samningi við bændur um fæðu- og
matvælaöryggi þjóðarinnar. Við
viljum að kvótakerfið verði lagt af
í áföngum og að hugað verið sér-
staklega að nýliðun í landbúnaði.
4. Telur þú að íslenskur land-
búnaður skipti meira máli í
þessum kosningum en í undan-
förnum kosningum?
Íslenskur landbúnaður skipt-
ir miklu máli í öllum kosning-
um. Þannig hefur það verið og
þannig mun það verða áfram.
Vægi atvinnugreina hér á landi
hefur hins vegar breyst mikið í
kjölfar bankahrunsins í október
sl. og ljóst að bæði landbúnaður
og sjávarútvegur hafa hlutfalls-
ega meira vægi á næstu árum en
undanfarin ár. Við viljum hlúa
að þessum greinum á meðan það
virðist vera stefna stjórnarflokk-
anna að setja þessar greinar á
hliðina. Samfylkingin vill fara
inn í ESB og sér það sem töfra-
lausn við okkar vanda en afstaða
Bændasamtakanna til þess máls
er vel þekkt. Að sama skapi virð-
ast stjórnarflokkarnir ákveðnir í að
ganga milli bols og höfuðs á sjávar-
útveginum, í fyrsta lagi með því að
fyrna aflaheimildir með tilheyrandi
erfiðleikum fyrir útgerðirnar, sem
myndu trúlega fara á hliðina og í
öðru lagi með því að afhenda yfir-
ráðin yfir auðlindum landsins til
ESB, eins og Samfylkingin hefur
boðað.
1. Hvaða reynslu hefur þú af
íslenskum landbúnaði?
Eins og flestir á mínum aldri
hafði ég í æsku talsverð tengsl
við sveitina enda mörg ættmenni
bændur og búalið. Undanfarin ár
hefur reynslan hins vegar fyrst og
fremst verið reynsla neytandans.
Íslenskar landbúnaðarafurðir, ekki
síst lambakjötið, eru þær bestu
sem ég hef bragðað og hef ég þó
ferðast víða. Ég er því afar ánægð
sem neytandi íslenskra landbún-
aðarvara og trúi ekki öðru en að í
gæðum þeirra liggi sóknarfæri fyrir
íslenskan landbúnað.
2. Hversu miklu máli skipt-
ir landbúnaður fyrir íslenskt
atvinnu- og þjóðlíf að þínu mati?
Landbúnaðurinn skiptir miklu
fyrir bæði atvinnu- og þjóðlíf enda
undirstöðuatvinnugrein á stórum
landsvæðum og forsenda byggðar.
Tengsl landbúnaðarins við bæði
umhverfismál og greinar á borð við
ferðaþjónustu fara vaxandi.
3. Hvaða málefni íslensks
landbúnaðar munu skipta mestu
máli á komandi árum?
Þau málefni sem verða í deigl-
unni varða fyrirkomulag grein-
arinnar, samkeppnisstöðu og
sóknarfæri vegna þeirra breytinga
sem fyrirsjáanlegar eru á starfs-
umhverfi hennar, einkum vegna
skuldbindinga okkar í tengslum
við nýja alþjóðasamninga sem nú
eru á lokastigi en líka vegna auk-
inna áherslna á græna hagkerfið og
umhverfisvitundar neytenda.
Allt styrkjakerfi landbúnaðar-
ins gæti tekið miklum breytingum.
Samfylkingin telur nauðsynlegt að
láta á það reyna í aðildarviðræðum
við Evrópusambandið hvort ekki
takist að tryggja íslenskum land-
búnaði betra skjól og sóknarfæri
innan sambandsins en utan þegar
þessar breytingar verða. Í því sam-
bandi höfum við m.a. horft til þeirra
ákvæða sem Finnar sömdu um og
þess víðtæka og mikla stuðnings
við hinar dreifðu byggðir sem ESB
hefur lagt áherslu á.
Þá getur hagstæður aðildarsamn-
ingur líka skapað íslenskum land-
búnaði sóknarfæri með sína vist-
vænu gæðavöru sem fengi hindr-
unarlausan aðgang að risamarkaði
Evrópusambandsins. Í því sam-
bandi mun græn atvinnustefna og
umhverfisvottun skipta miklu máli.
En besta leiðin til að meta stöð-
una er að ná aðildarsamningi og
leggja hann fyrir.
4. Telur þú að íslenskur land-
búnaður skipti meira máli í þess-
um kosningum en í undanförnum
kosningum?
Já tvímælalaust vegna þess að
í þessum kosningum þarf að svara
grundvallarspurningum á borð við
umsókn um aðild að ESB og upp-
töku evru. Í viðræðunum um aðild-
arsamning verður staða og stuðn-
ingur við öflugan íslenskan land-
búnað afar þýðingarmikið atriði.
Samfylkingin hefur lagt áherslu
á sóknarstefnu fyrir landbúnaðinn
með framþróun og nýsköpun í anda
sjálfbærrar þróunar. Sóknarfæri
íslensks landbúnaðar felast ekki
síst í fullvinnslu afurða og mark-
aðssókn innanlands og utan, og í
auknu frelsi bænda til heimafram-
leiðslu, vöruþróunar og heimasölu
án þess að slakað sé á kröfum um
gæði afurða.
Í allri umræðu um landbúnaðinn
má heldur aldrei gleymast að hann
er alvöru atvinnugrein og undir-
staða matvælaiðnaðarins í landinu.
Greinin í heild á því ekki minna
undir því en aðrar atvinnugreinar
að hér skapist stöðugleiki í geng-
ismálum og forsendur fyrir lægri
vöxtum og lægri kostnaði vegna
allra aðfanga. Skýr framtíðarsýn í
peningamálum á borð við upptöku
evru er því líka hagsmunamál þess-
arar atvinnugreinar vilji menn geta
nýtt sóknarfærin, gert áætlanir og
byggt upp til framtíðar.
1. Hvaða reynslu hefur þú af
íslenskum landbúnaði?
Ég var um skeið nokkuð tíður
gestur hjá frændfólki mínu á Ósi
við Steingrímsfjörð en þar kynnt-
ist ég hefðbundnum sveitastörfum
eins og þau voru á þeim tíma.
2. Hversu miklu máli skipt-
ir landbúnaður fyrir íslenskt
atvinnu- og þjóðlíf að þínu
mati?
Landbúnaðurinn gegnir lyk-
ilhlutverki í því að tryggja fæðu-
öryggi þjóðarinnar. Því skiptir
öllu máli að hann og önnur mat-
vælaframleiðsla í landinu eflist.
Landbúnaðurinn skiptir auk þess
miklu máli fyrir byggðir landsins
og mikilvægi hans við að tryggja
búsetu og umhirðu lands er gríð-
arlegt.
3. Hvaða málefni íslensks
landbúnaðar munu skipta
mestu máli á komandi árum?
Það mun skipta mestu að við
náum að festa í sessi, efla og
styrkja þá framleiðslu sem fyrir
er í landinu til að tryggja fæðuör-
yggi, sbr. svör við spurningum tvö
og fjögur. Jafnframt að þau 10.000
störf sem tengjast greininni, beint
og óbeint, verði áfram í landinu.
Með þessu sparast mikill gjaldeyr-
ir og má að vissu leyti halda því
fram að kreppan hafi sýnt mönn-
um að íslenskur landbúnaður er í
raun, „gjaldeyrisvarasjóður“. Á
síðasta ári fluttum við inn mat- og
drykkjarvörur fyrir 40 milljarða
króna og ef við getum lækkað þá
tölu mun það styrkja efnahaginn
og skapa fleiri störf.
4. Telur þú að íslenskur land-
búnaður skipti meira máli í
þessum kosningum en í undan-
förnum kosningum?
Já. Áföllin undanfarið hafa
opnað augu margra fyrir mik-
ilvægi innlendrar matvælafram-
leiðslu. Það er ekki gefið mál að
við getum alltaf flutt inn allt það
sem okkur lystir. Fæðuöryggi
þjóðarinnar getur fyrirvaralítið
verið ógnað og því þurfum við að
gera skipulega úttekt á því hvern-
ig við ætlum að bregðast við komi
slíkar aðstæður upp. Í raun ætti
að vera til sérstök viðbragðsáætl-
un ef fæðuöryggi þjóðarinnar er
ógnað. Þar mun innlendur land-
búnaður skipta miklu máli.
1. Hvaða reynslu hefur þú af
íslenskum landbúnaði?
Ég er fæddur og uppalinn í sveit
og hef unnið og tengst landbúnaði
allt mitt líf. Hann er stór hluti af lífi
mínu, mínum bakgrunni og mínu
menningarlega og félagslega upp-
eldi, eins og best sést af því að á
góðum degi svara ég því gjarnan,
aðspurður um hver ég sé, að ég sé
bóndasonur að norðan.
2. Hversu miklu máli skipt-
ir landbúnaður fyrir íslenskt
atvinnu- og þjóðlíf að þínu
mati?
Íslenskur landbúnaður og mat-
vælaiðnaður og önnur starfsemi
honum tengd eru ein af mikilvæg-
ustu kjölfestum íslensks atvinnu-
lífs og íslensks samfélags. Staða
landbúnaðarins nær langt út fyrir
þau tíu þúsund ársverk, eða svo,
sem honum tengjast, því land-
búnaðurinn er stór í þjóðarvitund
Íslendinga, í menningararfi þeirra
og allri upplifun. Þó að þjóðhags-
leg stærð landbúnaðarins hafi
farið minnkandi á undanförnum
áratugum hefur það ekki breytt
þessari stöðu hans að neinu marki.
Flestir Íslendingar eiga ættir sínar
að rekja til sveitanna, og þær rætur
eru enn sterkar. Á síðustu miss-
erum má segja að staða landbún-
aðarins hafi tekið umtalsverðum
breytingum á nýjan leik, og þjóðin
er í dag miklu meðvitaðri um gildi
þess að eiga sína eigin matvæla-
framleiðslu og tryggan aðgang
að hollri hágæðavöru á viðsjár-
verðum tímum í alþjóðamálum.
Hugtök eins og fæðuöryggi hafa
öðlast nýtt gildi og umræða um
landbúnaðarmál er gjörbreytt á
nýjan leik. Á margan hátt hefur
landbúnaðurinn styrkt stöðu sína
að þessu leyti, og minnir staðan
nú sumpart á það sem var eftir að
landbúnaðurinn var í lykilhlut-
verki við gerð þjóðarsáttasamn-
inganna á sínum tíma árið 1990.
3. Hvaða málefni íslensks
landbúnaðar munu skipta mestu
máli á komandi árum?
Að mínu mati munu hlutir eins
og fæðuöryggi, gæði, hollusta
og heilnæmi framleiðslu, tengsl
landbúnaðarins við menningar-
og matvælaferðaþjónustu, þróun
fæðumála í heiminum og vaxandi
meðvitund um algjöra lykilstöðu
fæðuöryggis og matvælafram-
leiðslu á komandi áratugum hafa
umtalsverð áhrif á stöðu íslensks
landbúnaðar. Möguleikar landbún-
aðarins til að sækja fram í formi
aukinnar framleiðslu, í formi þess
að vera meira sjálfum sér nægur
um eigin aðföng, svo sem eins og
korn, mögulegan áburð, og annað,
verða einnig mikilvæg mál. Þróun
lífræns búskapar og lífrænnar
ræktunar á komandi árum skiptir
einnig miklu, auknar skógarnytjar
og fleira mætti nefna, sem er allt
meðal brýnna og mikilvægra mál-
efna landbúnaðarins til framtíðar
litið. Að sjálfsögðu skiptir sjálf
grundvallarstefnan, starfsskil-
yrði og umgjörð landbúnaðarins
miklu, og þar á meðal og ekki síst,
að hann þróist í átt að grundvallar
leikreglum sjálfbærrar þróunar og
nýliðun í greininni verði tryggð.
4. Telur þú að íslenskur land-
búnaður skipti meira máli í
þessum kosningum en í undan-
förnum kosningum?
Já, tvímælalaust hefur land-
búnaðurinn komið með auknum
þunga inn í stjórnmálaumræðuna
á síðustu mánuðum og misserum.
Samtök bænda hafa með mynd-
ugum hætti komið landbúnaðin-
um á framfæri og gæta hagsmuna
hans af festu, t.d. í sambandi við
Evrópusambandsmál. Það hefur
ekki farið fram hjá neinum að
málefni landbúnaðarins hafa verið
meira til umfjöllunar en þau hafa
verið oft áður, og það á ekki síst
við nú, í aðdraganda kosninganna.
Á landsfundi Vinstri grænna hefur
sennilega enginn einn málaflokk-
ur, og alveg örugglega engin
ein atvinnugrein jafnoft borið á
góma í ræðustóli eins og landbún-
aðurinn. Það er til marks um þann
áhuga sem er á málefnum hans,
að minnsta kosti í okkar röðum. Í
það heila tekið er ég því bjartsýnn
á framtíð íslensks landbúnaðar,
þrátt fyrir ýmsa erfiðleika sem við
er að kljást, bæði innan greinarinn-
ar sjálfrar, svo ekki sé nú talað um,
hjá okkur Íslendingum almennt.
Svör Jóhönnu Sigurðardóttur,
formanns Samfylkingarinnar.
Svör Bjarna Benediktssonar,
formanns Sjálfstæðisflokksins.
Svör Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar, formanns Fram-
sóknarflokksins.
Svör Steingríms J. Sigfússonar,
formanns Vinstri grænna.