Bændablaðið - 22.04.2009, Side 22
22 Bændablaðið | miðvikudagur 22. apríl 2009
Á markaði
Erna Bjarnadóttir
hagfræðingur Bændasamtaka
Íslands
eb@bondi.is
Verðlagsmál
Weckman
sturtuvagnar
6,5 tonn. 10 tonn.
12 tonn. 14 tonn.
17 tonn.
12 tonna flatvagnar
Grjót- malarvagnar með
föstum skjólborðum
12 tonn. - 16 tonn.
H. Hauksson ehf
Suðurlandsbraut 48
Sími: 588 1130
Fax: 588 1131
Yfirlit um framleiðslu og sölu ýmissa búvara
Bráðabirgðatölur fyrir mars 2009
Framleiðsla
mar.09
2009
jan.09
mar.09
apr.08
mar.09
Breyting frá fyrra tímabili, % Hlutdeild %
m.v. 12 mán.mars '08 3 mán. 12 mán.
Alifuglakjöt 659.510 1.781.510 7.235.642 8,7 -8,5 -6,3 26,2%
Hrossakjöt 48.422 280.632 1.040.814 40,0 14,5 7,6 3,8%
Nautakjöt 318.294 956.715 3.657.525 27,4 5,6 1,1 13,2%
Sauðfé * 36.894 36.894 8.895.817 -48,2 -48,2 2,9 32,2%
Svínakjöt 639.702 1.666.073 6.807.210 28,3 10,8 12,0 24,6%
Samtals kjöt 1.702.822 4.721.824 27.637.008 16,6 1,0 2,2
Innvegin mjólk
Sala innanlands
Alifuglakjöt 638.669 1.742.917 7.200.527 6,6 -11,0 -5,4 28,3%
Hrossakjöt 42.815 187.100 696.676 15,3 11,7 7,9 2,7%
Nautakjöt 322.853 951.885 3.676.182 19,1 7,1 1,8 14,4%
Sauðfé ** 512.597 1.287.518 7.060.678 31,4 -24,6 2,6 27,7%
Svínakjöt 644.001 1.666.539 6.827.885 33,6 12,0 12,5 26,8%
Samtals kjöt 2.160.935 5.835.959 25.461.948 21,4 -6,0 2,6
Sala á próteingrunni
Sala á fitugrunni
* Sauðfé lagt inn samkv. útflutningsskyldu sem flutt skal á erlenda markaði er meðtalið í framangreindri framleiðslu.
** Sala á sauðfé p.r. mánuð er sala frá afurðastöðum til kjötvinnsla og verslana.
Afkoma danskra bænda breyttist mjög til hins verra á síðari hluta
ársins 2008. Afurðaverð, einkum á korni og mjólk, lækkaði gríðarlega
frá því sem gerðist í árslok 2007. Aðfangaverð hefur hins vegar ekki
lækkað að sama skapi og afkoma bænda því versnað stórlega eins og
kemur fram á mynd 1.
Mikil kornuppskera og óvissa á fjármálamörkuðum stuðlaði að mikilli
lækkun kornverðs sl. haust. Í maí 2008 var verð á hveiti á Kaupmanna-
hafnarmarkaði 175 DKK/100 kg en í mars 2009 var það 80 DKK/100 kg.
Nýjustu spár Dansk landbrug áætla að verð á fóðurkorni verði á milli 90
og 100 DKK/100 kg árin 2009 og 2010. Spáð er minni uppskeru haustið
2009 innan ESB og á heimsvísu, sem mun væntanlega leiða til eitthvað
hærra kornverðs.
Mikill þrýstingur á mjólkurverð 2009
Heimsmarkaðsverð á mjólk lækkaði mikið á árinu 2008, sjá meðfylgjandi
mynd. Áætlað er að verðlækkun til framleiðenda í Danmörku muni nema
66 aurum og verðið verði 2,09 DKK/kg. Efnahagskreppan í heiminum
hefur dregið verulega úr eftirspurn eftir mjólkurvörum og neysla fylgir
ekki aukinni framleiðslu eftir, sem er afleiðing fyrri verðhækkana. Búist
er við að meiri jafnvægi komist á milli framleiðslu og eftirspurnar á síðari
hluta ársins 2009 og efnahagsstaðan leiði líka til samdráttar í framboði.
Því er búist við að mjólkurverð hækki á ný á árinu 2010.
Svínakjötsverð hækkar vart fyrr en á árinu 2010
Efnahagskreppan í heiminum hefur haft áhrif á eftirspurn eftir svínakjöti
líkt og mjólk. Lágt gegni sænsku krónunnar og breska pundsins heldur
einnig niðri kjötverði til danskra svínabænda. Samdráttur er í svínakjöts-
framleiðslu víða í heiminum en því er spáð að áhrifa þessa í verði til fram-
leiðenda taki ekki að gæta verulega fyrr en á árinu 2010.
Aðfangaverð
Dansk landbrug spáir í þróun verðs á helstu aðföngum árin 2009 og 2010:
Í ljósi framangreinds spáir Dansk landbrug að taprekstur verði á mjólk-
urframleiðslu í Danmörku árið 2009 en viðsnúningur verði á rekstri svína-
búa eftir mikinn taprekstur árið 2008 og reyndar undanfarin ár.
Unnið upp úr Landbrugets økonomi 2009-2010, útg. Dansk landbrug: http://www.
dansklandbrug.dk/Publikationer/Statistik_Okonomi/Statistik_okonomi.htm
Áætlaðar verðbreytingar 2008-2010, 2008 = 100, verðþróun í dönskum
krónum
2008 2009 2010
Tilbúinn áburður 100 97 64
Úðunarefni 100 100 100
Eldsneyti 100 69 73
Rafmagnskostnaður 100 98 96
Verð pr. 100 kg, danskar krónur
C-blanda fyrir mjólkurkýr 215 180 154
Heilfóður fyrir svín 207 163 146
Staða og horfur í dönskum
landbúnaði 2009-2010
Aðfangaverð
Afurðaverð
Raungengi landbúnaðarins
Mynd 1. Bláa línan sýnir þróun aðfangaverðs í dönskum landbúnaði sl. 9 ár
sem vísitölu þar sem aðfangaverð í janúar 2000 er jafnt og 100. Línan sýnir að
aðfangaverð hefur hækkað um 40% á tímabilinu. Græna línan sýnir á sama
hátt þróun afurðaverðs, sem er mun sveiflukenndara og hefur jafnframt lækkað
mun meira en aðfangaverð sl. 6-8 mánuði. Fjólubláa línan sýnir síðan verðlag
framleiðsluvara landbúnaðarins sem hlutfall af verði aðfanga, m.ö.o. einskonar
raungengi landbúnaðar. Af myndinni má þannig lesa samfellda þróun versnandi
afkomu í dönskum landbúnaði frá miðju ári 2002.
Undanrennuduft
Ostur
Smjör
Mynd 2. Heimsmarkaðsverð á mjólkurafurðum, DKR/kg. Myndin sýnir þróun
heimsmarkaðsverðs á osti (bláa línan), smjöri (fjólubláa línan) og undanrennu-
dufti (græna línan), frá janúar 2005 til janúar 2009. Eftir miklar verðhækkanir um
mitt ár 2007 hefur verð lækkað hratt á ný. Í janúar 2009 var heimsmarkaðsverð
á öllum þrem vörutegundunum lægra, í dönskum krónum, en það var í janúar
2005.
Innflutt kjöt
Tímabil janúar - febrúar Árið 2009 Árið 2008
Alifuglakjöt 52.320 112.607
Nautakjöt 22.046 30.630
Svínakjöt 7.102 68.362
Aðrar kjötvörur af áðurtöldu 10.413 1.540
Samtals 91.881 213.139
Framleiðsla og sala
búvara í mars
Framleiðsla á kjöti í mars var 16,6% meiri en í mars
2008. Í magni talið jókst framleiðsla svínakjöts mest,
um 28,3% eða 141 tonn. Framleiðsla nautakjöts jókst
um 27,4% og hrossakjöts um 40%. Síðastliðna tólf
mánuði hefur fram-
leiðsla á kjöti aukist
um 2,2%
Sala á kjöti í mars
var mun meiri en á
sama tíma í fyrra eða
21,4% aukning. Sala
jókst á öllum kjöt-
tegundum. Síðustu
12 mánuði hefur sala
á kjöti aukist um
2,6%.