Bændablaðið - 22.04.2009, Qupperneq 23
23 Bændablaðið | miðvikudagur 22. apríl 2009
Lesið í náttúruna
– nám í skógfræði og landgræðslu
Í skógfræði og landgræðslu tengjast náttúruvísindi, skóg-
fræði, landgræðsla, landslagsfræði og rekstrar-fræði. Námið
veitir traustan vísindalegan grunn og undirbúning fyrir marg-
vísleg störf. Hluti náms byggist á valgreinum þar sem hægt
er að efl a þekkingu á þeim sviðum sem þykja áhugaverðust.
LbhÍ býður háskólamenntun til BS- og MS-gráðu.
Kynntu þér nám í skógfræði og landgræðslu
á heimasíðu skólans: www.lbhi.is
U
M
H
V
E
R
F
IS
D
E
IL
D
P
L
Á
N
E
T
A
N
Laugardaginn 11. apríl sl. dró til
tíðinda í Kjósinni þegar bændurn-
ir að Hálsi hófu verslunarrekstur
á bænum þar sem ætlunin er að
selja afurðir beint til neytenda. Að
Hálsi er rekið félagsbú þar sem
nautgriparækt er í fyrirrúmi en
að auki er stunduð verktaka, jarð-
vegssala og ýmiss konar heima-
framleiðsla. Á búinu eru eingöngu
holdakýr og allir gripir flokkast
því í úrvalsflokk.
Góðar upplýsingar
Kýrnar eru flestar af Galloway-
kyni en einnig eru nokkrar bland-
aðar Aberdeen Angus. Kjöt frá
nágrannabænum Sogni er einnig til
sölu í versluninni, en þar eru sams-
konar nautgripir.
Verslunin að Hálsi verður að telj-
ast afar neytendavæn. Nákvæmar
upplýsingar um kjötið og framleiðsl-
una eru aðgengilegar í versluninni, í
bæklingum og á upplýsingaspjaldi,
sem auðveldar neytendum að átta sig
á mismunandi eiginleikum kjötsins
á nautaskrokknum. Er enda geng-
ið alla leið í vöruframboði þar sem
nánast allar afurðir nautaskrokksins
verða í boði; vöðvarnir og beinas-
teikur, gúllas og hakk, auk þess sem
séróskum um nautatungu, uxahala
og mergbein er mætt með svolitlum
afgreiðslufresti.
Úr mjólkurframleiðslu í
kjötframleiðslu
Tvær fjölskyldur standa að félags-
búinu að Hálsi; Jón Gíslason og
Sólrún Þórarinsdóttir annars vegar
og sonur þeirra Þórarinn Jónsson og
kona hans Lisa Boije hins vegar.
Þórarinn segir að árið 1998 hafi
faðir hans fært sig úr mjólkurfram-
leiðslu yfir í kjötframleiðslu. „Strax
upp úr því fór hann að selja nauta-
kjöt beint frá bænum en það var svo
fyrir þremur árum sem við fórum að
markaðssetja þessa sölu undir yfir-
skriftinni „Beint frá bónda“ – tals-
vert löngu áður en Nóatún fór að
nota það slagorð,“ segir Þórarinn
og brosir. „Við höfum áður verið að
selja kjötið frá okkur á sveitamörk-
uðum hér í Kjósinni og það var eig-
inlega vegna þeirra viðbragða sem
við höfum fengið við því, að við
ákváðum að ganga lengra í vöru-
framboði og bjóða upp á smærri
einingar. Áður var ekki hægt að
kaupa af okkur nema að lágmarki ¼
skrokk og þetta er því í raun skref í
þá átt að nálgast óskir neytenda. Þá
höfum við komið okkur upp kjöt-
vinnslu, innan við verslunina, og þar
eru möguleikar sem við munum geta
nýtt okkur í framtíðinni til vinnslu á
ýmsum vörum. Enn sem komið er
höfum við þó lítið notað hana til að
úrbeina eða í slíkri vinnslu, einfald-
lega vegna þess að SS hefur boðið
það gott verð fyrir þá vinnu. Ég
hef aðallega verið að nýta aðstöð-
una til að skera niður í sneiðar og
pakka kjötinu, en ég sé þó fyrir mér
í framtíðinni að við munum nýta
hana betur til að fullvinna afurðirnar
sjálf,“ segir Þórarinn.
Heimagerðar
árstíðabundnar vöru
Lisa, kona Þórarins, leggur heima-
gerðar, árstíðabundnar vörur til
verslunarinnar. Hefur hún þróað
ýmsar sultur, hlaup, chutney,
kæfur, terrine, kryddolíu og edik,
piparrótarsinnep og fleira kræsi-
legt sem þykir hæfa með nauta-
kjöti.
Verslunin að Hálsi fór vel af
stað og mættu um 30 manns á
fyrsta degi. Hún er opin föstudaga
16-20 og laugardaga og sunnu-
daga 14-20.
-smh
Sveitabúðin Matarbúrið að Hálsi í kjós
Nautatunga, uxahali og mergbein
– og ýmsar aðrar krásir í boði
Kristall frá Litlalandi
Kristall er glæsilegur 3 vetra foli undan Töfra frá
Kjartansstöðum og Stjörnu frá Litlalandi. Kristall
varð í þriðja sæti 2 vetra fola 2008 á ungfolasýnin-
gunni á Ingólfshvoli. Hann tekur á móti hryssum
í girðingu á Litlalandi í sumar og er verð á tollinu
20.000 kr. fyrir utan girðingargjald og sónar, auk
vsk. Áhugasamir geta haft samband við Gústav í
síma 660-1773.
Matarbúrið er einkar snoturt
Þórarinn og Lisa í gættinni t.v. og
innanbúðar t.h. myndir | smh
Bændur / Búnaðarfélög.
SKOÐIÐ ÞETTA í ljósi
þurrkanna sem voru
undanfarin tvö sumur.
Getum útvegað fær-
anlegan vökvunar-
búnað frá ítalska fyr-
irtækinu OCMIS fyrir
allar stærðir og gerðir
af ræktunarsvæðum.
Einfaldur í notkun og fljótlegt að færa á milli svæða.
Um er að ræða kefli á beislisvögnum frá 50m/m x120m upp í
150m/m x 750m langar slöngur. Vatn fyrir búnaðinn er tekið úr
nærliggjandi tjörn eða læk.
Ekkert rafmagn, vatnsþrýstingurinn fer að hluta til í gegnum
túrbínu sem snýr tromlunni til baka og er stillanlegt fyrir regn-
fall frá 5 m/m upp í 40 m/m á hverri vél.
Tilvalið fyrir 2-3 aðila að eiga saman eða fyrir búnaðarfélög til
útleigu. Afgreiðslutími er um 2 mánuðir.
Við getum einnig útvegað öflugan dælubúnað af mörgum
gerðum. Nánari upplýsingar s: 8924163, netfang: jonsihh@
internet.is
Hákonarson ehf.
Hrossabændur
-Ný tækifæri-
Ísteka ehf. óskar eftir samstarfi við hrossabændur um blóðtökur
úr fylfullum hryssum í ágúst og september. Blóðið er nýtt sem
hráefni til lyfjagerðar og fullunnið lyf flutt út. Verðið er vel sam-
keppnishæft og hefur hækkað síðustu þrjú árin u.þ.b.í samræmi
við gengisvísitölu.
Hafið samband strax.
Upplýsingapakki bíður ykkar.
Kynningarfundir verða á eftirtöldum stöðum: í Austur-Húna-
vatnssýslu í félagsheimilinu Dalsmynni (við þjóðveg 726) þann
27.apríl, í Þingeyjarsýslu á Stórulaugum þann 28.apríl og á
Suðurlandi í Gunnarshólma í Landeyjum þann 30. apríl. Allir
fundirnir hefjast klukkan 20.
Ísteka ehf., Grensásvegur 8, 108 Reykjavík
s. 581-4138, netfang: holmfridur@isteka.com