Bændablaðið - 22.04.2009, Qupperneq 29
29 Bændablaðið | miðvikudagur 22. apríl 2009
Fólkið sem erfir landið
Aðalfundur
Búnaðarsambands Kjalarnesþings 2009
Áðurboðaður aðalfundur Búnaðarsambands Kjalarnesþings
verður haldinn þann 27. apríl n.k. kl.20.00. að Þverholti 3, 3.h
Mosfellsbæ.
Dagskrá :
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar lagðir fram
3. Skýrsla framkvæmdarstjóra BV
4. Hnitsetning landamerkja, Óðinn Sigþórsson verkefnis-
stjóri
5. Kosningar
6. Kosning fulltrúa til Búnaðarþings (vegna næsta
kjörtímabils, 2010-2012
7. Búnaðarþing 200 9 , helstu mál
8. Önnur mál
Stjórn Búnaðarsambands Kjalarnesþings.
Sauðfjárbændur
athugið!
Loðskinn hf óskar eftir að fá til vinnslu skinn af unglömbum
sem fæðast dauð eða drepast á sauðburði.
Greiddar verða 1.250 kr. til bænda fyrir hvert vinnsluhæft
skinn sem fyrirtækinu berst.
Flá má annaðhvort með hefðbundinni fyrirristu (eins og á
W< ` q#<w!z#${<]# #<] <#<
salta skinnin áður en þau eru send til Loðskinns og skal það
# >|w^; # <## <<< $
{!<++}< !<! W^!~|zz <
5910
#<< ^<!< <<>### } ]
!<!z<^! $
Loðskinn hf., Borgarmýri 5, 550 Sauðárkrókur.
Guðmundur Óli Scheving
Meindýraeyðir
Húsfluguúðun
Það fer að koma að þessu ...
Ég er ódýrari en ...
Fagmennska - Árangur
Skordýraúðun - Meindýraeyðing
Geymdu þessa auglýsingu
Pantaðu úðun í síma 857-7200
gudmunduroli@simnet.is
Maríus Máni býr í Grafarvogi,
en á ættir að rekja á Akranes
og í Borgarfjörðinn, á bæinn
Hurðarbak. Hann æfir tækvondó
og hlakkar til sumarsins, en þá
vonast hann til að fá margar
afmælisgjafir og þá ætlar hann
líka að ganga á fjöll.
Nafn: Maríus Máni
Sigurðarson.
Aldur: 6 ára.
Stjörnumerki: Krabbi.
Búseta: Reykjavík.
Skóli: Engjaskóli.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast í skólanum? Lesa og frímín-
útur (nema þegar það er rok og vont
veður).
Hvað er uppáhalds dýrið þitt?
Hundurinn Sámur og hvolpurinn
Töggur, (þeir eru í sveitinni á
Hurðarbaki í Borgarfirði), gull-
fiskurinn Maríus sem er heima hjá
mér. Hestar eru líka í uppáhaldi
og kanínur eru ágætar.
Uppáhaldsmatur: Núðlur og
lasagna.
Uppáhaldshljómsveit: Engin sér-
stök. Uppáhaldstónlistin er rokk.
Uppáhaldskvikmynd: Það eru
margar í uppáhaldi. Til dæmis
Skjaldbakan og hérinn og
Grísirnir þrír.
Fyrsta minningin þín? Þegar ég
fékk tjöld og göng í afmælisgjöf
þegar ég var tveggja ára.
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi tækvondó.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir í tölvu? Mér finnst
skemmtilegast að fara í leiki.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Ég ætla að verða
lögga.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Það er líklega þegar
ég spreyjaði á skólann.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Alls konar í stærðfræði.
Ætlar þú að gera eitthvað sér-
stakt í sumar? Fá afmælisgjafir og
ganga á fjöll.
Tækvondó og rokktónlist
Það klikkaðasta sem Maríus hefur gert er að spreyja á skólann. Hann sér mikið eftir þeim gjörningi og ætlar að
verða lögga þegar hann verður stór og standa vörð um lög og reglur í samfélaginu.