Bændablaðið - 11.02.2010, Side 3
3 Bændablaðið | fimmtudagur 11. febrúar 2010
Fréttir
Smíðum sérlega vandaðar bílskúrs- og iðnaðarhurðir eftir
málum. Þær eru léttar og auðveldar í notkun. Einangrun er á
öllum köntum. Fáanlegar í mörgum stærðum og gerðum, með
eða án glugga. Einnig fáanlegar með mótordrifi.
Bílskúra- og
iðnaðarhurðir
Vagnar & þjónusta ehf
Tunguháls 10, 110 Reykjavík
Sími: 567-3440, Fax: 587-9192
Dagana 13.-14. janúar heimsóttu fulltrúar frá Sænska Íslandshestafélaginu
(SIF) Bændasamtökin. Það er orðinn árlegur viðburður, að sögn Jóns
Baldurs Lorange, forstöðumanns tölvudeildar, að ræktunarleiðtogi SIF
ásamt skrásetjurum WorldFengs í Svíþjóð komi hingað í 2ja daga vinnu-
ferð til að fara yfir þau mál sem eru uppi hverju sinni varðandi þróun
á WorldFeng. Yfirleitt koma flestir úr ræktunarnefnd SIF með í þessar
ferðir. Jafnframt nota þau ferðina til að heimsækja hestabú í nágrenninu
ef svo ber undir, en að þessu sinni buðu hrossaræktendurnir og útflytj-
endurnir Gunnar og Kristbjörg á Auðholtshjáleigu þeim í heimsókn.
Arne Rulander, ræktunarleiðtogi SIF, sagði í viðtali við Bændablaðið
að tilgangur heimsóknarinnar hefði m.a. verið að hitta Jón Baldur, verk-
efnisstjóra WorldFengs, til að ræða aukið samstarf. Auk þess hitti sendi-
nefndin Hallveigu Fróðadóttir, aðalskrásetjara WorldFengs, og Þorberg Þ.
Þorbergsson, forritara WorldFengs. „SIF notar WorldFeng til að gefa út
hestavegabréf og einnig til að halda utan um stóðhestaskýrslur. Þannig er
WorldFengur að verða mjög gagnlegt verkfæri fyrir ræktunarsambandið.
Þá ræddum við um nýjar hugmyndir til að nota kerfið. Í ferðinni gafst
okkur einnig tækifæri til að hitta útflytjendur íslenska hestsins til að koma
á betri samskiptum og samstarfi. Ferðin var mjög árangursrík,“ sagði
Arne Rulander að lokum.
Á myndinni má sjá sendinefnd Svíanna með Þorbergi Þ. Þorbergssyni,
forritara WorldFengs.
Sænskir Íslandshestamenn kynna sér WorldFeng