Bændablaðið - 11.02.2010, Blaðsíða 29
29 Bændablaðið | fimmtudagur 11. febrúar 2010
Leiðinlegt að hafa
ekkert að gera
Helluskeifur þorra á
Með sköflum skulum járna
Aðra tegund svei mér þá
Þá mundi okkur sárna.
Síminn er 8937050
Bændur og búalið
Framleiðum hágæða einangrunargler sem sparar orku.
Sendum hvert á land sem er - stuttur afhendingartími.
Íslensk framleiðsla í 43 ár.
Glerskálinn - Smiðjuvegi 42 - Kópavogi - Sími 557 5580
Ásta Sigrún Einarsdóttir býr í
Kjósinni og gengur í Klébergs-
skóla á Kjalarnesi. Hún æfir fim-
leika og finnst skemmtilegt að
leika sér í leikjum í tölvunni, en
þegar hún verður stór ætlar hún
að vinna í Samskip.
Nafn: Ásta Sigrún Einarsdóttir.
Aldur: 8 að verða 9.
Stjörnumerki: Fiskur.
Búseta: Í Kjós.
Skóli: Klébergsskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Að læra.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Lömb.
Uppáhaldsmatur: Kjúklingur.
Uppáhaldslag: Outta here með
Esmée Denters.
Uppáhaldskvikmynd: Night at the
Museum 2.
Fyrsta minningin þín? Fór með
mömmu og pabba í bíó að sjá
Þumalínu.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fimleika.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Að vera í leikj-
um.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Vinna í Samskip.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Ég man það ekki.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Hafa ekkert að gera.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt í
vetur? Nei.
ehg
Ásta Sigrún Einarsdóttir býr í Kjósinni og er 8 að verða 9 ára gömul.
Kvenfélag Akrahrepps í Skagafirði gaf fyrir síð-
ustu jól út veglega uppskriftabók í fjáröflunar-
skyni. Bókin ber nafnið Næring og nautnir og
óhætt er að segja að ekki hafi verið kastað til
höndunum en bókin er bæði þykk og mikil með
allra handa uppskriftum. Margan þekktan réttinn
má finna í bókinni, gömlu góðu pönnukökurnar,
lummur og kleinur, sunnudagssteikina og slátur en
þar að auki er að finna uppskriftir í bókinni sem
eins hefði mátt búast við að sjá í exótískum mat-
reiðslubókum frá fjarlægum löndum.
Kvenfélag Akrahrepps er gamalgróið félag, stofn-
að 20. desember 1919 og varð því níutíu ára nú fyrir
síðustu jól. Okkur nútímakonum þykir merkilegt
að sveitakonur hafi gefið sér tíma frá erli jólaund-
irbúnings, sem þá var umfangsmeiri en nú, til að
koma saman og stofna kvenfélag. Kvenfélagið varð
fljótt styrk stoð í samfélagi Akrahrepps og ekki vant-
aði verkefnin þá frekar en nú. Starfsemi félagsins er
margvísleg en stærstu verkefnin eru fjáröflun til styrkt-
ar góðum málefnum og vinna í þágu samfélagsins.
Kvenfélagið selur veitingar við ýmis tækifæri, allt frá
erfidrykkjum og stórveislum til fámennari samkoma.
Kvenfélagskonur heimsækja heldri borgara á dval-
arheimilinu á Sauðárkróki á aðventunni og færa öldn-
um sveitungum sem þar dvelja jólaglaðning. Ávallt
er haldið barnaball milli jóla og nýárs. Kvenfélagið
stendur fyrir samkomu á þjóðhátíðardaginn 17. júní
og á hverju sumri sjáum kvenfélagskonur um að
sækja trjáplöntur sem Brynjar á Rein í Eyjafirði gefur
Kvenfélagasambandinu og er þeim úthlutað til kvenfé-
laganna í firðinum. Kvenfélagskonur eru svo lánsamar
að hafa góða aðstöðu í félagsheimilinu Héðinsminni
þar sem megnið af starfi félagskvenna fer fram.
Reglulega auðgum við líkama og sál með leikhúsferð-
um, gönguferðum og jafnvel hafa önnur lönd verið sótt
heim. Milli 30 og 40 konur á ýmsum aldri eru í félag-
inu og búa þær víðsvegar um landið þó þorri þeirra ali
manninn í Akrahreppi
Beint frá býli og borgardætur
Á fundi Kvenfélags Akrahrepps fyrir nokkrum árum,
voru sex konur skipaðar í fjáröflunarnefnd og var þeim
falið að setja saman uppskriftabók. Á fyrsta fundi
nefndarinnar ákváðu nefndarkonur að bókin skyldi
ekki verða hefðbundið safn af uppskriftum. Óskað
var eftir uppskriftum frá öllum konum í kvenfélaginu,
helst uppskriftum sem þær notuðu oft og reyndust vel.
Við vildum hafa uppskriftir sem konurnar höfðu sjálfar
sett saman, þróað og prófað, í bland við hefðbundna
rétti. Einnig vildum við safna saman frásögnum félags-
kvenna – þeirra sem hafa ætíð alið manninn í sveit
og muna tímana tvenna, sem og þeirra sem fluttust úr
borg í sveit. Sá kafli ber heitið ,,beint frá býli og borg-
ardætur”. Frásagnir þessar eru mjög fróðlegar og gefa
skemmtilega sýn á líf og störf þessara kvenna.
Þessi bók er handa þeim sem hafa gaman af að elda
og baka, prófa eitthvað nýtt, eitthvað hollt og gott eða
sætt og ljúft. Spreyta sig á gömlum og nýjum upp-
skriftum eða jafnvel framandi réttum sem maður vissi
ekki af. Allir njóta þess að setjast að veisluborði með
fjölskyldunni og
góðum gestum.
Í bókinni er að
finna fjölbreytt
úrval af upp-
skriftum þannig
að flestir ættu
að finna eitthvað við hæfi,
hvort sem tilefnið er stórt eða smátt. Þess má
geta í lokin að sagt var í þorrablótsannálnum að karlar
þyngdust um hálft kíló við það eitt að opna bókina en
konur um kíló.
Bókin kostar 3000 krónur og er til sölu hjá eftirtöld-
um:
Auður Friðriksdóttir, Réttarholti s: 453-8258
Drífa Árnadóttir, Uppsölum s: 453-8882
Helga Bjarnadóttir, Varmahlíð s: 453-8199
Hulda Sigurðardóttir, Stekkjarflötum s: 867-6101
Sigríður Garðarsdóttir, Miðhúsum s: 453-8271
K.S. Varmahlíð
Hér eru þrjár uppskriftir frá reyndum húsmæðrum
sem henta vel á þorranum.
Fjallagrasate gott við kvefi og hálsbólgu
1-2 hnefar af fjallagrösum eru settir í kalt vatn, hitað
og látið sjóða stund. Áður en það er drukkið þarf að
sykra það vel, gjarnan með púðursykri eða kandís.
Ekki skemmir að kreista úr sítrónu útí. Þetta er eng-
inn gæðadrykkur og maður þurfti að taka á öllu sínu
til að koma því niður, en manni varð gott af. Einnig
þóttu fjallagrös góð fyrir magaveikt fólk.
Steikt brauð
Ómissandi þegar smurt er nesti, að ekki sé minnst
á trogið
8 bollar hveiti
1 dl sykur
6 tsk lyftiduft
1½ tsk hjartarsalt
½ l súrmjólk
2 msk olía
2 dl mjólk
1 tsk salt
Öllu blandað saman og hnoðað. Flatt út og pikkað
með kleinujárni. Steikt úr feiti í potti.
Rúgbrauð
Biskupsfrúin bað um uppskrift þegar hún borðaði
hádegismat í Akraskóla
4 bollar rúgmjöl
1 bolli heilhveiti
1 bolli hveiti
3 msk natron
2 tsk lyftiduft
2 tsk salt
1 l súrmjólk
1 lítil græn sírópsdós (500 g)
Hrærið sem minnst saman. Setjið í fjórar eins lítra
fernur. Bakið í 15 mínútur við 200°C, lækkið þá hit-
ann í 100°C og bakið í átta klukkustundir.
Kvenfélag Akrahrepps gefur út uppskriftabók
Karlar þyngjast um hálft kíló
– bara við að opna bókina
ÞÓR HF | Ármúla 11 | 568-1500| Lónsbakka | Sími 461-1070
Lambamerki
... nú tvær gerðir:
Tagomatic
Einföld merki á frábæru verði. Helmingsafsláttur
af ísetningartöngum með fyrstu pöntun.
31,- án vskÁprentun innifalin
Rototag
Þessi gömlu góðu. Hert nælon og heit-prentun
tryggir gæðin.
ATHUGIÐ: Síðustu forvöð til að panta sauðfjármerki
svo þau berist fyrir sauðburð er 20. mars n.k.
75,- án vskÁprentun innifalin
Pantanir má einnig senda á
netfangið einaro@thor.is
Matfugl ehf óskar eftir að ráða starfsmann á
hænsnabú á Þórustöðum í Ölfusi.
Starfið hentar duglegum og samviskusömum einstak-
lingi með reynslu og áhuga á umhirðu dýra.
Reynsla af stjórnun landbúnaðarvéla er kostur.
Umsóknir sendist á netfangið denni@matfugl.is
Starfsmaður
óskast á
hænsnabú