Bændablaðið - 11.02.2010, Qupperneq 7
7 Bændablaðið | fimmtudagur 11. febrúar 2010
Kæru lesendur!
Eins og kom inná við gerð fyrsta
þáttar míns, óskaði ég eftir efni
frá ykkur lesendum. Nokkurt
efni hefur mér borist, en hvergi
þó nægjanlegt. Laust trúi ég,
að ekki fáist fólk við kveðskap
víðar en á Norðurlandi. Hvað
með Vesturland og Vestfirði, eða
Austur- og Suðurland. Bænarefni
þessi sendi ég ykkur lesendum í
von um viðbrögð, svo auðga megi
efni þáttarins.
Þorra blóta flestir þessar
mundir, og því tilvalið að hafa
nokkurn brennivínsblæ á vísum
þessa þáttar. Til eru dæmi þess,
að drykkjumenn séu gleðigjafar.
Ólína Jónasdóttir orti um eitt
slíkt tilfelli:
Vínið hrindir frá þér frið,
fremd í skyndi dvínar.
Samt er yndi að sitja við
sálarlindir þínar.
Þormóður Pálsson frá Njáls stöð-
um yrkir lofsamlega um tárið:
Vínið skýrir deiglu dýra,
deyfðin flýr af brá.
Ástir býr og elur hýra
ævintýra þrá.
Kristján frá Djúpalæk sór þess
eið, í gamni þó, að bragða ekki
vín í tiltekinn tíma. Innan fárra
daga orti hann þó:
Svartar nætur, sólin gránuð,
samfelld þorstahlíð í fang.
Sé ég lífs míns lengstan mánuð
liðast áfram snigilgang.
Meira að segja Hermann Jón-
asson ráðherra yrkir hlýlega til
Bakkusar:
Ýmsir fara illa á því
og skal þar að vikið,
kvennafar og fyllirí
flestir spara of mikið.
Misjafn reynist mönnum dagurinn
eftir þunga brennivínsdrykkju.
Að loknum dansleik orti Páll H.
Jónsson frá Mýri:
Næsta dag er dásamleg
dagssól þjóðir vekur,
tregaþrunginn táraveg
timburvagninn ekur.
Fáir hafa ort Bakkusi betur en
Haraldur frá Kambi í Deildardal:
Enn ég bragða brennivín
bestu heimsins gæði
hiklaust þó að heilsa mín,
hangi á veikum þræði.
Bjarnþór Þórðarson frá Borg ar-
nesi, kom eitt sinn öli hresstur til
vinkonu sinnar. Tók hún hon um
fremur fálega. Bjarnþór orti:
Fyrrum sæta seimaskorðin
sálu vermdi og kætti lund.
Nú er hin sama Eygló orðin
eins og snúið roð í hund.
Sveinn Hannesson frá Elivog um
orti vísur til minningar um hinn
fræga kvæðamann Árna Frímann
Árnason, er kallaður var gersemi.
Þar er að finna þessa vísu:
Þó við byndi Bakkus ást
bæri lyndisgalla,
heilsteypt mynd af manni sást
milli syndafalla.
Einhverju sinni sem oftar, var
Jóhannes á Gunnarsstöðum
vínlaus. Hringdi hann þá í mig,
og bað mig bjarga sér. Fátt veit ég
sárara að sjá, en vin minn vínlaus-
an. Launaði hann fyrir sig með
þessari vísu:
Árni í Felli yrkja kann
þó ekki á honum beri,
ef sett er ögn af sykri í hann
og svolítið af geri.
En vott af samvisku mátti þó
greina í Jóhannesi, þegar hann í
jólakorti stuttu síðar sendi mér
þessar vísur, fullur iðrunar:
Oft mig hefur áður meir
andagiftin snortið,
þegar niður læt ég leir
leka á jólakortið.
Ennþá hvílir algjör smán
yfir verkum mínum,
frá því að ég flöskulán
fékk úr sjóði þínum.
Ekkert hef ég ennþá greitt,
og það verður snúið,
því flöskunni hef ég alveg eytt
og innihaldið búið.
Sumarið eftir, kom ég í Gunn-
arsstaði. Hugðist ég heilsa upp
á Jóhannes. Var hann þá af bæ,
sennilega þótt óþægilegt að mæta
mér eftir það sem á undan gekk.
Grimmúðlegir smalahundar vörðu
bæinn, og gekk ég frá að sinni.
Síðar, er Jóhannes fregnaði af ferð
minni, sendi hann þessa vísu:
Við fólkið Árni fór á mis,
flúði í einum grænum,
þegar ‘ann hitti helvítis
hundana á bænum.
Umsjón:
Árni Jónsson
kotabyggd1@simnet.is
Í umræðunni
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Sveitarfélög landsins eru 77
tals ins þessa stundina og hefur
fækkað verulega á undanförn-
um áratugum. Fjöldi þeirra náði
hámarki á sjötta áratug síðustu
aldar þegar þau töldust vera
229. En betur má ef duga skal og
Kristján Möller ráðherra sveit-
arstjórnarmála hefur slegið því
fram að helst þyrfti að fækka
sveitarfélögum niður í um það
bil 17, það sé forsenda þess að
hægt sé að efla þetta stjórnsýslu-
stig nægilega til þess að gera því
kleift að taka við verkefnum frá
ríkisvaldinu sem flestir eru sam-
mála um að betra sé að sinna í
nærsamfélaginu.
Nú stendur yfir fundaherferð á
vegum ráðuneytisins og Sambands
íslenskra sveitarfélaga þar sem
reynt er með markvissum hætti að
kanna hug heimamanna til þess að
sameina sveitarfélög. Eins og fram
hefur komið í fréttum undirrituðu
ráðherra og Halldór Halldórsson
formaður sambandsins yfirlýsingu
sl. haust um að leita leiða til frek-
ari sameiningar sveitarfélaga og er
fundarherferðin liður í því starfi.
Skipuð var nefnd til þess að leiða
þetta starf og hefur hún haldið
fundi víða um land. Einn fundurinn
var haldinn í Menntaskólanum í
Borgarnesi í síðustu viku og þar var
blaðamaður Bændablaðsins meðal
fundargesta.
Sameining fyrir 2014?
Aðdragandi þessa starfs voru yfir-
lýsingar sem bárust frá fjórðungs-
þingum Vestfjarða og Austfjarða
þess efnis að áhugi væri á að sam-
eina þessa fjórðunga sinn í hvort
sveitarfélagið. Í umræðum um þær
sameiningar kom fram sú skoðun
að atkvæðagreiðslur meðal íbúa
væru afar seinvirk og ómarkviss
aðferð við sameiningu og að hún
hefði ekki skilað þeim árangri sem
þyrfti. Nú væri rétti tíminn og tæki-
færið til að reyna nýjar leiðir.
Ráðherrann og forysta sveit-
arfélaganna í landinu ákvað að
fylgja þessu eftir með nefndarskip-
un og er gert ráð fyrir því að nefnd-
in skili tillögum um næstu skref
nú á vordögum. Þær tillögur munu
væntanlega fela í sér nýja skipt-
ingu landsins í sveitarfélög byggða
á óskum og hugmyndum fólksins
í landinu. Ætlunin er að leggja til-
lögurnar fyrir landsþing Sambands
íslenskra sveitarfélaga í haust eða
jafnvel aukaþing strax í vor ef vel
gengur.
Þegar sambandið hefur lagt
blessun sína yfir hina nýju skipan
verður lagt fram frumvarp á Alþingi
næsta vetur sem gerir ráð fyrir því
að sameining sveitarfélaga eigi sér
stað fyrir kosningarnar 2014. Fram
kom á Borgarnessfundinum að
þetta starf er unnið í nánu samráði
við þá sem vinna að Sóknaráætlun
20/20 um eflingu atvinnulífs og
samfélags um allt land.
7.000 manns lágmark
Það er ýmislegt sem rekur á eftir
því að sveitarfélög stækki eða taki
með öðrum hætti höndum saman
um að taka að sér fleiri verkefni en
nú er raunin. Fyrir liggur að næstu
verkefni sem ríkið hyggst flytja til
sveitarfélaga eru málefni fatlaðra
sem flutt verða árið 2011 (sá flutn-
ingur er raunar hafinn í tilrauna-
skyni og gefst vel) og málefni aldr-
aðra sem flytjast ári síðar. Næstu
verkefni verða væntanlega rekstur
heilsugæslu og framhaldsskóla.
Það segir sig sjálft að sveitar-
félög á borð við Árneshrepp á
Ströndum, Akrahrepp í Skagafirði
eða Skorradalshrepp í Borgarfirði
axla slíkar byrðar ekki ein og út
af fyrir sig. Nefndin sem nú er að
störfum miðar raunar við það í
störfum sínum að til þess að tak-
ast á við málefni fatlaðra þurfi að
mynda þjónustusvæði sem er ekki
fámennara en sjö þúsund íbúar.
Akranesbær er rétt undir þeim
mörkum með um 6.500 íbúa.
Síðasta stóra skrefið sem stig-
ið var í flutningi verkefna frá ríki
til sveitarfélaga var grunnskólinn
og flestir telja að það hafi verið
mikið gæfuspor, skólinn hafi eflst
og orðið eðlilegri partur af sam-
félaginu. Sá flutningur sýndi hins
vegar glöggt þann vanda sem smæð
íslenskra sveitarfélaga skapar.
Smærri sveitarfélög eiga mörg hver
í mesta basli með rekstur skólanna
og þurfa að reiða sig á framlög úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til þess
að dæmið gangi upp. Á fundinum
var nefnt dæmi um ónefnt sveitar-
félag sem fær 62% tekna sinna úr
Jöfnunarsjóði. Því var kastað fram
í hálfkæringi hvort ekki væri sann-
gjarnt að sjóðurinn skipaði þrjá
menn af fimm í sveitarstjórn til
þess að gæta hagsmuna sinna.
1, 2 eða 3 sveitarfélög?
Ljóst er að umræðum á fundinum
að nefndarmenn eiga úr vöndu að
ráða, ætli þeir sér að finna einhvern
samnefnara þeirra skoðana sem
uppi eru um skipan sveitarstjórna.
Í landshlutunum tveimur sem urðu
tilefni átaksins, Vestfjörðum og
Austfjörðum, hafa heyrst margar
gagnrýnisraddir á það að steypa
þeim í eina heild. Á Vestfjörðum
benda menn á að ekkert vegasam-
band sé stóran hluta ársins milli
norður- og suðurfjarðanna og
sett hefur verið fram tillaga um
að skipta fjórðungnum frekar í
þrennt, þriðji hlutinn yrði þá aust-
anverð Barðastrandasýsla og hluti
Strandasýslu, jafnvel með samruna
við Dalabyggð.
Á Austfjörðum kom fram hug-
mynd um að hafa tvö sveitarfélög:
Firðina og Héraðið. En þá kom
upp vandinn með Seyðisfjörð,
hvar á hann heima í slíkri skipt-
ingu? Einhver benti á hvort ekki
væri nærtækast fyrir Seyðfirðinga
að sameinast því sveitarfélagi sem
þeir væru í mestum samskiptum
við, Þórshöfn í Færeyjum. Þótt
það sé hugsað sem spaug vísar það
þó til þess að kannski sé réttast að
hugsa sig út fyrir þá kassa sem við
erum vön. Til dæmis virðast gömlu
kjördæmamörkin frá 1959 enn sitja
ansi fast í mönnum, ekki síður en
gömlu sýslumörkin.
Á fundinum voru greinilega
skiptar skoðanir um skiptingu Vest-
ur lands en þar eru nú tíu sveitar-
félög. Enginn fer í grafgötur um
sjálfstæðisvilja íbúa Skorradals og
svipaða sögu má segja um Helga-
fellssveitina. Báðir þessir hreppar
munu örugglega lenda í vandræð-
um þegar ráðherra gerir alvöru
úr því að flytja frumvarp um að
hækka lágmarksfjölda í sveitar-
félögum. Hann er nú 50 og Kristján
Möller hefur varpað fram þeirri
hugmynd að talan verði hækkuð í
1.000. Hann skýrði frá því að þegar
hann nefndi þetta fyrir tveimur
árum hefðu flestir brugðist við með
því að spyrja: af hverju ekki enn
fjölmennari sveitarfélög?
En það eru greinilega upp ýmsar
hugmyndir um sameiningu sveitar-
félaga á Vesturlandi. Á fundinum
var nefnd sú hugmynd að sameina
allan landshlutann í eitt sveitar-
félög, öðrum leist betur á að skipta
honum í tvennt, þrennt eða jafnvel
fleiri hluta. Tvískipting gæti verið
þannig að hin gamla Borgarfjarðar-
og Mýrasýsla yrði að einu sveitar-
félagi og Snæfellsnes og Dalir að
öðru (nema Dalamenn horfi frekar
til norðurs).
Þetta mun væntanlega skýrast
þegar nefndin leggur fram tillögur
sínar.
Reynslusögur af Snæfellsnesi
Á fundinum flutti Kristinn Jónas-
son bæjarstjóri í Snæfellsbæ erindi
um reynsluna af sameiningu á utan-
verðu Snæfellsnesi sem átti sér stað
árið 1994. Hann var áægður með
árangurinn en leyndi því ekki að
ýmislegt hefði komið upp á sem
menn hefðu orðið að takast á við og
leysa úr.
Það sem vakti athygli undirrit-
aðs í máli Kristins var það sem
hann sagði um loforð sem gefin
væru í aðdraganda sameiningar.
Bað hann sveitarstjórnarmenn ein-
dregið um að vara sig á að lofa því
að þetta eða hitt héldist óbreytt eftir
sameiningu. – Landslagið breyt-
ist svo mikið eftir sameiningu, öll
vinnu brögð og áherslur. Réttast
væri að líta á svæðið sem á að
sameina sem ónumið land þar sem
engin stjórnsýsla er fyrir hendi og
spyrja sig hvernig maður myndi
skipuleggja þetta svæði ef sú væri
raunin, sagði hann.
Kristinn sagði líka að erfitt væri
að veita sömu þjónustu um allt
sveitarfélagið. Tók hann sem dæmi
snjómokstur, hann hæfist alltaf á
Ólafsvík af þeirri einföldu ástæðu
að þar væri áhaldahúsið og tækin.
Þjónustan yrði óhjákvæmilega allt-
af minni í dreifbýlinu.
Hins vegar hefði stjórnsýslan
batnað mikið við sameininguna.
Fagfólki hefur fjölgað og þjónustan
við íbúana aukist. Svo merkilega
vildi til að eina þjónustan sem hefði
verið dregið úr í sveitarfélaginu
væri sú sem ríkið stæði að: póst-
urinn, heilsugæslan og Landsbank-
inn.
Líka sameinað í höfuðborginni
Eins og áður sagði voru skoð-
anir skiptar meðal fundarmanna um
hvernig bæri að skipa sveitarstjórn-
um á Vesturlandi. Flestir þeirra sem
tóku til máls að loknum framsögu-
erindum voru sveitarstjórnarmenn
og þeir skutu sumir hverjir föstum
skotum hver á aðra.
Sveinbjörn Eyjólfsson í Borg ar-
byggð skammaði til dæmis kollega
sína í sveitarstjórnum fyrir skort
á samstöðu. Eina leiðin til að efla
sveitarstjórnirnar væri að stækka
þær en þegar það bæri á góma væri
allt of algengt að sveitarstjórnar-
menn legðust í vörn fyrir sérhags-
muni en fórnuðu því sem mik-
ilvægara væri.
Kristján Möller hélt lokaræð-
una og sagði meðal annars að nú
væri brýnni ástæða en oft áður til
þess að sameina sveitarfélög og
gera rekstur þeirra hagkvæmari
og skilvirkari. Okkur bæri að fara
betur með peninga þegar minna
væri til af þeim. Og hann huggaði
fundarmenn með því að taka fram
að vissulega væri til umræðu að
sameina sveitarfélög á höfuðborg-
arsvæðinu. Þar þyrfti þó að hyggja
að því að búa ekki til eitt risastórt
sveitarfélag sem bæri höfuð og
herðar yfir öll önnur. –ÞH
Verða sveitarfélögin orðin 17 árið 2014?
Fundaherferð ráðuneytis sveitarstjórnarmála hefur það markmið að hlusta eftir vilja fólksins og áhuga
á sameiningu sveitarfélaga – eina leiðin til að styrkja stöðu þeirra, segir ráðherra og margir taka undir
Frá fundinum í Borgarnesi. Fremstur til hægri er Flosi Eiríksson formaður
nefndar um sameiningu sveitarfélaga. Mynd | Skessuhorn/hb