Bændablaðið - 11.02.2010, Blaðsíða 11
11 Bændablaðið | fimmtudagur 11. febrúar 2010
Bændur!
Hugið tímanlega að vorverkunum
HiSpec haugsugur á flotmiklum hjólbörðum
Stærðir 10.000 til 12.000 lítra
Taðdreifarar, 2 stærðir
Öflug vacuumdæla
Fjöðrun á beisli
Vökvaopnun á topplúgu
Hraðtengi á barka
Sjálffyllibúnaður
Regnbyssa *
*
* Aukabúnaður
Vel heppnað námskeið
um lífræna sauðfjárrækt
Svo sem greint var frá hér í Bændablaðinu 14. janúar sl. buðu Land bún-
aðarháskóli Íslands og Vottunarstofan Tún ehf. upp á námskeið í aðlögun
að lífrænni sauðfjárrækt og var það haldið að Stóra Ármóti í Flóa föstu-
daginn 29. janúar sl. Námskeiðið sóttu 12 manns, mest starfandi bændur
úr ýmsum héruðum, sumir með bú sín í aðlögun eða með áform um að
gera það. Helstu efnisþættir á dagskránni voru yfirlit um aðlögunarferlið
í samræmi við lög og reglur; uppruni, aðlögun og aðbúnaður sauðfjár-
stofns; beit, fóðuröflun, fóðrun og heilbrigði, þá reynsla bónda af lífræn-
um sauðfjárbúskap og að síðustu yfirlit um eftirlit, vottun, markaðssetn-
ingu og kostnað við þessa þætti.
Kennslu á námskeiðinu önnuðust dr. Gunnar Á. Gunnarsson, Vott un ar-
stofunni Tún ehf., dr. Ólafur R. Dýrmundsson, Bændasamtökum Íslands
og Guðni Einarsson bóndi í Þórisholti í Mýrdal (sitjandi á mynd). Mikið
var um fyrirspurnir og umræður þar sem m.a. kom fram að undirstaðan er
lífræn ræktun þar sem notkun tilbúins áburðar er ekki leyfð, að aðstæður
á jörðum eru mjög breytilegar, að smærri bú og blönduð bú eiga meiri
möguleika en þau stóru og sérhæfðu, og síðast en ekki síst þurfi bóndinn
að tileinka sér breytta búskaparhætti – fara sjálfur í aðlögun með búinu.
Reynslan af þessu fyrsta námskeiði í lífrænni sauðfjárrækt hér á landi var
það góð að áformuð eru fleiri námskeið um lífrænan landbúnað. Þar eru
greinilega vannýtt sóknarfæri. Mynd: Áslaug Helga Bjarnadóttir.
Styrktarsjóður Tunguréttar
Þórarins Jónssonar og Kristínar
Þórsdóttur, bænda á Bakka í
Svarfaðardal í um 40 ára skeið,
hafa ásamt fjölskyldum sínum
stofnað styrktarsjóð Tunguréttar
í minningu foreldra sinna. Þór-
arinn var fjallskilastjóri í Svarf-
aðardal í 13 ár og réttarstjóri í
Tungurétt jafn lengi.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja
og stuðla að uppbyggingu Tungu-
réttar og hvers konar menningar-
starfsemi sem henni tengist.
Ástand réttarinnar er með þeim
hætti í dag að hún telst vart fjárheld
og því mikil þörf á skjótum úrbót-
um.
Að sögn Jóns Þórarinssonar er
sjóðurinn öllum opinn og kjör-
inn vettvangur fyrir þá sem vilja
leggja góðu málefni lið hvort
heldur í minningu látinna ástvina
eða að öðru tilefni. Jón segir það
von þeirra systkina að sjóðurinn
geti stuðlað að gagngerri endur-
byggingu þessa merka mannvirkis
sem Tungurétt er. „Draumurinn er
að hægt verði að halda upp á 90 ára
afmæli Tunguréttar í henni nýupp-
byggðri árið 2012“.
Styrktarsjóður Tunguréttar er í
Sparisjóði Svarfdæla nr. 1177-05-
404580 Kt: 411209-1560
Nánari upplýsingar veitir Jón
Þórarinsson í síma 466 1526 /
6609617 eða netfangi: irk@mi.is.
Stofnfundur tengslanets
kvenna á Norðausturlandi
var hald inn nýlega. Tæplega
50 konur mættu á fundinn
þar sem m.a. voru samþykkt
lög félagsins sem hlaut nafnið
„Urð ur, tengslanet kvenna á
Norðausturlandi“.
Gréta Bergrún Jóhannesdóttir
flutti fyrirlestur „Á vígvellinum
eða í skúringunum, kynjaðar
myndir í íslenskum fjölmiðlum“
og sérstakir gestir fundarins,
Auður Anna Ingólfsdóttir, Björk
Sigurgeirsdóttir og Jóhanna
Guðmundsdóttir frá TAK,
tengsla neti kvenna á Austurlandi,
fluttu ávarp.
Fyrstu stjórn Urðar skipa eft-
irtaldar konur; Guðrún Halldóra
Jóhannsdóttir Húsavík formaður,
Elísa Elmarsdóttir Húsavík,
Svan hildur Kristjánsdóttir
Þing eyjar sveit, Kristjana Erna
Helga dóttir Kópaskeri og Jóna
Matthías dóttir, Húsavík. Á næst-
unni verður dagskrá og starfsemi
tengslanetsins kynnt frekar.
Tengslanet kvenna á
Norðausturlandi