Bændablaðið - 11.02.2010, Page 16
16 Byggingar í landbúnaði BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 11. FEBRÚAR 2010
Mikil áhersla hefur á undanförn-
um árum verið á endurbætur og
byggingu legubása í fjósum fyrir
mjólkurkýr. Hins vegar hefur
oft ekki verið gengið endanlega
frá aðstöðu fyrir geldneyti og því
ljóst að margir bændur þurfa
að huga að slíkum framkvæmd-
um á næstu árum. Líklega má
fullyrða að algengasta stíugerð-
in fyrir geldneyti hér á landi sé
rimlastíur. Líka þekkist að geld-
neyti séu höfð á legubásum og í
einhverjum tilvikum eru gripir
hafiar á hálmi, þá yfirleitt yngri
gripir. Í þessari grein verða born-
ar saman mismunandi stíugerðir
með tilliti til rýmis.
Rimlastíur
Megin kosturinn við rimlastíur er
einfaldleikinn og hversu lítið rými
fer undir þær. Þær hafa hins vegar
verulega ókosti er varðar aðbúnað
gripana. Það er kalt og óvistlegt að
liggja á rimlum og hætta á að gripir
traðki hver á öðrum. Verulega má
bæta aðbúnað gripa í rimlastíum
með því að vera með gúmmíklætt
rimlagólf. Rétt er að geta þess að
víða erlendis er bannað að hafa
gripi á rimlastíum þar sem leg-
usvæðið er einnig rimlar. Hér á
landi er bannað að hafa mjólkurkýr
í slíkum stíum.
Hálmstíur
Hálmstíur hafa ekki náð mikilli
útbreiðslu hér á landi. Það er helst
að gripir séu hafðir á hálmi yfir
mjókurgjafarskeiðið. Með aukinni
kornrækt má gera ráð fyrir því að
aðgengi að hálm verði tryggara
og þessi stíugerð verði raunhæf-
ari kostur. En það er fyrst og
fremst hálmkostnaður og óvissa
um aðgang að góðum hálmi sem
takmarkar útbreiðslu hálmstía.
Hálmstíur geta t.d. verið hentugar
við breytingu á eldri hlöðum. Þá
er nauðsynlegt að hafa vel rúmt á
gripum og bera jafnt undir þannig
að ekki blotni upp í hálmdýnunni.
Ef það gerist hefst gerjun í hálmin-
um og erfitt verður að halda hálm-
dýnunni þurri. Allra mikilvægasti
þátturinn við góð hálmfjós er að
tryggja viðunandi loftræstingu.
Legubásastíur
Sú stíugerð sem hentar einna best
fyrir uppeldisgripi er legubásastíur.
Kvígur sem eru aldar upp á legubás-
um eiga auðveldara með að aðlagast
þegar þær eru færðar yfir í mjólk-
urkúa hópinn. Hér eru sýndar tvær
útgáfur af legubásastíum. Annars
vegar þar sem er ein röð af legubás-
um og hins vegar þar sem er um að
ræða tvær raðir af legubásum. Ein
röð af legubásum hefur þann megin
ókost að átpláss verða fleiri en þörf
er á og þar með verður rými á fóður-
gang deilt niður á hvern grip meira
en ella. Þar sem eru tvær raðir af
legubásum nýtast átplássin betur.
Hér er sýnd lausn þar sem er einn
þvergangur á milli legubásaraða, en
æskilegt er að hafa slíkan gang við
báða enda.
Samanburður
Eins og sjá má í samantekt í 1. töflu
er mikill munur á því rými sem þarf
fyrir hverja stíugerð. En munur á
aðbúnaði gripa er einnig veruleg-
ur. Þá er einnig verulegur munur á
kostnaði á hvern m2 milli stíugerða.
Þannig er minnsti kostnaðurinn
við hálmstíu (2. mynd) og mesti
kostnaðurinn við legubásastíu með
tveimur legubásaröðum (6. mynd).
Áhrif burðaraldurs á
byggingarþörf
Við uppeldi á kvígum er mikilvægt
að fá jafnan og góðan þroska í
kvígurnar og stefna að því að kvíg-
ur geti borið 24 mánaða gamlar.
Með því sparast bæði fóðurkostn-
aður, vinna og ekki síður þarf
minni byggingar eftir því sem kvíg-
urnar bera fyrr.
Að jafnaði þarf um 15-20 %
meira rými fyrir uppeldi ef kvíg-
ur bera 28 mánaða í staðinn fyrir
24 mánaða og um 30-35 % meira
rými ef kvígurnar bera 32 mánaða í
staðinn fyrir 24 mánaða. Með góðu
skipulagi við uppeldi á kvígum má
því spara verulega fjárhæðir, bara í
byggingarkostnaði.
Unnsteinn Snorri Snorrason
bútækniráðunautur BÍ
1. tafla. Stærðarmál á geldneytastíum fyrir kvígur 150-200 kg.
Nr. Gerð stíu Stærð, m2 m2/grip
1 Rimlastía 27,3 1,7
2 Hálmstía 41,8 2,6
3 Hálmstía með átstall við fóðurgang 46,8 2,9
4 Hálmstía með rimlagólfi við fóðurgang 52,0 3,3
5 Legubásar, ein röð 53,0 3,3
6 Legubásar, tvær raðir 56,9 3,6
2. tafla. Samanburður á heildarstærð uppeldisaðstöðu fyrir kvígur. Miðað
er við 60 árskýr og jafnan burðartíma. Aðeins er um að ræða rými fyrir
gripi. Fóðurgangur og annað vinnusvæði er ekki hluti af þessum tölum.
Nr. Gerð stíu
Stærð, m2
24 mán* 28 mán 32 mán
1 Rimlastía 106,2 125,4 144,7
2 Hálmstía 180,4 212,9 245,3
3 Hálmstía með átstall við fóðurgang 218,7 255,8 292,8
4 Hálmstía með rimlagólfi við
fóðurgang
228,8 269,9 311,0
5 Legubásar, ein röð 231,9 271,6 311,2
6 Legubásar, tvær raðir 260,2 297,5 334,8
* Burðaraldur kvígna.
Aðstaða fyrir kvígur
2. mynd – Hálmstía fyrir 16 kvígur
á aldrinum 6-12 mánaða (150-200
kg). Heildarflatarmál stíunnar er
41,6 m2 og á hvern grip 2,6 m2.
3. mynd – Hálmstía með stuttum
átstalli við fóðurgang fyrir 16 kvíg-
ur á aldrinum 6-12 mánaða (150-
200 kg). Heildarflatarmál stíunnar
er 46,9 m2 og á hvern grip 2,9 m2.
4. mynd – Hálmstía með rimlagólfi
við fóðurgang fyrir 16 kvígur á
aldrinum 6-12 mánaða (150-200
kg). Heildarflatarmál stíunnar er
52,0 m2 og á hvern grip 3,3 m2.
5. mynd – Legubásastía með einni
legubásaröð fyrir 16 kvígur á aldr-
inum 6-12 mánaða (150-200 kg).
Heildarflatarmál stíunnar er 53 m2
og á hvern grip 3,3 m2.
6. mynd – Legubásastía með tveimur legubásaröðum fyrir 16 kvígur á
aldrinum 6-12 mánaða (150-200 kg). Heildarflatarmál stíunnar er 56,9 m2
og á hvern grip 3,6 m2.
1. mynd – Rimlastía fyrir 16 kvígur
á aldrinum 6-12 mánaða (150-200
kg). Heildarflatarmál stíunnar er
27,2 m2 og á hvern grip 1,7 m2.
Brunamálastofnun hefur nýver-
ið látið taka saman leiðbeining-
ar um brunavarnir í landbún-
aðarbyggingum. Þetta leiðbein-
ingarit má nálgast á heimasíðu
Brunamálastofnunar, http://
www.brunamal.is. Þar er einnig
að finna tvær skýrslur sem unnar
voru fyrir nokkrum árum síðan
um ástand raflagna á sveitabýl-
um og ástand raflagna í hesthús-
um. Í þeim báðum er dregin upp
nokkuð dökk mynd af ástandinu
og þess vegna er full ástæða til
þess að hvetja alla bændur til að
huga vel að ástandi raflagna og
rafbúnaðar á sínu búi.
Hver er mesta íkveikjuhættan í
landbúnaðarbyggingum?
Í langflestum tilfellum er það
rafmagn og rafmagnsbúnaður
sem hefur valdið íkveikju. Þess
vegna er mjög mikilvægt að allur
frágangur rafmagnsbúnaðar sé
óaðfinnanlegur, búnaðurinn allur
ryk- og rakaþéttur og allt efni
sem notað er skal uppfylla viðeig-
andi gæðastaðla. Rafmagnstöflur
eiga að vera í stálskápum og stað-
settar í eða á vegg úr óbrenn-
anlegum efnum. Gæta þarf þess að
laustengd vinnuljós (ljósahundar)
séu aldrei nálægt heyi eða öðru
auðbrennanlegu efni. Einnig þarf
að fylgjast vel með ástandi á raf-
magnssnúrum og tenglum.
Það er full ástæða til að hvetja
bændur til þess að láta löggilt-
an rafvirkja yfirfara raflagnir og
rafbúnað reglulega, sérstaklega í
gripahúsum, til þess að koma í veg
fyrir brunatjón og stuðla að bættu
öryggi manna og búfjár.
Brunahólfun
landbúnaðarbygginga
Reglur um brunahólfun gripahúsa
er að finna í grein 116.6 í bygging-
arreglugerð. Þar stendur:
Gripahús skal vera sérstakt
brunahólf EI60 með EI-CS30 hurð
að öðrum rýmum. Sé gripahús
stærra en 200 m2 skal það aðskilið
frá hlöðu með eldvarnarvegg REI-
M120. Hurð skal vera EI-C60.
Þetta þýðir einfaldlega að það rými
byggingarinnar, sem búfénu er
ætlað, skal vera sérstakt brunahólf
með a.m.k. 60 mínútna bruna-
þoli og sjálflokandi, reykþéttum
hurðum með a.m.k. 30 mínútna
brunamótstöðu. Með þessari kröfu
er reynt að tryggja að nokkur tími
gefist til þess að bjarga gripunum
út ef eldur kemur upp í nærliggj-
andi rými byggingarinnar. Þetta
ákvæði á t.d. við um skilveggi
milli fjóss og mjólkurhúss og fjóss
og fóðuraðstöðu.
Byggingarefni gripahúsa
Samkvæmt ákvæðum í 135. grein
byggingareglugerðarinnar er bann-
að að nota óvarið plastefni sem
einangrun. Þetta gildir að sjálf-
sögðu líka um gripahús. Plastefnin
uppfylla ekki kröfur um takmark-
aða reykmyndun og eldútbreiðslu.
Þau bráðna við bruna og séu þau
notuð í þaki geta logandi flygs-
ur fallið eða lekið niður á allt það
sem fyrir neðan er, bæði búfé og
björgunarmenn. Þetta á ekki bara
við um hvíta einangrunarplastið,
sem algengt var að nota óvarið
neðan í þök gripahúsa í „gamla
daga“, heldur líka um svokallað
loftbóluplast, þunna einangrun sem
hefur verið á markaði hér undan-
farin ár. Samkvæmt upplýsingum
Brunamálastofnunar er bannað að
nota það óvarið neðan í þök og
innan á veggi gripahúsa. Hvítt,
óvarið einangrunarplast er einkum
að finna neðan í þökum gripahúsa
Brunavarnir í landbúnaðarbyggingum
Dæmi um reyksogskerfi í gripahúsi og fóðuraðstöðu. Rör frá báðum hlut-
um byggingarinnar tengjast stjórnstöðinni.