Bændablaðið - 11.02.2010, Qupperneq 18
Bændablaðið | fimmtudagur 11. febrúar 201018 Byggingar í landbúnaði
Mýranaut rekur nautaeldi á Leirulæk
Stærsta hús sinnar tegundar á Íslandi
Þann 5. mars á síðasta ári
var nýtt hús tekið í notkun á
Leirulæk á Mýrum sem sér-
staklega er hannað til nautaeldis.
Húsið er 720 fermetrar og verð-
ur að teljast einstakt á Íslandi af
þessari stærðargráðu. Í húsinu
rúmast 200 gripir og er nú sá
fjöldi þar til staðar. Sigurbjörn
Jóhann Garðarsson, bóndi á
Leirulæk, segir að aldurssam-
setning gripanna sé í yngra lag-
inu og því sé kjötfram leiðslan
ekki komin á fullan skrið.
Alls eru 320 gripir á fóðrum á
Leirulæk og munu 90 holdakýr
bera í vor að sögn Sigurbjörns.
Hann segir að reksturinn verði
kominn í eðlilegan farveg í haust.
„Ég reikna með að þá verðum
við komin í full afköst í fram-
leiðsluferlinu. Við munum senda
10-12 gripi til slátrunar í hverj-
um mánuði,“ segir Sigurbjörn.
Nautakjöt sitt selur hann undir
merkjum Mýranauts, sem þau
Guðrún kona hans reka í samstarfi
við Hönnu Sigríði Kjartansdóttur,
systurdóttur Guðrúnar, og mann
hennar Anders Larsen, búvéla-
virkja, en þau búa í Borgarnesi.
„Hann kemur alltaf eftir vinnu á
virkum dögum og um helgar og
vinnur á búinu. Stefnan er sú að
hann minnki vinnuna í Borgarnesi
þegar reksturinn er kominn í fullan
gang hér hjá okkur.“
Bygghratið sótt í brugghús
í Stykkishólmi
„Núna gefum við eina rúllu fyrir
hverja stíu og það dugar hátt
í vikuna. Við ætlum svo að fá
okkur fóðurvagn og þá getum við
blandað hratinu sem við notum
– og bygginu – í hann, sem skil-
ar sér svo aftur í betri nýtingu á
fóðrinu. Hratið er bygghrat sem
við fáum úr brugghúsi Mjaðar í
Stykkishólmi sem framleiðir t.a.m.
bjórinn Jökul, en við notum allt að
2,5 tonn af því á viku. Það er þó
sveiflukennt og fer eftir hvernig
stendur á í bruggframleiðsluferl-
inu hverju sinni en við sækjum allt
sem við komumst yfir. Sjálf erum
við með um 8-10 hektara undir
byggræktun.“
Horfur ágætar í markaðsmálum
Sigurbjörn segir að markaðshorfur
séu ágætar fyrir Mýranaut. „Það
gekk vel hjá okkur á síðasta ári.
Við höfum látið slátra fyrir okkur
á Hellu og seldum allt sjálf, beint
frá býli, til áramóta. Núna höfum
við verið að leggja aðeins inn.
Þannig að það er bara eðlilegt að
það minnki salan á þessum tíma;
fólk þarf að jafna sig á jólavertíð-
inni. Við verðum þó vör við það
núna að fólk er byrjað að spyrja
um kjöt hjá okkur aftur. Þróunin
hefur orðið sú að fólk kaupir mest
¼ úr skrokki frekar en að kaupa
hálft eða jafnvel heilt naut og kúnn-
inn vill vita hvaðan kjötið kemur –
við höfum fundið fyrir því.“
-smh
myndir | smh
Sigurbjörn og Guðrún glaðbeitt í nýbyggingunni. Aldurssamsetning gripanna í húsinu er enn í yngra lagi.
Stjörnugrís – Melum
Framkvæmdir við uppbygginu
Svínabúsins á Melum hófust árið
2000 og þeim lauk í bili árið 2008
með nýbyggingu. Búið hefur leyfi
fyrir 8.000 stæðum fyrir grísi yfir
30 kg og fermetrafjöldinn að öllu
meðtöldu þ.e. fóðurstöð og fleiru
er 12.500 fermetrar. Þetta er
stærsta einstaka eldisstöð lands-
ins.
Að sögn Geirs Gunnars
Geirssonar, eins af eigendunum,
eru á Melum einungis grísir frá
7-100 kg en engar gyltur. „Þetta
er í eign fjölskyldnanna á Vallá á
Kjalarnesi. Félagið rekur auk þess
4 gyltubú. Þá er sláturhús í Saltvík í
eigu félagsins.
Það starfa 5 menn á Melum
og 30 í heildina hjá Stjörnugrís.
Reksturinn hefur verið mjög þung-
ur undanfarið enda kostnaðarhækk-
anir gríðarlegar og verð á afurðum
mjög lágt. Horfur til framtíðar eru
vægast sagt óljósar í þessu efna-
hagsástandi og svo ekki sé talað
um hugmyndir stjórnvalda um að
ganga í ESB,“ segir Geir og bætir
því við að til standi að klára að
mála húsin við tækifæri. -smh
Að ofan er nýbyggingin að utan. Hér til hægri horfum við inn í eitt hólfið, en öll eru þau svipaðrar gerðar.
Framhliðin og Skarðsheiðin í bakgrunni. myndir | smh