Bændablaðið - 11.02.2010, Page 22
22 Bændablaðið | fimmtudagur 11. febrúar 2010
Á markaði
Erna Bjarnadóttir
hagfræðingur Bændasamtaka
Íslands
eb@bondi.is
Verðlagsmál
Innflutt kjöt
Tímabil janúar - desember Árið 2009 Árið 2008
Alifuglakjöt 338.733 530.398
Nautakjöt 154.057 339.788
Kindakjöt 61 0
Svínakjöt 181.675 279.760
Aðrar kjötvörur af áðurtöldu 25.384 22.267
Samtals 699.910 1.172.613
Kjötneysla
að breytast
Eins og fram kom í síðasta Bænda-
blaði var 6,4% samdráttur í kjöt-
neyslu milli áranna 2008 og 2009.
Heildar kjötneysla á íbúa nam 75,9
kg árið 2009. Þegar litið er 10 ár
aftur í tímann hefur kjötneysla
hins vegar aukist um 8,3 kg á íbúa.
Neysluaukninguna má fyrst og
fremst rekja til aukinnar neyslu
á alifuglakjöti (11,8 kg/íbúa) og
svínakjöti (3,1 kg/íbúa). Á móti
hefur orðið samdráttur í neyslu
kindakjöts (5,2 kg/íbúa) og lít-
ilsháttar samdráttur í nautakjöts-
neyslu sem flest ár liggur á milli
12 og 13 kg/íbúa en þessi tvö ár
liggja þar rétt fyrir utan. Grafið
sýnir breytinguna í neyslu ein-
stakra kjöttegunda. Hitt grafið
sýnir síðan breytingar á hlutfalls-
legri skiptingu kjötmarkaðarins og
endurspeglar ofangreint. Hlutdeild
kindakjöts í markaðnum hefur
skroppið mest saman eða um 11%
stig, en alifuglakjöts aukist mest,
um 13,8% stig.
Síðastliðin 15 ár hefur framleiðsla
mjólkur aukist um 23%. Á sama
tíma hefur sala aukist um 15% á
fitugrunni en 17% á próteingrunni.
Línuritið sýnir þróun heildar fram-
leiðslu og sölu frá 1995 – 2009.
Eins og sést dróst fitusala nokk-
uð aftur úr próteinsölu á tímabili
en verulega hefur dregið saman á
ný. Á samatíma hefur landsmönn-
um fjölgað um tæp 20%. Neysla
á íbúa mælt í lítrum mjólkur (sem
síðan er neytt í mismunandi formi
s.s. drykkjarmjólkur, skyrs osta
o.s.frv.) er síðan sýnd í öðru grafi.
EB
Innflutningur ýmissa
búvara árið 2009
Árið 2009 voru flutt inn 59,4
tonn af jógúrt, aðallega frá
Spáni. Af ostum voru flutt inn
157,7 tonn að verðmæti 189
millj. Króna. Einnig voru flutt
inn 2.236 tonn af kartöflum
fyrir 160 milljónir króna, 692
tonn af tómötum fyrir 140 millj.
kr., 159 tonn af gúrkum fyrir 34
millj. Króna, og 1.084 tonn af
papriku fyrir 270 milljónir kr.
EB – heimild Hagstofa Íslands
Samkvæmt verslunarskýrslum
voru flutt út 2.546 tonn af kinda
og lambakjöti árið 2009 að verð-
mæti 1.404 milljónir króna. Mest
var flutt út til Noregs, 533 tonn,
til Bretlands fóru 489 tonn, til
Færeyja fóru 325 tonn og Japans
263 tonn. Eins og sést eru 3 af
4 mikilvægustu viðskiptalönd
okkar í magni, utan ESB og toll-
kvóti Íslands á ESB markað
(1800 tonn) því langt frá að vera
fullnýttur.
Af smjöri voru flutt út 452 tonn,
mest til Bretlands og Hollands,
138 tonn til hvors lands. Af skyri
voru flutt út 115,6 tonn nánast allt
til Bandaríkjanna, að verð mæti
56,4 millj. Kr. (fob). Út flutn ings-
verðmæti æðardúns nam 186 millj.
Króna en flutt voru út 1.928 kg
og meðalverð því tæp 97 þús kr/
kg. Verðmæti minkaskinna nam
tæplega 918 millj. Króna og með-
alverð 155.255 skinna var 5.910
kr/skinn. Samkvæmt útflutnings-
skýrslum voru svo flutt út 1.496
hross af öllum stærðum og gerð-
um að verðmæti alls rösklega 922
millj. Kr. Meðalverð á hross var
því rösklega 663 þús. Kr. Hæsts
meðalverð fékkst fyrir hross sem
seld voru til Sviss (alls 100 hross)
rösklega ein milljón króna á hross.
Flest hross fóru hins vegar til
Þýskalands, alls 442.
EB – heimild Hagstofa Íslands
Innflutningur á kjöti
Nú liggja fyrir bráðabirgðatölur um innflutning á kjöti á árinu 2009. Alls
voru flutt inn tæplega 700 tonn, mest af alifuglakjöti 339 tonn, 182 tonn
af svínakjöti og 154 tonn af nautakjöti. Stór hluti innflutnings eru hreinir
vöðvar, kjúklingabringur og nautavöðvar og því svarar þetta magn til tals-
vert meira magns reiknað í skrokkum með beinum eins og íslenska fram-
leiðslan og salan er reiknuð (sjá annarsstaðar á síðunni). Árið 2008 voru
flutt inn 1.173 tonn (nánast allt fyrstu 9 mánuði ársins) og samdráttinn má
fyrst og fremst rekja til gengisfalls krónunnar. EB
Framleiðsla og sala mjólkur síðastliðin 15 ár
Útflutningur búvara árið 2009
Framleiðsla og sala mjólkur sl. 15 ár. Sala mjólkur, lítrar á íbúa á árunum 1994-2009.
Neysla kjöts 1999 og 2009, kg á íbúa. Markaðshlutdeild kjöttegunda 1999 og 2009.
Frá borg að býli
Það er með sannri gleði að við til-
kynnum hér að nú geta bændur
nálgast vörur Kemi á mjög auð-
veldan hátt. Sendibíllinn okkar
verður notaður í þágu bænda sem
geta pantað hreinsiefni í mjaltakerf-
ið og mjaltaþjóninn ásamt olíum,
glussa og smurfeiti fyrir vinnu-
vél arnar.
E i n n i g
er um við
með allar
al mennar
r eks t r a r-
vör ur til
venju legra heimilisnota.. Nú þegar
eru mjög margir bændur komnir
í bein viðskipti við Kemi og þeim
fjölgar hratt sem vilja vandaða
vöru á sanngjörnu verði beint heim
í hlað án aukakostnaðar. Enn sem
komið er þá getum við þó einung-
is boðið þessa þjónustu í sveitum
sunnanlands en við stefnum á að
fara sem víðast og bæta þjónustuna
þannig að sem flestir bændur njóti
góðs af heilbrigðri samkeppni.
Vöruúrval Kemi er orðið mjög fjöl-
breitt eins og sjá má á heimasíðu
okkar www.kemi.is . Hvort sem
þarf að þrífa eða smyrja vélar, bíla
eða önnur tæki þá eigum við og
getum útvegað allt sem til þarf.
(Fréttatilkynning)