Bændablaðið - 01.09.2011, Side 27
28 Bændablaðið | fimmtudagur 1. september 2011
Líf og starf
Ræktunarstarf íslenskrar naut-
griparæktar tekur mið af fjöl-
þættum markmiðum þar sem
samþætt er áhersla á afurðaeigin-
leika annars vegar og eiginleika
sem tengjast lífsþrótti og endingu
hins vegar. Kynbótagildi einstakra
gripa er metið á grundvelli allra
tiltækra upplýsinga um gripinn
sjálfan og alla þekkta áa hans, en
upplýsingarnar eru vegnar saman
í eina samræmda kynbótaein-
kunn. Meðal þeirra eiginleika sem
valið er fyrir og tengjast hæfni og
endingu eru júgur- og spenagerð
svo og staðsetning spena. Þessir
eiginleikar eru metnir á grund-
velli upplýsinga sem fengnar eru
með skoðun og mati ráðunauta á
nær öllum kúm sem koma inn á
skýrslur. Í meginatriðum er matið
framkvæmt á fyrsta mjaltaskeiði
og alls eru metnar um það bil 5000
kýr á hverju ári.
Dómstigarnir, sem notaðir eru,
eru tveir. Annars vegar einkunna-
skali þar sem metnir eru fjórir eigin-
fyrir hvern þeirra. Þessir eiginleikar
eru:
Júgur, gerð og lögun
Júgurskipting og -festa
Staðsetning spena og lengd
Lögun og gerð spena
Þessir eiginleikar eru samsettir
og byggja á mörgum smærri þátt-
um, sem hver um sig þarf að upp-
fylla ákveðnar kröfur til að samsetti
eiginleikinn geti hlotið hæstu ein-
kunn. Vegna þessa getur sá gripur
sem fær næsthæstu einkunn fyrir
samsettan eiginleika verið nokkuð
frábrugðinn öðrum sem fær einnig
næsthæstu einkunn fyrir sama
samsetta eiginleikann. Dómarnir
byggjast því á mati þess sem dæmir
kýrnar um hve mikið skuli draga frá
hæstu einkunn hvers eiginleika, við
það að einstakir þættir innan hans
uppfylli ekki settar kröfur.
Hins vegar er um að ræða línu-
legan dómstiga þar sem hverjum
eiginleika er lýst á ákveðnu bili
skalanum eru ystu líffræðilegu mörk
hvers eiginleika. Sumir af eiginleik-
unum hafa kjörgildi í þessum ystu
mörkum en kjörgildi annarra liggur
nærri miðju dómstigans. Því er ekki
hægt að leggja saman einkunn fyrir
einstaka eiginleika og fá heildar-
mynd af gripnum. Línulegi skalinn
er því lýsing en ekki mat og þar er
lýst eftirfarandi eiginleikum:
#
$&
'* +
&
' +
&
<>' +
&
>QX' +
ZX
>' +
ZX'* +
Z[X'* +
*Kjörgildi
Á grundvelli þessara upplýsinga
eru reiknaðar kynbótaeinkunnir fyrir
alla þessa eiginleika sem birtast
í HUPPU fyrir hvern grip. Þá er
reiknuð samræmd kynbótaeinkunn
fyrir júgur og spena. Einkunnirnar
fyrir júgur og spena eru samsettar á
eftirfarandi hátt.
Kynbótaeinkunn, júgur =
(Júgureink. eldri skala )*0.5+ júgur-
festa (Nýja)*0.1 + júgurband (Nýja)
*0.1+ júgurdýpt (Nýja)*0.3
Kynbótaeinkunn, spenar =
(Spenaeink. eldri skala)*0.7 + spena-
lengd (Nýja), )*0.05 (Þvermál*(- 1
))*0.05+ staðsetning*0.2
Helstu gallar í júgurgerð eru illa
upp borin júgur og slök júgurfesta.
Við notkun dómstiganna er lögð
sérstök áhersla á að refsa kúm sem
eru með slaka júgurfestu og mikla
júgurdýpt. Þetta endurspeglast í
kynbótaeinkunninni, þar sem mikil
áhersla er á að velja gegn mikilli
júgurdýpt.
Helstu spenagallar eru langir
spenar og illa staðsettir framspenar.
Í kynbótaeinkunninni endurspeglast
þetta með mikilli áherslu á staðsetn-
ingu spena.
Árangurinn af ræktunarstarfinu
ræðst af mörgum þáttum s.s. arfgengi
eiginleikanna, þátttöku í ræktunar-
starfinu og hversu vel er staðið að
upplýsingaöfluninni. Hvað varðar
arfgengi fyrir þeim eiginleikum
sem hér um ræðir, þá er það almennt
meðalhátt og innbyrðis tengsl þeirra
jákvæð. Í nýlegu B.S.-verkefni
\'Z>
]>^
birtar niðurstöður útreikninga á
arfgengi fyrir þessa eiginleika og
#<_\
Tafla 1: Arfgengi nokkurra júgur- og
spenaeiginleika
Eiginleikar h2
Júgur, gerð og lögun 0,14±0,01
Júgurskipting og festa 0,10±0,01
Staðsetning spena
og lengd
0,24±0,01
Lögun og gerð spena 0,12±0,01
Júgurfesta 0,15±0,01
Júgurband 0,08±0,01
Júgurdýpt 0,18±0,01
Spenalengd 0,34±0,02
Spenaþvermál 0,24±0,02
Staða framspena 0,11±0,01
Þar sem matið á þessum eigin-
leikum er huglægt þá er mikils um
vert að það sé eins samræmt og
kostur er. Til þess að tryggja þessa
samræmingu hittast ráðunautar
einu sinni á ári til þess að fara
yfir verkefni liðins árs og yfirfara
matið á einstökum þáttum dóm-
stiganna. Þessi aðferð hefur gefist
vel og skilað árangri, bæði hvað
varðar að nýta dreifni dómstiganna
og auka samræmi í dómum.
Þegar skoðuð er þátttaka í rækt-
`\
kúm á búum með skýrsluhald og
þar með koma nær allar fyrsta
kálfs kýr til dóms. Því miður eru
allt of margar þeirra undan heima-
nautum og nýtast þannig ekki í
ræktunarstarfinu. Hin síðari ár
hafa orðið umtalsverðar erfða-
framfarir fyrir eiginleikana júgur
og spena. Frá því að farið var að
nota BLUP-aðferðafræðina við
mat á kynbótagildi hefur erfða-
framför fyrir þessa eiginleika
[
< q >z{
|>z{
síðustu ár. Ná má enn meiri árangri
í ræktunarstarfinu fyrir þessa
eiginleika, en virkast í því skyni
er að auka notkun sæðinganauta
á kostnað heimanauta og þar með
fjölga nautum í afkvæmarannsókn
og stækka afkvæmahópa. Með
samstilltu átaki ætti það að vera
auðvelt í framkvæmd, öllum til
hagsbóta.
Kynbætur fyrir júgurgerð og spenum
Fjóstíran
Verulegar breytingar hafa orðið á
búfjáreign landsmanna, nýtingu
beitilanda og búskaparháttum
síðustu áratugina. Vetrarbeit
fyrir sauðfé er að mestu aflögð,
er enn töluvert nýtt fyrir hross en
mikið gefið með, og í heildina nýtir
hrossastofninn um það bil jafn
mikla úthagabeit og fjárstofninn
í landinu.
Til sauðfjárbeitar er úthaginn,
bæði heimalönd og afréttir, nýttur
í tengslum við ræktað land, vor og
haust, með hagkvæmum hætti víðast
}&
_>
q~
^[[ >
||
hross og hefur þróunin verið sú
síðustu árin að eftir mikla fækkun
[$&~ [ |~ litlar breytingar orðið á fjártölunni.
Hrossin urðu flest á síðasta áratug
[>&
~
Fjöldi bænda í landbótum
Hvað lausagöngu og vörslu varðar
kemur allt búfé við sögu, þó mest
sauðfé og hross. Jörðum með búfé
fækkar, fjárbúum hefur einnig
fækkað og sum þeirra hafa stækkað
á seinni árum, aukin þörf er fyrir
girðingar, einkum í heimalöndum,
en afkoman í sauðfjár- og hrossabú-
skap leyfir ekki mikinn kostnaðar-
[<z>\
gerðar til góðra beitarhátta, ágæt
þátttaka er í gæðastýringu í sauð-
fjárrækt og töluverð í hrossarækt,
og víða um land stunda bæði sauð-
fjár- og hrossabændur uppgræðslu
lands og aðrar landbætur. Ógirtir
eða illa girtir vegir með aukinni
umferð gegnum lönd bænda valda
z> >
hafa hagsmunaárekstrar komið upp
á nokkrum stöðum þar sem sam-
býli búfjárbeitar, einkum sauðfjár-
beitar, og t.d. skógræktar, hefur ekki
verið skipulagt með markvissum og
raunhæfum hætti. Sauðfjárræktin
hefur verið og er greinilega enn
sú búgreinanna sem er veigamesta
undirstaða búsetu og byggðar víðast
hvar í dreifbýli.
Það lagaumhverfi sem varðar
lausagöngu og vörslu búfjár
tekur mið af hérlendum hefðum
og aðstæðum í flestu tilliti, nema
helst hvað varðar girðingarákvæði
vegalaga. Afréttarlög, girðingarlög,
búfjárhaldslög, reglugerðir um vörslu
búfjár, girðingar og gæðastýringu í
sauðfjárframleiðslu, svo og fjallskila-
samþykktir og samþykktir sveitar-
félaga um búfjárhald, gefa ágætt
svigrúm til ýmissa úrbóta í landnýt-
ingarmálum, m.a. til að bæta sam-
býli sauðfjárræktar og skógræktar
enda úrelt sjónarmið að líta á þessar
búgreinar sem andstæður.
Beitarskógar liður í
búskógarrækt
Eðlilegt er að tengja saman
skógrækt og skipulega fjárbeit í skóg-
lendi sem lið í búskógrækt (e. agro-
Z
ýmissa annarra aðila í Landnámi
Ingólfs Arnarssonar gefur m.a. góð
fordæmi um raunhæfar úrbætur, en
hafa skal í huga að aðstæður eru mjög
breytilegar og því þarf að huga að
hverju sveitarfélagi fyrir sig þegar
verið er að draga úr lausagöngu og
gera kröfur um aukna vörslu búfjár.
Búnaðarþing mótaði þá stefnu
fyrir all mörgum árum að úthaga-
<[_z>#
>
[
í sátt við landið og í anda sjálfbærrar
þróunar. Gæðastýringin fellur vel að
[
}&
`
sauðfjárræktarinnar í gæðastýringu
þar sem Landgræðsla ríkisins hefur
vottað landnýtingarþáttinn sam-
#
[
Auk samstarfs við sveitarstjórnir
þurfa Landgræðslan, Skógræktin
og Vegagerðin að taka virkan þátt í
bættri skipulagningu með bændum í
samræmi við lög og reglur, svo sem
varðandi girðingarkostnað. Í hverju
sveitarfélagi ætti m.a. að hugleiða
flokkun lands með tilliti til sauð-
fjárræktar, skógræktar og annarra
landnota. Fordæmið úr Landnámi
Ingólfs Arnarsonar gæti vísað veg-
inn að því að sauðfjárhaldið yrði
lagað að skógræktarsjónarmið-
unum, en þar sem fjárbúskapur er
útbreiddur og veigamikill vegna
afkomu bænda og viðhalds byggðar
yrðu skógræktarsjónarmiðin löguð
að sauðfjárhaldinu. Alhliða lausa-
göngubann er ekki raunhæfur kostur.
Lausaganga og varsla búfjár; lög, hefðir og hagsmunir
Framtíðarsýn bænda
Ólafur R. Dýrmundsson, Bændasamtökum Íslands
Magnús B. Jónsson
Ráðunautur í nautgriparækt