Bændablaðið - 01.09.2011, Qupperneq 32
33Bændablaðið | fimmtudagur 1. september 2011
Sterkir hundar í landskeppni
Smalahundafélagsins
Smalahundafélag Íslands hélt sína
árlegu landskeppni að Eyrarlandi
í Fljótsdal um síðustu helgi. Keppt
var í þremur flokkum og var góð
mæting en alls voru 21 hundur
skráður til leiks. Austurlandsdeild
Smalahundafélagsins sá um fram-
kvæmdina sem var til mikillar fyr-
irmyndar en aðstæður þóttu afar
góðar til keppni. Allir hundarnir
voru af Border Collie tegund.
Að sögn kunnugra var hópurinn
sem keppti í A-flokknum gríðarlega
sterkur en í efstu tveimur sætunum
þar lentu hundar sem hafa verið
fluttir inn fulltamdir. Það er því
mikil áskorun fyrir hundaþjálfara
hér á landi að gera enn betur í fram-
tíðinni. Þá þóttu unghundarnir allir
afar efnilegir og ljóst að innflutn-
ingur til ræktunar síðustu ár er að
skila góðum árangri.
Það var mál manna að aldrei hefði
sést jafn sterkur A flokkur og í ár og
unghundarnir voru síðan allir mjög
álitlegir þó þeir væru komnir mis-
jafnlega langt í náminu.
Dómari var Martin Calvin Jones
frá Wales og nutu hundeigendur leið-
sagnar hans varðandi hunda sína og
einnig svaraði hann fyrirspurnum.
Verðlaun voru gefin af fyrirtækinu
Lífland og Fljótsdalshreppur styrkti
keppnina.
Úrslit voru eftirfarandi:
Unghundar:
1. Svanur Guðmundsson - Tinni frá
Staðarhúsum 127 stig samtals.
2. Aðalsteinn Aðalsteinsson - Kría
frá Daðastöðum 127 stig sam-
tals.
3. Sverrir Möller - Bjartur frá Ytra-
Lóni. 121 stig samtals.
B. Flokkur
1. Valgeir Magnússon - Snót frá
Grundarfirði. 63 stig samtals.
2. Bjarki Benediktsson - Trúska frá
Breiðavaði. 47 stig samtals.
3. Jón Geir Ólafsson - Snúður frá
Garðabæ. 26 stig samtals.
A. Flokkur
1. Gunnar Guðmundsson - Karven
Taff 167 stig samtals.
2. Hilmar Sturluson - Dot frá Wales
154 stig samtals.
3. Elísabet Gunnarsdóttir - Skotta
frá Daðastöðum, 146 stig sam-
tals.
Verðlaun fyrir besta hund keppn-
innar hlaut Gunnar Guðmundsson
fyrir Karven Taff og verðlaun fyrir
bestu tík keppninnar hlaut Hilmar
Sturluson fyrir Dot frá Wales.
– H A U S T T I L B O Ð –
VERKIN TALA
Fr
um
Kuhn taðdreifarar
Brandt haughrærur og mykjudælurKverneland plógar Thaler liðléttingar
Tanco rúlluskerar og rúllugreipar
BvL TopStar stæðuskerar
Redrock haugsugur og mykjudælur
Sigurvegarar í landskeppni smalahunda að Eyrarlandi í Fljótsdal.
Til sölu Alda Eyjafjarðarsveit
Alda Eyjafjarðarsveit samtals 533 fm þar af íbúðarhús 198,8 fm og
fjórir hektarar af landi. Mikið uppgert og að hluta til nýtt hús sem er
einstakt í sinni röð og skiptist í íbúðarhúsnæði annarsvegar og nýjar
„vinnustofur“ og aðstöðu til leikja og skemmtunar hinsvegar.
Húsið er staðsett á
mjög fallegu svæði
í Eyjafjarðasveit og
bíður upp á mikla
möguleika sem vinnu-
stofur fyrir listamenn
eða léttan iðnað,
ferðaþjónustu, safn eða hvað annað sem hægt er að láta sér detta í
hug. vinnustofur eru eins og fyrr segir allt að því nýjar .þ.e. allt nema
sökkull og geta hæglega verið partur af íbúðarhúsi eða sér íbúðir ef
til þess fást leyfi. Góðir möguleikar á að leigja, sér út vinnustofur eða
íbúðarhúsið hvort sem vill.
Óskað er eftir tilboðum í eigninna
Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Holt Eignamiðlun í síma
464-7800 eða í tölvupósti á daniel@holtfasteign.is eða rognvaldur@
holtfasteign.is
Frystikistur á frábæru verði
Verð frá aðeins kr. 79.625,-
*Frá 189L kistu upp í 567L kistu
*Allar kistur eru á hjólum
*Með læsingu á loki
*Niðurfall fyrir afhrýmingu
*Með hitamæli
Nánari upplýsingar í síma 440-1800 & www.kaelitaekni.is
Thorcars
N O T A Ð I R B Í L A L E I G U B Í L A R
ó d ý r a r i
w w w . t h o r c a r s . c o m
Verð frá kr. 3800 S.869 6133 erum í 110 RVK
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
Háþrýstidælur
Vinnuþjarkar ætlaðir til
daglegra nota
HD 10/25-4 S
■ Vinnuþrýstingur
30-250 bör
■ 500-1000 ltr/klst
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
■ Túrbóstútur + 50%
HD 6/16-4 M
HD 6/16-4 MX
■ Vinnuþrýstingur
30-160 bör
■ 230-600 ltr/klst
■ 15 m slönguhjól
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
■ Túrbóstútur + 50%