Bændablaðið - 26.07.2012, Side 15
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. júlí 2012 15
þau standa og grotna niður. Það
varð síðan úr að við fórum út í þetta
ævintýri.
Við byrjuðum á því að moka út úr
fjósinu jafnframt því að hefja borun
eftir heitu vatni árið 2003. Eftir
það fórum við að byggja hér upp
veitingasalinn og höfum svo haldið
áfram með þetta.“
Borunin leiddi til þess að nú er
búið að setja upp sundlaug í gömlu
útihúsunum og þar fyrir utan eru
heitir pottar, ferðafólki til mikillar
ánægju.
Unnið að tvöföldun á gistirými
„Við erum nú að byggja við og meira
en tvöfalda gistirýmið. Þarna verður
nýtt 10 herbergja hús og þar af verða
tvö stór fjölskylduherbergi. Við von-
umst til að geta tekið þetta að ein-
hverju leyti í notkun næsta sumar.
Þar sem við erum að byggja þetta
að mestu sjálf ræðst þetta þó af því
hvað við komumst yfir.“
Unnið í takt við afkomu
Eðlilega fylgir mikið rask slíkum
framkvæmdum og segir Stella
einstaka gesti hafa látið það fara í
taugarnar á sér. Við þessu sé þó lítið
að gera, þar sem einungis sé byggt í
takt við hvað starfsemin gefi af sér.
„Öll innkoma hér fer í uppbygg-
inguna og við höfum ekkert tekið út
úr fyrirtækinu heldur þvert á móti
lagt inn í það talsverða fjármuni. Við
fengum þó styrk úr Framleiðnisjóði í
upphafi en annars höfum við borgað
þetta úr eigin vasa.“
Ágætu tjaldstæði hefur verið
komið upp á túninu fyrir neðan
bæinn og smám saman hefur verið
unnið að því að bæta þar salernis- og
baðaðstöðu. Við tjaldstæðið hefur
einnig verið komið upp skemmtileg-
um leiktækjum fyrir krakka. Stella
viðurkennir þó að enn sem komið
er henti tjaldstæðið ekki líkamlega
fötluðum einstaklingum. Úr því sé
þó hægt að bæta í gistirýminu á
staðnum, þar sem herbergi eru til
staðar með aðgengi fyrir hjólastóla.
Úr skólastjórnun í ferðaþjónustu
Stella kemur úr gjörólíku vinnuum-
hverfi en hún var áður skólastjóri
og kennari á höfuðborgarsvæðinu í
tuttugu ár. Þar af var hún skólastjóri
í Digranesskóla í tvö ár og síðan í
Hjallaskóla í Kópavogi í átján ár.
Aðspurð hvort ferðaþjónustuhlut-
verkið sé ekki mikil viðbrigði segir
Stella að allt snúist þetta um að fást
við fólk. „Einu sinni kennari, ávallt
kennari,“ segir Stella og vísar þar í
fræg einkunnarorð skáta.
„Ég hef líka haft gaman af að vera
með krakka hér í kennslu. Þá er ég í
skólanefndinni í Súðavík svo ég hef
ekki alveg slitið tengslin við kenn-
arastarfið.“
Útlendingar sækjast eftir að
komast þar í vinnu
En hvernig ætli það gangi að ráða
starfsfólk til ferðaþjónustu í sveit,
langt frá meginskarkala þéttbýlisins
á höfuðborgarsvæðinu?
„Það hefur í rauninni gengið mjög
vel. Það er einkum mikil ásókn frá
útlendingum að komast í svona störf.
Við fáum mun fleiri fyrirspurnir en
við getum nýtt. Þetta er auðvitað
kjörið tækifæri fyrir útlendinga að
koma til landsins, kynnast fólkinu
og vinna um leið. Víða í þeim
löndum sem þetta fólk kemur frá
er atvinnuleysi mikið og kannski
litlir möguleikar fyrir ungt fólk að
komast í vinnu. Nú, svo fáum við líka
talsvert af fyrirspurnum frá ungum
Íslendingum, en ekki mikið frá full-
orðnu fólki.
Það er því ekki hægt að segja
annað en að starfsemin gangi bara
vel og þetta er afskaplega gaman,“
segir Stella Guðmundsdóttir. /HKr.
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
BKT er einn stærsti framleiðandi hjólbarða fyrir
traktora, vinnu- og iðnaðarvélar í heimi. BKT hefur
einnig haslað sér völl í framleiðslu á dekkjum fyrir
hjólaskóflur og stóra vörubíla (Búkollur).
HJÓLBARÐAR FYRIR
TRAKTORA, VINNUVÉLAR
OG LANDBÚNAÐAR TÆKI
VIÐ EIGUM GRÍÐARLEGT ÚRVAL HJÓLBARÐA
FYRIR FLESTAR TEGUNDIR VÉLA, TÆKJA
OG VAGNA. KÍKTU Á PITSTOP.IS EÐA HAFÐU
SAMBAND Í SÍMA 568 2020.
BKT MP567 BKT FLOT648 BKT TR459
BKT AGRIMAX RT-657
DUGGUVOGI RVK AUSTURVEGI SELFOSS PITSTOP.IS WWW
HELLUHRAUNI HFJRAUÐHELLU HFJ 568 2020 SÍMI
Í nýbyggingunni í Heydal munu verða 10 herbergi og þar af tvö stór fjölskylduherbergi.