Bændablaðið - 26.07.2012, Side 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 26. júlí 2012
Alvöru þvottavélar, þurrkarar
og strauvélar í öllum stærðum.
Bændablaðið á netinu... www.bbl.is
Söluskrifstofa Smiðjuvegi 16 (rauð gata) - 200 Kóp.
V e r k s m i ð j a - S t ó r u R e y k j u m - H ú s a v í k - S í m i 4 6 4 3 9 1 0
Sími 544 5200
www.sogin.is
Íslensk framleiðslaí yfir ár70
Við smíðum
allt frá stöku lista til klæðninga í stærstu tónlistarhús
Gólflista, handlista og frágangslista í miklu úrvali
Bandsagaðar klæðningar og panel
Pallaefni og klæðningar úr harðviði
Gegnheilar borðplötur og límtré
Gerefti, tröppunef og þröskulda
Eigum á lager
Erum sérfræðingar í harðviði
og framleiðum eikarklæðningar
í hesthús, milligerði og hlið
Leirvinnustofa og sýningarrými fyrir ferða-
menn í „Bragganum“ í Birtingaholti
Erna Skúladóttir í Birtingaholti
í Hrunamannahreppi, dóttir
Skúla Guðmundssonar og Láru
Hildar Þórsdóttur, hefur opnað
leirvinnustofu með sýningar-
rými fyrir ferðamenn í gömlum
herbragga á staðnum sem afi
hennar, Guðmundur Ingvarsson,
reisti í Birtingaholti 1968.
Erna er með B.A. -próf í mynd-
list með áherslu á keramik og er að
fara í masternám í faginu í haust í
Bergen í Noregi. „Viðtökurnar hafa
verið frábærar, ekki síst hjá sveit-
ungunum sem taka mér fagnandi
með starfsemina. Þá finnst ferða-
mönnum mjög spennandi að koma
til mín og sjá hvað ég hef upp á að
bjóða í þessum gullfallega bragga,
sem gegndi hlutverki kartöflu-
geymslu hjá afa til margra ára hér
í Birtingaholti,“ sagði Erna. Opið
er hjá henni í sumar frá mánudegi
til fimmtudags frá 13:00 til 18:00
og á laugardögum og sunnudögum
á sama tíma. Bragginn er einnig á
Facebook.
/MHH
fyrir ferðamenn. Myndir / MHH
í Bragganum.
Sæt en samt ljót
paprika á Flúðum
Georg Ottósson, garðyrkjubóndi á
Flúðum, hefur sett á markað ljóta
en litfagra og mjög sæta papriku
sem hefur slegið í gegn hjá neyt-
endum.
Paprikan, sem gestir fengu að
smakka á Flúðum nýlega þegar
Bylgjulestin var þar, fékk mikla
athygli fyrir útlit sitt. „Já, útlitið
vekur athygli, ekki síst hjá kven-
þjóðinni en það er bragðið sem
skiptir öllu máli og það svínvirkar.
Paprikan er mjög sæt á bragðið og
þykir einstaklega góð á grillið, í sal-
atið eða bara þegar hún er borðuð ein
og sér,“ sagði Georg, sem heldur hér
á paprikunni með bros á vör.
/MHH