Bændablaðið - 26.07.2012, Qupperneq 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 26. júlí 2012
Vélabásinn
BMW G650 Sertao mótorhjól :
Með fyrirmyndar ABS bremsubúnaði
Fátt finnst mér skemmtilegra en að
keyra gott mótorhjól á góðviðris-
dögum og ekki hefur það verið
afleitt sem af er sumri, enda hef ég
verið duglegur að „mótorhjólast“.
Mótorhjó la innf ly t jandinn
Reykjavík Motor Center bauð mér
að prófa nýtt mótorhjól af gerðinni
BMW G650 Sertao, en það er með
652 cc einsstrokks vél sem á að skila
48 hestöflum og er 175 kg (fullt af
bensíni 192 kg.). Hjólið er með 21
tommu framgjörð og 17 tommu
afturgjörð sem gerir það jafnvígt á
malarvegum og á malbiki.
ABS bremsubúnaður til
fyrirmyndar
Hjólið sem ég prófaði var að fara
sem leiguhjól til Biking Viking hjóla-
leigunnar og var því útbúið með
farangurstöskum og veltigrind sem
aukabúnaði. Ég ók hjólinu um 80 km
við misjafnar aðstæður og fátt sem
kom mér á óvart, þó verð ég að hæla
tæknimönnum hjá BMW fyrir hversu
langt þeir eru komnir í þróuninni á
ABS bremsubúnaðinum í hjólinu.
BMW var einn af fyrstu fram-
leiðendum mótorhjóla til að koma
með ABS bremsubúnað í mótor-
hjól í kringum 1992. Fyrst virkaði
þetta einfaldlega ekki í beygjum og
á möl, en nú 20 árum seinna má rífa
í frambremsu í lausamöl án þess að
eiga á hættu að splundrast beint á
hausinn. Ég gerði nokkrar tilraunir á
þessu á mismunandi hraða og alltaf
var útkoman svipuð. Ég tók ABS
bremsurnar af og prófaði að bremsa
með og án þeirra og á 30 km hraða
stoppaði ég 11 fetum fyrr án ABS en
með því (ég vil benda á að ég tel mig
hafa þokkalega kunnáttu til mótor-
hjólaaksturs og bremsuhæfileika eftir
30 ár á mótorhjóli). ABS bremsur
eru góðar á þessu hjóli, sérstaklega
fyrir byrjendur, en þegar maður venst
hjólinu mæli ég með því að ökumað-
urinn reyni sig áfram án þeirra (sér-
staklega á möl).
Grófur gangur
Gangurinn er svolítið grófur í mót-
ornum, enda 1650 cc stimpill sem
skilar tæpum 50 hestöflum og minnir
hljóðið í mótornum í hægagangi
óneitanlega á gamla Deutz d15
traktorinn sem til var í minni sveit
þegar ég var strákur.
Að keyra mótorhjól með svona
stórar töskur er í fyrstu svolítið
skrítið, en venst strax. Þó getur verið
leiðigjarnt að vera með topptöskuna
í miklum vindi ef maður er einn á
hjólinu, en með farþega og topptösku
er betra að keyra hjólið.
Stillanleg fjöðrun
Fjöðrunin er stillanleg og hægt að
breyta stillingu á afturdemparanum
á ferð, sem er gott ef fram undan er
malarkafli.
Eyðir um 4-5 lítrum á hundraðið
Bensíneyðslan er ekki mikil, en
mér sýndist ég hafa farið með innan
við 4 lítra af bensíni á þessum 80
km sem ég keyrði hjólið og gæti
trúað að meðaleyðslan á 100 km
væri nálægt 4-5 lítrum á hundr-
aðið. Lokaniðurstaða er að BMW
G650 Sertao er ekta hjól til brúks
fyrir flesta vegi í íslensku vegakerfi,
semsagt mótorhjól til að nota.
Góð kaup
Verðið á Sertao er lægra en ég
bjóst við, en án taskna er það um
2.100.000. Ég mæli þó eindregið
með því að menn kaupi töskur og
veltigrind undir mótorinn og bæti
þar með tæpum 200.000 krónum við,
en hjólið sem ég prófaði var með
svoleiðis útbúnaði og kostar rétt um
2,3 „millur“ (persónulegt mat: góð
kaup á mótorhjóli til almenns brúks).
Vélaprófanir
hlj@bondi.is
Hjörtur L. Jónsson
Send í sveit
Auður Lilja Erlingsdóttir - Framkvæmdastýra Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs
Hvar varstu í sveit og hvenær?
„Ég var í sumardvöl frá unga aldri
hjá afa mínum og ömmu á bænum
Þrastahlíð í Breiðdalnum (foreldrum
móður minnar). Ætli ég hafi ekki
verið um fimm ára þegar ég fór ein
með lítilli rellu þangað í fyrsta skipti
og komin fram yfir fermingu þegar
ég hætti að fara í sveitina því þá var
ég farin að vinna."
Ábúendur og tegund bús?
„Afi minn hét Gísli Friðjón
Björgvinsson og amma mín
Sigurbjörg Snjólfsdóttir og þau
bjuggu í Þrastahlíð og voru með
fé. Ingibjörg dóttir þeirra bjó hjá
þeim. Þar voru einnig þrjár kýr sem
við handmjólkuðum, glæsilegar
landnámshænur, endur, hundar og
kettir. Á Hlíðarenda rétt við hliðina á
Þrastarhlíð bjuggu Ásdís Gísladóttir
systir hennar mömmu og Sissi
(Sigurður Vilhelm Kristinsson)
maður hennar. Þau voru með kúabú
og á milli bæjanna var mikill og
góður samgangur."
Hvað var skemmtilegast?
„Það sem var skemmtilegast við
dvölina var félagsskapurinn, frelsið
og náttúrufegurðin. Ég naut afar
góðs atlætis hjá afa og ömmu. Á
Hlíðarenda voru líka fleiri börn
reglulega til sumardvalar og erfitt
að láta sér leiðast í góðum félagsskap
með næg verkefni alla daga. Í minn-
ingunni finnst mér ég hafa vaknað
snemma á morgnanna alla dag og
farið beint út og komið inn seint á
kvöldin."
Hvað var erfiðast við dvölina?
„Það erfiðasta við dvölina var
söknuðurinn. Seinni hluta sumars
var ég farin að sakna mömmu og
pabba ansi mikið. Hefðin var að þau
komu akandi að sækja mig í ágúst
og ég man eftir því að hafa hlaupið
að glugganum í Þrastahlíð í hvert
skipti sem ég heyrði í bíl til að sjá
hvort mamma og pabbi væru komin
að sækja mig."
Hvaða verk voru á þinni könnu?
„Ég var frekar mikið dekurbarn í
sveitinni, enda alltaf yngst. Eldri
bræður mínir voru oft með mér og
það mæddi meira á þeim við bústörf-
in. Ég sá þó stundum um að mjólka
fyrir afa og ömmu, sækja kýrnar fyrir
Ásdísi og Sissa, svo var náttúrulega
nóg að gera í heyskapnum."
Geturðu nefnt eftirminnileg atvik?
„Það eru að sjálfssögðu fjöldi eftir-
minnilegra atvika en ætli það sem sé
eftirminnilegast sé ekki upplifun af
einstakri og fallegri náttúru. Bestu
minningar mínar tengjast fjall-
göngum á Múlann, göngu meðfram
Gilsánni og undir Göngufoss og að
halda á troðfullum fötum af aðalblá-
berjum úr berjamó."
Skyldi dvöl þín í sveitinni eitthvað
sérstakt eftir sig?
„Dvölin í sveitinni hefur skilið
margt eftir sig. Ég naut að sjálfs-
sögðu félagsskapar afa og ömmu,
systkina mömmu sem öll bjuggu
fyrir austan sem og annarra ætt-
ingja. Það eru tengsl og minningar
sem ég myndi aldrei vilja vera án.
Sömuleiðis lærði ég að vinna, starfa
í hóp að sameiginlegu markmiði. Ég
lærði að umgangast og bera virðingu
fyrir náttúrunni og dýrum sem og
hversu mikils virði það væri fyrir
afkomu okkar að vanda til verka í
þessu samhengi."
/fr
Auður Lilja Erlingsdóttir
BMW G650 Sertao Fullbúið með töskum og upphitiuðum handföngum.
Myndir / HLJ
Það tók ekki nema 30 sekúndur að
taka töskurnar af hjólinu.