Bændablaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | fimmtudagur 1. mars 2012 Öflug ferðaþjónusta í Ríki Vatnajökuls Ríki Vatnajökuls nær yfir Suðausturland frá Lómagnúpi í vestri að Hvalnesi í austri. Þetta svæði er eitt það fallegasta og sérstæðasta á landinu. Þar er að finna skriðjökla sem ganga niður á láglendið, falleg jökullón full af ísjökum, hæsta tind og dýpsta stöðuvatn á Íslandi, fágætar svart- ar sandbreiður, litfögur fjöll og djúpa dali á einu skemmtilegasta göngusvæði landsins, fjölskrúðugt fuglalíf, hreindýr og seli og besta aðgengið að Vatnajökulsþjóðgarði. Vatnajökull er einkennismerki Austur-Skaftafellssýslu og hefur markað líf íbúa frá upphafi byggðar. Áður fyrr skapaði jökullinn hindr- anir með beljandi jökulám og var sú síðasta ekki beisluð fyrr en 1974 með tilkomu brúar yfir Skeiðará. Núna er Vatnajökull eitt helsta aðdráttar- afl þessa svæðis fyrir ferðamenn og grundvöllur þeirrar miklu uppbygg- ingar sem hefur átt sér stað í ferða- þjónustu og gerir Ríki Vatnajökuls að einu fjölsóttasta og mikilvægasta ferðaþjónustusvæði á landsbyggð- inni. Sérstaða í Ríki Vatnajökuls Helsta sérstaða svæðisins er Vatnajökull, sem er stærsti jök- ull utan heimskautasvæðanna. Hér er ennfremur suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs, stærsta þjóðgarðs í Evrópu. Hér er einstak- lega gott aðgengi að jökli og mikið úrval af jöklatengdri afþreyingu. Vatnajökull getur ennfremur af sér krúnudjásn svæðisins, Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Jökulsárlón er einstakt náttúrufyr- irbæri á heimsvísu og eftirminnileg- asti áfangastaður á Íslandi á eftir Bláa lóninu skv. könnun Ferðamálastofu frá 2011. Siglingar á Jökulsárlóni eru gríðarlega vinsæl afþreying og fóru 64.216 farþegar í siglingu þar árið 2010, sem er ca. tvöföldun frá árinu 2003. Árið 2011 fóru 67 þúsund manns í slíka siglingu. Unnið hefur verið að því að lengja opnunartíma þjónustunnar eftir því sem veður leyfir og var haldið áfram siglingum út nóvember í fyrra. Forsvarsmenn ferðaþjónustunnar við Jökulsárlón telja varlega áætlað að um helmingur gesta við lónið fari í siglingu, sem þýðir að ekki færri en 134.000 manns hafi lagt leið sína að Jökulsárlóni árið 2011. Líklegt má þó telja að þeir hafi verið fleiri. Jökulsárlón er eftir- læti ljósmyndara og er mikið notað í markaðssetningu á Íslandi sem ferða- mannastað. Sterkar andstæður í Ríki Vatnajökuls eru á milli hvítra jökla sem skera landið og svartra sanda sem teygja sig eftir ströndinni. Svartar sandstrendur eru fágæt sjón og vekja mikla athygli erlendra ferðamanna. Skeiðarársandur er stærsti svarti jökulsandur á jörðinni. Öflugt ferðaþjónustusvæði Ríki Vatnajökuls var stofnað 2007 sem ferðaþjónustu-, matvæla- og menningarklasi Suðausturlands. Fyrirtækin sem stóðu að stofnun klasans sáu hag í því að vinna saman að því að gera Ríki Vatnajökuls að einu öflugasta ferðaþjónustusvæði Íslands. Samstarfið birtist m.a. í miklu og fjölbreyttu framboði af mat fram- leiddum í héraði sem ferðamönnum stendur til boða á veitingastöðum. Það er mikilvægur partur af upplifun og mælist mjög vel fyrir hjá ferða- mönnum. Annað sem er mjög vin- sælt meðal ferðamanna er að bragða bjórinn Vatnajökul, sem er afrakstur samstarfs Ríkis Vatnajökuls og Matís. Bjórinn er bruggaður úr blóðbergi af svæðinu og ísjökum sem eru veiddir úr Jökulsárlóni og fluttir í Ölvisholt, sem sér um bruggun bjórsins. Bjórinn er aðeins seldur á veitingastöðum í Ríki Vatnajökuls. Árið 2010 voru 10,8% allra gisti- nátta erlendra ferðamanna á lands- byggðinni í Ríki Vatnajökuls. Miðað við landið í heild voru þetta um 5,4%. Mætti því áætla að um 5,4% af heildar- gjaldeyristekjum vegna erlendra ferða- manna hafi orðið til í Ríki Vatnajökuls. Árið 2009 var heildarneysla erlendra ferðamanna áætluð 111.906 milljarðar króna, hlutur Ríkis Vatnajökuls í því væri þá rúmir sex milljarðar miðað við þessar forsendur. Þessar tölur sýna ótvírætt mikilvægi Ríkis Vatnajökuls sem ferðaþjónustusvæðis. Veðurfar skapar þær aðstæður að aðgengi til og frá Hornafirði er gott allan ársins hring, hvort sem komið er akandi eða fljúgandi. Svæðið er það snjóléttasta á landinu að Vestmannaeyjum undanskildum, og vegir því oftast greiðfærir allt árið. Flogið er á milli Hornafjarðar og Reykjavíkur allt árið, sex eða sjö daga vikunnar. Ríki Vatnajökuls – allt árið Ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu hafa mörg hver bætt við sig rými eða tækjum til að geta þjónustað fleiri ferðamenn yfir háannatímann. Mjög mikið er að gera hjá ferðaþjónustu- fyrirtækjum yfir sumartímann en - líkt og annars staðar - glíma þau við miklar sveiflur í fjölda ferðamanna eftir árstímum. Fyrirtækin eru með- vituð um að forsenda uppbyggingar ferðaþjónustu yfir veturinn er lengri opnunartími og hafa sífellt fleiri fyrir- tæki lengt opnunartímann eða hafa nú opið allt árið til að byggja upp heilsársferðaþjónustu með tryggu framboði. Nú er fjöldi fyrirtækja í Ríki Vatnajökuls með opið allt árið og bætist stöðugt í hópinn. Mynd / Þorvarður Árnason. Mynd / Einar Rúnar Sigurðsson. Mynd / Helga Davids.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.