Bændablaðið - 01.03.2012, Qupperneq 36

Bændablaðið - 01.03.2012, Qupperneq 36
36 Bændablaðið | fimmtudagur 1. mars 2012 Árið 1998 greindist óvenjuleg tegund riðu í sauðfé í Noregi, síðar kölluð Nor98 riða, en hún reyndist að mörgu leyti ólík hinni hefðbundnu riðu sem lengi hefur verið vandamál hér á landi. Þetta nýja afbrigði riðu hefur nú fundist í flestum löndum Evrópu, þar á meðal Íslandi. Nor98 riðutilfellin greinast yfirleitt í eldra fé, oft án sjúkdómseinkenna og í flestum tilvikum greinist bara ein kind í hverri hjörð. Ýmislegt bendir til að hér geti verið um sjálfsprottinn sjúkdóm að ræða, þ.e. án utanað- komandi smits. Hér á eftir verður farið yfir helstu atriði sem einkenna Nor98 riðu og hún borin saman við hefðbundna riðu, sem til einföld- unar er hér að jafnaði eingöngu nefnd riða. Sjúkdómurinn og smitefnið Riða í kindum er smitandi tauga- hrörnunarsjúkdómur og er einn af svokölluðum príonsjúkdómum, en til þeirra teljast einnig Creutzfeldt-Jakob sjúkdómurinn í mönnum, kúariða í nautgripum og svipaðir sjúkdómar finnast í minkum og hjartardýrum. Þessir sjúkdómar eru ólæknandi, með langan meðgöngutíma og ekkert þekkt bóluefni er til. Príonsjúkdómar eru taldir vera af völdum smitandi pró- teins, en eru ekki hæggengir veiru- sjúkdómar eins og lengi var talið. Príonpróteinið finnst á eðlilegu formi í öllum spendýrum en við smit ræðst príonpróteinið á umbreyttu formi á príonprótein hýsils og breytir því í sína mynd. Við það verður keðjuverkun og uppsöfnun á óeðlilegu príonpróteini í heilavef. Hið ummyndaða prótein er einstaklega þolið og stenst t.d. öll hefðbundin hreingerningar- og sótt- hreinsiefni, en þolir hins vegar ekki suðu undir þrýstingi eða meðhöndlun með klór eða natríumhýdroxíði. Þetta mikla þol smitefnisins er jafnframt ástæðan fyrir langlífi þess í umhverf- inu og gæti útskýrt sum tilfelli riðu sem hafa greinst á bæjum þar sem fé hefur verið skorið niður vegna sjúkdómsins. Príonsjúkdómar í sauðfé hafa hing- að til eingöngu verið taldir smitandi. Í mönnum geta þeir einnig verið erfða- sjúkdómar af völdum stökkbreytinga í príongeni en stór hluti tilfella sem greinast í mönnum er af óþekktum toga. Erfðauppbygging sauðfjár er talin mikilvæg fyrir smitnæmi og hefur sú vitneskja víða verið nýtt við kyn- bætur til varnar sjúkdómnum. Vissar arfgerðir af príongeninu eru algeng- ari í riðufé en í heilbrigðu fé og hafa áhættu- og verndandi arfgerðir verið skilgreindar. Þrír staðir í príonprótein- inu skipta mestu máli í sambandi við smitnæmi, en komið hefur í ljós að mikilvægi þeirra er mismunandi eftir fjárkynjum og riðuafbrigðum. Árið 2002 var komið á skylduprófun innan Evrópusambandsins á arfgerðum príongensins til að kanna tíðni mis- munandi arfgerða í mikilvægustu fjár- kynjum hvers lands og til að skilgreina áhættu- og verndandi arfgerðir. Mælt er með að hvert land skipuleggi kyn- bætur með hliðsjón af tíðni arfgerða í hverju kyni, en almennar kröfur eru þær að áhættuarfgerðum útrýmt og auka skuli tíðni verndandi arfgerða. Aukið eftirlit og næmari próf Eins og áður segir greindist nýtt afbrigði af riðu í Noregi 1998. Það sem vakti athygli vísindamanna þar var að sjúkdómseinkenni þessara tilfella voru ekki einkennandi fyrir riðu og ennfremur að þau sýndu annars konar dreifingu vefjaskemmda og smitefnis í heila. Fyrst var talið að tilfellin væru einskorðuð við Noreg en síðar kom í ljós að sams konar eða mjög svipuð til- felli finnast í flestum löndum Evrópu og víðar. Til að mynda hafa nýlega greinst slík tilfelli á Nýja-Sjálandi og í Ástralíu, en bæði löndin voru áður talin laus við riðu. Athyglisvert er að nokkur gömul riðusýni í Skotlandi flokkast sem óhefðbundin tilfelli, sem bendir til að þessi gerð riðu hafi verið til lengi án þess að greinast. Fjöldi greindra Nor98 tilfella hefur aukist mjög frá árinu 2002, en þá var sett á laggirnar virkt eftirlit með riðu í Evrópu sem má rekja til ótta við hugsanlegt kúariðusmit í sauðfé. Riða í sauðfé var lengi vel ekki talin vanda- mál nema í örfáum löndum en nú eru öll lönd innan Evrópusambandsins skyldug til að skima reglubundið fyrir riðu í sauðfé með það fyrir augum að útrýma sjúkdómnum. Aukið eftirlit varð til þess að riða greindist í löndum sem aldrei höfðu þekkt þennan sjúk- dóm en oft var eingöngu um að ræða tilfelli sem líktust Nor98 og reyndar er þetta riðuafbrigði stór hluti allra riðutilfella sem nú greinast í Evrópu. Á sama tíma og eftirlit með riðu var aukið komu einnig fram næmari og hraðvirkari aðferðir, sem byggjast á einangrun smitefnis úr heilavef og mælingu þess með ónæmisprófi, og tóku þær við af hefðbundinni vefj- alitun við skimun sláturhúsasýna. Ólík birtingarmynd Nor98 riðu Nor98 riða finnst að jafnaði í eldri kindum, 4ra vetra eða eldri, en þær kindur sem greinast með riðu eru yfir- leitt 2ja-5 vetra. Einkenni hjá Nor98 kindum, ef einhver eru til staðar, geta verið margvísleg, svo sem tin, skert jafnvægi og breytt hegðun. Þekkt einkenni riðu eins og kláði, svar við klóri og skjálfti (riða), sjást hins vegar ekki. Vefjaskemmdir og uppsöfnun á smitefni í kindum með Nor98 riðu koma helst fram í litla heila og heila- berki, en samsvarandi svæði fyrir riðu eru mænukylfa og heilastofn. Auk þess finnst smitefni riðu oft í eitil- vef en það er hins vegar ekki raunin með Nor98. Að lokum má nefna að áhætta tengd erfðum snýst við, þ.e. Nor98 riða finnst í kindum sem bera arfgerðir sem áður hafa verið tengdar við vernd gegn riðu. Þessi gerð riðu virðist lítið eða ekk- ert smitandi og yfirleitt finnst bara eitt tilfelli í hverri hjörð. Svo virðist sem líkur séu ekki meiri á að finna fleiri jákvæðar kindur í hjörðum þar sem hefur greinst Nor98 riða heldur en ef tekið er tilviljanakennt úrtak úr hópi heilbrigðra kinda. Þekktir áhættuþættir riðu, eins og flutningur á dýrum og náin samskipti milli dýra, virðast heldur ekki eiga við um Nor98 riðu. Ýmislegt bendir til að þarna geti verið um að ræða nokkurs konar sjálfsprott- inn sjúkdóm, þ.e. án utanaðkomandi smits, svipað og í tilviki Creutzfeldt- Jakob sjúkdóms í mönnum. Þess ber þó að geta að smittilraunir hafa sýnt að hægt er að smita dýr með Nor98 riðu þó ýmislegt bendi til að það gerist ekki við náttúrulegar aðstæður. Staðan á Íslandi Á Íslandi er staðan ólík því sem lýst hefur verið í Evrópu hvað varðar eftir- lit með riðu. Hér hefur verið virkt eftir- lit með riðu í sauðfé frá 1978 þegar settar voru á laggirnar aðgerðir til að stemma stigu við útbreiðslu sjúkdóms- ins. Riða er talin hafa borist til lands- ins seint á 19. öld, útbreiðsla og tíðni sjúkdómsins náði hins vegar hámarki um miðjan níunda áratug síðustu aldar en þá hafði hann breiðst út um mestallt land. Varnargirðingar, sem reistar voru fyrir miðja síðustu öld til útrýmingar á mæði-visnu, urðu þess valdandi að nokkur landsvæði sluppu við riðu. Þetta eru Strandir, Snæfellsnes, Öræfi og Þistilfjörður, sem enn eru riðulaus. Síðan 1986 hefur stefna stjórnvalda verið að útrýma sjúkdómnum og er öllu fé fargað á bæjum þar sem riða greinist. Eftir sótthreinsun fjár- húsa og tvö til þrjú fjárlaus ár geta bændur endurnýjað fjárstofn sinn, en eingöngu með fé frá riðulausum svæðum. Riðutilfellum hefur fækkað mikið þótt enn hafi ekki tekist að útrýma sjúkdómnum en undanfarið hafa einungis greinst örfá tilfelli ár hvert. Athyglisvert er að í sumum til- vikum er um endurtekna riðu að ræða, þ.e. sjúkdómurinn kemur upp aftur eftir sótthreinsun og fjárskipti. Nor98 greind á Íslandi Á Tilraunastöðinni að Keldum hafa sýni úr sláturhúsum verið skimuð fyrir riðu frá 1978, fyrst með vefjaskoðun en frá 2005 með elísuprófi, ofurnæmri aðferð til að greina riðusmitefnið. Árlega eru prófuð nokkur þúsund heilasýni úr fullorðnu fé sem slátrað er, auk sýna úr kindum sem sýna ein- kenni eða eru í áhættuhópum. Þessar rannsóknir eru gerðar í samstarfi við Matvælastofnun sem fer með eftirlits- skyldu með sjúkdómnum. Notkun nýrra skimunarprófa hér á landi hefur leitt til greiningar á nokkr- um tilfellum af Nor98 riðu, sem hefur nú greinst á fjórum bæjum. Fyrsta til- fellið greindist við skimun á heilbrigðu sláturfé haustið 2004, en næstu tvö tilfelli greindust 2007 og 2008 í kind- um með sjúkdómseinkenni. Síðasta tilfellið greindist í janúar á þessu ári við skimun á sláturhúsasýnum. Fyrstu tvö tilfellin voru innan riðu- svæða á Suðurlandi, þriðja tilfellið var í Miðfjarðarhólfi, þar sem riða hafði ekki greinst áður, en síðasta tilfellið var á Jökuldal og tilheyrir Héraðshólfi, sem hefur verið riðu- laust í 15 ár. Eftir niðurskurð var skimað fyrir riðusmitefninu í þremur fyrstu riðuhjörðunum og fannst eitt jákvætt sýni til viðbótar í fyrstu hjörðinni. Skoðun arfgerða príon- gensins sýndi að íslensku Nor98 til- fellin báru arfgerð sem er einkenn- andi fyrir slík afbrigði riðu, en hefur hins vegar verið tengd þoli gagnvart hefðbundinni riðu í íslensku fé. Sú arfgerð sem hefur sýnt mesta vernd gegn riðu í erlendum sauðfjárkynj- um og notuð er til kynbóta, finnst ekki í íslensku fé, sem gæti stafað af einangrun íslensku sauðfjár- stofnsins í gegnum tíðina. Íslensku Nor98 tilfellin eru lík svipuðum til- fellum sem finnast erlendis, bæði hvað varðar arfgerðir príongensins og birtingarmynd smitefnisins. Hins vegar er sjaldgæft að finna tvö tilfelli í sömu hjörðinni af þessari gerð riðu eins og raunin var hér í einu tilfelli. Það gæti verið vísbending um smit þótt einnig gæti verið um tilviljun að ræða, en þess ber að geta að hjörðin var frekar stór. Lokaorð Nor98 riða er um margt frábrugðin þeirri riðu sem við þekkjum og ýmis- legt bendir til að hér geti verið um sjálfsprottinn sjúkdóm að ræða, þ.e. að ekki sé um utanaðkomandi smit að ræða sem valdi sjúkdómnum. Í ljósi upplýsinga um eiginleika og faralds- fræði þessa nýja afbrigðis má ætla að þörf sé á að endurskoða viðbrögð við þessum tilfellum er þau greinast og væri það í samræmi við það sem tíðkast í öðrum löndum. Stefanía Þorgeirsdóttir, sérfræðingur Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Líf og starf Þ að er ánægjulegt hversu mjög ræktunarstarfið í nautgripa- ræktinni er inni í umræðunni um þessar mundir. Ræktunarstarfið í nautgriparæktinni er eins og í annarri búfjárrækt hér á landi, rekið á félagslegum grunni og þannig eru allir kúabændur þátttakendur og afraksturinn á hverjum tíma í hlutfalli við það hversu margir eru virkir þátttakendur. Á unda- förnum misserum hefur markvisst verið unnið að því að auka og efla aðkomu kúabænda að ræktunar- starfinu. Gagnagrunnurinn HUPPA hefur auðveldað alla skýrslugerð og veitt hverjum og einum marg- víslegar upplýsingar um eigið bú á aðgengilegu formi og stöðugt er verið að bæta þar í. Sett hafa verið opinber sameiginleg ræktunarmark- mið fyrir kúakynið, sem móta eiga framtíðina: Þar er lögð áhersla á: Heilbrigðar, frjósamar og endingargóðar kýr. Sterkbyggðar og háfættar kýr með mikla afurðagetu. Að viðhalda erfðabreyti- leika til að tryggja lang- tímaframfarir. Ræktunarmarkmið íslenska kúakynsins tekur til margra eigin- leika þar sem ákveðið jafnvægi er milli afurðaeiginleika og annarra eiginleika sem tengjast lífsþrótti og endingu gripanna. Í nýlegri yfir- litsgrein eftir Ágúst Sigurðsson og Jón Viðar Jónmundsson er gerð úttekt á árangri ræktunarstarfsins í nautgriparækt frá því að núverandi kynbótaskipulag var tekið upp. Það er niðurstaða höfunda að í heild megi segja að árangurinn sé vel viðunandi og síðasta áratug í sam- ræmi við væntingar. Erfðaframför er í öllum þeim eiginleikum sem valið er fyrir og mikil erfðaframför í afurðaeiginleikum og júgri og spen- um. Aukning skyldleikaræktar, sem ávallt er fylgifiskur úrvals, hefur orðið veruleg á síðustu árum og þó virk stofnstærð sé ennþá viðunandi þarf að grípa til öflugri aðgerða en hingað til í því skyni að tempra skyldleikaræktaraukninguna. Það kemur þó skýrt fram í áður- nefndri yfirlitsgrein að unnt er að gera mun betur en nú með skil- virkari þátttöku bænda í ræktunar- starfinu. Það hversu mikið er um notkun heimanauta tefur verulega mögulegar erfðaframfarir, eykur vandamál tengd skyldleikaræktar- aukningu og skaðar heildarhags- muni greinarinnar. Það að einstöku kúabændur kjósa að standa utan skýrsluhaldsins hefur einnig sömu áhrif. Þannig er alveg sama hversu öfl- ugar aðferðirnar eru sem við notum og kerfin fullkomin sem við beitum, að án virkrar þátttöku bænda og samstöðu um ræktunarstarfið mun árangurinn ávallt verða óviðunandi. Það er því gleðilegt að umræðan um ræktunarstarfið er svo virk eins og hún er um þessar mundir og þá getum við einnig glaðst yfir því að niðurstöður skýrsluhaldsins í desember sýna að aldrei áður hefur jafnhárri 12 mánaða meðalnyt verið náð eins og hjá Ólafi og Sigurlaugu í Hraunkoti en þar skiluðu kýrnar 8.340 kg. Nú í janúar gerist það enn- fremur í fyrsta sinn að meðalafurðir í einu héraði fara yfir 6.000 kg en kýrnar á Snæfellsnesi skiluðu 6.119 kg samkvæmt síðasta uppgjöri og er það met. Að reka ræktunarstarf í búfé á félagslegum grundvelli hefur bæði kosti og galla. Slíkt fyrir- komulag er til þess fallið að lág- marka kostnað við ræktunarstarfið auk þess sem það virkjar bændur sem þátttakendur í starfinu. Á móti kemur að ef það mistekst að vekja áhuga og virkja bændur til fullrar þátttöku í öllum þáttum ræktunar- starfsins verður árangurinn ekki sá sem vænta má. Fjóstíran Nýtt afbrigði riðu: Nor98 riða - smitandi eða sjálfsprottinn sjúkdómur? Ræktunarstarfið til umræðu Riða í kindum er smitandi taugahrörnunarsjúkdómur og er einn af svoköll- uðum príonsjúkdómum, en til þeirra teljast einnig Creutzfeldt-Jakob sjúk- minkum og hjartardýrum Magnús B. Jónsson Ráðunautar í nautgriparækt Gunnfríður E. Hreiðarsdóttir

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.