Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 34
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 OPIÐ Virka daga frá kl. 10-18 Lau frá kl. 11-18 Sun frá kl. 13-18 Pöntunarsími 512 6800 eða dorma.is Milano ekta hægindastóllá frábæru EM tilboði ! Til í 4 litum: Latte Svartur BrúnnHvítur Hægindastóll kr. 37.900,- Komdu núna Allir vilja gott sæti ! Gullið tækifæri fyrir betra sæti ! EM TILBOÐ fyrir framan EM ! er alltaf eins! Áfram Ísland ! Þorgils Jónsson BANKAHÓLFIÐ Viðtal við Finn Árnason forstjóra Haga – ERLENT MYNDBAND Fréttaskýring WSJ um skuldavanda Evrópu – Margt hefur verið skrafað um vanda evrusvæðisins þar sem vissulega hefur gengið yfir gjörningaveður sem sér ekki enn fyrir endann á. Svartsýnustu menn og konur hafa spáð því að dagar evrunnar séu taldir og eins að samkomulagið sem leiðtogar Evrópusambandsins náðu um hertari viðurlög við því að fara á svig við reglur, séu dæmi um ofríki sambandsins yfir aðildarríkjunum. En er það tilfellið? Öll evruríkin eru í myntsam- starfinu að fúsum, frjálsum og einbeittum vilja. Við inngöngu gangast ríkin undir ákveðin skilyrði sem tiltekin eru í Maastricht- samningnum. Þar er meðal annars kveðið á um viðmið varðandi fjár- lagahalla, ríkisskuldir, verðbólgu og stýrivexti. Öllum er ljóst að í allt of mörgum tilfellum gengu aðildarríkin á svig við reglurnar og vandræði síðustu mánaða eru afleiðing þessa. Pólitíkusar létu einfaldlega glepjast af því að láta skammtímahagsmuni, oftar en ekki sína eigin, ráða för, á kostnað sameiginlegra hagsmuna til framtíðar. Er virkilega hægt að tala um ofríki þegar skerpt er á viðurlögum við því að fara á svig við gerða samninga og grafa þannig undan öllu kerfinu. Auðvitað er ekki eingöngu Grikk- landi, Ítalíu og þeim ríkjum, sem standa sérlega halloka nú, um að kenna hvernig ástatt er í Evrópu. Stóru ríkin fóru einnig fram úr sér mörg hver og neituðu að horfast í augu við að hegðun þeirra var ekki sjálfbær. Endalaus skuldasöfnun ríkja er ekki vænleg til árangurs til langs tíma, frekar en fyrir heimili að lengja í ofneyslupakka með yfir- drætti um hver mánaðamót. Ábyrgð er lykilorðið í þessum efnum þar sem horfa verður fram á veginn og ríkin verða að vega og meta hvernig framtíð þau sjá fyrir sér. Sé aðild að sameiginlegu mynt- bandalagi það sem stefnt er að er ekki valkostur að hver sé að slá sinn takt óháð öðrum og þess vegna er aðgerða þörf. Auðvitað eru aðhaldsaðgerðir, niðurskurður opinberra útgjalda og endurskipulagning lífeyriskerfisins sársaukafullar fyrir marga en þær eru nauðsynlegar. Forgangsröðun skiptir hins vegar lykilmáli enda er háski á báðar hendur þegar kemur að róttækum þjóðfélagsbreytingum. Einstigið er vandratað þar sem gæta verður hags þeirra sem minnst mega sín í samfélaginu en þó ekki herða um of á fyrirtækjum og vinn- andi fólki svo að þær verði letjandi fyrir framtak og dugnað. Það er hins vegar verkefni stjórnvalda í hverju ríki fyrir sig að leggja upp í aðgerðir til að ná settu marki og eftir þeim verkum verða þau dæmd í framtíðinni. Samningar eru umfram allt samningar og það getur ekki verið til of mikils mælst að staðið sé við þá. Ofríki eða krafa um orðheldni?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.