Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 38
11. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR18 BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðs- sonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Og kyssti Kamilla þig? Nú er kominn tími til að skjóta, Jói! Markið er opið! Jú, jú... En ég kann vel að leika mér með boltann! Ég á enn óafgreidd mál! Jói... skjóttu! Ókei, en láttu renna í tvö glös fyrir mig fyrst, vinur! Í rétta markið!! Þú veist alveg að það er góður mögu- leiki að það mæti enginn í þetta partí. Heldurðu það? Það eina sem þú gerðir, Pierce, var að segja Bryndísi að foreldrar þínir hefðu farið úr bænum! Hverjar eru líkurnar á því að 700 manns frétti af því? Svona um það bil 700 á móti einum. Ég heyrði Sollu og Hannes tala saman um „hin fullkomnu jól“ í dag. Hvað eru „hin full- komnu jól“? Það er þegar jólagjafirnar hætta ekki að koma – þegar gjafirnar fjölga sér sjálfar. Við hljótum að geta reddað því. Ég læt þessa ósk rætast með því að kaupa handa þeim gúbbífiska. LÁRÉTT 2. glansa, 6. klaki, 8. mælieining, 9. gerast, 11. tveir eins, 12. skjálfa, 14. mylla, 16. kúgun, 17. stilla, 18. við, 20. vörumerki, 21. eggja. LÓÐRÉTT 1. verst, 3. 950, 4. planta, 5. fiskur, 7. möttull, 10. skammstöfun, 13. pípa, 15. þefa, 16. mælieining, 19. utan. LAUSN LÁRÉTT: 2. gljá, 6. ís, 8. mól, 9. ske, 11. ll, 12. titra, 14. kvörn, 16. ok, 17. róa, 18. hjá, 20. ss, 21. mana. LÓÐRÉTT: 1. síst, 3. lm, 4. jólarós, 5. áll, 7. skikkja, 10. etv, 13. rör, 15. nasa, 16. ohm, 19. án. Daginn ungi! Daginn ungi! Daginn ungi! Daginn ungi! Daginn ungi! Daginn ungi! Þegar Jón Gnarr varð borgarstjóri biðu margir í ofvæni eftir því hvernig hann myndi spjara sig á hinu „pólitíska svelli“. Enginn meinti það bókstaflega en sú er engu að síður orðin raunin; hið pólitíska svell er orðið að áþreifanlegum veruleika í Reykjavík, undir brakandi kliði í brotnum mjöðmum og undnum hnjám. FÆSTIR tóku því líka bókstaflega þegar Jón Gnarr og Besti flokkurinn sögðust ætla að fara ótroðnar slóðir. Sú er engu að síður líka orðin raunin. Slóðir borgar- innar eru ótroðnar. Svona eru stjórnmál- in ófyrir sjáanleg. Kannski verður hálkan í lykilhlutverki í næstu kosningabaráttu, með tilheyrandi yfirboðum í kosninga- loforðum. Hugsið ykkur slagorðin. „Söltum göturnar, ekki málin!“; „Mal- don-salt á göturnar!“; „Hlákan kemur með okkur!“; að ógleymdu sérframboð- inu „Sölt framtíð“. EF FRÁ eru talin slysahættan og búr- arnir úti á landi sem hringja í útvarp- ið og segja „þetta er nú bara smá föl hjá ykkur þarna fyrir sunnan,“ er þvargið um að „kerfið hafi brugðist“ sennilega mest þreytandi fylgifiskur ófærðarinnar. Jú, við borgum skatta og útsvar fyrir grunn- þjónustu samfélags- ins, en útsvarið losar okkur seint undan því að finna fyrir afleiðingum metofankomu, asahláku og frosts, eða öðrum frávikum frá náttúrunn- ar hendi sem raska daglegu lífi. Í FLJÓTU bragði sé ég þrjá kosti í stöðunni: Látum borgina leigja fjölda stórtækra vinnuvéla sem hreinsa allar götur og stíga borgarinnar á einum til tveimur dögum og hækkum lögbundin gjöld til að koma til móts við kostnaðinn. Ekki? Jæja, tökum pening úr einum þætti grunnþjónustunnar, til dæmis sorphirðunni eða leikskólunum, og notum til að greiða götu okkar í mestu snjóþyngslunum. Ekki heldur? GOTT og vel, hvað um þetta: Reddum okkur. Að minnsta kosti rétt á meðan mesta fannfergið gengur yfir. Sýnum fyrirhyggju, varkárni, tillitssemi og sam- kennd í umsvifum okkar og samneyti við annað fólk næstu daga. Hættum að ætlast til þess að gröfukarl frá borginni bjargi okkur eftir hentugleika. Söndum planið sjálf, skiljum bílinn eftir heima, kaup- um mannbrodda, skjótumst út í búð fyrir gömlu hjónin á efri hæðinni. ÞORRI þjóðar sem hefur setið föst í sömu hjólförunum í þrjú ár situr nú í orðsins fyllstu merkingu fastur í sömu hjólförun- um í nokkra daga. Það er kaldhæðnislegt en um leið kannski ágæt áminning um að besta leiðin til að takast á við vandann er að byrja að haga sér eins og fólk. Hált í hvoru RAGNAR SÓLBERG SVITNAÐI Í PRUFUNNI FYRIR PAIN OF SALVATION PRINS PÓLÓ OG KARLOTTA Í VICKY TAKA ROKKPRÓFIÐ FIMM BESTU ÍSLENSKU EUROVISION-LÖGIN SEM KOMUST EKKI ÁFRAM PLÖTUDÓMAR, FRÉTTIR OG FLEIRA Á M O R G U N OF MONSTERS AND MEN Í ALLT ÖÐRUVÍSI ÚTRÁS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.