Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 15
www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 11. janúar 2011 | 1. tölublað | 8. árgangur
Dress Up Games malar gull
Dress Up Games ehf. hagnaðist um 88,3 millj-
ónir króna á árinu 2010. Á árunum 2008 og 2009
nam hagnaður félagsins samtals um 213 milljón-
um króna. Það hefur því hagnast um rúmlega 300
milljónir króna á þriggja ára tímabili. Þetta kemur
fram í síðustu ársreikningum Dress Up Games ehf.
Félagið á og rekur vefsíðuna www.dressup games.
com og hefur á undanförnum árum verið á meðal
arðbærustu fyrirtækja á Vestfjörðum. Eigandi
félagsins er Inga María Guðmundsdóttir.
Á vefsíðunni er tenglum á tölvuleiki þar sem
dúkkulísur eru klæddar í föt safnað saman. Dress
Up Games er síðan með auglýsingasamning við
stórfyrirtækið Google sem tryggir því tekjur.
Samningurinn virkar þannig að Google AdWords
selur auglýsingar inn á síðuna og Dress Up Games
ehf. fær síðan greitt fyrir hvert skipti sem einhver
skoðar þá auglýsingu. Vefsíðan fær milljónir inn-
lita, og er með tugmilljónir flettinga, í hverjum
mánuði og því eru tekjurnar miklar.
Eignir Dress Up Games nema 259 milljónum
króna. Um 95% þeirra eru í handbæru fé. Félagið
greiddi sér auk þess út 128 milljónir króna í arð á
árunum 2009 og 2010. - ÞSJ
Hraði!
Skilvirkni!
Sveigjanleiki!
Minnkandi fjárþörf ríkissjóðs
veldur lífeyrissjóðunum vanda
➜ Ríkisbréf líklega áfram
fyrirferðarmikil í fjár-
festingum lífeyrissjóð-
anna árið 2012
➜ Lífeyrissjóðirnir binda
vonir við fjölgun fjár-
festingarmöguleika
Fékk fi mm prósenta hlut í
Skýrr fyrir 140 milljónir
Fjárfestingafélagið Títan, sem er í eigu Skúla
Mogensen, greiddi alls um 140 milljónir króna fyrir
5,17% hlut sem félagið eignaðist í Skýrr í síðustu
viku. Kaupverðið var greitt með reiðufé. Miðað við
það verð sem Títan greiddi fyrir hlutinn er heild-
arvirði hlutabréfa Skýrr tæplega 2,8 milljarðar
króna. Spurður um hvort til greina komi að auka við
eignar hlut sinn í Skýrr segist Skúli alls ekki vilja
útiloka það.
Títan var einn stærsti eigandi gagnaversins Thor
Data Center þar til nú í nóvember þegar allt hlutafé
þess var selt til Skýrr.
Skýrr er stærsta upplýsingatæknifyrirtæki lands-
ins og á meðal þeirra tíu stærstu á Norðurlöndun-
um. Hjá fyrirtækinu starfa um 1.100 manns, þar
af um 600 á Íslandi og um 500 í Noregi, Svíþjóð og
Lettlandi. Velta Skýrr á árinu 2011 var um 24 millj-
arðar króna. Til stendur að skrá Skýrr á markað í
haust en stærsti einstaki eigandi félagsins er Fram-
takssjóður Íslands með um 75% hlut. -ÞSJ/SÍÐA 4