Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 42
11. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR22 sport@frettabladid.is HANDBOLTI Alexander Petersson hefur farið á kostum með liði sínu, Füchse Berlin, í þýsku úrvalsdeild- inni sem og Meistaradeild Evrópu. Þar spilar hann sem hægri skytta og nú mun hann spila meira í því hlutverki fyrir íslenska landsliðið þar sem Ólafur Stefánsson mun ekki vera með á EM í Serbíu. „Þetta verður auðvitað erfitt án Óla en það hlaut að koma að þessu. Hann getur ekki verið alltaf með okkur,“ segir hann og brosir. „En við erum með góða leikmenn og þetta þarf ekki að vera slæmt. Ein- hvern tímann verðum við að venj- ast því að spila án hans.“ Alexander hefur lengi verið lykil maður í íslenska landslið- inu, ekki síst í vörn þar sem hann hefur haft gríðarlega mikilvægu hlutverki að gegna. En hann segist búinn undir aukna ábyrgð í sókn- arleiknum. „Ég er alveg tilbúinn í þetta – að draga vagninn eins og Óli hefur gert í öll þessi ár,“ segir Alexander sem hefur lengi sagt að Ólafur væri sín fyrirmynd. „Ég hef lært mikið af honum í gegnum tíðina og er enn að læra af honum. Hann er enn leikmaður í hæsta gæðaflokki þrátt fyrir að vera 38 ára gamall og hefur sýnt að með því að leggja nógu mikið á sig er hægt að lengja ferilinn. Maður þarf að hafa meira fyrir því að halda líkamanum góðum eftir þrítugt en Ólafur hefur sýnt að það er allt hægt. Hann er enn fyrirmyndin mín.“ Öxlin er slæm Alexander hefur verið að glíma við meiðsli í öxl síðan á heims- meistaramótinu í Svíþjóð fyrir ári. Hann spilar mikið með liði sínu, Füchse Berlin, en álagið verður þó enn meira með íslenska lands- liðinu á EM í Serbíu. Þar er spilað annan hvern dag. „Öxlin hefur ekki verið nógu góð og ég er enn að drepast eftir HM í fyrra. Ég vona að þetta muni ekki há mér á mótinu en það er ómögu- legt að segja eins og er. Þetta verð- ur bara að koma í ljós,“ segir hann. „Ég hef þurft að passa sérstak- lega upp á öxlina með sérstökum æfingum og gætt mín á því að skjóta ekki of mikið á æfingum. Þetta hefur gengið þokkalega hing- að til og ég hef ekki fundið mikið fyrir þessu í leikjum, svo lengi sem ég hef fengið góða hvíld eftir þá. Það var svo æft nokkuð stíft í síðustu viku með landsliðinu og ég var ekki nógu góður eftir það.“ Þjálfarinn hefur áhyggjur Alexander spilaði með landslið- inu á æfingamótinu í Danmörku um helgina og er staðan á öxlinni í raun óbreytt, að sögn þjálfar- ans Guðmundar Guðmundsson- ar. „Hann verður ekkert betri úr þessu fyrir mótið og það er ákveð- in þreyta í honum,“ sagði Guð- mundur við Fréttablaðið. Alex- ander skoraði samtals sex mörk í fyrstu leikjunum tveimur en hvíldi svo í lokaleiknum gegn Danmörku. Guðmundur neitar því ekki að hann hafi áhyggjur af öxlinni fyrir EM. „Auðvitað hef ég áhyggjur – en ég held að þetta verði bara í lagi og að hann verði klár þegar út í keppnina er komið. Það verða hvíldardagar á milli leikja og von- andi ná sjúkraþjálfarar okkar að hugsa nógu vel um hann til að þetta verði ekki til vandræða.“ Það er ekki annað að heyra á Alexander sjálfum en að hann ætli að hella sér af fullum krafti út keppnina í Serbíu – það komi ekki til greina að taka sér frí til að freista þess að ná sér góðum á ný. „Nei, það kom ekki til greina. Ég tek mér bara frí seinna.“ eirikur@frettabladid.is Ég er alveg tilbúinn í þetta – að draga vagninn eins og Óli hefur gert í öll þessi ár. ALEXANDER PETERSSON LANDSLIÐSMAÐUR Í HANDBOLTA Ólafur er enn fyrirmyndin mín Alexander Petersson heldur nú í sitt fyrsta stórmót í handbolta án Ólafs Stefánssonar. Hann verður því aðalskytta liðsins hægra megin þrátt fyrir að glíma við meiðsli í öxl sem hafa hrjáð hann undanfarið ár. Á BEKKNUM Alexander er hér í nuddi hjá Elís Þór Rafnssyni sjúkraþjálfara. Ingibjörg Ragnarsdóttir sjúkranuddari og Brynjólfur Jónsson læknir ræða málin við þá. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Síðustu fimm stórmót Samanlagður árangur Alexanders og Ólafs á síðustu fimm stórmótum Íslands: HM 2011 Samtals 75 mörk – 8,3 í leik Alexander 5,9 m. í leik (53 mörk/9 leikir) Ólafur 3,1 mark í leik (22/7) EM 2010 61 mark – 7,6 í leik Alexander 3,6 mörk í leik (29/8) Ólafur 4,0 mark í leik (32/8) ÓL 2008 60 mörk - 7,5 í leik Alexander 3,9 mörk í leik (31/8) Ólafur 3,6 mörk í leik (29/8) EM 2008 39 mörk - 6,5 í leik Alexander 3,3 mörk í leik (20/6) Ólafur 4,8 mörk í leik (19/4) HM 2007 101 mark - 10,1 í leik Alexander 4,8 mörk í leik (48/10) Ólafur 5,3 mörk í leik (53/10) KRÓATÍA verður fyrsti mótherji Íslands á EM. Króatar hafa aldrei orðið Evrópumeistararar en þeir hafa tapað úrslitaleiknum á síðustu tveimur Evrópumótunum – fyrir Dönum 2008 og Frökkum 2010. Króatar unnu síðast gull á stórmóti þegar liðið varð Ólympíumeistari 2004 ári eftir að þeir urðu heims- meistarar. Frá og með HM 2005 hafa Króatar unnið fjögur silfur og aldrei endað neðar en í 5. sæti. EM í handbolta 2012 5 DAGAR HANDBOLTI Þeir Ólafur Stefáns- son og Alexander Petersson hafa náð afar vel saman á hægri væng landsliðsins síðustu stórmótin en sá síðarnefndi spilaði á sinu fyrsta stórmóti árið 2005. Gegndu þeir lykilhlutverkum á bæði Ólympíuleikunum í Peking og EM í Austurríki, þar sem Ísland vann til verðlauna. Úttekt á skoruðum mörkum má sjá hér fyrir neðan en þess má geta að þeir hafa einn- ig haft mikilvæg hlutverk í varn- arleik Íslands á síðustu árum. Alexander mun nú verða aðal- skytta Íslands hægra megin í fjarveru Ólafs og njóta stuðnings Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar og Rúnars Kárasonar. Þórir Ólafs- son fær aukna ábyrgð í horninu en þeir Alexander og Ásgeir Örn þekkja þá stöðu einnig vel. - esá Ólfafur og Alexander öflugir: Hægri vængur- inn sterkur NÁ VEL SAMAN Ólafur og Alexander í leik með landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn Arnór Atlason var í viðtali við danska handbolta-netmiðilinn HBOLD.dk eftir Totalkredit Cup- æfingamótið um helgina. Íslenska liðið endaði þá í öðru sæti eftir tap á móti Dönum í úrslitaleiknum. „Við fengum að prófa okkur á móti góðum handboltaþjóðum og fengum að vita um stöðuna á bæði sókninni og vörninni okkar,“ sagði Arnór en hann leikur með danska stórliðinu AG Kaupmannahöfn. „Við erum án Ólafs Stefánsson- ar sem er líklega besti handbolta- maðurinn í heimi og höfum sýnt það að við getum spjarað okkur án hans. Við erum á góðri leið á báðum endum vallarins,“ sagði Arnór sem hefur sjálfur verið að glíma við bakmeiðsli en ætlar að fórna sér fyrir landsliðið í Serbíu. „Við unnum brons á síðasta Evr- ópumóti og vorum mjög ánægðir með það. Við gerum okkur grein fyrir því að það er löng leið fram undan ef við ætlum að komast aftur svona langt. Við erum í erf- iðum riðli og verðum að taka stig með okkur inn í milliriðilinn ef við ætlum að spila aftur um efstu sætin.“ Arnór var frábær á síðasta Evr- ópumóti sem fór fram í Austurríki 2010. Hann skoraði flest mörk íslenska liðsins, 41 í 8 leikjum, og gaf 49 stoðsendingar á félaga sína í liðinu. - óój Arnór Atlason í viðtali hjá dönskum vefmiðli: Spjörum okkur án eins besta leikmanns heims ARNÓR ATLASON Hér í leik gegn Dönum um helgina. MYND/OLE NIELSEN  

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.