Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 21
NÝIR BÍLAR MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012 Kynningarblað Hugmyndabílar Tryggingar Bílasölur Bílalán Glæsileiki Nýjungar Við byrjum árið á stórri sýn-ingu eins og endranær. Þar leggjum við aðaláherslu á breyttan Avensis sem er að koma og svo Yarisinn og Land Cruiser- inn,“ segir Páll Þorsteinsson upp- lýsingafulltrúi Toyota. Nýtt ár boðar ný tækifæri í hans huga. Hann segir 2011 hafa verið ár við- snúnings þar sem stöðug aukn- ing hafi verið í sölu. Land Cruiser 150 hafi selst jafnt og þétt og farið í 213 eintökum á síðasta ári. „Fólk sem á pening sér góða fjárfestingu í þeim bíl enda reynist hann mjög vel,“ segir hann. Það var þó Yarisinn sem topp- aði Toyotasöluna á Íslandi á síð- asta ári með 214 eintökum eða einu fram yfir Land Cruiser- inn. „Nýi Yarisinn kom til okkar í nóvember. Þá gerðist það að smærri bílar fóru að seljast í ein- hverju magni til einstaklinga. Það var eins og hefði verið tekinn tappi úr flösku og hátt í hundrað bílar hafa selst á tveimur mánuð- um,“ upplýsir Páll. Páll segir nýja Yarisinn óvenju vel búinn af smærri bíl að vera og lýsir því nánar. „Það er nýtt kerfi í honum sem heitir Touch & Go. Aksturstölva, bakkmyndavél og þráðlaus búnaður fyrir síma er staðalbúnaður í þessu kerfi en leiðsögukerfi með íslenskum kortum er valbúnaður. Þannig að þetta er dálítið mikil græja,“ segir Páll og bendir á að höfuðborgar- svæðið sé orðið svo stórt að fólki veiti ekkert af leiðsögukerfi til að komast um það vafningalaust. Toyota Touch & GO veiti sann- arlega þann möguleika. „Toyota kynnir þetta leiðsögukerfi fyrst í Yarisnum svo er það að detta inn í fleiri nýja bíla,“ segir hann. Margt f leira er að gerast hjá Toyota á árinu, að sögn Páls sem drepur á nokkur atriði. „Það er að koma endurbætt- ur 200 Cruiser − stóri Cruiser- inn, með auknum búnaði, leið- sögukerfi með íslensku vega- korti og nýrri bensínvél. Þá er ný gerð af Prius væntanleg, nokk- uð stærri og rúmbetri en sá Prius sem við þekkjum best, enda ber hann heitið Prius +. Báðar gerð- irnar verða í sölu, sá hefðbundni er fimm manna en Prius + er sjö manna bíll, ekta fjölskyldubíll. „Bílamarkaðurinn hefur verið á uppleið hér á landi og sömu þróun er spáð á þessu ári,“ segir Páll. „Við finnum að það er að losna um allt. Það er eins með bílana og fasteignirnar. Það koma 4.000 manns nýir inn á hverju ári og aðrir hafa þörf fyrir að endur- nýja.“ Byrjum árið á stórri bíla- sýningu eins og endranær Bílasýning verður laugardaginn 14. janúar hjá öllum söluaðilum Toyota á Íslandi, á Nýbýlaveginum í Kópavogi, í Reykjanesbæ, á Selfossi og á Akureyri. Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota, er bjartsýnn á nýju ári. Land Cruiser 150 við útfall Jökulsár á Breiðamerkursandi. Jeppi sem hentar Íslendingum vel enda er hann vinsæll. HUGARFÓSTUR FORSTJÓRANS Nýr sportbíll sem nefnist GT 86 er væntanlegur í sumar. Hann er hugarfóstur hins nýja forstjóra Toyota sem hefur ástríðu fyrir bílum, enda er einn þeirra sem stofnaði Toyota forfaðir hans. Páll Þorsteinsson, upplýsinga- fulltrúi Toyota, segir um skemmti- legan akstursbíl að ræða. „GT 86 er fallegur bíll og skemmtilegur. Svona sportbíl hefur vantað hjá Toyota undanfarin ár enda finn ég að bílaáhugamenn eru spenntir fyrir honum,“ segir hann. Spurður hvort GT 86 sé sparneytn ari en aðrir sportbílar svarar Páll: „Ég hef ekki heyrt eyðslutölur fyrir hann. „En menn eru alltaf með þá pressu á sér að búa til sparneytna bíla og umhverfisvæna, meira að segja í sportbílunum,“ segir Páll. „Það eru miklar kröfur um það.“ Toyota Avensis er að koma út í nýrri og endurbættri útgáfu. „Þetta er kannski ekki alveg ný kynslóð af Avensis en hann er talsvert breyttur,“ segir Páll Þor- steinsson, upplýsingafulltrúi Toyota, og nefnir endurbætta fjöðrun og stýrisbúnað, aukna hljóðeinangrun og endurhönn- un á sætum og mælaborði. Hann segir útlitsbreytingar hafa verið gerðar, sérstaklega framan á bíln- um og setji ný ljós sterkan svip á hann. „Dísilvélin er líka um- hverfisvænni en áður, án þess að fórna krafti, þar sem dregið hefur verið úr útblæstri koltvísýrings.“ Páll segir Toyota Avensis vin- sælan fjölskyldubíl, enda sé hann rúmgóður, þægilegur og sprækur. Enn betri Avensis Fágun í hönnun, þægindi og öryggi einkenna Avensis. Bílamarkaðurinn hefur verið á uppleið hér á landi og sömu þróun er spáð á þessu ár.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.