Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011 Miðvikudagur skoðun 12 3 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Nýir bílar Markaðurinn veðrið í dag 11. janúar 2012 9. tölublað 12. árgangur Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457 K eppni í sleðahundadrætti er nýtt sport hér á landi. Ein slík verður haldin um aðra helgi í Kjarna-skógi við Akureyri á vegum Draghundasports og Icehusky.is. Barnakeppni verður föstudag-inn 20. janúar við Skautahöllina á Akureyri þar sem börn keppa með einn til tvo hunda. Birgir Hólm Þórhallsson verð-ur meðal keppenda í Kjarnaskógi. Hann á tvo Siberian Huskyhunda ásamt kærustunni, og fær fleiri lánaða til að beita fyrir sleða. „Huskyhundar eru mjög sterkar skepnur. Þeir eru um 20-30 kíló að þyngd að meðaltali og eiga að geta dregið þrefalda þyngd sína,“ segir Birgir. Hann telur allar hunda- tegundir geta dregið og segir þær allar jafngildar í keppnum. Hann reynir að þjálfa sína hunda á hverjum degi og segir bæði umsumar- og vetrarspÞ arnir fólk á reiðhjólum, hlaupa- hjólum eða fjórhjólum. En þá þarf að þræða göngustíga og aðra slóða. Það er meira frelsi við að bruna á sleðum yfir snjóbreiður og hjarn.“ Áhugi Birgis á dráttarhundum vaknaði fyrir þremur árum. „Ég var ekkert að pæla í þessu sporti en kynntist fólki sem var með svona hunda og lét þá draKær Brunað á sleðum yfir snjóbreiður og hjarn MYND/HELGI STEINAR Upplýsingar er varða umferðaröryggi er að finna undir flipanum umferðarfréttir á vef Umferðarstofu, us.is, en þangað er gott að líta inn þegar veðrið er eins og verið hefur og kynna sér hugsanlegar lokanir og ófærð. Síðan er uppfærð með reglulegu millibili. Sleðahundakeppni Íslands verður í Kjarnaskógi 21. og 22. janúar. Fleira er fram undan í þeirri íþrótt. Bonito ehf. Friendtex Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 Opnunartími:mánud.-föstud. kl. 11:00 - 18:00 laugardaga 11.00-14.00 ÚTSALA ALLT AÐ 70 %AFSLÁTTUR SOO.DK BARNAFÖTINSELD MEÐ 40% N Ú E R B A R A H Æ G T A Ð G ER A G Ó Ð K A U P NÝIR BÍLAR KynningarblaðHugmyndabílarTryggingarBílasölurBílalánGlæsileiki Nýjungar boðar ný tækifæri í hans huga. Hann segir 2011 hafa verið ár við- snúnings þar sem stöðug aukn- ing hafi verið í sölu. Land Cruiser 150 hafi selst jafnt og þétt og farið í 213 eintökum á síðasta ári. „Fólk sem á pening sér góða fjárfestingu í þeim bíl enda reynist hann mjög vel,“ segir hann. Það var þó Yarisinn sem topp- aði Toyotasöluna á Íslandi á síð- asta ári með 214 eintökum eða einu fram yfir Land Cruiser- inn. „Nýi Yarisinn kom til okkar í nóvember. Þá gerðist það að smærri bílar fóru að seljast í ein- hverju magni til einstaklinga. Það var eins og hefði verið tekinn tappi úr flösku og hátt í hundrað bílar hafa selst á tveimur mánuð- um,“ upplýsir Páll. Páll segir nýja Yarisinn óvenju vel búinn af smærri bíl að vera og lýsir því nánar. „Það er nýtt kerfi í honum sem heitir Touch & Go. Aksturstölva, bakkmyndavél og þráðlaus búnaður fyrir síma er staðalbúnaður í þessu kerfi en leiðsögukerfi m ðk Land Cruiser 150 við útfall Jökulsár á Br iðamerkursandi. Jeppi sem hentar Íslendingum vel enda er hann vinsæll HUGARFÓSTUR FORSTJÓRANSNýr sportbíll sem nefnist GT 86 er væntanlegur í sumar. Hann er hugarfóstur hins nýja forstjóra Toyota sem hefur ástríðu fyrir bílum, enda er einn þeirra sem stofnaði Toyota forfaðir hans. Páll Þorsteinsson, upplýsinga-fulltrúi Toyota, segir um skemmti-legan akstursbíl að ræða. „GT 86 er fallegur bíll og skemmtilegur. Svona sportbíl hefur vantað hjá Toyota undanfarin ár enda finn ég að bílaáhugamenn eru spenntir fyrir honum,“ s gir hann. Spurður hvort GT 86 sé sparneytn ari en aðrir sportbílar svarar Páll: „Ég hef ekki heyrt eyðslutölur fyrir hann. „En me n eru alltaf með þá pressu á sér að bú til sparneytna bíla og umhverfisvæna, meira að segja í sportbílunum,“ segir Páll Þ ðmikl k Bílamarkaðurinn heful www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 11. janúar 2011 | 1. tölublað | 8. árgangur Dress Up Games malar gull Dress Up Games ehf. hagnaðist um 88,3 millj-ónir króna á árinu 2010. Á árunum 2008 og 2009 nam hagnaður félagsins samtals um 213 milljón-um króna. Það hefur því hagnast um rúmlega 300 milljónir króna á þriggja ára tímab li. Þetta kemur fram í síðustu ársreikningum Dress U Games ehf. Félagið á og rekur vefsíðuna www.dressup games.com og hefur á undanförnum árum verið á meðal arðbærustu fyrirtækja á Vestfjörðum. Eigandi félagsins er Inga María Guðmundsdóttir.Á vefsíðunni er tenglum á tölvuleiki þar sem dúkkulísur eru klæddar í föt safnað saman. Dress Up Games er síðan með auglýsingasamning við stórfyrirtækið Google sem t yggir því tekjur. Samningurinn virkar þannig að Google AdWords selur auglýsingar inn á síðuna og D ess Up Games ehf. fær síðan greitt fyrir hve t ki i Minnkandi fjárþörf ríkissjóðs veldur lífeyrissjóðunum vanda➜ Ríkisbréf líklega áfram fyrirferðarmikil í fj ár- festingum lífeyrissjóð- anna árið 2012 ➜ Lífeyrissjóðirnir binda vonir við fj ölgun fj ár- festingarmöguleika VÍTAMÍND Fæst í verslunum um allt land. Nánar á www.yggdrasill.is frá NOW fyrir börn og fullorðna Nýr tilboðsbæklingur í dag www.ms.is Nú í nýjum umbúðum með skrúftapp a Get dregið vagninn Alexander Petersson um aukna ábyrgð í íslenska handboltalandsliðinu. sport 22 Skýrr 2,8 milljarða virði Skúli Mogensen keypti fimm prósent í Skýrr fyrir um 140 milljónir króna. Tréskrúfur undir skóm Guðmundur Guðnason setti tréskrúfur undir hlaupaskóna sína og hleypur í öllum veðrum. fólk 26 LÖGGÆSLA Þynging refsinga við ólöglegum vopnaburði, aukin fjárframlög til lögreglu og aukin samvinna stjórnvalda við íslensk og alþjóðleg lögregluyfirvöld eru kostir sem Ögmundur Jónasson innanríkisráð- herra sér í stöðunni eftir að nýtt hættu- mat greiningardeildar ríkislögreglustjóra var gert opinbert. Þar er dregin upp svört mynd af glæpastarfsemi hér, þar sem um er að ræða skipulagða starfsemi bæði inn- lendra og erlendra glæpahópa. Innanríkisráðherra lagði nýja hættu- matið fram á fundi ríkisstjórnarinnar í gær. „Ég vakti athygli á því að við fengum sérstaka fjárveitingu á síðasta ári til að efla forvarnir og baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Við teljum að þeir fjár- munir hafi komið að góðum notum og erum með frekari tillögur í þeim efnum til skoðunar núna,“ segir ráðherra. „Þá er horft til breytinga á vopnalögum, eftir að í ljós kemur að aukin brögð eru að því að menn beri skotvopn. Ég mun eftir um það bil hálfan mánuð leggja frumvarp fyrir ríkisstjórnina um breytingu á umræddum lögum sem felur meðal annars í sér bann við eign og vörslu á hálfsjálfvirkum skot- vopnum. Brot á slíku banni varði allt að átta ára fangelsi í stað sex eins og nú er,“ útskýrir ráðherra, sem segir vopnaburð lögreglu ekki kost að sínu skapi og hugnist lögreglu heldur ekki almennt. Hann segir enn fremur að lögð verði áhersla á aukið samstarf við alþjóðlega löggæslu. Í næstu viku komi að frumkvæði ráðuneytisins fulltrúar frá Evrópulögregl- unni til viðræðna, auk þess sem viðræður séu hafnar um að efla enn frekar samstarf innanríkisráðuneytisins og Alþingis um málefni löggæslunnar og hafi formaður allsherjarnefndar, Björgvin G. Sigurðsson, lýst vilja í þá veru. - jss Viðbrögð stjórnvalda við nýju hættumati greiningardeildar Ríkislögreglustjóra: Þyngja refsingar við vopnaburði -1 -2 -3 -3 -5 HVASST AUSTANTIL en lægir þegar líður á daginn. Annars fremur hæg vestanátt og bjart með köflum en sums staðar stöku él. Frost að 9 stigum en um frostmark við suður- ströndina. VEÐUR 4 HEILBRIGÐISMÁL Líkamlegt ofbeldi foreldra, eða annarra forráða- manna, gegn börnum er dulinn vandi á Íslandi, er mat sérfræð- ings Barnaverndarstofu. Greining á tilkynningum til barnaverndar- nefnda sýnir að börn á aldrinum 6 til 10 ára eru líklegust til að vera beitt ofbeldi, ekki síst börn með skilgreinda fötlun eða greiningu. Ofbeldið er mannskemmandi, er niðurstaða allra sem til þekkja. Þetta er meðal rannsóknarniður- staðna sem Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi hjá Barnaverndar- stofu, mun kynna á ráðstefnu Barna- og unglingageðdeildar (BUGL) á föstudag. „Þessi tegund ofbeldis gegn börn- um hefur ekki fengið mikla athygli hér á landi. Samfélagið og barna- verndin hefur verið sofandi gagn- vart slíku enda almennt sú hug- mynd uppi að líkamlegar refsingar viðgangist ekki hér á landi,“ segir Steinunn. Rannsóknin náði til rúmlega 400 tilkynninga sem bárust barna- verndarnefndum á Íslandi árið 2006 vegna barna að 18 ára aldri. Þar af voru 189 tilkynningar sem vörðuðu 156 börn þar sem grunur lék á að foreldrar beittu börn sín ofbeldi. Tilkynningar vegna kynferðis- ofbeldis eða andlegs ofbeldis eru flokkaðar sérstaklega og eru ekki hluti af þessum niðurstöðum. Flest börnin bjuggu á heimili þar sem til staðar voru báðir foreldrar. Mun oftar var tilkynntur grunur um ofbeldi af hálfu karla en kvenna en í skýrslunni segir að ætla megi að síður sé tilkynnt um ofbeldi af hálfu mæðra. „Heilt yfir skilar sér aðeins hluti tilfella, þar sem barn er beitt líkamlegu ofbeldi, til yfirvalda,“ segir Steinunn en mál koma til kasta lögreglu í undantekningartilfellum. Steinunn sýnir fram á að í nær helmingi tilfella var grunur um að barn hefði verið barið, löðrungað eða flengt. Í 29,5% tilvika var barni hrint, gripið eða sparkað í það. Þá var í um 14% tilvika grunur um að barn hefði verið barið með kreppt- um hnefa, belti, spaða, priki eða ein- hverjum öðrum hlut. Dæmi fannst þar sem barn var tekið hálstaki, eða reynt að kæfa það eða drekkja því. Tvö tilvik sýna að barni var refsað með því að kremja fingur eða hendi þess. Börnum með skilgreinda fötlun, eins og athyglisbrest með ofvirkni (ADHD), einhverfu, Asperger eða lesblindu, er sérstaklega hætt við því að vera beitt ofbeldi. Alls voru 35 börn af þeim 156 sem rannsóknin náði til með fyrrnefnda fötlun eða greiningu. Oftast var tilkynntur grunur um einstakt tilvik en 23 tilkynningar fjölluðu um fleiri en tíu tilvik. Þá vekur athygli að börn fóru aðeins í læknisskoðun í 15% tilvika. Þá ósk- uðu barnaverndarnefndir sjaldan eftir lögreglurannsókn eða einungis vegna mála er vörðuðu fimm börn. - shá Ofbeldi foreldra dulinn vandi Þrátt fyrir að líkamlegar refsingar á börnum séu bannaðar með lögum eru þær algengar hérlendis. Rann- sókn sýnir að 6 til 10 ára börn eru líklegust til að verða fyrir ofbeldi. Fötluðum börnum er hætt við ofbeldi. Heilt yfir skilar sér aðeins hluti tilfella, þar sem barn er beitt líkam- legu ofbeldi, til yfirvalda. STEINUNN BERGMANN FÉLAGSRÁÐGJAFI Á BARNAVERNDARSTOFU Á MÓTI VINDINUM Þótt flestir vegfarendur hafi eflaust hugsað hlýlega til upphitaðra bíla sinna í illviðrinu í gær var meira en að segja það að aka í hálfblindu um götur borgarinnar. Margir kusu því að fara ferða sinna fótgangandi í rokinu og sóttist það býsna hægt. Sjá síðu 2 FRÉTTABLAÐIÐ/HAG Ég mun eftir um það bil hálfan mánuð leggja frum- varp fyrir ríkisstjórnina um breytingu á umræddum lögum ÖGMUNDUR JÓNASSON INNANRÍKIS- RÁÐHERRA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.