Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 27
KYNNING − AUGLÝSING Nýir bílar11. JANÚAR 2012 MIÐVIKUDAGUR 7
SKODA SÆKIR ENN
Í SIG VEÐRIÐ
● Skoda Octavia var mest seldi
bíllinn á Íslandi árið 2011.
● Markaðshlutdeild Skoda-
fólksbifreiða á Íslandi var 8,9
prósent árið 2011.
● 464 Skoda-bílar seldust á Ís-
landi í fyrra.
● Skoda á Íslandi er með hæstu
markaðshlutdeild í Vestur-
Evrópu.
● Skoda seldi 875 þúsund bíla
á heimsvísu í fyrra sem er 15
prósenta aukning frá árinu
2010.
● Skoda setur sér það markmið
að selja eina og hálfa milljón
bíla árið 2018. Farþega- og farangursrýmið í Skoda Oktavia þykja einstaklega rúmgóð.
Hekla tók við Skoda um-boðinu árið 1997 og síðan hafa vinsældir bílanna
aukist jafnt og þétt. „Við höfum
að jafnaði verið með í kringum
fjögurra til sex prósenta mark-
aðshlutdeild. Árið 2010 var hún
5,9 prósent en í fyrra 8,9 pró-
sent. Við vorum með fleiri selda
bíla fyrir hrun en markaðshlut-
deildin hefur aldrei verið meiri,“
segir Sigurður Sigurðsson, sölu-
stjóri Skoda. Hann segir Skoda
á Íslandi sömuleiðis vera með
hæstu markaðshlutdeild í Vest-
ur-Evrópu. „Þar er meðaltalið í
kringum þrjú prósent en Finnar
koma á hæla okkar með rétt um
átta prósent.“
Hvernig skýrir þú þessa vel-
gengni? „Bílarnir hafa staðið
sig vel og eru með mjög lága bil-
anatíðni. Ánægja viðskiptavina
er mikil og við erum með fasta-
kúnna sem koma aftur og aftur.
Möguleikarnir eru auk þess marg-
ir og er hægt að velja um bein-
skipta, sjálfskipta, fjórhjóladrifna
og dísilknúna bíla. Þá höfum við
lagt mikla áherslu á framúrskar-
andi þjónustu á verkstæðinu sem
er augljóslega að skila sér.“
Hvað Skoda Octavia varðar segir
Sigurður mörgum koma á óvart
hversu rúmgóður bíllinn er. „Far-
þega- og farangursrýmið er ein-
staklega rúmgott sem skýrir eflaust
hvers vegna þeir teljast ákjósanleg-
ir fjölskyldubílar. Ekki spillir fyrir
hvað bíllinn er eyðslugrannur auk
þess sem verðið er sambærilegt við
verð annarra stórra fólksbíla. Þá eru
allar útfærslur að innan sem utan
hugvitsamlegar og virðast Tékkarn-
ir alveg vita hvað þeir eru að gera.“
En Skoda hefur ekki alltaf þótt
eftirsóknarvert merki. „Það er rétt
og fyrir nokkrum áratugum var
jafnvel talað um druslur. Það sem
færri vita er að Skoda var mjög
virtur bílaframleiðandi í byrjun
síðustu aldar. Fyrirtækið á rætur
sínar að rekja til ársins 1895 þegar
tékkarnir Václav Laurin og Vác-
lav Klement hófu reiðhjólafram-
leiðslu. Árið 1899 hófu þeir að
framleiða mótorhjól og kom fyrsti
Laurin & Klement bíllinn, Voitu-
rette A, á markað árið 1905. Bíl-
arnir voru framleiddir undir merk-
inu L&K til ársins 1926 þegar þeir
fengu nafnið Skoda. Í kringum
seinni heimsstyrjöldina fór hins
vegar að halla undan fæti og var
það ekki fyrr en um það leyti sem
múrinn féll að velgengnin hófst á
ný.“
Eigendur Skoda hafa að sögn
Sigurðar sett sér háleit markmið.
„Þeir seldu um 875 þúsund bíla
í fyrra og var aukningin 15 pró-
sent á milli ára sem er langt um-
fram væntingar. Markmiðið er að
fara í eina og hálfa milljón bíla árið
2018.“
Skoda á Íslandi með hæstu
markaðshlutdeild V-Evrópu
Tékkneski bílaframleiðandinn Skoda er sífellt að sækja í sig veðrið bæði hér heima og erlendis. Skoda Octavia var mest seldi bíllinn á Íslandi í fyrra
og hefur markaðshlutdeild Skoda aldrei verið meiri hér á landi. Skoda á Íslandi er auk þess með hæstu markaðshlutdeild í Vestur-Evrópu.
Sigurður segir Skoda hafa lága bilanatíðni og að ánægja viðskiptavina sé mikil. MYND/GVA
Bilanatíðni Skoda er lág.
Hægt er að
velja um bein-
skipta, sjálfskipta,
fjórhjóladrifna og
dísilknúna bíla.