Fréttablaðið - 11.01.2012, Side 27

Fréttablaðið - 11.01.2012, Side 27
KYNNING − AUGLÝSING Nýir bílar11. JANÚAR 2012 MIÐVIKUDAGUR 7 SKODA SÆKIR ENN Í SIG VEÐRIÐ ● Skoda Octavia var mest seldi bíllinn á Íslandi árið 2011. ● Markaðshlutdeild Skoda- fólksbifreiða á Íslandi var 8,9 prósent árið 2011. ● 464 Skoda-bílar seldust á Ís- landi í fyrra. ● Skoda á Íslandi er með hæstu markaðshlutdeild í Vestur- Evrópu. ● Skoda seldi 875 þúsund bíla á heimsvísu í fyrra sem er 15 prósenta aukning frá árinu 2010. ● Skoda setur sér það markmið að selja eina og hálfa milljón bíla árið 2018. Farþega- og farangursrýmið í Skoda Oktavia þykja einstaklega rúmgóð. Hekla tók við Skoda um-boðinu árið 1997 og síðan hafa vinsældir bílanna aukist jafnt og þétt. „Við höfum að jafnaði verið með í kringum fjögurra til sex prósenta mark- aðshlutdeild. Árið 2010 var hún 5,9 prósent en í fyrra 8,9 pró- sent. Við vorum með fleiri selda bíla fyrir hrun en markaðshlut- deildin hefur aldrei verið meiri,“ segir Sigurður Sigurðsson, sölu- stjóri Skoda. Hann segir Skoda á Íslandi sömuleiðis vera með hæstu markaðshlutdeild í Vest- ur-Evrópu. „Þar er meðaltalið í kringum þrjú prósent en Finnar koma á hæla okkar með rétt um átta prósent.“ Hvernig skýrir þú þessa vel- gengni? „Bílarnir hafa staðið sig vel og eru með mjög lága bil- anatíðni. Ánægja viðskiptavina er mikil og við erum með fasta- kúnna sem koma aftur og aftur. Möguleikarnir eru auk þess marg- ir og er hægt að velja um bein- skipta, sjálfskipta, fjórhjóladrifna og dísilknúna bíla. Þá höfum við lagt mikla áherslu á framúrskar- andi þjónustu á verkstæðinu sem er augljóslega að skila sér.“ Hvað Skoda Octavia varðar segir Sigurður mörgum koma á óvart hversu rúmgóður bíllinn er. „Far- þega- og farangursrýmið er ein- staklega rúmgott sem skýrir eflaust hvers vegna þeir teljast ákjósanleg- ir fjölskyldubílar. Ekki spillir fyrir hvað bíllinn er eyðslugrannur auk þess sem verðið er sambærilegt við verð annarra stórra fólksbíla. Þá eru allar útfærslur að innan sem utan hugvitsamlegar og virðast Tékkarn- ir alveg vita hvað þeir eru að gera.“ En Skoda hefur ekki alltaf þótt eftirsóknarvert merki. „Það er rétt og fyrir nokkrum áratugum var jafnvel talað um druslur. Það sem færri vita er að Skoda var mjög virtur bílaframleiðandi í byrjun síðustu aldar. Fyrirtækið á rætur sínar að rekja til ársins 1895 þegar tékkarnir Václav Laurin og Vác- lav Klement hófu reiðhjólafram- leiðslu. Árið 1899 hófu þeir að framleiða mótorhjól og kom fyrsti Laurin & Klement bíllinn, Voitu- rette A, á markað árið 1905. Bíl- arnir voru framleiddir undir merk- inu L&K til ársins 1926 þegar þeir fengu nafnið Skoda. Í kringum seinni heimsstyrjöldina fór hins vegar að halla undan fæti og var það ekki fyrr en um það leyti sem múrinn féll að velgengnin hófst á ný.“ Eigendur Skoda hafa að sögn Sigurðar sett sér háleit markmið. „Þeir seldu um 875 þúsund bíla í fyrra og var aukningin 15 pró- sent á milli ára sem er langt um- fram væntingar. Markmiðið er að fara í eina og hálfa milljón bíla árið 2018.“ Skoda á Íslandi með hæstu markaðshlutdeild V-Evrópu Tékkneski bílaframleiðandinn Skoda er sífellt að sækja í sig veðrið bæði hér heima og erlendis. Skoda Octavia var mest seldi bíllinn á Íslandi í fyrra og hefur markaðshlutdeild Skoda aldrei verið meiri hér á landi. Skoda á Íslandi er auk þess með hæstu markaðshlutdeild í Vestur-Evrópu. Sigurður segir Skoda hafa lága bilanatíðni og að ánægja viðskiptavina sé mikil. MYND/GVA Bilanatíðni Skoda er lág. Hægt er að velja um bein- skipta, sjálfskipta, fjórhjóladrifna og dísilknúna bíla.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.