Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 22
KYNNING − AUGLÝSINGNýir bílar MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 20122 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is s. 512 5429 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. GERUM GOTT ENN BETRA, ÖLLUM TIL GÓÐA Bjarni Benediktsson er nýr aðstoðarframkvæmdastjóri þjónustusviðs hjá Ingvari Helgasyni og B&L. Hann segir fyrirmyndarþjónustu vera í brennidepli hjá fyrirtækinu sem aldrei fyrr. „Þjónusta er einn af lykilþáttunum þegar kemur að vali á nýjum bíl, ekki síst til atvinnureksturs. Rekstraröryggi þarf að vera tryggt og þjónustan stöðug og fyrirsjáanleg,“ útskýrir Bjarni á einu fullkomnasta fólksbílaverkstæði landsins, sem búið er öllum þeim tæknibúnaði sem nýjustu bílarnir krefjast. „Við rekum í raun hátæknisjúkrahús bílaviðgerða. Neyðarþjónusta er starfrækt allan sólarhringinn árið um kring og einnig rekum við litla bílaleigu sem getur gripið inn í ef bílar eru stopp hjá viðskiptavinum,“ upplýsir Bjarni sem þekkir vel til í bílabransanum, því áður var hann framkvæmdastjóri þjónustusviðs Bifreiða & landbúnaðarvéla. Hann segir bílaflota landsins hafa elst hratt frá árinu 2008 og slíkt kalli á nýjar áherslur og lausnir. „Í dag kemur til okkar í þjónustu mun hærra hlutfall bíla sem ekki eru lengur í ábyrgð. Þannig höfum við sótt fram í varahlutum sem koma ekki beint frá bílaframleiðendum og náð að lækka varahlutaverð umtalsvert, þótt ávallt sé hugað vel að gæðum. Til að tryggja góða þjónustu koma varahlutir til okkar frá birgjum um allan heim á lágmarkstíma, enda okkar markmið að gera gott enn betra og fylgja þannig eftir metnaði okkar, öllum til góða.“ Bjarni Benediktsson er nýr aðstoðarframkvæmdastjóri þjónustusviðs Ingvars Helgasonar og B&L, þar sem rekið er eitt fullkomnusta fólksbílaverkstæði landsins. MYND/GVA Þótt Jóhann Berg Þorgeirsson, söluráðgjafi hjá fyrirtækjaþjónustu Ingvars Helgasonar og B&L, hafi bæst í hóp afbragðs starfsmanna fyrirtækis- ins um nýliðin áramót, er hann þó langt í frá nýr í faginu. „Ég hef 35 ára reynslu í sölu á nýjum bílum og tækjum, og starfaði lengst af hjá Ingvari Helgasyni og Bifreiðum og landbúnaðarvélum,“ útskýrir Jó- hann sem miðlar atvinnurekendum sem leita til IH og B&L af sannri reynslu þegar kemur að nýjum farkosti. „Á árunum fyrir hrun bílamarkaðsins var B&L með afar öfluga atvinnubíladeild og hefur bíla- framleiðandinn Renault verið árum saman með söluhæstu sendibíla landsins. Mitt aðalstarf er að þjónusta jafnt stór sem smá fyrirtæki við endurnýj- un bíla og skipulagningu flotans. Það mikla fram- boð bíla sem umboðið hefur að bjóða gerir okkur að einum besta valkosti sem fyrirtækjum stendur til boða í dag,“ útskýrir Jóhann. Eftir sameiningu fyrirtækjanna árið 2009 voru kraftar sameinaðir í fyrirtækja- og flotasölu. „Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og í fyrra varð fyrirtækið næststærst á flotamarkaði, með tæplega 500 bíla selda. Við ætlum að efla at- vinnu- og fyrirtækjaþjónustu okkar í takt við vænt- anlegan vöxt á markaði með því að efla þjónustu við smærri sem stærri fyrirtæki,“ segir Jóhann sem sinnir af alúð þjónustu við fyrirtæki og þeirra óskir. „Á næstunni kynnum við til sögunnar nýja rekstrarleigu, og bjóðum fyrirtækjum nú þegar þjónustuna Léttskoðun sem er endurgjaldslaust, reglubundið eftirlit sem léttir undir með rekstri fyrirtækjabíla.“ Atvinnubíla- og fyrirtækjaþjónusta Jóhann Berg Þorsteinsson býr yfir 35 ára reynslu í sölu nýrra bíla og tækja hjá Ingvari Helgasyni og Bifreiðum & landbún- aðarvélum. MYND/GVA Það eru alltaf stórtíðindi þegar BMW kynnir til sögunnar nýjan Þrist, enda hefur BMW 3 verið í vörulínu bíla- framleiðandans frá því snemma á áttunda áratugnum og jafnan mikill spenningur fyrir nýrri kynslóð hans á markaði,“ upp- lýsir Karl S. Óskarsson, sölustjóri BMW og Land Rover hjá Ingvari Helgasyni og B&L. Þar á bæ verður blásið til stórsýning- ar á nýja Þristinum í marsmánuði, sem og annarri kynslóð af 1-línunni sem fyrst var kynnt til sögunnar 2004 . „Í Ás og Þristi leggjum við áherslu á dís- ilvélar því þótt olía sé nú dýrara eldsneyti en bensín hafa breytingar á vörugjöldum gert dísilvélar að mun fýsilegri kosti. Þá hefur BMW náð ótrúlegum árangri í dís- ilvélum og eyðslutölur orðnar hlægilega lágar, með allt niður í 4,4 lítra í blönduð- um akstri.“ Karl segist finna greinileg batamerki á sölumarkaði nýrra bifreiða. Hann segir BMW-jepplingana X3 og X5, sem kynnt- ir voru landsmönnum í fyrra, hafa fengið afbragðs viðtökur og nú bindi hann vonir við að fólksbílamarkaður hressist með hækkandi sól, enda sterk undiralda í sölu á vönduðum, nýjum fólksbílum frá mánuði til mánaðar. „Eftir svimandi verðhækkanir á nýjum bílum í kjölfar bankahrunsins 2008 höfum við mætt miklum skilningi bílaframleið- anda okkar ytra og þeir komið til móts við okkur með mun hagstæðara verð sem við skilum að sjálfsögðu beint til kaupenda,“ upplýsir Karl. Um aðra helgi, laugardaginn 14. janú- ar, stendur Ingvar Helgason og B&L fyrir stórsýningu á Land Rover Discovery , Land Rover Defender og Range Rover Evo- que, sem snobbkryddið Victoria Beckham hannaði innréttinguna í. „Evoque er gríðarfallegur bíll og al- gjörlega ferskur og framandi í útliti. Hann er hlaðinn íburði og lúxus, með mjúku hanskaleðri í sætum og mælaborði, og LED-lýsingu þar sem velja má bláa, rauða, bleika eða fjólubláa innilýsingu. Evoque er einn örfárra á borði hugmyndabíla heims- ins sem orðið hafa að veruleika og er nú kominn á markað,“ segir Karl um lúxusj- eppann Evoque sem vafalaust mun höfða til margra fagurkera. Hann segir að sýndar verði nýju S, SE og HSE-gerðirnar af Land Rover Discovery. „Við höfum við einnig náð afar góðum samningum á jeppum sem njóta æ meiri athygli þeirra sem horfa til þess að kaupa sér dýrari og vandaðri jeppa. Discovery- línan er gríðarlega vel búin og má nefna að S-gerðin, sú ódýrasta, er 210 hestöfl og 6 strokka, með 8 gíra sjálfskiptingu, háu og lágu drifi, loftpúðafjöðrun og á kosta- verði miðað við öflugan búnað,“ upplýsir Karl sem einnig sýnir nýjustu útgáfu Land Rover Defender sem fyrst kom á mark- að fyrir 64 árum og hefur lítið breyst í tím- ans rás. „Nú hefur Land Rover tilkynnt að Defender fái nýtt útlit innan tveggja ára, og verður mikil eftirsjá að þessum vinsæla farkosti björgunarsveita og bílaleiga lands- ins. Þetta er enda einstakur jeppi, byggð- ur á gömlum gildum og afar traustur far- kostur, sem skýrir látlausar vinsældir hans meðal íslenskra jeppaeigenda.“ Spennandi, vandaðir fararskjótar Það eru spennandi tímar fram undan hjá aðdáendum BMW, Land Rover og Range Rover á Íslandi. Ekki skemmir fyrir að framleiðendur þessa heimsþekktu bifreiða hafa mætt landsmönnum á miðri leið þegar kemur að buddunni. Á næstunni verða stórsýningar hjá Ingvari Helgasyni og B&L. Hér hallar Karl S. Óskarsson, sölustjóri BMW og Land Rover, sér að Land Rover Defender, en við hlið hans stendur Range Rover Evoque, sem var hannaður að hluta til af snobbkryddinu Victoriu Beckham. MYND/GVA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.