Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 41
MIÐVIKUDAGUR 11. janúar 2012 21 Nýir sjónvarpsþættir byggðir á kvikmyndunum Star Wars hafa fengið vinnuheitið Star Wars: Underworld. Ekki hefur verið ákveðið hvenær þættirnir verða framleiddir en handritið er engu að síður tilbúið. Star Wars: Underworld gerist á tímabilinu á milli Episode III og Episode IV, á þeim tuttugu árum þegar Luke er að vaxa úr grasi. Að sögn framleiðand- ans Rick McCallum fjalla þætt- irnir þó ekki um Luke sjálfan heldur tímabilið þegar heims- veldið er að reyna að taka við stjórnartaumunum. Stjörnustríð í undirheimum STAR WARS Nýju sjónvarpsþættirnir gerast í undirheimunum. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 11. janúar ➜ Fræðsla 20.00 Íslenska vita- félagið, félag um íslenska strandmenn- ingu, heldur fræðslu- kvöld undir yfirskrift- inni Spegill fortíðar - silfur framtíðar. Steinar J. Lúð- víksson rithöf- undur mun þar fjalla um síldina og Dr. Sigrún Klara Hann- esdóttir segir frá áhrifum síldarvinnslu. Fræðslukvöldið verður haldið í Víkinni, sjóminja- safni í Granda- garði Reykjavík. ➜ Dans 14.00 Félag eldri borgara stendur fyrir síðdegisdansi í félagsheimili sínu, Stangarhyl 4. Álfasöngur og vikivakar. Aðgangseyrir er kr. 600. ➜ Tónlist 20.00 Fyrsta Extreme Chill kvöld ársins verður haldið á Kaffibarnum í kvöld. Fram koma Sigtryggur Berg Sig- marsson, Prince Valium, Ahma og Dj AnDre & Beatmakin Troopa. Aðgangur er ókeypis. 20.45 Hljómsveitin White Signal heldur tónleika á Kaffi Rósenberg. Aðgangseyrir er kr. 1.000. ➜ Fyrirlestrar 12.15 Hádegisfyrirlestur í erindaröð- inni Góssið hans Árna um valin hand- rit úr safni Árna Magnússonar verður haldinn í Þjóðmenningarhúsinu. Már Jónsson flytur, en erindið að þessu sinni er Jónsbókarhandrit frá 14. öld sem Árni eignaðist ungur. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is. GP! er listamannsnafn Guðmund- ar Péturssonar gítarleikara sem hefur verið einn af flinkustu og afkastamestu gítarleikurum Íslands síðustu áratugi. Elabórat er hans þriðja sólóplata og fylgir eftir plötunni Ologies sem kom út árið 2008 og hlaut góðar viðtökur. Á Elabórat eru átta lög, samin af Guðmundi sem einnig sá um upptökustjórn og útsetningar. Með honum spila þeir Styrmir Hauksson, Davíð Þór Jónsson, Hrafnkell Orri Egilsson, Eyþór Gunnarsson og Kristinn Snær Agnarsson. Guðmundur er afar fjölhæfur gítaristi og hefur víða komið við í tónlistarheiminum. Það heyr- ist á Elabórat. Tónlistin fer víða, jafnvel innan sama lagsins. Þetta er instrúmental tónlist. Á köfl- um minnir hún á gamlan djass- rokkbræðing, en annars staðar er allt önnur stemning í gangi. Það kemur ekki á óvart að blús- inn laumi sér inn hér og þar og ekki heldur að áhrifa gæti frá heimstónlist, en í sumum lag- anna er einhver óskilgreind til- raunamennska sem ég, a.m.k. átti ekki von á. Í einu laganna komu til dæmis samstarfsplötur þeirra Roberts Fripp og Brians Eno upp í hugann og í öðrum lögum minnir tónlistin á Tortoise- og Chicago- senuna sem blómstraði upp úr síð- ustu aldamótum. Á heildina litið er Elabórat fjandi góð plata. Hún er fjölbreytt og blæbrigðarík og full af spenn- andi útúrdúrum sem maður ánetj- ast við frekari hlustun. Framsæk- ið og flott verk. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Guðmundur Pétursson gítarleikari fer um víðan völl á frábærri sólóplötu. Framsækin og blæbrigðarík Bandaríska rokkhljómsveitin At the Drive-In ætlar að snúa aftur eftir ellefu ára fjarveru. Hljóm- sveitin hefur verið bókuð á tón- listarhátíðina Coachella sem verður haldin í Kaliforníu í apríl. Þar koma einnig fram Radiohead, Pulp, Bon Iver og Snoop Dogg. At the Drive-In hætti störfum 2001 þegar forsprakkinn Cedric Bixler-Zavala sagði hljómsveit- ina halda aftur af sköpunargáfu sinni. Stuttu síðar stofnaði hann The Mars Volta ásamt Omar Rodriguez-Lopez úr At the Drive- In á meðan hinir meðlimirnir stofnuðu Sparta. Ellefu ára hlé á enda Tónlist ★★★★ Elabórat GP! Velkomin í okkar hóp! Barnagæsla - Leikland JSB E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n R lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Stundatafla Dansræktar JSB Opna kerfið og námskeið mán þri mið fim fös lau 06:10 SS lok SS lok SS lok SS lok SS lok 06:15 TT lok a RY lok TT lok RY lok TT lok 06:30 Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið 06:40 SS lok SS lok SS lok SS lok SS lok 07:05 SS lok SS lok SS lok SS lok SS lok 07:20 TT lok C TT lok C TT lok C 07:30 Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið 08:30 Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið 09:15 Opna Kerfið 09:30 60+ lok 60+ lok 60+ lok 60+ lok 60+ lok 10:15 TT lok D TT lok D TT lok D 10:30 Stott lok Mótun lok Stott lok Mótun lok Opna Kerfið 10:30 RY lok RY lok 10:30 Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið 12:00 Yoga opið RY lok Yoga opið RY lok 12:10 Extra lok Extra lok Extra lok Extra lok 12:15 Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið 14:20 TT lok G TT lok G TT lok G 14:30 Opna Kerfið Opna Kerfið 16:30 RY lok RY lok 16:30 Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið 16:30 SS lok SS lok SS lok SS lok SS lok 16:40 TT lok H TT lok H TT lok H 16:40 Mótun lok Stott lok Mótun lok Stott lok 17:00 SS lok SS lok SS lok SS lok SS lok 17:30 Opna Kerfið Opna Kerfið Opna Kerfið HotY lok 17:40 TT lok I TT lok I TT lok I 17:45 Opna Kerfið 18:25 TT3 lok TT lok J TT lok J 18:30 HotY lok 18:40 TT lok J 19:25 TT3 lok Áskiljum okkur rétt til að breyta stundaskrá Opið hús hjá JSB 9. - 20. janúar Staðurinn - Ræktin S&S stutt og strangt TOH YOGAmiðjuþjálfun og lóð Tilboð á kortum í Opna kerfinu Frír prufutími - taktu vinkonu með Við bjóðum yfir 100 tíma á viku fjölbreyttir tímar - eitthvað við allra hæfi Vertu með í vetur www.jsb.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.