Fréttablaðið - 24.02.2012, Page 6
24. febrúar 2012 FÖSTUDAGUR6
KJÖRKASSINN
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Glæný Bláskel
frá Stykkishólmi
OPIÐ LAUGARDAGA 10-15.00
HUMAR
2.000 kr.kg
FERSKUR TÚNFISKUR
690 kr. pr. 100 gr.
3.990 kr.kg
HUMAR Stærð 18-24
VERSLUN Í vikunni var hafist handa
við uppsetningu innréttinga í stór-
hýsi byggingavöruverslunarinnar
Bauhaus við Vesturlandsveg. Miðað
við gang framkvæmda má ætla að
verslunin, sem er um 21 þúsund
fermetri að stærð, verði opnuð áður
en vorverk hefjast fyrir alvöru.
Ekki hefur þó enn verið gefin upp
dagsetning opnunarinnar.
Þegar ljósmyndari Fréttablaðs-
ins sótti húsið heim í gær sagði
hann upplifunina helst minna á
atriðið þar sem Stuðmenn sækja
heim lítið félagsheimili úti á landi
í bíómyndinni Með allt á hreinu.
Húsið væri miklu stærra að innan
en utan.
„Það segja þetta margir,“ segir
Halldór Óskar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Bauhaus á Íslandi.
„Kassar eru oft þannig. Þegar
maður er kominn inn þá sér maður
hvað þetta er mikill geimur.“
Í svo stórt hús þarf líka töluvert
magn af vörum. Halldór segir
magnið raunar slíkt að samn-
ingurinn um flutning þess sé
stærsti einstaki slíkur samning-
ur sem Eimskip hefur hefur gert.
„Í heildina erum við að tala um
500 fjörutíu feta gáma sem eru að
koma hér með vörur í verslunina,“
segir Halldór, en vörurnar koma
mestan part frá aðallager fyrir-
tækisins í Danmörku.
Annars segir Halldór góðan
gang í undirbúningi opnunar. Búið
er að skrifa undir ráðningarsamn-
inga við rétt rúmlega 50 manns.
„En í heildina ráðum við svona 80
til 90 manns. Svo styttist bara í
opnun með rísandi sól.“ - óká
Hafin er uppsetning innréttinga í nýrri verslun Bauhaus við Vesturlandsveg:
Flytja inn 500 gáma af vörum
SETJA UPP HILLUR Byggingarvöruverslun
Bauhaus verður sú stærsta á landinu, 21
þúsund fermetrar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SÝRLAND, AP Franska fréttakonan Edith Bou-
vier, sem særðist í sprengjuárás í borginni
Homs á miðvikudag, óskar eftir því að frönsk
stjórnvöld aðstoði sig við að komast úr landi.
Hún er tvífótbrotin, hefur fengið einhverja
læknismeðferð en þarf á aðgerð að halda sem
vart er í boði í Sýrlandi.
Fulltrúar frá Bandaríkjunum, fleiri Vestur-
löndum og frá arabalöndum voru í gær í Lond-
on að undirbúa kröfur um að Bashar al-Assad
Sýrlandsforseti fallist á vopnahlé svo hægt
verði að koma fólki til hjálpar á þeim stöðum
sem verst hafa orðið úti.
Um þrjátíu manns létu lífið í árásum
stjórnar hersins á Homs á miðvikudag, þar á
meðal tveir vestrænir blaðamenn. Linnulaus-
ar árásir á íbúa borgarinnar hafa staðið yfir í
um þrjár vikur. Hundruð manna hafa látið lífið
og hefur árásunum verið líkt við suma verstu
stríðsglæpi sögunnar. Aðgerðir hersins gegn
mótmælendum og uppreisnarmönnum hafa
kostað þúsundir manna lífið undanfarið ár.
Sameinuðu þjóðirnar hafa tekið saman lista
yfir háttsetta sýrlenska ráðamenn sem gætu
átt yfir höfði sér málaferli vegna glæpa gegn
mannkyni. Evrópusambandið hefur þegar
samþykkt refsiaðgerðir gegn 70 sýrlenskum
ráðamönnum og í undirbúningi er að setja
fleiri á þann lista. - gb
Helstu ráðamenn í Sýrlandi á lista Sameinuðu þjóðanna yfir líklega sakamenn:
Krafa um að Sýrlandsforseti fallist á vopnahlé
ELDAR LOGA Í HOMS Linnulausar árásir á íbúa borgar-
innar hafa staðið vikum saman. NORDICPHOTOS/AFP
FRÉTTASKÝRING
Eiga fleiri dómsmál á hendur fyrr-
verandi stjórnendum Kaupþings eftir
að líta dagsins ljós?
Þrátt fyrir að sérstakur saksókn-
ari hafi gefið út ákæru í máli sem
kennt er við katarska sjeikinn Al
Thani þýðir það ekki að fyrrver-
andi stjórnendur í Kaupþingi séu
komnir fyrir vind í öðrum málum
sem hafa verið til rannsóknar hjá
embættinu.
Rannsókn allnokkurra mála
sem tengjast Kaupþingi er enn í
fullum gangi hjá embættinu, að
sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sér-
staks saksóknara, og gæti leitt til
útgáfu ákæra.
Ákæran í Al Thani-málinu er
sú fyrsta sem tengist Kaupþingi.
Þar eru Hreiðar Már Sigurðsson,
fyrrverandi forstjóri Kaupþings,
Sigurður Einarsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður, Magnús
Guðmundsson, sem var forstjóri
bankans í Lúxemborg, og Ólafur
Ólafsson, stærsti eigandi bank-
ans, ákærðir fyrir umboðssvik og
markaðsmisnotkun vegna 26 millj-
arða króna lánveitinga í september
2008.
Keyptu þriðjung allra eigin bréfa
En það er bara eitt mál af mörgum.
Af hinum ber fyrst að nefna grun
um umfangsmikil kaup deildar
eigin viðskipta Kaupþings í bank-
anum sjálfum, sem
saksóknari rannsakar sem mark-
aðsmisnotkun. Yfirstjórnendur
bankans eru taldir hafa skipu-
lagt kaupin til að halda uppi gengi
bréfa í bankanum. Árin 2005 til
2008 keypti bankinn sjálfur 29
prósent af öllu útgefnu hlutafé í
sjálfum sér.
Taldir hafa bjargað eigin skinni
Saksóknari hefur einnig lagt tals-
verða áherslu á rannsókn máls
sem kennt hefur verið við eignar-
haldsfélagið Lindsor Holdings Cor-
poration á Tortóla. Það félag fékk
27,4 milljarða króna lán frá Kaup-
þingi 6. október 2008, daginn sem
neyðarlögin voru sett, sem var
notað til að kaupa skuldabréf sem
voru að hrapa í verði af Kaupþingi
í Lúxemborg, starfsmönnum bank-
ans og félagi í eigu Skúla Þorvalds-
sonar, eins stærsta skuldara Kaup-
þingssamstæðunnar.
Inn í það mál fléttast þrettán
milljarða króna millifærsla inn á
reikning félagsins Marple Hold-
ings S.A., sem var í eigu Skúla.
Skjöl vegna þessara viðskipta eru
talin hafa verið fölsuð eftir banka-
hrun.
Lánuðu vildarkúnnum tugmilljarða
Kaupþing lánaði jafnframt
félögum í eigu áðurnefnds Skúla,
Egils Ágústssonar, sem kenndur er
við félagið Íslensk-
ameríska, og
breska kaup-
sýslumannsins Kevins Stanford,
háar fjárhæðir til að kaupa bréf í
bankanum. Þetta er talið varða við
lagaákvæði um bæði umboðssvik
og markaðsmisnotkun.
Að síðustu eru til rannsóknar
risavaxin lán, samtals að and-
virði tæplega 82 milljarðar króna,
til félaga að mestu í eigu þess-
ara sömu þriggja manna, Skúla,
Egils og Stanfords, til að kaupa
skuldatryggingar á Kaupþing til
að lækka skuldatryggingarálagið
og mæta veðköllum frá Deutsche
Bank.
Þessu til viðbótar lágu enn fleiri
mál í stærri kantinum tengd Kaup-
þingi til grundvallar húsleitum hjá
Kaupþingi í Lúxemborg fyrir tæpu
ári. Upplýsingar um þau hafa ekki
enn orðið opinberar.
stigur@frettabladid.is
Fleiri mál vofa yfir
Kaupþingsmönnum
Ákæra í Al Thani-málinu þýðir ekki að fyrrverandi stjórnendur Kaupþings verði
ekki sóttir til saka fyrir aðrar viðskiptafléttur. Ýmis önnur mál til rannsóknar.
FERÐAIÐNAÐUR WOW air hefur
gengið frá ráðningum á flugfreyj-
um og flugþjónum, en umsóknar-
frestur vegna starfa flugstjóra og
flugmanna rennur út um næstu
mánaðamót.
Fyrirtækið undirbýr nú áætl-
unarflug sumarsins og hefur til
afnota tvær Airbus A320 far-
þegaþotur. Önnur er merkt WOW
Force One með fjólubláum stöfum.
„Við erum nýtt og ferskt fyrirtæki
og leggjum áherslu á að farþegum
okkar finnist gaman að fljúga með
okkur. Sem leið að því markmiði
verða merkingar á vélum okkar
skemmtilegar og athyglisverðar,“
er haft eftir Guðmundi Arnari
Guðmundssyni, markaðsstjóra
félagsins, í tilkynningu þess. - óká
WOW Force One í loftið:
Flugmennirnir
ráðnir næst
NÝJAR MERKINGAR WOW air leggur
áherslu á óhefðbundnar og skemmti-
legar merkingar véla sinna. MYND/WOW AIR
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, segir allnokkur mál
sem tengjast Kaupþingi – og
reyndar föllnu bönkunum öllum
– enn vera til rannsóknar hjá
embættinu. „Þau eru á misjöfnu
stigi enda komu þau ekki öll til
okkar í einu lagi. Í sumum þeirra
er farið að síga á seinni hluta
rannsóknarinnar,“ segir hann.
Spurður hvort ekki sé venja
við rannsókn sakamála að ákæra
sakborninga í einu lagi fyrir öll
þau brot sem þeim eru gefin
að sök, segir Ólafur að það gæti
reynst erfitt í þessum málum og
hugsanlega íþyngjandi fyrir suma
sakborninga.
Það séu ekki alltaf nákvæmlega
sömu mennirnir sem eiga aðild að
öllum málunum og hugsanlegt sé
að einhver verði ákærður fyrir lít-
inn þátt í einu máli en eigi engan
þátt í öðrum. Óheppilegt væri fyrir
þann mann að þurfa að bíða þess
að rannsókn á heilum banka lyki
áður en hann yrði ákærður í full-
rannsökuðu máli.
Ólafur segir lögin eiga að girða
fyrir það að menn geti orðið fyrir
réttarspjöllum af þessum völdum.
„Ákvæði laga um hegningarauka
eiga að gera aðstöðu þeirra sem
fá þetta á sig í tvennu eða þrennu
lagi nákvæmlega þá sömu og ef
viðkomandi hefði verið dæmdur í
einu lagi,“ segir Ólafur.
„En það verður örugglega tekist
á um þetta atriði fyrir dómi með
einum eða öðrum hætti.“
Ekki verra að slíta
málin í sundur
MEIRA VÆNTANLEGT Þeir Hreiðar Már Sigurðsson, Magnús Guðmundsson og Sigurður Einarsson eru enn undir smásjá Ólafs Þórs
Haukssonar vegna ýmissa mála. FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND
Finnst þér fyrirhuguð hækkun
bílastæðagjalds í Reykjavík rétt-
lætanleg?
Já 24%
Nei 76%
SPURNING DAGSINS:
Munt þú frekar kaupa D-víta-
mínbætta mjólk en hefðbundna?
Segðu skoðun þína á Visir.is.