Fréttablaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 4
18. maí 2012 FÖSTUDAGUR4 VINNUMARKAÐUR Atvinnuleysi á Íslandi mældist 6,5% í apríl og hefur ekki verið lægra frá því í desember árið 2008. Hlutfall atvinnulausra lækkaði um 0,6 pró- sentustig í mánuðinum eða um 620 einstaklinga. Að meðaltali voru 10.837 einstaklingar atvinnulaus- ir í apríl. „Þetta eru auðvitað gleðitíðindi í þeim skilningi að þetta staðfest- ir að atvinnulíf- ið er aðeins að rétta úr kútnum og eftirspurn eftir fólki að aukast,“ segir Gissur Péturs- son, forstjóri Vinnumála- stofnunar, um nýju atvinnu- leysistölurnar. Hann leggur þó áherslu á að enn sé nokkuð í land við að ná ásætt- anlegu ástandi á vinnumarkaði. Sá hópur sem helst þurfi að aðstoða nú séu langtímaatvinnulausir. „Hlutfall langtímaatvinnu- lausra af öllum án atvinnu hefur verið að aukast og okkar aðgerð- ir síðustu misseri hafa haft þann hóp sem markhóp. Það er hins vegar umhugsunarefni að hann hefur ekki brugðist jafn hratt við og við vonuðumst eftir nú þegar fyrirtæki eru farin að bjóða fleiri störf,“ segir Gissur og bætir við: „Það er því mikilvægt að koma þeim skilaboðum á framfæri að það er engin endurhæfing eftir tímabil án vinnu jafn árangurs- rík og það að vera í vinnu. Og þó mönnum bjóðist kannski ekki draumastarfið er mikilvægt að taka það sem er í boði og halda áfram leitinni úr stöðu vinnandi manns.“ Eins og áður sagði hefur atvinnuleysi ekki mælst lægra en í apríl frá því í desember árið 2008. Þá var hlutfall atvinnulausra á hraðri uppleið eftir fall íslensku bankanna en haustið og vetur- inn 2008 til 2009 fór atvinnuleysi úr 1,3% í lok september í 9,1% í febrúar. Réttu ári seinna, í febrú- ar og mars 2010, náði atvinnuleysi síðan hámarki og varð 9,3% sem jafngilti því að á sautjánda þús- und væru án atvinnu. Síðan hefur atvinnuleysi farið lækkandi hægt og rólega þótt árstíðabundnar sveiflur hafi mótað þróunina. Atvinnuleysi lækkar iðulega nokkuð á vormánuðum og snemm- sumars vegna árstíðabundinna þátta. Þannig fór atvinnuleysi úr 8,6% í mars 2011 í 6,6% í júlí fjórum mánuðum seinna. Því er almennt búist við að atvinnuleysi haldi áfram að lækka á næstu mánuðum en að sú þróun kunni að snúast við þegar tekur að hausta. magnusl@frettabladid.is GENGIÐ 16.05.2012 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 224,0711 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 127,48 128,08 203,00 203,98 162,05 162,95 21,798 21,926 21,246 21,372 17,776 17,880 1,5847 1,5939 194,31 195,47 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR NÝ KILJA! Atvinnuleysi hefur ekki verið minna frá árinu 2008 Atvinnulausir voru 6,5% á vinnumarkaði í apríl. Hlutfallið hefur ekki mælst jafn lágt síðan í desember 2008. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir tíðindin gleðileg en hefur áhyggjur af langtímaatvinnulausum. GISSUR PÉTURSSON Þó mönnum bjóðist kannski ekki draum- starfið er mikilvægt að taka það sem er í boði og halda áfram leitinni úr stöðu vinn- andi manns. GISSUR PÉTURSSON FORSTJÓRI VINNUMÁLASTOFNUNAR VINNUMÁLASTOFNUN Atvinnuleysi mælist yfirleitt lægst á ári hverju á sumrin vegna árstíðabundinna þátta. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 10 8 6 4 2 % 2008 2009 2010 2011 Atvinnuleysi á Íslandi maí 2008 til apríl 2012 VIÐSKIPTI Félag kvenna í atvinnu- rekstri (FKA) skipti um nafn á aðalfundi í vikunni og heitir nú Félag kvenna í atvinnulífinu. Á sama fundi var ákveðið að félagið LeiðtogaAuður yrði framvegis starfrækt sem fagdeild innan FKA. „Fyrstu árin var félagið ein- göngu hugsað fyrir konur sem áttu fyrirtæki. Þessu var breytt árið 2008 og þá var opnað fyrir inn- göngu þeirra kvenna sem gegna leiðtoga- og stjórnunarstöðum í atvinnurekstri,“ segir Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri FKA, um nýja nafnið, sem þykir lýsa ti lgangi þess og starf- semi betur í dag. „Hér er því í raun um rökrétt fram- hald að ræða því með þessu náum við að sameina konur í rekstri hvort heldur sem þær eiga fyrirtækin eða reka þau fyrir aðra“ LeiðtogaAuður varð til í tengslum við verkefnið Auður í krafti kvenna sem stóð yfir á árunum 2000 til 2003. Félagskon- ur eru nú um 120 og langflest- ar þeirra í stjórnendastöðum hjá stórum og meðalstórum fyrirtækj- um. FKA var stofnað árið 1999 og hefur markmið félagsins frá upp- hafi verið að gæta hagsmuna, efla samstöðu og samstarf kvenna í atvinnurekstri. Um 700 konur eru skráðar í félagið. Í stjórn FKA eru Hafdís Jóns- dóttir, formaður, Bryndís Emils- dóttir Ingibjörg Gréta Gísladóttir Ingibjörg Guðmundsdóttir, Marín Magnúsdóttir, Rúna Magnúsdóttir og Svava Johansen. - sh Félag kvenna í atvinnurekstri skiptir um nafn og innlimar Leiðtogaauð: Atvinnurekstri skipt út fyrir atvinnulíf HULDA BJARNADÓTTIR NOREGUR 72 ára gömul kona frá Norður-Noregi hefur verið ákærð fyrir að beita eiginmann sinn ofbeldi í meira en 40 ár. Eigin- maðurinn er látinn. Saksóknari segir konuna hafa beitt manninn líkamlegu og and- legu ofbeldi, neytt hann til að búa í kjallara húss þeirra og neitað honum um aðgang að eldhúsi og klósetti. Hún hafi tekið af honum lyf, skorið hann og barið. Konan neitar öllu, en börn hjónanna hafa tekið afstöðu með látnum föður sínum. - þeb 72 ára kona í Noregi: Beitti karlinn ofbeldi í 40 ár NEYTENDUR Blá, hjartalaga lykla- kippa sem samtökin Blátt áfram seldi dagana 4. til 6. maí síðast- liðinn getur reynst hættuleg börnum. Kippan var seld í fjár- öflunarskyni fyrir samtökin, sem berjast gegn kynferðisofbeldi gegn börnum. Neytendastofu hafa borist ábendingar frá neytendum þar sem bent er á að kippan, sem er úr mjúku plasti, detti auðveldlega í sundur og geti því reynst hættu- leg fyrir lítil börn. Í tilkynningu frá Neytendastofu er fólki bent á að þegar kippan fer í sundur falla út fjórir smáir hlutir; tvær raf- hlöður, ljósapera og vír. - sv Lyklakippa Blátt áfram: Neytendastofa varar við kippu LYKLAKIPPAN Neytendastofu hafa borist ábendingar um lyklakippu frá Blátt áfram sem dettur auðveldlega í sundur. MYND/NEYTENDASTOFA VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 23° 18° 19° 14° 18° 15° 14° 14° 24° 15° 26° 21° 30° 16° 16° 20° 15°Á MORGUN 8-20 m/s Hægast austan til. SUNNUDAGUR Stíf norðanlæátt allra austast annars hægari. 7 4 4 5 3 2 3 3 4 6 1 5 4 3 2 2 3 2 5 5 6 2 10 4 4 5 4 12 8 7 5 8 HLÝNAR Hitinn sígur hægt og bítandi upp á við næstu dagana og helgarspáin er ágæt. Horfur eru á fremur hægum vindi nema allra syðst. Það verður úrkomulítið norðan til á landinu en vænta má lítilshátt- ar úrkomu á S- og SA-landi. Hlýjast í innsveitum sunnan og vestan til. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður UMHVERFISMÁL Í byrjun júní verð- ur komin blá sorptunna fyrir pappír við öll heimili í Kópavogi. „Markmiðið er að hvetja til end- urvinnslu og draga úr úrgangi sem fer til urðunar,“ segir í frétt á vef Kópavogsbæjar sem með þessu er sagður verða fyrsta sveitarfélagið á höfuðborgar- svæðinu til að dreifa slíkum tunnum til allra íbúa. - gar Endurvinnsla í Kópavogi: Pappírstunna við öll heimili
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.