Fréttablaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 22
INNIHALD Í UM ÞAÐ BIL 25
PYLSUBITA
5 litlar smjördeigsplötur
5 SS pylsur
tómatsósa
1 egg
krydd eftir smekk
rifinn ostur ef vill
Fletjið út smjördeigsplötu
þannig að hún verði rúmlega
lengd pylsunnar og um það bil
17 sentímetrar á breidd. Setjið
tómatsósu á neðri enda deig-
plötunnar. Setjið eina pylsu þar
ofan á (samsíða sósunni) og
rúllið deiginu utan um hana.
Setjið pylsuna á bökunarplötu
og látið samskeytin liggja á
bökunarplötunni. Lokið end-
unum með því að þrýsta niður
gaffli. Hafið síðan gott bil á
milli pylsanna. Hrærið eggið
og penslið pylsurnar með því.
Kryddið og setjið rifinn ost yfir
eftir smekk. Stingið þrisvar til
fjórum sinnum lauslega með
gaffli ofan í hverja pylsu til að
hleypa lofti út.
Bakið við 220 gráður í fimm-
tán til tuttugu mínútur eða
þar til deigið er orðið gullið.
Hver pylsa er skorin í þrjá til
fjóra bita. Berið pylsurnar fram
volgar eða kaldar.
ROKKPYLSUR
Í SMJÖRDEIGI
■ Hressandi millibiti
fyrir verðandi rokkarara
Fornbílaklúbbur Íslands fagnar 35 ára afmæli sínu á Korputorgi um helgina með því að halda sýn-
ingu á glæsilegustu fornbílum lands-
ins. Sýningin er haldin innandyra í
húsnæði bílasölunnar Bílakaup. Jón
Hermann Sigurjónsson, ritari Forn-
bílaklúbbsins, segir að reynt verði að
höfða til allra aldurshópa, svo fjöl-
skyldan geti komið saman og kynnst
sögu bílaeignar á landinu.
„Það verða um 80 bílar; allt frá
bílum sem verið er að gera upp og eru
því ekki tilbúnir, flottir fjölskyldubílar
og svo fínustu drossíur með krómi.
Ég held það sé gaman fyrir fólk að
sjá muninn á óuppgerðum bíl og full-
gerðum bíl,“ segir Jón. Sérstakt svæði
á sýningunni er tileinkað herbílum
og stríðsminjum sem nokkrir aðilar
innan klúbbsins hafa sérhæft sig í, þar
mun myndum frá stríðsárunum einnig
verða varpað á tjald. Jón segir klúbb-
inn mjög virkan félagsskap fólks.
„Við hittumst reglulega á miðviku-
dögum í félagshúsnæðinu á veturna
og þá er spjallað saman, skoðaðar
myndir, skipst á ráðum og ýmislegt
fleira.“ Fornbílaeigendur eru allajafna
stoltir af bílum sínum og nýta hvert
tækifæri til að sýna þá enda flestir
búnir að leggja mikla vinnu í að gera
þá upp.
„Á sumrin förum við því reglulega
á rúntinn um stofnbrautir bæjarins,
stoppum kannski og fáum okkur ís og
njótum þess að vera til, sýna okkur
og sjá aðra.“ Fornbílaklúbburinn
reynir einnig að vera sýnilegur á ýms-
um tyllidögum og tekur meðal annars
rúntinn á 17. júní. „Svo mætum við
með bílana einn dag í Húsdýragarð-
inn og á Árbæjarsafnsdaginn ásamt
fleiri skemmtilegum uppákomum.
Hápunktur sumarsins er svo lands-
mótið sem haldið er á Selfossi í júní,
þar sem verða rúmlega hundrað bílar
yfir heila helgi.“ ■ vg
GLÆSILEGIR BÍLAR Á AF-
MÆLI FORNBÍLAKLÚBBSINS
FLOTTIR FORNBÍLAR Fornbílaklúbbur Íslands fagnar 35 ára afmæli sínu um helgina með því að opna
glæsilegra fornbílasýningu á Korputorgi. Fornbílaeigendur hafa lagt mikla vinnu í bíla sína.
HEIÐBLÁR OG
FLOTTUR
Jón Hermann Sigurjóns-
son við bláan Plymouth,
árgerð 1947 í eigu Kjart-
ans Friðgeirssonar, með-
lims Fornbílaklúbbsins.
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU
FÓLK|HELGIN
AFMÆLISSÝN-
ING FORNBÍLA-
KLÚBBSINS
Í DAG
Opnuð kl.17 í dag
og er opin til klukk-
an 22.
LAUGARDAGUR
Opið frá kl. 10-22.
SUNNUDAGUR
Opið frá kl. 12-18.
MIÐAVERÐ
800 krónur og frítt
fyrir 12 ára og
yngri.
Skipholti 29b • S. 551 0770
15% AFSLÁTTUR
AF YFIRHÖFNUM OG BOLUM
VIÐUR-KENNTAF EFSA
Bílskúrssala útsala...
Kínversk húsgögn
Uppl. í síma 821 8609 • qcindy@gmail.com
FRÉTTIR
STÖÐVAR 2
Í BEINNI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
sunnudaga kl. 15 - 17
með Bigga Maus
Vasadiskó