Fréttablaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 44
18. maí 2012 FÖSTUDAGUR24 24
menning@frettabladid.is
FÖNDUR OG FJÖR
FÖNDURBÆKUR HANDA KÁTUM KRÖKKUM
Tískustelpur - föndur og fjör
Í bókinni eru: mynsturpappír, stenslar,
límmiðar og risa-límmiðaspjöld,
dúkkulísur og föt.
Drekar - föndur og fjör
Í bókinni eru: hreisturpappír, stenslar,
límmiðar og risa-límmiðaspjald.
VARÚÐ! Þessi bók er full af drekum!
2.499,-
KYNNINGAR-
VERÐ
2.999,-
Gildir til 28. maí á meðan birgðir endast.
2.499,-
KYNNINGAR-
VERÐ
2.999,-
Sýningin Á vit … verður
frumsýnd í kvöld. Í henni
leiða GusGus og Íslenski
dansflokkurinn saman
hesta sína. Ásgeir Helgi
Magnússon dansari í
Íslenska dansflokknum
segir samstarfið mikið
ævintýri.
„Þetta hefur verið ágæt-
is skóli í diplómatískum
aðferðum, við erum níu
dansarar í Íslenska dans-
flokknum og höfum öll
okkar mismundi skoð-
anir,“ segir Ásgeir Helgi
Magnússon dansari í
Íslenska dansflokknum
(Íd) og einn höfundar
dansverksins Á vit … sem
frumsýnt verður í Hörpu
í kvöld. Verkið er samið af
dönsurum dansflokksins
og hljómsveitinni GusGus
en það er sýnt í samstarfi við Hörpu
og Listahátíð í Reykjavík.
Ásgeir Helgi segir hugmynd-
ina eiga rætur sínar að rekja til
Katrínar Hall, forstöðumanns
og listræns stjórnanda flokksins.
„Dansflokkurinn sýnir vanalega
í Borgarleikhúsinu og hana lang-
aði til þess að við færum annað og
í samstarfi við Gusgus. Þá kvikn-
aði sú hugmynd að sýna í Hörpu og
það varð úr.“
Fljótlega var ákveðið að vinna
út frá hugmyndinni um partý eða
veislu. Ásgeir segir að GusGus og
dansflokkurinn hafi fundað reglu-
lega en unnið þess á milli að sínum
hluta verksins. „Þetta hefur verið
mjög skemmtilegt ferli, við höfum
öll skemmt okkur hrikalega vel.
Og samstarfið hefur verið meira
en ég bjóst við. Þeir hafa
tekið hugmyndir frá
okkur og fært yfir í tón-
list og við unnið með til-
lögur frá þeim.“
Ásgeir segir Katrínu
Hall hafa verið listræn-
an ráðgjafa dansaranna.
„En svo höfum við verið
dugleg að fylgjast með
og bæta við þegar við
erum ekki að dansa sjálf
og þannig hefur verkið
smám saman þróast.“
Fleiri listform en dans
og tónlist eru hluti sýn-
ingarinnar því frum-
sýndar verða stuttmyndir Reynis
Lyngdal og Katrínar Hall. Þá er
þess að geta að Aðalsteinn Stefáns-
son sér um umgjörð verksins og
leikmynd en Filippía Elísdóttir og
Ýr Þrastardóttir sjá um búninga.
Þrjár sýningar verða á verkinu,
sú þriðja er aukasýning sem bætt
var við vegna mikillar eftirspurn-
ar. sigridur@frettabladid.is
Íd og GusGus
bjóða til veislu
FERÐALAG Í verkinu Á vit ... ferðast dansarar Íd um Hörpu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
PLATAN LEYFÐU LJÓSINU eftir Hildi Guðnadóttur kemur í verslanir í dag. Leyfðu ljósinu er tónverk sem tekið var upp
í Music Research Centre við Háskólann í York síðastliðin janúar af Tony Myatt en útgáfufélagið Touch gefur það út. Ekkert var átt
við upptökurnar eftir flutninginn. Hildur Guðnadóttir er sellóleikari og tónskáld og er búsett í Berlín. Undanfarin ár hefur hún unnið
með allskyns tónskáldum og listamönnum og verið meðlimur í fjölmörgum hljómsveitum, þar á meðal múm og Stilluppsteypu.
Svo höfum
við verið dug-
leg að fylgjast
með og bæta
við þegar við
erum ekki að
dansa sjálf.
ÁSGEIR HELGI
MAGNÚSSON