Fréttablaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 19
■ FRAMHALD Á SÍÐU 4
NÝ SUNDLAUG Í HVERT SINN
Ferðu alltaf í sömu sundlaugina? Þá er ráð að
gera sér það að leik að fara aldrei í sömu laug-
ina í sumar. Þá er upplifunin aldrei sú sama og
víst að börnin hafa gaman af því að prófa nýjar
rennibrautir og buslupolla.
ROKKIÐ LIFIR Stelpur
fá tækifæri til að fara
óhræddar upp á svið
til að pönkast og öskra
segir Áslaug Einars-
dóttir.
Í sumar verður boðið upp á rokksumar-búðir fyrir stelpur á aldrinum tólf til sextán ára. Búðirnar bera nafnið
Stelpur rokka! en um er að ræða sjálfboða-
liðaverkefni undir stjórn Áslaugar Einars-
dóttur. Hún segir enga hljóðfærakunnáttu
nauðsynlega fyrir dvölina í búðunum en
þar læra stelpurnar að spila á hljóðfæri,
semja texta og koma fram.
„Markmið rokksumarbúðanna er að
bjóða ungum stelpum upp á vettvang
þar sem þær geta látið rödd sína heyr-
ast og hæfileika sína skína. Við munum
bjóða upp á vettvang þar sem þær geta
farið óhræddar upp á svið og pönkast og
öskrað og sleppt fram af sér beislinu.“
Rokksumarbúðirnar standa yfir í fjórar
vikur, frá 2. til 27. júlí. Í lok búðanna verða
haldnir lokatónleikar þar sem stelpurnar
koma fram. Reynslumiklir sjálfboðaliðar
sjá um að leiðbeina stúlkunum. Opnað var
fyrir skráningu í búðirnar fimmtánda maí
og hafa viðtökurnar verið mjög góðar. Ein-
ungis er boðið upp á pláss fyrir 30 stelpur
og hvetur Áslaug þær til að skrá sig sem
fyrst. Vegna mikillar eftirspurnar verður
hugsanlega fleiri plássum bætt við. „Við
óskum hér með eftir fleiri sjálfboðaliðum
til að aðstoða okkur. Einnig vantar okkur
fleiri hljóðfæri fyrir stelpurnar ef einhver
vill lána eða gefa okkur.“ Hollur matur
verður í fyrirrúmi í rokkbúðunum en til
hátíðabrigða verður kannski boðið upp á
rokkpylsur í smjördeigi.
„Ég valdi þessa uppskrift því móðir
mín er smjördeigssnillingur og gerir margt
listilega fallegt úr smjördeigi. Ég hef alltaf
fengið svona pylsur á afmælinu mínu og
því hafa þær fylgt mér lengi. Það er eitt-
hvað ávanabindandi við þessar pylsur
því vinkonur mínar krefja mig árlega um
smjördeigspylsuafmæli.“ ■ sfj
ÁVANABINDANDI
ROKKPYLSUR
STELPUROKK Rokksumarbúðirnar Stelpur rokka eru vettvangur fyrir stelpur
þar sem þær geta látið rödd sína heyrast og hæfileika sína skína.
STELPU ROKK-
SUMAR BÚÐIR
Skráning fer fram
á heimasíðu búð-
anna, stelpurrokka.
org. Laust pláss er
fyrir 30 stelpur.
Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is
ANTANIR Í SÍMA 517-4300BORÐAP
HUMARSALAT & H ÍNVÍTV 502.2 kr.
gó,um, manlduðum smátómötHumarsalat með hæge
tumhew-hnek og ristuðum cassultuðum rauðlau
ív nsglasi.ásamt hvít
BLÁSKEL & HVÍTVÍN 2.950 kr.
Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt
hvítvínsglasi.
FERSKT
&
FREISTA
NDI
SPENNANDI
SJÁVARRÉTTA
TILBOÐ