Fréttablaðið - 18.05.2012, Side 8
18. maí 2012 FÖSTUDAGUR8
Úttekt Háskóla Íslands á einkunnum nemenda við skólann eftir framhaldsskólum
Félagsvísindasvið Heilbrigðisvísindasvið Hugvísindasvið Menntavísindasvið Verkfræði- og náttúru-
vísindasvið
Sæti Skóli Einkunn
Fjöldi
nemenda
1 IR 7,17 27
2 Háskóli 7,09 28
3 MA 6,98 218
4 FSU 6,95 200
5 ME 6,90 88
6 FSN 6,83 25
7 FNV 6,82 68
8 VA 6,82 21
9 FSH 6,80 29
10 MR 6,80 430
11 Kvennó 6,78 313
12 FB 6,72 366
13 FIV 6,65 65
14 MH 6,65 516
15 MS 6,63 402
16 FAS 6,60 26
17 VÍ 6,59 760
18 FL 6,52 10
19 FVA 6,48 134
20 MÍ 6,48 70
21 MK 6,48 318
22 ML 6,46 45
23 VMA 6,45 96
24 Undanþ. 6,43 130
25 Flensb. 6,38 248
26 FSS 6,37 193
27 Frumgr. Keilis 6,35 156
28 BHS 6,29 168
29 FÁ 6,22 347
30 FG 6,21 270
31 Erl. skóli 6,20 70
32 Frumgr. HR 6,14 15
33 Tæknisk. 6,13 8
34 Hraðbr. 6,07 69
35 TÍ 5,86 18
36 IH X 3
37 MB X 3
Sæti Skóli Einkunn
Fjöldi
nemenda
1 MR 7,67 388
2 MA 7,48 179
3 TÍ 7,39 6
4 MH 7,27 365
5 MÍ 7,18 50
6 FSU 7,14 106
7 VÍ 7,13 245
8 ME 7,12 56
9 Kvennó 6,98 259
10 FAS 6,94 17
11 FVA 6,91 93
12 MS 6,90 202
13 ML 6,89 40
14 FIV 6,84 45
15 Erl. skóli 6,79 36
16 FNV 6,74 35
17 FÁ 6,73 162
18 FB 6,72 195
19 VMA 6,71 50
20 Hraðbr. 6,65 53
21 MK 6,64 166
22 VA 6,62 17
23 FSS 6,56 118
24 Flensb. 6,50 136
25 BHS 6,22 95
26 FG 6,21 146
27 FSH 6,15 13
28 FL 6,02 7
29 Háskóli 6,01 7
30 IR 5,78 10
31 FSN 5,71 16
32 Undanþ. 5,67 22
33 Frumgr. HR 5,36 5
34 Frumgr. Keilis 5,22 32
35 IH X 3
36 MB X 2
37 Tæknisk. X 3
Sæti Skóli Einkunn
Fjöldi
nemenda
1 MR 7,88 375
2 VA 7,68 12
3 ME 7,51 72
4 Háskóli 7,49 34
5 MA 7,48 213
6 MH 7,47 521
7 Erl. skóli 7,45 130
8 VÍ 7,35 222
9 Undanþ. 7,29 115
10 FVA 7,22 96
11 Kvennó 7,22 221
12 MÍ 7,22 33
13 FSH 7,18 16
14 MS 7,12 157
15 Tæknisk. 7,08 9
16 FSU 7,04 113
17 FB 7,03 227
18 BHS 6,98 96
19 FSS 6,97 86
20 FNV 6,95 37
21 IR 6,95 35
22 Hraðbr. 6,89 42
23 ML 6,88 29
24 FAS 6,86 18
25 Flensb. 6,85 159
26 VMA 6,84 87
27 Frumgr. Keilis 6,80 56
28 FG 6,77 121
29 MK 6,76 144
30 FÁ 6,72 235
31 FIV 6,55 17
32 FL 6,45 9
33 TÍ 6,41 11
34 FSN 6,07 9
35 Frumgr. HR 5,65 5
36 IH X 2
37 MB X 2
Sæti Skóli Einkunn
Fjöldi
nemenda
1 Háskóli 8,18 41
2 MR 8,12 50
3 MA 7,92 63
4 FSH 7,86 18
5 Erl. skóli 7,85 37
6 FL 7,85 17
7 MH 7,85 119
8 VÍ 7,85 91
9 Kvennó 7,83 102
10 FNV 7,79 68
11 FSU 7,78 127
12 FB 7,77 213
13 IR 7,77 47
14 MS 7,76 224
15 ME 7,70 68
16 BHS 7,67 114
17 FÁ 7,67 158
18 Flensb. 7,65 93
19 FVA 7,62 108
20 VMA 7,62 93
21 MÍ 7,60 49
22 VA 7,58 24
23 Frumgr. HR 7,57 5
24 ML 7,53 37
25 IH 7,50 7
26 MK 7,50 119
27 FSS 7,48 132
28 Hraðbr. 7,47 14
29 FG 7,45 116
30 Undanþ. 7,45 151
31 FAS 7,36 13
32 FSN 7,35 15
33 FIV 7,33 56
34 Frumgr. Keilis 7,22 56
35 TÍ 7,11 9
36 MB X 2
37 Tæknisk. X 3
Sæti Skóli Einkunn
Fjöldi
nemenda
1 MR 7,27 587
2 MA 6,99 268
3 MH 6,86 431
4 Kvennó 6,81 239
5 Erl. skóli 6,71 41
6 ME 6,62 63
7 ML 6,59 39
8 VÍ 6,59 408
9 FNV 6,58 41
10 FSU 6,53 127
11 Undanþ. 6,53 27
12 MK 6,51 197
13 FAS 6,42 29
14 IR 6,42 27
15 Flensb. 6,40 154
16 FSH 6,34 27
17 MS 6,32 265
18 FB 6,31 176
19 FÁ 6,25 169
20 Háskóli 6,24 4
21 FVA 6,23 112
22 VMA 6,23 62
23 BHS 6,22 80
24 MÍ 6,18 49
25 Tæknisk. 6,08 8
26 FSS 6,03 96
27 Hraðbr. 6,02 84
28 TÍ 6,02 16
29 FSN 5,84 13
30 FG 5,70 131
31 Frumgr. Keilis 5,47 37
32 Frumgr. HR 5,35 26
33 VA 5,18 15
34 MB 5,15 6
35 FL X 4
36 FIV X 41
37 IH X 2
SKÝRINGAR Á SKAMMSTÖFUNUM BHS Borgarholtsskóli Erl. skóli Erlendur skóli FNV Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra FSN Fjölbrautaskóli Snæfellinga FSU Fjölbrautaskóli Suðurlands FSS Fjölbrauta-
skóli Suðurnesja FVA Fjölbrautaskóli Vesturlands FAS Fjölbrautaskólinn í Austur-Skaftafellssýslu FB Fjölbrautaskólinn í Breiðholti FG Fjölbrautaskólinn í Garðabæ FÁ Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Flensb. Flensborgarskólinn í Hafnarfirði FSH Framhaldsskólinn á Húsavík FL Framhaldsskólinn á Laugum FIV Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum Frumgr. HR Frumgreinadeild HR Frumgr. Keilis Frumgreina-
deild Keilis Háskóli* Fyrsta háskólagráða IH Iðnskólinn í Hafnarfirði IR Iðnskólinn í Reykjavík Kvennó Kvennaskólinn í Reykjavík MB Menntaskóli Borgarfjarðar ML Menntaskólinn að Laugarvatni
MA Menntaskólinn á Akureyri ME Menntaskólinn á Egilsstöðum MÍ Menntaskólinn á Ísafirði Hraðbr. Menntaskólinn Hraðbraut MK Menntaskólinn í Kópavogi MR Menntaskólinn í Reykjavík MH Menntaskól-
inn við Hamrahlíð MS Menntaskólinn við Sund TÍ Tækniskóli Íslands Tæknisk. Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins Undanþ.** Undanþága frá stúdentsprófi VA Verkmenntaskóli Austurlands VMA Verkmennta-
skólinn á Akureyri VÍ Verzlunarskóli Íslands X Ekki reiknað meðaltal * Nemandi hefur lokið öðru grunnnámi í háskóla ** Nemandi hefur fengið undanþágu frá stúdentsprófi
Sími 570 2400 · oryggi.is
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
Skoðaðu úrvalið og prufukeyrðu
í sýningarsal okkar að Askalind 1, Kópavogi.
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 121124
Rafskutlur
Vandaðar og kraftmiklar rafskutlur sem
henta vel við íslenskar aðstæður.
Háskóli Íslands hefur kann-
að hvernig einkunnir nem-
enda við skólann skiptast
eftir því úr hvaða fram-
haldsskóla nemendurnir
koma. Munurinn á skól-
unum er ekki afgerandi en
sumir skólar raðast oftar
ofarlega en aðrir.
Sömu framhaldsskólarnir eru ofar-
lega þegar skólunum er raðað eftir
meðaleinkunn nemenda úr hverj-
um skóla þegar þeir eru komnir í
Háskóla Íslands (HÍ). Þetta sýna
niðurstöður úttektar sem gerð var
á vegum háskólans.
Nemendur úr Menntaskólanum á
Akureyri eru í einu af fimm efstu
sætunum á öllum fimm sviðum
háskólans. Nemendur frá Mennta-
skólanum í Reykjavík eru í einu af
fimm efstu sætunum í fjórum af
fimm sviðum.
„Þessar niðurstöður eru til þess
fallnar að slá á fordóma og stuðla að
upplýstri umræðu,“ segir Ólafur Þ.
Harðarson, prófessor í stjórnmála-
fræði við HÍ. Hann segir vissulega
mun á nemendum eftir því úr hvaða
skólum þeir komi, en leggur áherslu
á að munurinn sé tiltölulega lítill.
Hann segir þá skóla sem gjarnan
hafi verið taldir skila góðum nem-
endum koma vel út, en aðrir skólar
skili einnig góðum nemendum. Þá
verði að líta til þess að skólarnir fái
misgóða nemendur úr grunnskólun-
um, og vel hugsanlegt að það hafi
töluverð áhrif.
Ólafur varar við því að horfa of
mikið á röð skólanna, enda sé oft
mjög lítill munur á milli skóla. Mun-
urinn verði ýktur þegar skólunum
er raðað eftir einkunnum nemenda.
Róbert H. Haraldsson, formað-
ur kennslumálanefndar HÍ, leggur
áherslu á að almennt sé ekki mjög
mikill munur á einkunn nemenda
við HÍ eftir því úr hvaða framhalds-
skólum nemendur komi.
„Samanburður á skólunum sýnir
að það koma góðir nemendur úr
öllum framhaldsskólum,“ segir
Róbert. Tölurnar ná aftur til árs-
ins 2008, en tölur fyrir þann tíma
eru ekki samanburðarhæfar vegna
skipulagsbreytinga hjá HÍ.
„Það er samt augljóslega umtals-
verður munur í nokkrum tilvikum,
þó ekki sé auðvelt að segja af hverju
sá munur stafar,“ segir Róbert.
Þannig sé ekki hægt að fullyrða að
kennsla sé betri í þeim skólum þar
sem nemendur fái betri einkunnir
í HÍ. Framhaldsskólarnir setji mis-
munandi kröfur um árangur á próf-
um í grunnskóla og fái þannig mis-
munandi nemendur inn í skólana.
Þá bendir Róbert á að ekki sé tekið
tillit til námshraða í úttektinni og
það skipti líka máli að mishátt hlut-
fall útskrifaðra nema framhalds-
skólanna hefji nám við HÍ. Flestir
stúdentar úr rótgrónu framhalds-
skólunum fari í HÍ en hjá sumum
öðrum skólum sé þetta hlutfall tölu-
vert lægra.
Róbert segir skólameistara fram-
haldsskólanna geta nýtt niðurstöð-
urnar með því að lesa þær samhliða
öðrum upplýsingum sem þeir hafa.
Þannig geti þeir reynt að átta sig á
mögulegum veikleikum á kennslu
í sínum skólum og eins hvar þeir
standi vel að vígi. Háskólinn leggi
mikla áherslu á að hafa gott sam-
starf við alla framhaldsskólana.
Það sjónarmið hefur komið fram
að stúdentspróf framhaldsskólanna
séu orðin svo mismunandi á milli
skóla að þau séu ekki marktækur
mælikvarði við inntöku nýnema í
háskóla. Þessi rök voru sett fram í
umræðunni um að taka upp inntöku-
próf í Háskóla Íslands.
Daði Már Kristófersson, dósent
við hagfræðideild HÍ, sagði í viðtali
við Fréttablaðið í september síðast-
liðnum að markmiðið væri að fækka
þeim nemendum sem ekki geti stað-
ist þær kröfur sem deildin gerði til
þeirra.
Inntur eftir því hvort niðurstaða
könnunarinnar gangi þvert á þau
rök að stúdentsprófið væri ekki
marktækur mælikvarði segir Daði
að það sé ekki hans skilningur, en
tekur fram að hann hafi ekki lagst
yfir niðurstöðurnar. „En spjall mitt
við kollega mína, sem hafa túlkað
þessi gögn af nákvæmni, bendir
til að gróf niðurstaða sé sú að það
séu hæfileikar nemandans en ekki
menntaskólinn sem ráði því hvernig
nemendum gengur í háskólanámi.”
Inntökupróf þjónar því tilætl-
uðum tilgangi um að vinsa úr þá
nemendur sem ekki hafa þann
menntunargrunn sem þarf í námið.
Nemandinn er, að mati Daða, áfram
í forgrunni í slíku prófi en ekki það
við hvaða skóla hann lagði stund á
nám fram til þess tíma að inntöku-
próf var þreytt.
Sömu skólarnir ítrekað í efstu sætunum
Brjánn
Jónasson
brjann@frettabladid.is
Þessar niðurstöður
eru til þess fallnar að
slá á fordóma og stuðla að
upplýstri umræðu.
ÓLAFUR Þ. HARÐARSON
STJÓRNMÁLAFRÆÐIPRÓFESSOR