Fréttablaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 30
8 • LÍFIÐ 18. MAÍ 2012
við að tjá þig svona? Í þessu
ákveðna tilviki með myndbandið og
sigurinn þá voru viðbrögðin svona
einlæg einfaldlega vegna þess að
þetta verkefni fyrir mér er svo pers-
ónulegt. Mér þykir svo vænt um það
og þegar ég sá svo myndbandið
og að fólk hafi lagt sig svona vel og
mikið fram við að gera lagið enn þá
flottara og umgjörðina eins og hún
var, þá gat ég ekkert annað en tár-
ast. Ég held að ég sé opin mann-
eskja en samt ekki þannig að ég
flíki tilfinningum mínum hvar sem
er. Sums staðar getur maður bara
ekki haldið þeim leyndum, eins og
þarna þar sem þú nefndir.
Það hlýtur að vera álag að fara
út með öllu þessu fólki og koma
fram fyrir Evrópu. Hefur þú feng-
ið það á tilfinninguna að þú kiknir
undan álaginu? Ég trúi því að orð
hafi mátt og að maður megi einfald-
lega ekki leyfa sér að hugsa þannig.
Allar hugsanir sem beinast að svið-
inu og framkomunni eiga að vera
uppbyggjandi og jákvæðar og ég
er fullviss um að við eigum eftir að
skila þessu eins vel og við mögu-
lega getum af okkur. Ég vil frekar
hugsa þetta svona: Þvílík forréttindi
eru það að fá að koma fram á þessu
sviði og flytja lagið mitt fyrir alla Evr-
ópu í þessu frábæra umhverfi. Þessi
hugsun vekur upp tilhlökkun fyrir
flutningnum sem er einmitt það sem
maður þarf.
En hver er styrkur þinn? Styrk-
urinn minn liggur í trúnni minni og
öllu því frábæra fólki sem er með
mér hér.
Ertu örlagatrúar? Nei ég er
sennilega minnst örlagatrúaða
manneskja sem finnst. Ég trúi á
undirbúning og vinnu og að það skili
manni því sem maður vill uppskera.
Hlutirnir gerast sjaldnast af sjálfu sér
og ég vil aldrei stóla á neitt annað
en að undirbúningurinn skili því sem
honum hefur verið ætlað.
Af hverju ákvaðst þú að velja
Jónsa sem syngur með þér? Jónsi
passar svo vel í hlutverkið. Hann er
karlmannlegur með kraftmikla rödd
sem er einmitt það sem ég vil í lagið.
Hvernig hefur samstarf ykkar
Jónsa verið? Mjög gott. Jónsi er
orkumikill og alltaf til í að gera meira
og vinna meira. Það er mjög góður
eiginleiki hjá þeim sem þarf að vinna
mikið með mér.
Hvað hefur komið þér mest á
óvart í undirbúningnum? Það hefur
komið mér á óvart fyrst og fremst
hvað þetta er svakaleg vinna. Lagið
tekur þrjár mínútur en það fara
margir mánuðir í að undirbúa það.
En þetta hafa verið mjög skemmti-
legir og lærdómsríkir mánuðir.
Íslenska þjóðin mun fylgjast
náið með ykkur á þriðjudaginn –
hvaða skilaboð viltu færa henni
fyrir stóra kvöldið? Vonandi munu
allir eiga frábært kvöld og við reyn-
um eftir okkar fremsta megni að
gera ykkur eins stolt og við erum að
koma fram fyrir Íslands hönd.
Eitthvað að lokum? Ég vil þakka
öllu fólkinu sem er að senda okkur
hlýjar og jákvæðar kveðjur. Við
metum það mikils. Ég vil einnig
þakka nokkrum aðilum sem hafa
stutt okkur í gjöfum og lánum: Voda-
fone fyrst og fremst, Gyðju Collect-
ion, Sign skartgripum, Dúkkuhúsinu,
Halldóru, Hugin Munin, Zolo Design,
Kultur Men, NTC, Orublu, L´oreal og
Ölgerðinni.
Greta er einlæg og dugleg og hefur góðan stuðning fjölskyldunnar á bak við sig.
Hann er karlmannlegur með kraftmikla rödd, segir Greta um Jónsa.
Framhald af síðu 7
Mind Xtra
ÚTSALA
1990 • 2990
Einnig stelpufatnaður
fyrir 4-12 ára.
Vorum að taka upp mikið úrval af
stelpufatnaði 4-12 ára
2 VERÐ
Erum við hliðina á Herra Hafnarfirði
á 2. hæð.
Save the Children á Íslandi