Fréttablaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 40
18. maí 2012 FÖSTUDAGUR20
Alþjóðlegi safnadagurinn er haldinn
hátíðlegur í dag víða um heim. Í til-
efni af því hafa safnafræðinemar við
Háskóla Íslands stofnað svonefnt Smá-
stundarsafn, sem verður opið milli
klukkan 14 og 16 í Hámu á háskóla-
torgi. En hvað er Smástundarsafn?
„Smástundarsafn, eða „pop-up
museum“, er mótvægi við hefðbund-
ið safnastarf og gengur meira út á
skrásetningu minninga og sögu en
söfnun efnislegra hluta“ segir Karina
Hanney Marrero, sem stendur að
safninu ásamt Eddu Björnsdóttur.
„Smástundasafnið er hins vegar tíma-
bundið og byggir meira á sögunum á
bak við hvern grip, sem er í raun það
sem gefur mununum gildi.“
Smástundarsafnið byggir þannig
alfarið á þátttöku gesta, sem færa
safninu muni sem tengjast tilteknu
þema og segja söguna á bak við grip-
inn.
„Þemað í dag verður frí,“ segir
Karina. „Við biðjum því fólk að koma
með hvaða hlut sem er sem það teng-
ir af einhverjum ástæðum við frí og
hafa til sýnis á safninu. Við biðjum
fólk jafnframt um að skrá söguna á
bak við gripinn í stuttu máli. Að lok-
inni sýningu fá gestirnir gripinn aftur
en mynd af honum og sagan á bak við
hann birtist á heimasíðunni okkar.“
Smástundarsafnið er að erlendri
fyrirmynd. „Þetta er mjög heppilegt
konsept að því leyti að það krefst ekki
mikillar yfirbyggingar,“ segir Karina.
„Þetta er líka mjög hentug aðferð til
að takast á við ákveðin samfélags-
leg málefni, til dæmis samkynhneigð
eða stéttaskiptingu. „Með því að gefa
persónulegum frásögnum aukið vægi
myndast samræðuvettvangur fyrir
gesti safnsins, þar sem þeir fá tæki-
færi til að deila minningum og sögum
tengdum ákveðnum hlutum. Útkom-
an verður því mögulega allt önnur en
nokkurn tímann í hefðbundnu safni.“
Eftir því sem næst verður komist er
þetta í fyrsta sinn sem Smástundar-
safn með þessu sniði er sett á laggirn-
ar hérlendis en Karina segir vel koma
til greina að endurtaka leikinn.
„Við vonum að það verði framhald á
þessu, það væri gaman að halda aðra
sýningu í sumar eða haust út frá ein-
hverju öðru þema. Við ætlum fyrst að
sjá hvernig viðbrögðin verða,“
Sýningin er öllum opin og Karina
hvetur sem flesta til að líta við, jafn-
vel með mun sem tengist fríi með ein-
hverjum hætti.
„Það getur verið gripur úr tjaldúti-
legu, staup úr útskriftarferð, brottfar-
arspjald – hvað sem er. Komið endi-
lega við og segið söguna á bak við
gripinn.“
Hægt er að fylgjast með afrakstri
dagsins á heimasíðu Smástundar-
safnsins, smastundarsafnid.wor-
dpress.com.
bergsteinn@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Kínverjar, einkum námsmenn, hófu frið-
samleg mótmæli í upphafi ársins 1989 og
kröfðust lýðræðislegra umbóta. Mest fór
fyrir mótmælunum á Torgi hins himneska
friðar í miðri Peking en þar komu náms-
menn sér fyrir og fóru í mótmælasvelti.
Á þessum degi lagðist almenningur fyrir
alvöru á sveif með námsmönnunum og
milljónir manna fjölmenntu á götum úti
með fána og skilti og hrópuðu slagorð
gegn æðstu ráðamönnum landsins. Þetta
voru alvarlegustu og umfangsmestu
mótmæli í sögu Kína frá því kommúnistar
tóku við völdum fjörutíu árum áður en allt
fór þetta samt friðsamlega fram og börn
og foreldrar sameinuðust í mótmælunum.
Aðgerðirnar vöktu heimsathygli og þannig
var til að mynda Gorbatsjov, Sovétleiðtogi,
í opinberri heimsókn í Kína í maí en hún
féll að miklu leyti í skugga mótmælanna.
Langlundargeð landsfeðranna var þó ekki
meira en svo að í byrjun júní leystu þeir
mótmælin á Torgi hins himneska friðar
upp með vopnavaldi og ofbeldi. Fjöldi
manns féll í aðgerðunum og 10.000
manns voru handteknir í blóðbaðinu á
Torgi hins himneska friðar.
ÞETTA GERÐIST: 18. MAÍ 1989
Milljónir mótmæla í Kína
KARINA OG EDDA Ólíkt hefðbundnu safnastarfi, þar sem markmiðið er yfirleitt að koma upp vænlegum efnislegum safnkosti, gengur Smá-
stundarsafnið fyrst og fremst út á skráningu minninga og sögu – þess sem gefur gripunum gildi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ALÞJÓÐLEGI SAFNADAGURINN ER Í DAG: SMÁSTUNDARSAFN Á HÁSKÓLATORGI
Sagan gefur safngripnum gildi
Í tilefni af 30 ára afmæli
Náttúrugripasafns Seltjarn-
arness verður safnið opið
almenningi á laugardaginn,
frá klukkan 13 til 17.
Safnið er til húsa í Val-
húsaskóla á Seltjarnarnesi
og geymir einstæða gripi
sem áhugavert er að skoða.
Einnig verður í Valhúsa-
skóla sýnd myndin Lífríki
í landi Seltjarnarness sem
Kvik hf. kvikmyndagerð
vann fyrir menningarnefnd
fyrir nokkrum árum.
Boðið er upp á fuglaskoð-
unarferð undir leiðsögn
Jóhanns Óla Hilmarssonar
fuglafræðings. Lagt verður
af stað frá Valhúsaskóla
klukkan 14.
Á sama tíma verður mál-
verkasýningin Án forskrift-
ar eftir Sigurð K. Árnason
opin, en hún var sett var
upp á Bókasafni Seltjarnar-
ness í tilefni afmælis Nátt-
úrugripasafnsins.
Náttúrugripa-
safnið er 30 ára
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og bróður,
GUÐBJARTS RAFNS EINARSSONAR
skipstjóra og útgerðarmanns,
Löngulínu 2B, Garðabæ.
Anna Sigurbrandsdóttir
Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir Ingi Jóhann Guðmundsson
Ragnhildur Inga Guðbjartsdóttir Steinar Ingi Matthíasson
barnabörn
Guðrún Einarsdóttir
Sigurður Einarsson
Stefán Einarsson
GUNNAR GUNNARSSON RITHÖFUNDUR (1889-1975), fæddist á
þessum degi fyrir 123 árum.
„Þegar best lætur er mannkynið aðeins illa siðmenntuð apahjörð.“
123
1756 Sjö ára stríðið hefst þegar Bretland lýsir yfir stríði á
hendur Frökkum.
1908 Rannsóknarskipinu Pourquoi-Pas? var hleypt af stokk-
unum í Saint-Malo í Frakklandi. Það strandaði síðar á
Íslandi.
1920 Sambandslögin frá 1918 voru staðfest með breytingum á
stjórnarskrá.
1978 Selfoss fékk kaupstaðarréttindi.
1980 Eldfjallið Sankti Helena gaus í Washingtonfylki. 57 létust í
sprengigosinu og tjónið var metið á þrjá milljarða dollara.
1989 Verkfalli Bandalags háskólamanna lauk og hafði það
staðið í sex vikur og valdið mikilli röskun á skólastarfi og
fleiru.
1990 Alþjóðaheilbrigðisstofnunin fjarlægir samkynhneigð af
lista yfir geðræna kvilla.
2004 Massachusetts verður fyrsta ríki Bandaríkjanna til að
heimila hjónavígslur samkynhneigðra.
2006 Silvía Nótt söng fyrir hönd Íslands í forkeppni Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva.
Merkisatburðir
AFMÆLISBÖRN
Ólafur R. Dýrmunds-
son ráðunautur er 68
ára í dag.
Ingibjörg Hjartardótt-
ir rithöfundur er 60
í dag.
Þórunn Guðmunds-
dóttir söngkona er 52
ára í dag.
VALHÚSASKÓLI Náttúrugripasafn Seltjarnar-
ness er til húsa í Valhúsakóla. Það fagnar 30
ára afmæli nú um mundir.