Fréttablaðið - 18.05.2012, Qupperneq 46
18. maí 2012 FÖSTUDAGUR26
popp@frettabladid.is
pizza
með beikoni, klettasalati og rjómaosti
Farðu inn á gottimatinn.is til að fá alla uppskriftina
og hugmyndir að fleiri girnilegum réttum.
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Bandaríski leikarinn Tom Cruise
minnist á væntanlega Íslandsheim-
sókn sína í viðtali við karlaritið
Playboy. Cruise mun dvelja hér á
landi í sumar við tökur á kvik-
myndinni Oblivion í leikstjórn
Josephs Kosinski.
„Ég man þegar ég vann við Taps
að ég hugsaði með mér að ef ég
gerði mitt allra besta gæti ég ef
til vill unnið við leiklist út ævina.
Nú er ég að verða fimmtugur og
er enn að og það er fínt. Þann 3.
júlí, afmælisdaginn minn, verð ég
á Íslandi við tökur. Kona mín og
fjölskylda skilja það, þetta er það
sem ég geri. Ég hef eytt mörgum
afmælisdögum á tökustað, og það
hafa alltaf verið góðir afmælis-
dagar.“
Oblivion segir frá hermanni sem
sendur er til fjarlægar plánetu með
það að markmiði að eyða verum
sem þar búa. Leikstjórinn Joseph Kosinski á að baki kvikmyndir á
borð við Tron: Legacy sem gerist einnig í framtíðinni.
Cruise um Íslandsferðina
MINNIST Á ÍSLAND Tom Cruise minnist
á Íslandsför sína í viðtali við Playboy.
NORDICPHOTOS/GETTY
Forseti Bandaríkjanna Barack
Obama hrósaði knattspyrnukapp-
anum David Beckham í veislu til
heiðurs LA Galaxy í Hvíta húsinu
á dögunum. Veislan var haldin
í tilefni af sigri liðsins í MLS-
deildinni þriðja árið í röð. Þá
sagði Obama að Beckham væri
líklega gæddur sérstökum hæfi-
leikum. „Beckham gæti í fyrsta
lagi verið faðir flestra í liðinu og
leiðir þá til sigurs. Það getur ekki
hver sem er gert það samhliða
því að sitja fyrir á nærbuxum
sem hann hannar sjálfur,“ sagði
Obama í ræðu sinni og uppskar
mikil hlátrasköll liðfélaga Beck-
ham og annarra gesta fyrir vikið.
Undirfatalínu Beckham
fyrir sænsku verslunarkeðjuna
Hennes & Mauritz hefur verið
vel tekið og líklegt að önnur lína
komi í verslanir með haustinu.
Obama hrósar Beckham
ÁNÆGÐUR MEÐ NÆRBUXURNAR Forseti
Bandaríkjanna Barack Obama segir Beck-
ham vera gæddan einstökum hæfileikum
bæði utan vallar sem innan. MYND/H&M
John Travolta segir að þungu fari
sé af sér létt eftir að kæra um að
hann hafi kynferðislega áreitt
annan mann var dregin til baka.
Tveir nuddarar ásökuðu hann um
að hafa áreitt þá kynferðislega en
nú hefur annar þeirra dregið kær-
una til baka.
„Við vonumst til að hinn aðil-
inn dragi kæruna til baka eins
og sá fyrri,“ sagði lögfræðingur
Travolta. Þrátt fyrir ummælin er
ólíklegt að það gerist. „Hann er
ekki að fara hætta við eitt né neitt.
Hann varð fyrir miklu áfalli,“
sagði lögfræðingur hins mannsins.
Kæra dregin til baka
LÉTTIR John Travolta ásamt eiginkonu
sinni Kelly Preston.
MÁNUÐIR eru síðan Ryan Seacrest byrjaði með dansaranum og raunveruleikastjörnunni
Julianne Hough og er parið nú farið að íhuga að ganga upp að altarinu. Þrátt fyrir að vera
bæði vön raunveruleikasjónvarpi vill hvorugt sjónvarpa frá brúðkaupinu ef af því verður.
24
Tónleikar ★★★★ ★
Manfred Mann‘s Earth Band
Háskólabíó
Það var þétt setinn bekkurinn
þegar breska hljómsveitin Man-
fred Mann‘s Earth Band hóf leik
sinn í Háskólabíói á miðvikudags-
kvöldið. Íslenskur strákarnir í Eld-
berg höfðu tekið nokkur lög í byrj-
un kvölds við ágætar viðtökur, en
eins og oft vill verða með upphit-
unarbönd þá var hljómburðurinn
frekar vondur þegar þeir spiluðu
og flestir tónleikagestir farnir að
bíða eftir aðalnúmeri kvöldsins
þegar þeir luku sér af.
Manfred Mann og félagar byrj-
uðu á Bruce Springsteen-laginu
Spirit In The Night. Þeir semja lítið
sjálfir og fluttu eingöngu lög eftir
aðra á tónleikunum, þar af fjögur
eftir Springsteen og þrjú Dylan-
lög. Hljómsveitin breytir lögunum
mikið og setur sinn stimpil á þau,
lengir þau, bætir intrói framan við
og brýtur þau upp með instrúmen-
tal köflum þar sem meðlimir sýna
hvað þeir geta á hljóðfærin.
Manfred Mann‘s Earth Band var
stofnuð árið 1971, en höfuðpaur-
arnir tveir eru báðir í hljómsveit-
inni í dag; hljómborðsleikarinn
Manfred Mann og gítarleikarinn
Mike Rogers. Þeir voru í aðalhlut-
verki á tónleikunum á miðviku-
dagskvöldið og skiptust á að taka
sóló, en aðrir meðlimir sýndu fín
tilþrif líka: bassaleikarinn Steve
Kinch, trommuleikarinn Jimmy
Copley og nýjasti meðlimurinn,
söngvarinn Robert Hart.
Það er oft talað um nost-
algíu þegar gamlar hljómsveitir
troða upp. Fæstir tónleikagesta í
Háskólabíói þekktu samt mörg lag-
anna sem voru flutt á fyrrihluta
tónleikanna, eins og kom í ljós
þegar Hart reyndi að fá salinn til
að syngja með. Það var hins vegar
auðvelt að hrífast af frammistöðu
hljóðfæraleikaranna, ekki síst
Rogers, og dást að útsetningun-
um, til dæmis á Springsteen-laginu
Dancing in The Dark. Undir lok
tónleikanna komu smellirnir hins-
vegar hver á fætur öðrum; Blinded
by the Light, Davy‘s on the Road
Again (mjög flott) og, eftir upp-
klapp, Do Wah Diddy Diddy sem
Rogers spilaði einn ásamt tromm-
aranum og tónleikagestir sungu
viðlagið.
Hápunkturinn kom í lokalag-
inu. Þegar forspilinu að því lauk
og fyrstu tónar The Mighty Quinn
hljómuðu fór nostalgísk sælu-
víma um salinn og tónleikagestir
stóðu skælbrosandi upp úr sætum
sínum. Fullkominn endir á fínum
tónleikum. Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Manfred Mann og
félagar heilluðu gesti Háskólabíós
með góðum tilþrifum á miðvikudags-
kvöldið.
Manfred Mann‘s Earth Band
GÓÐ TILÞRIF Manfred Mann og félagar heilluðu gesti Háskólabíós á miðvikudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI