Fréttablaðið - 26.05.2012, Side 4

Fréttablaðið - 26.05.2012, Side 4
26. maí 2012 LAUGARDAGUR4 KÖNNUN Ríflega sex af hverjum tíu, 60,6 pró- sent, af þeim sem afstöðu tóku í skoðana- könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 finnst embætti forseta Íslands mjög eða frekar mikil- vægt. Um 16,2 prósentum þykir embættið mjög eða frekar lítilvægt og 23,2 prósent telja það hvorki mikilvægt né léttvægt. Talsverður munur er á afstöðu til embættis forseta eftir kynjum. Um 66 prósent þeirra kvenna sem tóku afstöðu til spurningarinnar töldu embættið mjög eða frekar mikilvægt, en 55,5 prósent karla. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks telja frekar að embættið sé mikil vægt en stuðningsmenn Samfylkingar- innar og Vinstri grænna. Alls telja 71,9 prósent framsóknarmanna og 67 prósent sjálfstæðismanna embættið mjög eða frekar mikilvægt. Helmingur stuðnings- manna Samfylkingarinnar, 50 prósent, og 47,1 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna telja embættið mikilvægt. Hringt var í 1.326 manns þar til náðist í 800 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki mið- vikudaginn 23. maí og fimmtudaginn 24. maí. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hversu mikilvægt eða lítilvægt á skalanum 1 til 5 telur þú embætti forseta Íslands? Alls tóku 96,4 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. - bj Sex af tíu þykir embætti forseta Íslands mikilvægt samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2: Konur telja forsetann mikilvægari en karlar Mjög lítilvægt 6,9% Frekar lítilvægt 9,3% Hvorki mikilvægt né lítilvægt 23,2% Frekar mikilvægt 28,9% Mjög mikilvægt 31,7% Mikilvægi embættis forseta Íslands HEIMILD: SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 DAGANA 23. OG 24. MAÍ 2012 GENGIÐ 25.05.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 224,6096 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 128,92 129,54 202,14 203,12 162,11 163,01 21,813 21,941 21,435 21,561 18,029 18,135 1,6201 1,6295 195,62 196,78 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Ranglega var sagt í umfjöllun um skoð- anakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 að könnunin hefði verið gerð 23. og 24. mars eða apríl. Eins og réttilega kom fram annars staðar í blaðinu var könnunin gerð 23. og 24. maí. LEIÐRÉTT ÞEKKT ANDLIT Fiskborð hefur ýmislegt að geyma en aðeins fáar tegundir skila sér þangað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SJÁVARÚTVEGUR Urrari, vogmær og túnfiskur er meðal þess sem hefur skilað sér í land af íslenska fiskiskipaflotanum, samkvæmt samantekt Landssambands smá- bátamanna úr tölum Fiskistofu. Það sem af er fiskveiðiári hafa alls 61 fiskitegund veiðst hér við land á móti 60 í fyrra. Blágóma og digra-geirsíli hafa ekki enn skilað sér í land eins og fyrri ár. Jafnmikið hefur veiðst af urr- ara, vogmey og túnfiski, alls sex tonn, og eitt tonn af smokkfiski og fjögur tonn af digra-geirsíli. - shá Urrara og vogmær landað: Sextíu tegundir hafa skilað sér SAMFÉLAGSMÁL Tekjur Íslandsspila af spilakössum hafa dregist saman ár frá ári eftir hrun. Samdráttur- inn kemur verulega illa við eigend- urna, sem eru Rauði kross Íslands (RKÍ), Slysavarnafélagið Lands- björg og SÁÁ, enda eru tekjurnar stór hluti af rekstrarfé þeirra. Magnús Snæbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Íslandsspila, segir að frá árinu 2008 hafi tekjur fyr- irtækisins af söfnunarkössum dregist saman jafnt og þétt. Heild- artekjur í fyrra voru 1.330 millj- ónir og drógust saman um fjögur prósent á milli ára. Tekjurnar árið 2008 voru hins vegar rúmar 1.600 milljónir og samdrátturinn eftir hrun er því fimmtungur af tekjum á tímabilinu. Rauði krossinn, Landsbjörg og SÁÁ skipta um 60 til 70% þessarar fjárhæðar á milli sín, eða um milljarði árið 2008. Um 18% samdráttur er því þungt högg fyrir rekstur góðgerðarfélaganna. „Ástæðan er auðvitað sú að fólk hefur minna á milli handanna, en þá er aðeins hálf sagan sögð,“ segir Magnús. „Umhverfi þessa rekstrar hefur gjörbreyst. Net- spilun verður sífellt algengari og er áætlað að allt að 1,5 milljarðar króna renni frá Íslandi í vasa erlendra aðila. Netspilun er því orðinn stór póstur í íslensku happ- drættislífi sem okkur er meinað að taka þátt í.“ „Við höfum margoft fundað með innanríkisráðherra [Ögmundi Jón- assyni] sem sér ekki okkar rök. Á meðan fer ekki króna af þessum tekjum til innlendra góðgerðar- mála“, segir Magnús. Í ársreikningum Rauða krossins kemur fram að á milli áranna 2010 og 2011 lækkuðu tekjur af spila- kössum um 11% að teknu tilliti til verðlags. Munurinn var enn meiri milli áranna 2010 og 2009 þegar tekjurnar drógust saman um 17,5%. Tekjur RKÍ af spila kössum árið 2008 voru 615 milljónir en 512 milljónir í fyrra sem var þriðjungur af öllum tekjum. Hlut- fallið af tekjum var nálægt því helmingur árið 2008. Guðmundur Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Lands bjargar, segir að samdráttur í tekjum björgunarsveitanna frá Íslands- spilum sé tæp 25% milli áranna 2008 og 2011. Hann er uggandi um framhaldið. „Nú erum við komnir á þann stað að við þurfum að skera niður í rekstri.“ svavar@frettabladid.is Góðgerðarstarf líður fyrir tekjuhrun í spilakössum Tekjur Íslandsspila hafa lækkað um fimmtung frá hruni. Góðgerðarstarf Rauða krossins, Landsbjargar og SÁÁ líður fyrir. Netspilun tekur sífellt stærri sneið af kökunni. Frjáls félagasamtök fá ekki aðgang að netinu. Aðalfundur Rauða krossins á Íslandi 19. maí 2012 samþykkir eftirfarandi ályktun: Ályktun Rauða kross Íslands á aðalfundi BJÖRGUN Starf Landsbjargar, RKÍ og SÁÁ þarf ekki að kynna. Mikill hluti tekna félaganna kemur frá rekstri söfnunarkassa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM S ÍA 1 20 75 3 STÚDENTAGJAFIRNAR FÁST HJÁ JÓNI OG ÓSKARI Stúdentarósin 2012 úr 14 kt gulli kr. 19.900 Stúd asent tjarnan 2012 úr 14 kt gulli kr. 16.500 Stúd ntase tjarnan /Silfur kr. 7.900 www.jonogoskar.is / Sími 5524910 / Laugavegur / Smáralind / Kringlan Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar Borgarráð hefur heimilað fram- kvæmda- og eignasviði að kaupa tólf eftirlitsmyndavélar til að nota í miðborginni. Vélarnar kosta alls átta milljónir króna. REYKJAVÍKURBORG VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 28° 22° 22° 24° 22° 22° 19° 19° 24° 21° 25° 28° 32° 24° 23° 17° 17°Á MORGUN Víða fremur hægur vindur MÁNUDAGUR Hægur eða fremur hægur vindur 10 10 10 11 14 15 7 16 19 10 11 8 10 6 7 8 4 3 8 7 10 8 9 10 12 12 14 11 15 16 13 13 GRILLVEÐUR A-TIL Er þetta Vopna- fjörður eða Baku? Hiti að 23 stigum NA-til í dag og bjart veður. Úrkoma og strekkingur NV- og V-til en styttir upp í fyrramálið. Hæg- lætis veður og bjart víðast hvar á morg- un og á mánudag. Þó líkur á þokulofti við ströndina. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður ■ Rauði krossinn á Íslandi leggur áherslu á mikilvægi söfnunarkassa sem megintekjulindar félagsins sem gerir Rauða krossinum kleift að sinna verkefnum á sviði mannúðar og félagslegs öryggis auk lögbundinna verkefna á sviði neyðarvarna. ■ Tekjur af söfnunarkössum hafa verið megintekjulind félagsins allt frá árinu 1972 og ljóst er að ef Rauði krossinn yrði sviptur þessum tekjum án þess að nýjar tekjur kæmu til yrði að leggja meirihluta starfsemi félagsins niður. ■ Innanríkisráðherra [Ögmundur Jónasson] hefur boðað nýtt lagaumhverfi spilastarfsemi á Íslandi í lok árs 2012. Rauði krossinn á Íslandi óskar eindregið eftir því við innanríkisráðherra að ný lög tryggi áframhaldandi tekjulind félagsins og tryggi einnig jafnræði þeirra aðila á Íslandi sem notið hafa góðs af spilastarfsemi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.