Fréttablaðið - 26.05.2012, Page 20

Fréttablaðið - 26.05.2012, Page 20
26. maí 2012 LAUGARDAGUR20 Þ að hefur verið dálítið óljóst hvað þú hyggst sitja lengi. Þú talar um að þú bjóðir þig fram til fjögurra ára en biður fólk líka að sýna því skilning ef þær aðstæður mundu skapast að þú mundir vilja stíga til hliðar. Hvað áttu nákvæm- lega við með þessu? „Þessi áróður sem hefur gengið hér, að ég ætlaði bara að vera í tvö ár, er fyrst og fremst ættaður úr herbúðum andstæðinga. Hann var sá boðskapur sem Svavar [Hall- dórsson, eiginmaður Þóru Arnórs- dóttur] reyndi að koma á fram- færi í fréttum RÚV á sama tíma og verið var að mæla stuðning við Þóru og hún hafði veitt samþykki sitt til þess. Ég hef aldrei lýst því yfir að ég ætlaði bara að vera í tvö ár. Ég er að bjóða mig fram til fjögurra ára. Ég varð við óskum rúmlega þrjá- tíu þúsund Íslendinga sem töldu að á tímum mikillar óvissu á mörgum sviðum væri nauðsynlegt að hafa kjölfestu á Bessa stöðum; ekki mætti varpa forseta embættinu líka í þennan margbrotna pott óvissu sem því miður ríkir enn á mörgum sviðum. Þegar ég til- kynnti að ég ætlaði að verða við þessum óskum lýsti ég því jafn- framt yfir að ef tækist á næstu árum að leiða öll þessi stóru mál farsællega í höfn, nýja stjórnar- skrá, sambúð okkar við Evrópu, lausn á brýnum efnahagsmálum, stjórnarfar væri orðið stöðugt og fast í sessi, þá væri það mér ekki fast í hendi að sitja áfram sem forseti ef þjóðin vildi þá í krafti algjörlega nýrra aðstæðna velja sér forseta á grundvelli nýrrar stjórnarskrár. Það hafði ekkert með tvö ár að gera. Það var einfaldlega virðing fyrir vilja þjóðarinnar og í sam- ræmi við meginröksemdir þeirra sem hvöttu mig til þess að standa vaktina með þjóðinni áfram.“ Mundir þú þá bara meta það sjálfur hvort þessar aðstæður hefðu skapast og stíga til hliðar, eða þyrftu að koma til áskoranir frá fólkinu í landinu? „Það er auðvitað eftir öðru að þetta skuli vera aðalmálið sem Fréttablaðið hefur áhuga á að ræða í þessu viðtali.“ Þetta er ekki aðalmálið, en við byrjum á þessu. „Ég er búinn að svara þessu, þetta er alveg skýrt. Ég er að bjóða mig fram til fjögurra ára og hef lýst því alveg afdráttarlaust yfir við fjölda tækifæra. Þetta tal um tvö árin er liður í áróðri.“ Ég ætla samt að fá að spyrja þig enn einu sinni. Ég er ekki að tala um þessi tvö ár, ég veit að þú talaðir aldrei um þau, en þú talaðir um að þær aðstæður gætu skapast að þú mundir víkja fyrr. „Það vita allir að það er til umræðu ný stjórnskipun í landinu, það eru tillögur um nýja stjórnar- skrá, það eru tillögur á Alþingi um að það fari fram þjóðarat- kvæðagreiðsla í haust til undir- búnings þeirri stjórnarskrá. Allir vita að Alþingi nýtur ekki mikils trausts, innan við tíu prósent treysta Alþingi. Mikil upplausn er í flokkakerfinu í landinu, nýir flokkar hafa komið til sögunnar og óvissa ríkir innan sumra þeirra sem fyrir eru á þingi. Það vita allir um óvissuna í málefnum Evrópu; það leikur allt á reiðiskjálfi og sumir boða nýja kreppu. Í ljósi þessarar margþættu óvissu samþykkti ég að verða við óskum að standa vaktina með þjóðinni. Ef það skapast skilyrði, sem enginn veit, einhvern tímann á næstu fjórum árum, að það ríki logn og lausn hafi fengist í öllum þessum málum, þá sagði ég ein- faldlega að til greina kæmi, ef ríkur vilji væri á grundvelli nýs stöðugleika, farsæls stjórnarfars, nýrrar stjórnskipunar og festu í sambúð Íslands við aðrar þjóðir, að skipa málum á annan veg. Það er mjög ábyrg afstaða.“ Ertu þá að vísa til ríks vilja almennings í landinu? „Að sjálfsögðu. Ég hef alltaf fylgt þeirri reglu að forsetaembættið er fyrst og fremst þjónustustarf við fólkið í landinu. Það byggir á því að forsetinn hafi trúnað fólksins og verði við óskum þess. Þess vegna samþykkti ég kröfur tugþúsunda Íslendinga um að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um Ice- save, þótt ritstjórn Fréttablaðsins væri annarrar skoðunar, stjórnvöld í landinu væru annarrar skoðunar, allar ríkisstjórnir í Evrópusam- bandinu væru annarrar skoðunar sem og aðrir áhrifamiklir aðilar teldu að ég hefði átt að samþykkja Icesave-samninginn. Þar fylgdi ég vilja þjóðarinnar og nú blasir við að enginn vill halda því fram að það hafi verið röng ákvörðun að hafna Icesave 1. Þetta er skýrt dæmi um að forsetinn stendur vaktina með þjóðinni og er eina tryggingin sem hún hefur fyrir því að hún geti fengið málin í sínar hendur. Bessa- staðir eru samkvæmt íslenskri stjórnskipun síðasta stoppistöðin sem þjóðin getur leitað til.“ Leiddi fram mestu einingu í Evrópu Þú vísar til þess að margir hafi skorað á þig að gefa kost á þér áfram. Að sama skapi hafa verið gerðar kannanir sem sýna að það er minnihluti þjóðarinnar sem vill að þú sitjir áfram. „Það fer allt eftir því hvaða kann- anir þú skoðar. Það var könnun á Bylgjunni fyrir viku síðan, sem fjölmargir tóku þátt í…“ Þú veist það nú sjálfur sem fyrr- verandi stjórnmálafræði prófessor að það gildir annað um slíkar kannanir, sem er valkvætt að taka þátt í. „Ég ætla ekkert að fara að ræða við þig um einstakar kannanir. Ég er bara að benda á að það eru aðrar kannanir sem sýna annað. Í þeirri könnun kom í ljós að ég hafði um 57 prósenta fylgi og Þóra hafði 27 prósent. Könnun Félags- vísindastofnunar var netkönnun þar sem aðeins rúmur helmingur svaraði. Hún stóð yfir langt tíma- bil áður en ég hóf mína kosninga- baráttu. Við skulum lúta dómi fólksins í landinu. Það er þjóðin sem ákveður þetta mál en hvorki Fréttablaðið né skoðanakannanir.“ En þér finnst þetta ekki benda til þess að meirihluti fólks sé óánægður með þær breytingar sem þú – óumdeilt – hefur verið að gera á eðli forsetaembættisins og ímynd þess? „Þjóðaratkvæða greiðslurnar sýna annað. Fyrri þjóðarat- kvæðagreiðslan um Icesave sýndi að rúmlega níutíu prósent þjóðarinnar felldi samninginn. Stundum er talað um að forsetinn eigi að stuðla að þjóðareiningu. Þó að ákvörðun mín um Icesave væri umdeild í upphafi sýndi niður- staðan að hún leiddi fram mestu þjóðareiningu sem sést hefur í evrópsku ríki á síðari árum. Í seinni Icesave-atkvæða- greiðslunni felldi stór meirihluti þjóðarinnar samninginn. Í báðum þessum tilvikum hefur það sýnt sig, ekki með einhverjum skoðana- könnunum eða áliti fjölmiðlafólks, heldur í raunverulegri atkvæða- greiðslu fólksins í landinu, að meirihluti þjóðarinnar var ekki aðeins sammála ákvörðun for- setans heldur fagnaði því að fá þetta vald í sínar hendur. Það er ánægjulegt í aðdraganda þessara kosninga að nú vilja allir þessa Lilju kveðið hafa. Allir fram- bjóðendur eru á þeirri skoðun að það eigi að beita málskots réttinum. Enginn býður sig fram til þessa embættis á þeirri forsendu að það eigi ekki að gera. Málskotsrétturinn er þess eðlis að stór örlög þjóðarinnar geta ráðist af því hvort honum er beitt eða ekki. Í öðru lagi sýnir saga lýð- veldisins að þeir tímar geta komið að stjórnmálaflokkarnir í landinu ná ekki saman um myndun ríkis- stjórnar. Í tíð Sveins Björnssonar, Ásgeirs Ásgeirssonar og Kristjáns Eldjárn gegndu forsetarnir veiga- miklu hlutverki á upplausnar- tímum við myndun ríkisstjórna. Í þriðja lagi hefur það sýnt sig á síðustu árum, vegna hinnar alþjóð- legu fjölmiðlunar sem við búum við, að forsetinn getur verið, og þarf stundum að vera, öflugur málsvari Íslands á alþjóðlegum vettvangi í viðtölum við áhrifa- ríkustu fjölmiðla heims, hrekja þar ýmis falsrök sem beint er gegn Íslendingum og halda fram því sem er rétt og satt varðandi hinn íslenska málstað. Í fjórða lagi hefur það komið í ljós á undanförnum árum að for- setinn og forsetahjónin geta verið öflugir þátttakendur í að styrkja sókn einstaklinga, hópa, smáfyrir- tækja og annarra fram á veg, til dæmis með því að styrkja listir, menningu, hönnun, íslenska mat- argerð, ferðaþjónustu – fram- ganga Dorritar í þætti Mörthu Stewart hafði til dæmis gríðarleg áhrif – eða eins og ég hef gert á minni forsetatíð með því að leggja lið fjölmörgum fyrirtækjum, sem í upphafi voru lítil og vanmáttug. Það er langur listi, allt frá Latabæ, Marel, Össuri, CCP, Actavis, LS Retail, Marorku, Mentor og til fjöl- margra annarra aðila. Þessir fjórir þættir eru allir stórmál í verkum og skyldum for- setans. Þess vegna er ég algjör- lega ósammála því sem sumir halda fram í aðdraganda þessara kosninga, að forsetinn eigi fyrst og fremst að vera til hlés. Þegar menn eru farnir að leggja meiri áherslu á myndefni en efnis þætti máls og þá alvöru sem fylgir forsetakosn- ingum þá missa þeir sjónar á því að forsetaembættið er eitt af þeim lykiltækjum sem Íslendingar eiga á 21. öldinni til að gæta hagsmuna sinna.“ Stærsta mál lýðveldissögunnar Þú hefur einmitt sagt að það væri óeðlilegt ef forsetinn lýsti ekki skoðun sinni á jafnstóru máli og Evrópusambandsmálinu. En þetta er nú dálítið nýtt – forveri þinn lýsti ekki skoðun sinni á EES- málinu til dæmis. Er þetta hluti af breytingunum sem þú hefur verið að gera á embættinu? „Nei, þetta er ekki nýtt. Ásgeir Ásgeirsson, til dæmis, talaði opin- berlega í mikilvægum ræðum um nauðsyn varnarsamstarfs Íslands og Bandaríkjanna og beitti sér gegn stefnu ríkisstjórnar Her- manns Jónassonar um brottför bandaríska hersins. Þannig að það eru margvísleg dæmi um að forsetinn beiti sér í mikilvægum málum. Aðildin að Evrópusam- bandinu er stærsta mál Íslendinga frá lýðveldisstofnuninni á Þing- völlum 1944. Það snertir grund- vallarþætti okkar stjórn skipunar og fullveldisstöðu þjóðarinnar. Það er ekkert mál sem hefur eins afgerandi áhrif. Ég tel fullkom- lega óeðlilegt að forsetinn, æðsta tákn lýðveldisins og æðsti kjörni SÍÐASTA STOPPISTÖÐIN „Bessastaðir eru samkvæmt íslenskri stjórnskipun síðasta stoppistöðin sem þjóðin getur leitað til,“ segir forsetinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þögnin er himinhrópandi afstaða Evrópusambandið er stærsta mál í sögu íslenska lýðveldisins, að mati Ólafs Ragnars Grímssonar. Hann telur að forsetinn eigi ekki bara fara í gönguferðir og hugsa. Stígur Helgason hitti hann í vikunni og spurði meðal annars um skuldavanda heimilanna. Það er ánægjulegt í aðdraganda þessara kosninga að nú vilja allir þessa Lilju kveðið hafa. Allir frambjóðendur eru á þeirri skoðun að það eigi að beita málskotsréttinum. FRAMHALD Á SÍÐU 22 ÚR FRAMBOÐSYFIRLÝSINGU ÓLAFS 4. MARS „Það er þó einlæg ósk mín að þjóðin muni sýna því skilning þegar stöðug- leiki hefur skapast í stjórnskipan landsins og stjórnarfari og staða okkar í samfélagi þjóðanna hefur skýrst ákveði ég að hverfa til annarra verkefna áður en kjörtímabilið er á enda og forsetakjör fari þá fram fyrr en ella.“ 2012 FORSETA KOSNINGAR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.