Fréttablaðið - 26.05.2012, Page 36
26. maí 2012 LAUGARDAGUR36
A
ð kvöldi hvers dags
stendur Þormóð-
ur Dagsson sjálfan
sig að því að endur-
hlaða Youtube og
Facebook og gúggla
hljómsveitina sína, Tilbury, til að
skoða hvert þræðir veraldarvefsins
hafa spunnist þann daginn. Allt frá
því smáskífa með laginu Tenderloin
kom út hefur Tilbury notið ótrú-
legra vinsælda, þrátt fyrir að vera
fram að því með öllu óþekkt band.
Nú er platan Exorcise komin út og
enn kætast gagnrýnendur. „Það er
magnað að glænýtt band eins og
okkar komist strax í svo mikla spil-
un. Dreifing á tónlist er orðin ótrú-
lega hröð og maður getur fylgst
svo vel með öllum viðbrögðum
sjálfur. Að gera status á Facebook
og setja eitthvað á Youtube hefur
fullt að segja,“ segir Þormóður sem
er bæði hissa og stóránægður með
viðbrögðin. „Ég hef verið í hljóm-
sveitastarfi í áratug en aldrei upp-
lifað neitt þessu líkt.“
Í eyrum hvers og eins
Þormóður hefur leikið með ýmsum
hljómsveitum í gegnum tíðina,
til að mynda Jeff Who?, Skakka-
manage og Hudson Wayne. Þetta er
hins vegar í fyrsta sinn sem hann
er sjálfur driffjöðrin að baki sam-
starfinu. Hann semur flest lög og
alla texta á plötunni, auk þess að
syngja. „Þetta er í fyrsta sinn sem
ég hef farið af stað með mitt hug-
arfóstur og tekið það alla leið. En
áhrif frá öðrum böndum læðast inn
í þetta og svo koma strákarnir auð-
vitað með sinn hljóm líka.“
Hann segist sjálfur eiga erfitt
með að skilgreina hljómsveitina,
engin ein stefna eða hljómsveit
sé fyrirmynd hennar og meðlimir
hennar komi úr öllum áttum. „Ein-
hver sagði rafrænt þjóðlagapopp
en ég veit það ekki … ég held þetta
fari bara eftir eyrum hvers og eins.
Þetta er synthadrifið popp en á
sama tíma er hefðbundinn bragur
yfir þessu. Við höfum víðan bak-
grunn sem tónlistarmenn og ég
held að það skili sér á plötuna.“
Var orðinn leiður á bransanum
Segja má að Tilbury hafi orðið til
vegna þeirrar ákvörðunar Þormóðs
að draga sig út úr íslenskum tón-
listarbransa. Fyrir nokkrum árum
hætti hann að spila og fór að læra
umhverfis- og auðlindafræði við
Háskóla Íslands. „Ég var búinn að
vera í þessu í áratug og var orð-
inn leiður á þessu. Þetta er mikið
basl sem borgar lítið, eins og allir
þekkja sem eru í þessu. Á meðan ég
var að læra sá ég hins vegar að það
var ekki eins auðvelt og ég hélt að
slíta mig frá tónlistinni. Ég fór að
glamra á píanó og gítar, meðfram
lærdómnum, og þá urðu til lög sem
mig langaði að gera eitthvað með.“
Hann leitaði til Árna Hlöðvers-
sonar í FM Belfast og saman tóku
þeir upp þrjá rafræna grunna. Á
tónlistarhátíðinni Innipúkanum
árið 2009 bauðst Þormóði svo að
spila með þá grunna og fékk þá Örn
Eldjárn frænda sinn í lið með sér.
Þetta varð vísirinn að Tilbury, sem
samanstendur auk þeirra tveggja
af þeim Kristni Evertssyni, Ósk-
ari Guðmundssyni og Magnúsi
Tryggvasyni Elíasen. Hljómsveit-
in byrjaði að vinna í plötunni haust-
ið 2010 og lauk upptökum ári síðar.
„Við tókum þetta í skorpum, lágum
lengi yfir þessu, lögðum þetta svo
frá okkur og tókum það svo upp
aftur seinna. Ég er ánægður með að
við unnum þetta svona og er mjög
sáttur við afraksturinn.“
Kannski kemur skáldsaga
Sem fyrr segir semur Þormóður
flest lög og alla textana á plötunni.
Textagerð liggur vel fyrir honum,
enda hefur hún verið atvinna hans
og áhugamál um nokkurt skeið. „Ég
hef alltaf verið að fikta við texta-
gerð og skáldskap, en ekkert sem ég
hef farið lengra með. En þegar við
vorum komnir með músíkina vant-
aði texta og það var spark í rassinn
fyrir mig,“ útskýrir hann og bætir
við að hann hafi lengi haft áhuga á
hvers kyns skrifum. „Ég hef í og
með verið að fikta við smásagna-
gerð. Mig langar einhvern tímann
að skrifa skáldsögu, en mér finnst
ég þurfa ákveðinn þroska til þess.
Kannski kemur hún þegar ég hef frá
einhverju almennilegu að segja.“
Í dag vinnur Þormóður sem þýð-
andi hjá þýðingastofunni Skjali. Um
tíma ritstýrði hann Málinu, sem
kom út með Morgunblaðinu. Hann
sá líka um bílablað Morgunblaðs-
ins í tvö ár, á þeim miklu uppgangs-
tímum þegar kaup á nýjum bílum
voru á fjölmargra færi. „Þetta voru
góðir tímar, ég var alltaf á nýjustu
bílunum og fór stundum til útlanda
að prufukeyra bíla. Þetta var sér-
stakur heimur og gaman að kynn-
ast honum, þó hann hafi átt lítið
skylt við þá blaðamennsku sem ég
hef kynnst,“ rifjar hann upp.
Dúettinn Flugveikur og Morðóður
Það er Hugleikur Dagsson, eldri
bróðir Þormóðs, sem hannar plötu-
kápu Exorcise. Þormóður segir
hana hafa vakið mikla og verð-
skuldaða athygli, enda liggi heilmik-
il hugmyndavinna að baki henni,
rétt eins og nafni hljómsveitarinn-
ar. Tilbury er vísun í samnefnda
sjónvarpsmynd og smásögu Þór-
arins Eldjárn og um leið í íslensk-
an þjóðsagnaarf. „Bróðir minn var
með greinar í Grapevine lengi vel
þar sem hann var að draga upp
svona íslensk þjóðsagnaskrípi, sem
hafa ótrúlega lítið litið dagsins ljós.
Þarna er fullt af áhugaverðum kvik-
indum sem er ótrúlega einkennilegt
að hafi nokkurn tímann orðið til.
Tilberi er skrýtið fyrirbæri. Þetta
er einhvers konar kvikindi sem
konur áttu að hafa galdrað fram og
sent yfir á næstu bæi. Þar lagðist
það á búfénaðinn, saug úr honum
mjólkina og kom svo aftur heim og
ældi smjöri og rjóma hjá tilbera-
móðurinni. Það er einhver groddi
við þetta sem er heillandi. Þessi
saga, Tilbury, er mjög rík, þar sem
Þórarinn blandar þessu þjóðsagna-
fyrirbæri við það sem er að gerast
á Íslandi þegar það er að umbyltast.
Við vildum grípa þessa stemningu,
að einhverju leyti.“
Fantasíuþyrst systkini
Hugleikur og Þormóður voru saman
í hljómsveitinni Útburðir þegar þeir
voru yngri. Þeir mynda líka dúett-
inn Flugveikur og Morðóður sem
kemur fram í brúðkaupum og við
önnur sérstök tilefni. „Við flytjum
revíur, ég spila á píanó og hann
syngur,“ segir Þormóður og glott-
ir. Það má ímynda sér að þeir séu
ágætir bræður. „Við vorum leik-
félagar þegar við vorum litlir, en
það eru þrjú ár á milli okkar svo
við tvístruðumst aðeins á unglings-
árum eins og gengur. En við höfum
svo haldið áfram að leika eftir að
við urðum fullorðnir. Við erum fínir
bræður, náum vel saman og höfum
tvinnað okkar áhugamál saman,
hann með sína myndlist og ég í tón-
listarstarfinu.“
Þeir bræður eiga líka þrjár eldri
hálfsystur, sem þeir ólust ekki upp
með. Þær pössuðu bræðurna þó og
sinntu sínum systraskyldum, með
því að fara með þá í bíó og annað
skemmtilegt. Ein systranna er
bókmenntafræðingurinn Úlfhild-
ur Dagsdóttir sem þekkt er fyrir
aðdáun sína og þekkingu á vísinda-
skáldsögum og hrollvekjum. „Þessi
fantasíuþorsti er í okkur öllum en
hefur þróast á ólíkan hátt. Pabbi
er trúarbragðafræðingur og var
alltaf að lesa fyrir okkur úr goða-
fræðinni og þeim sagnaheimi. Svo
er mamma, Ingibjörg Hjartardóttir,
líka rithöfundur.“
Vissi ekki að hann gæti sungið
Áður en Þormóður fór að syngja
með Tilbury var hann óvanur því að
vera í forgrunni hljómsveita sinna,
heldur hélt sig til baka á trommun-
um. Hann hafði litla reynslu af söng,
að undanskildum tíðum ferðum á
Live Pub karókístaðinn. Freistandi
er að spyrja hvernig hann kann við
sig svona í forgrunni og hvar hann
hefur falið sína hljómþýðu rödd!
„Ég var voðalega smeykur á fyrstu
tónleikunum. Maður er svo ber-
skjaldaður þegar maður syngur.
Ég er frekar lágmæltur að eðlisfari
svo ég vissi ekki alveg hvernig þetta
myndi koma út,“ segir Þormóður.
Hann segist aldrei hafa haft nokkra
hugmynd um að hann gæti sungið,
ekki fyrr en Lóa Hlín Hjálmtýs-
dóttir [tónlistar- og myndlistarkona]
heyrði upptöku sem sameiginlegur
vinur þeirra átti í fórum sínum, þar
sem Þormóður söng. „Lóa var dug-
leg að hrósa mér fyrir sönginn og
sagði mér einhvern tímann að ég
ætti að taka upp meiri söng. Það var
mjög verðmæt viðurkenning fyrir
mig, því ég hafði aldrei sungið opin-
berlega eða fengið einhver viðbrögð
við mínum söng.“
Honum líður stöðugt betur á svið-
inu og þakkar það góðum spilafélög-
um. „Það er svo gott að hafa gott
band með sér. Þeir eru svo góðir
spilarar að ég þarf engar áhyggjur
að hafa af þeim. Ég get einbeitt mér
að því að klikka ekki sjálfur.“
Mig langar einhvern tímann að
skrifa skáldsögu, en mér finnst ég
þurfa ákveðinn þroska til þess.
Gúgglar sig á hverjum degi
Hljómsveitin Tilbury spratt fram á sjónarsviðið með lagið Tenderloin, sem tónlistarspekúlantar hafa keppst við að lofa. Heilinn á
bak við Tilbury er Þormóður Dagsson sem hefur komið víða við í íslenskum tónlistarheimi á undanförnum árum, en aldrei áður
samið tónlistina sjálfur og sungið. Hann sagði Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur að hann kynni sífellt betur við sig í forgrunni.
VIÐ SLIPPINN HEIMA Þormóður býr enn á æskuslóðum sínum við slippinn í Reykjavík, í gömlu verksmiðjuhúsi sem seinna var breytt í fjölbýlishús. Hann hefur lengi beðið
þess að Reykjavík verði almennileg hafnarborg og finnst það fyrst að rætast núna, þegar svæðið í kringum gamla slippinn er að taka á sig mynd. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Með fróðleik í fararnesti
LÍFRÍKI VÍFILSSTAÐAVATNS OG NÁGRENNIS
Á morgun 27. maí, kl. 14:00
Þátttaka er ókeypis – allir velkomnir
Ferðafélag Íslands og Háskóli Íslands halda áfram samstarfi sínu um
gönguferðir og á morgun, sunnudag, munu Hrefna Sigurjónsdóttir,
prófessor við Kennaradeild Háskóla Íslands, og Sigurður Snorrason,
prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, leiða gönguferð við Vífils-
staðavatn.
Ferðin er sérstaklega sniðin að börnum,
ungmennum og fjölskyldum þar sem skoð-
aður verður gróður, lífríki vatnsins og fuglar
sem verða á vegi okkar. Hægt verður að skipta
hópnum í tvennt svo að þeir sem vilja ganga
fái til þess tækifæri og yngri kynslóðin finnur
sér ýmis verkefni til dundurs á meðan.
Lagt verður af stað frá
bílastæðinu við Vífils-
staðavatn kl. 14 og er
gert ráð fyrir að
ferðin taki um
það bil tvær
klukkustundir.