Fréttablaðið - 26.05.2012, Side 74
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012106
Anna Margrét, 19 ára, stund-ar nám við Menntaskól-ann í Reykjavík. Síðastlið-
ið sumar fór hún ásamt kærustu
sinni á Interrail um Evrópu.
„Þegar keyptur er Interrail-
miði fæst aðgangur að lestum í 30
Evrópulöndum. Margir nýta sér
þessa miða, enda er þetta ódýr og
skemmtileg leið til þess að skoða
Evrópu. Erfitt er þó að skoða alla
álfuna í einni ferð en einn Interra-
il-miði gildir í einn mánuð.“
Gott að hafa vin
Anna segir að það sé mikilvægt
að hafa einhvern með sér á svona
löngu ferðalagi. „Ég kynntist fullt
af fólki en það er samt gott að hafa
einhvern sem maður þekkir vel og
treystir,“ segir Anna.
Hún ferðaðist í mánuð en ferða-
lagið byrjaði í Kaupmannahöfn.
Þaðan var farið til Berlínar. Þær
komu einnig við í Amsterdam,
Róm, Feneyjum, París, London
og Skotlandi. Margir Interrail-far-
ar gista í tjöldum í norðanverðri
Evrópu en þær voru svo heppnar
að fá að gista í heimahúsum hjá
vinafólki eða fjölskyldu í flestum
borgunum. Þær voru þó á farfugla-
heimilum í Róm og Feneyjum og
hóteli í Kaupmannahöfn.
Allir að prófa
Anna Margrét segir að það þurfi
allir að prófa að fara einu sinni
á Interrail en hún ætlar sér að
fara aftur í framtíðinni og fara þá
austar í álfuna.
„Það sem stóð upp úr er að við
vorum alltaf á á ferðalagi,“ segir
Anna, en henni fannst skrítið að
koma heim og vera ekki lengur
að ferðast næstum því daglega
og vera alltaf að hlakka til þess
að koma á næsta stað.
Góð reynsla
Þetta var í fyrsta skiptið sem Anna
fór í svona stórt ferðalag og segir
hún að þetta hafi verið skemmti-
leg reynsla og að hún hafi lært
mikið af henni. „Það mikilvæg-
asta er að hafa ferðafélaga sem
maður þekkir vel og getur kom-
ist að samkomulagi við um hvert
skal fara og hvað á að gera. Þegar
stærri hópar fara saman á Int-
errail getur komið upp ósætti ef
margir eru ósammála.“
Margt sem þarf að passa
Þegar farið er í Interrail ferðalag
þarf að ýmsu að hyggja og margt
sem þarf að passa upp á. „Mikil-
vægt er að taka nógu stóran bak-
poka með sér og ekki gleyma að
pakka þyngstu hlutunum í miðj-
una til þess að fara ekki illa með
bakið,“ segir Anna Margrét en
bakpokinn ætti aldrei að fara yfir
15 kíló.
„Gott er að taka með sér nokkra
plastpoka fyrir óhreinu fötin og
líka til þess að skipta niður dótinu
í bakpokanum. Aðeins ætti að
taka nauðsynlegar snyrti- og
hreinlætisvörur og ekki gleyma
naglaklippunum. Þá er gott að
vera með veski innan klæða til
að geyma passann, gjaldeyrinn,
kortin og öll mikilvæg skjöl.“
Ekki kaupa mikið
Á síðunni www.interrailer.com
er hægt að reikna út væntanlegan
kostnað á ferðinni en ferðin getur
verið mjög ódýr ef gist er í tjöld-
um og á gistiheimilum. „Þá er
mikilvægt að vera ekki að versla
of mikið. Þá þyngist bakpokinn
og lítill peningur gæti verið eftir
í lok ferðarinnar.“
gunnhildur@365.is
Allir ættu að prófa
að fara á Interrail
Menntaskólaneminn Anna Margrét Ólafsdóttir fór á Interrail ferðalag um
Evrópu í fyrrasumar. Hún segir það hafa verið frábæra upplifun.
Anna mælir með Interrail-ferðum fyrir alla. MYND/VALLI
Road trip“ er sívinsæll ferða-máti en þá er bíllinn hlað-inn og keyrt borga, bæja og
jafnvel landa á milli. Kostnaður-
inn við slíkar ferðir er æði mis-
jafn og getur auðveldlega hlaupið
upp úr öllu valdi. Hér eru nokkur
ráð til að spara aurinn.
Deilið bíl með öðrum
Víða um heim er orðið vin-
sælt að ókunnugir sam-
einist í bíla til að kom-
ast frá A til B og þess
vegna á milli landa. Til
eru fjölmargar heima-
síður þar sem hægt er
að komast í samband
við aðra ferðalanga á
sömu leið. Þannig má
spara sér umtalsverðan
bensín- og ferðakostn-
að auk þess sem það er
umhverfisvænna að ferðast
fleiri saman í stað þess að allir
séu á einkabíl. Þessi aðferð er
auk þess umtalsvert öruggari og
skilvirkari en að fara á puttan-
um. Dæmi um síður sem halda
utan um svona ferðir eru: eri-
deshare.com og craigslist.org.
Leigið ódýran bílaleigubíl
Það eru ekki allir jafn hrifn-
ir af því að fá far með öðrum
enda þarf að vera nokkuð skraf-
hreifinn. Þá getur verið betra að
veðja á bílaleigubíl ef eigin bíll
er ekki fyrir hendi. Til er aragrúi
af bílaleigum en mikilvægt er
að gera verðsam-
anburð. Skoð-
ið síður á borð við
hotwire.com
og expedia.
com.
Útbúið nesti
Með því að
útbúa eigið nesti er
hægt að komast hjá miklum út-
gjöldum enda vegasjoppur með
þeim dýrustu sem völ er á. Eins
eru miklar líkur á að mataræð-
ið á ferðalaginu verði fjölbreytt-
ara og heilsusamlegra. Gott er
að hafa kælibox meðferðis en
þannig getur maturinn dugað í
nokkra daga. Ef halda á í lang-
ferð er svo hægt að nesta sig
reglulega upp í góðri matvöru-
verslun.
Tjaldið eða veljið heimagist-
ingu
Einhvers staðar verður að
halla höfði en gistikostn-
aður er jafnan stór út-
gjaldaliður á ferða-
lögum. Til að halda
útgjöldunum í lág-
marki má flakka
á milli tjaldstæða
en þá gildir að eiga
góðan búnað. Eins
hefur færst í vöxt
að ferðalangar fái
að gista á sófanum hjá gestrisn-
um heimamönnum. Á vefnum
CouchSurfing.org er að finna
fólk sem býður gistingu á sóf-
anum víðs vegar um heim gegn
vægu gjaldi. Verði þessi leið fyrir
valinu gefst oft einstakt tæki-
færi til að kynnast heimamönn-
um, venjum þeirra og menningu
og oft verða til órjúfanleg vina-
bönd.
Veljið ókeypis afþreyingu
Peningarnir eru fljótir að hverfa
í skemmtigörðum á borð við Dis-
neyland. Farið á ströndina, í fjall-
göngu eða lautar-
ferð í opinberum
garði. Það er ávís-
un á frábæra
skemmtun.
Þá má þefa
upp alls kyns
ókeypis upp-
ákomur, götu-
hátíðir og tón-
leika og oft nægj-
anlegt að skoða heimasíður
tiltekinna bæja eða borga.
Kostnaðinum haldið niðri
Víða um heim sameinast ókunnugir í bíla til að komast frá A til B. NORDICPHOTOS/GETTY
ALMENN LEIÐSÖGN OG GÖNGULEIÐSÖGN
Leiðsöguskólinn sími: 594 4025
Draumastarfið í draumalandinu
LEIÐSÖGU
SKÓLINN
WWW.MK.IS
Ef þér finnst gaman að ferðast um Ísland og umgangast erlenda ferðamenn þá
gæti leiðsögunám verið fyrir þig.
Leiðsögunám er fjölbreytt og skemmtilegt og getur opnað dyr að áhugaverðu
og krefjandi starfi.
INNRITUN STENDUR TIL 31. MAÍ
Kannt þú erlend tungumál?
Bakpokinn ætti ekki að vera þyngri en
15 kíló.