Fréttablaðið - 26.05.2012, Síða 80
26. maí 2012 LAUGARDAGUR40
timamot@frettabladid.is
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og vinur,
HÁKON KRISTINSSON
vélsmiður
Innri-Njarðvík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði,
laugardaginn 19. maí.
Útförin fer fram frá Njarðvíkurkirkju, Innri-
Njarðvík, miðvikudaginn 30. maí kl. 14.00.
Þorsteinn Hákonarson Kristín Tryggvadóttir
Stefanía Hákonardóttir Sigurbjörn Júlíus Hallsson
Bryndís Hákonardóttir
Steinunn Hákonardóttir Elvar Ágústsson
Guðfinna Ingimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN JENS GUÐMUNDSSON
Hlíðarhúsum 3, 112 Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
sunnudaginn 20. maí sl. Útförin verður gerð
frá Áskirkju þriðjudaginn 29. maí kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Líf
styrktarfélag, www.gefdulif.is.
Solveig Margrét Þorbjarnardóttir
Þór Kristjánsson Ásdís M. Magnúsdóttir
Þrúður Jóna Kristjánsdóttir Sigmar Pétursson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SVAVAR KRISTJÓNSSON
rafverktaki
Eikjuvogi 17,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 29. maí og hefst athöfnin kl. 15.
Guðný Ásbjörnsdóttir
Guðný Svavarsdóttir Sveinn Óttar Gunnarsson
Jörundur Svavarsson Sif Matthíasdóttir
Erla Kristín Svavarsdóttir Sigríkur Smári Ragnarsson
Lilja Steinunn Svavarsdóttir Bjarni Jónsson
Auður Ólína Svavarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi,
KEN C. AMIN
Kópavogsbraut 47, Kópavogi,
sem lést þriðjudaginn 15. maí verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 30. maí kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarkort
Parkinsonssamtakanna á Íslandi (parkinson.is).
Sigurbjörg Jónsdóttir
Aron Árnason Sigríður Elín Þorkelsdóttir
Ervin Árnason Dagbjört Sigfinnsdóttir
Anita Árnadóttir Sigurjón Páll Kolbeins
Örn Árnason Margrét Þóra Einarsdóttir
Orri Árnason Fanney Elín Ásgeirsdóttir
Vishnu Amin Harpa Jósefsdóttir Amin
barnabörn og barnabarnabarn.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HREINN GUÐMUNDSSON
Túngötu 2, Sandgerði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
föstudaginn 18. maí.
Útförin fer fram frá Hvalsneskirkju,
fimmtudaginn 31. maí kl. 14.00.
Bryndís Eðvarðsdóttir
Sigurður Smári Hreinsson Unnur G.G. Grétarsdóttir
Berta Súsanna Hreinsdóttir Þórhallur Ingason
Guðrún Sonja Hreinsdóttir Markús Karl Valsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir minn, bróðir okkar,
mágur og frændi,
KRISTINN SIGURJÓN JÓNSSON
varð bráðkvaddur 19. maí sl. Útför hans fer
fram í Laugarneskirkju miðvikudaginn
30. maí kl. 13.00.
Jóhann Helgi Kristinsson
Magnús Jóhann Jónsson Dagmar Almerii Gotti
Helgi Ingólfur Jónsson Helga Jörgensdóttir
og frændsystkini.
Ástkær faðir okkar og vinur,
BJÖRGVIN HERMANNSSON
Húsgagnasmíðameistari,
Boðahlein 22, Garðabæ,
lést á Landspítala við Hringbraut,
fimmtudaginn 24. maí. Útför hans verður
gerð frá Háteigskirkju mánudaginn 11. júní
kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Landssamtök.
Vilhjálmur Pétur Björgvinsson
Hermann Björgvinsson
Sigríður Jóhannsdóttir
Hjartans þakkir færum við þeim sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
HILDIÞÓRS KR. ÓLAFSSONAR
Árskógum 8.
Anna Margrét Albertsdóttir
María Hildiþórsdóttir
Elísabet Hildiþórsdóttir Guðjón Baldursson
Þórhildur Guðjónsdóttir Margrét Anna Guðjónsdóttir
JÓNAS HALLGRÍMSSON skáld og náttúrufræðingur (1807-1845) andaðist þennan dag.
„Það er svo bágt að standa í stað, og mönnunum munar annað hvort aftur
á bak ellegar nokkuð á leið.“
„Við verðum með mjög skemmtilega
dagskrá því það er í raun tjaldað öllu
sem til er. Við fáum milli tuttugu og
þrjátíu flugvélar af öllum stærðum og
gerðum og á öllum aldri, allt frá því
elsta sem til er, til þess nýjasta. Þeim
verður stillt upp á Reykjavíkurflug-
velli, bak við Hótel Natura sem áður
hét Hótel Loftleiðir,“ segir Sigurður
Ingi Jónsson forseti Flugmálafélags-
ins sem stendur að flugdegi á annan
í hvítasunnu milli klukkan 12 og 16.
Upphaflega átti hann að vera í dag,
laugardag. „Við frestum öllu fram á
mánudag af öryggisástæðum,“ segir
Sigurður og útskýrir það nánar. „Sam-
kvæmt veðurspánni verður of hvasst
í dag til að vera með listflug og fall-
hlífarstökk“.
Einn merkasti sýningargripurinn
á vellinum verður Catalina-flugbátur
sem kominn er hingað til lands í tilefni
af 75 ára afmæli Icelandair og móður-
fyrirtækja þess. „Catalina-flugbátar
voru í notkun hérlendis frá 1944 til
1963, ótrúlegar flugvélar með mikið
flugþol. Fyrst komu þær bara með
sjóskíðum og gátu því einungis lent
á vatni en síðar voru þær framleidd-
ar með hjólastellum og sýningarvél-
in verður því á vellinum en ekki úti á
Skerjafirði. Mér skilst að hún sé mikill
dýrgripur sem búið er að gera upp frá
A til Ö,“ segir Sigurður Ingi.
Icelandair á rætur að rekja til ársins
1937 þegar Flugfélag Akureyrar var
stofnað. Það breytti nafni sínu í Flug-
félag Íslands árið 1940 og færði höf-
uðstöðvar sínar til Reykjavíkur. Árið
1979 sameinaðist öll starfsemi Flug-
félags Íslands og Loftleiða sem hafði
verið stofnað 1944 og eingöngu verið í
millilandaflugi frá árinu 1947 en Flug-
félag Íslands sinnti bæði innanlands-
og millilandaflugi frá 1945. Þá var
nafnið Icelandair tekið upp á alþjóð-
legum vettvangi en það hafði Flug-
félag Íslands notað yfir erlenda starf-
semi sína áður.
Þessi fortíð verður rifjuð upp í máli
og myndum í flugskýli 1 á Reykjavík-
urflugvelli sem er opið út á sýningar-
svæðið, að sögn Sigurðar Inga. „Þar
verða líka sett upp flugmódel, lista-
smíði eftir íslenska hagleiksmenn,
nákvæm eftirlíking af upprunaleg-
um vélum,“ segir hann. „Svo verða
fjölbreytt flugatriði svo sem listflug,
nákvæmnisflug á þyrlu, flugmódel,
svifflugur, svifvængir, í raun flest sem
flogið getur.“
Sigurður hvetur fólk til að mæta á
völlinn og hafa gaman af og getur þess
að allur aðgangur sé ókeypis.
gun@frettabladid.is
ICELANDAIR: FAGNAR 75 ÁRA AFMÆLI Á FLUGDEGI ANNAN Í HVÍTASUNNU
Dýrgripir koma við sögu og
verða til sýnis á vellinum
VIÐ GAMLA GERSEMI „Catalina-flugbátar voru í notkun hérlendis frá 1944 til 1963, þetta voru
ótrúlegar flugvélar með mikið flugþol,“ segir Sigurður Ingi Jónsson, formaður Flugmálafélags-
ins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þennan dag árið 1973 kom varðskipið
Ægir að breska togaranum Everton frá
Grimsby við veiðar um tuttugu sjómílum
innan landhelgi Íslands sem þá hafði
nýlega verið færð út í fimmtíu sjómílur.
Þetta gerðist norður af Grímsey. Togarinn
lagði á flótta og skipstjórinn hlýddi ekki
fyrirmælum varðskipsins um að stansa.
Ákvað þá skipherrann á Ægi, Guðmundur
Kærnested, að skjóta á togarann, eftir að
hafa varað skipstjórann við, fyrst púður-
skotum og síðan föstum skotum. Endaði
það með því að skotið var gat á skrokk
togarans neðan sjávarmáls og kom strax
mikill leki að honum en viðgerðarmenn
frá freigátunni Jupiter og dráttarbátnum
Statesman náðu að þétta skotgötin áður
en meira tjón hlaust af.
Mennirnir um borð voru aldrei í lífs-
hættu enda hafði Guðmundur ráðlagt
togaraskipstjóranum að láta skipverja sína
fara aftur á skipið, áður en skothríðin hófst.
ÞETTA GERÐIST: 26. MAÍ 1973
Hörkuátök á miðunum við Ísland
Merkisatburðir
1056 Fyrsti biskup Íslands, Ísleifur Gissurarson, er vígður til Skál-
holts.
1885 Garðyrkjufélag Íslands er stofnað að frumkvæði Hans
Schierbecks landlæknis.
1929 Þorsteinn, fyrsti björgunarbátur Slysavarnafélags Íslands,
er vígður í Reykjavík.
1941 Bresk flugvél ferst á jökli í fjalllendinu milli Eyjafjarðar og
Öxnadals og með henni fjórir menn.
1968 Hægri umferð gengur í gildi á Íslandi.
1983 Fyrsta ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tekur við
völdum.