Fréttablaðið - 26.05.2012, Side 86
26. maí 2012 LAUGARDAGUR46
krakkar@frettabladid.is
46
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Hver er þín fyrsta minning
Ragna? „Þegar ég fór til Spánar
með fjölskyldunni og fékk að
halda á ljónsunga og litlum apa.
Í þessari ferð fékk ég líka að
synda í sundlauginni og kafa
á botninn. Ég hef alltaf verið
mikill fiskur í mér og tók ekki
í mál að vera með kúta, kafaði
bara og kafaði.“
Varstu einhvern tíma óþæg?
„Nei, ég hef alltaf verið mjög
þæg og virt foreldra mína og
aðra í kringum mig.“
Hvernig fannst þér skemmti-
legast að leika þér? „Mér fannst
alltaf gaman að vera einhvers
staðar úti í náttúrunni, ganga
upp á fjöll, hoppa í lækjum, tína
skeljar og steina og hlaupa og
skoppa út um allt. Ég var mikið
í fimleikum og var alltaf að taka
dansspor, handahlaup, araba-
stökk og flikk alls staðar.“
Áttir þú uppáhaldsleikfang? „Ég
var mikið fyrir Barbie og Pony
þegar að ég var lítil.“
En gæludýr? „Já, ég hef átt fiska,
hamstra, páfagauka, hunda og
ketti og held mest upp á hunda.“
Spilarðu stundum á spil? „Já,
ég hef mjög gaman af spilum
og kann líka nokkra spilagaldra
sem mér finnst gaman að gera
fyrir fólk.“
Var mikil íþróttaiðkun á æsku-
heimilinu? „Já, við bróðir minn
höfum alltaf verið mikið í
íþróttum. Ég æfði ballet, dans,
fimleika og badminton og tók
að lokum badmintonið fram yfir
annað.“
Hvernig fékkst þú áhugann?
„Mamma og pabbi búa svo
nálægt TBR (Tennis- og bad-
mintonfélagi Reykjavíkur).
Bróðir minn, sem er þremur
árum eldri en ég, var byrjaður
að æfa á undan mér, ég elti hann
á fyrstu æfinguna mína, þá átta
ára gömul. Við vorum síðan í
þessu saman í mörg ár, urðum
til dæmis Íslandsmeistarar í
tvenndarleik saman. Það var
alltaf svo skemmtilegt í TBR að
þannig kom áhuginn.“
Hvað æfir þú marga klukkutíma
á dag? „Tvisvar á dag í 100-120
mínútur í senn á virkum dögum,
einu sinni á laugardögum og tek
frí á sunnudögum.“
Hefur þú ferðast mikið? „Já,
ég hef komið til 42 landa og
að minnsta kosti 88 borga.
Ég hef farið í sex heimsálfur,
allar nema Suðurskautslandið.
Ástralía og Nýja Sjáland eru
með flottustu löndunum.“
Hvar finnst þér fallegast á
Íslandi? „Í Ásbyrgi og ég á góðar
minningar úr Þjórsárdalnum.“
Finnur þú mikið fyrir frægð-
inni? „Nei, og er mjög fegin
að vera ekki stöðugt á milli
tannanna á fólki en mér finnst
gaman að vera þekkt fyrir
árangur minn í badminton og
upplifi það sem mjög jákvæðan
hlut.“
Hlakkarðu til að fara á Ólymp-
íuleikana í London? „Já, alveg
ótrúlega mikið. Eitt af því
skemmtilegasta sem ég hef
upplifað í lífinu var að vera
á Ólympíuleikunum í Peking
árið 2008. Þegar maður hefur
unnið svona rosalega vel fyrir
því að ná árangri þá er ekkert
skemmtilegra en að njóta
afrakstursins.“
HEF GAMAN AF GÖLDRUM
Badmintonmeistarinn Ragna Björg Ingólfsdóttir gekk á fjöll, hoppaði í lækjum og
fór í arabastökk og flikk hvar sem var þegar hún var barn. Nú æfir hún badminton
fjóra tíma á dag enda ætlar hún á Ólympíuleikana í London í sumar.
ÍSLANDSMEISTARINN „Ég æfði ballett, dans, fimleika og badminton og tók að
lokum badmintonið fram yfir annað,“ segir Ragna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Amma: „Hvernig gekk honum Gísla litla á söguprófinu?“
Mamma: „Oh, hálf illa en það var ekki honum að kenna, strák-
anganum. Kennarinn var að spyrja hann um það sem gerðist
löngu áður en hann fæddist.“
Addi litli: „Ég orgaði ekkert þegar ég fór til tannlæknisins.“
Pabbi: „Frábært, vinur minn. Þú mátt eiga þennan fimm
hundruð kall fyrst þú varst svona duglegur. Var þetta ekki sárt?“
Addi litli: „Nei, nei, tannlæknirinn var ekki heima.“
Tveir drengir áttu í erjum og flugust á. Gamall maður kom þar
að og ávarpaði þá. „Hættið þið nú að fljúgast á drengir. Hafið
þið ekki heyrt að maður á að elska óvini sína?“ „Jú,“ svaraði
annar. „En við erum ekki óvinir, við erum bara bræður.“
Á Vísi er hægt að horfa
myndskreyttan upplest
úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
á
ur
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928
í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað.
Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna hollenska meistarans
G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.
Eurovision-söngvakeppnin fer fram í kvöld í 57. sinn eins og alþjóð veit. Krakkasíðan setti
saman nokkrar spurningar um þessa sívinsælu keppni.
VEISTU MIKIÐ EÐA LÍTIÐ UM EUROVISION?
1. Gleðibankinn 2. Cross fit 3. Lipstick 4. Stattu upp 5.
Sandra Kim var 14 ára þegar hún sigraði 1986 6. Í annað
sætið árið 1998 og 2009 7. 26 8. Gréta Salóme 9. Fjórum
sinnum. 1974, 1984, 1991 og 1998 10. BakúSVÖR
1. Hvað hét fyrsta lagið sem
Íslendingar sendu í Eurovision
og hvaða ár var það?
2. Hvaða íþrótt leggur Greta Sal-
móme stund á?
3. Hvað hét lagið sem tvíburarnir
í Jeward sungu í fyrra?
4. Hvaða lag lenti í öðru sæti í
undankeppninni á Íslandi í ár?
5. Hvað heitir yngsti keppandi
sem hefur unnið Eurovision og
hvað var hann gamall?
6. Hversu langt hefur Ísland náð
í Eurovision?
7. Hvað keppa mörg lönd í
úrslitakeppninni í kvöld?
8. Hver samdi íslenska
Eurovision- lagið í ár?
9. Svíar þykja sigurstrangleg-
ir í ár, hversu oft hafa þeir
unnið keppnina til þessa?
10. Keppnin í ár er hald-
in í Aserbaídsjan, hvað
heitir höfuðborgin þar?
HAFDÍS HULD leikur lög af nýju plötunni sinni Vögguvísur á Café Flóru
í Grasagarðinum á mánudag, annan í hvítasunnu. Tónleikarnir hefjast
klukkan fjögur og er smáfólk sérstaklega boðið velkomið.