Fréttablaðið - 26.05.2012, Side 92
26. maí 2012 LAUGARDAGUR52 52
menning@frettabladid.is
Elka Björnsdóttir verka-
kona hélt dagbók á árunum
1915-1923. Dagbókin, sem
er merkileg heimild um
lífið í Reykjavík á þessum
tíma, kom nýverið út, 15
árum eftir að hugmyndin
um útgáfuna kviknaði.
Dagbók Elku er fimmtánda bindi
í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar
alþýðumenningar sem Háskólaút-
gáfan hefur gefið út undan farin
ár. Sigurður Gylfi Magnússon
sagnfræðingur sá um útgáfu dag-
bókarinnar ásamt Hilmu Gunnars-
dóttur sagnfræðingi. Hann segir
dagbókina stórmerkilega heimild.
„Þetta verk hefur lengi verið þekkt
og notað af fræði mönnum sem
skrifað hafa um einstaka þætti
þess, nú hefur hann verið settur á
prent og er þannig orðinn aðgengi-
legur öllum sem hafa áhuga á. Og
hann á fullt erindi til almennings.
Textinn er yndislegur, hann er svo
kjarnyrtur og fullur af skemmti-
legum orðum og orðatiltækjum að
það er unun að lesa hann,“ segir
Sigurður Gylfi sem hefur lengi
haft hug á því að koma dag bókinni
á prent. En um hvað er Elka að
skrifa? „Þessi dagbók er sem
gluggi inn í fortíðina. Hún segir frá
hversdagslífi sínu, baráttu fyrir
einföldum hlutum eins og því að ná
í mat, fá húsnæði og vinnu. Það er
ótrúlega sterkur hversdags taktur
í bókinni en hún veitir líka sýn á
atburði sem eru þekktir í sögunni,
til dæmis Reykjavíkurbrunann
árið 1915 og Kötlugosið 1918. Ég á
að heita sérfræðingur í 19. öldinni
og fyrri hluta þeirrar 20. og full-
yrði að ég hef aldrei komist jafn
nálægt henni eins og í gegnum
þessa bók.“
Elka var verkakona í Reykjavík,
einn af stofnendum verkakvenna-
félagsins Framsóknar og fyrsti
ritari þess og stundaði margs konar
félagslíf. Segir Sigurður Gylfi það
magnað hve mörg spjót hún hafði
úti til að afla sér þekkingar. „Hún
sækir til dæmis fyrir lestur um
jóga og gengur í bókmenntafé lagið
en þar var hún eina konan. Hún
umgekkst raunar mikið af lista-
mönnum, bróðir hennar vann fyrir
mynd höggvarana Ríkharð Jónsson
og Einar Jónsson og dagbókin er í
raun frábær heimild um hvað hún
var skapandi og um þá innsýn sem
hún hefur í skapandi heim lista-
manna.“
Elka glímdi alla tíð við fátækt
en henni fylgdi heilsuleysi sem
dró Elku til dauða 43 ára gamla.
Ári áður en hún lést hætti hún að
halda dagbók. Skrif hennar rötuðu
á handritadeild Landsbóka safnsins
fyrir áratugum síðan. Sú hug-
mynd að gefa þau út kviknaði fyrir
fimmtán árum en skriður komst á
útgáfumál fyrir nokkrum árum
og nú er bókin komin út. „Þetta
er hin besta sumarlesning,“ segir
Sigurður Gylfi að lokum.
sigridur@frettabladid.is
Dagbók Elku er gluggi inn í fortíðina
SIGURÐUR GYLFI MAGNÚSSON Dagbók Elku er gluggi inn í fortíðina.
„Áðan sá ég út um gluggann minn, það sem aldrei hefur sést á Íslandi fyrr,
og fyrir 20-25 árum og jafnvel seinna kom fáum til hugar að nokkurn tíma
mundi ske hjá mannkyninu og sízt hér: Það voru menn á flugi í loftinu. Ég
sá reyndar engan manninn, en aðeins vængina eða vélina sjálfa sem bar þá
áfram, og það svo fimlega með alskonar sveiflum, mjúklegum byltingum,
eins og þegar vel fleygur fugl leikur sér í loftinu.“
Dagbók Elku: 8. september 1919.
MENN Á FLUGI Í LOFTINU
Nemendur á fyrsta ári í Ljós-
myndaskólanum að Hólmaslóð
6 opna sýningu í dag klukkan
15 í húsakynnum skólans. Sýn-
ingin er fjölbreytt enda um
afrakstur vetrarins að ræða hjá
nemendunum, 19 að tölu.
Á sýningunni getur að líta tísku-
myndir, barnamyndir, landslags-
myndir, gróðurmyndir og myndir
af einbúum, utangarðsfólki og
söfnurum. Auk þess má sjá sifja-
spell og umhverfismál túlkuð
með ljósmyndatækninni.
Ljósmyndaskólinn, sem áður
bar nafnið Ljósmyndaskóli Sissu,
hefur verið starfræktur frá árinu
1997. Nám við skólann hlaut
viður kenningu Menntamálaráðu-
neytisins árið 2009 og lánshæfi
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
árið 2010.
Sýningin stendur til 3. júní og
er opin mánudaga til föstudaga
frá klukkan 16 til 20 og á laugar-
dögum og sunnudögum frá 14 til
18.
Afrakstur
vetrarins
EIN MYNDANNA Þessa tók Eygló Gísla-
dóttir, nemandi í Ljósmyndaskólanum.
Styrkt af Reykjavíkurborg og Tónlistarsjóði
Stjórnandi: Geir Lysne
Gestur hljómsveitarinnar verður tón-
skáldið og stjórnandinn Geir Lysne frá
Noregi, en hann mun stjórna heilli dag-
skra eigin verka. Geir hefur vakið mikla
athygli og þykir ýmsum kveða við nýjan
tón í skrifum hans fyrir stórsveit. Geir
Lysne hefur m.a. stjórnað ýmsum af
helstu stórsveitum Evrópu, þ.m.t. Þýsku
og dönsku útvarpsstórsveitunum.
& GEIR LYSNE
20 ÁRA AFMÆLI
Miðar á harpa.is og í miðasölu Hörpu
HARPA / Kaldalón
sunnudag. 27. maí kl. 14:00
Miðaverð kr. 2.500 / 2.000Styrkt af
STÓRSVEIT
REYKJAVÍKUR
Ferskir vindar frá Noregi
NÚ FER HVER AÐ VERÐA SÍÐASTUR að skoða sýningarnar Fingramál og
Sjálfsagðir hlutir í Hönnunarsafni Íslands, en hvítasunnudagur, 27. maí, er síðasti dagur þeirra.
Þann dag klukkan 14 verður Harpa Þórsdóttir forstöðumaður með leiðsögn um sýninguna.