Fréttablaðið - 26.05.2012, Page 99

Fréttablaðið - 26.05.2012, Page 99
LAUGARDAGUR 26. maí 2012 59 Fyrirsætan Bar Rafaeli, fyrrver- andi kærasta leikarans Leonar- dos DiCaprio, hefur kvartað yfir því að karlmenn tali sjaldan við hana að fyrra bragði. „Við skulum bara segja það hreint út. Það reynir aldrei neinn við mig eða daðrar við mig. Það er í raun mjög dapurlegt,“ sagði hún við Conan O´Brien. „Það virkar vel ef karlar koma til mín. Vonandi á það eftir að gerast oftar.“ Rafaeli er mjög hrifin af karlmönnum með flottar tennur. „Þeir verða að hafa æðislegt bros og virkilega hvítar og flottar tennur.“ Aldrei reynt við Rafaeli BAR RAFAELI Fyrirsætan segir að karl- menn tali sjaldan við hana að fyrra bragði. Leikarinn Brad Pitt er mjög stoltur af nýjustu mynd sinni Killing Them Softly. Myndin átti þátt í að efla kvikmyndafram- leiðslu í Louisiana í New Orleans eftir fellibylinn Katrinu sem gekk þar yfir árið 2005. Myndin var tekin upp í New Orleans og var Pitt mjög ánægður með gang mála í borg- inni. „Ég er ánægður með að hafa tekið upp myndina þar vegna þess að maður er að styðja borgina í leiðinni. Það kemur mikill peningur inn í borgina þegar svona mynd er tekin upp,“ sagði leikarinn á Cannes- hátíðinni. Stoltur af nýrri mynd ÁNÆGÐUR Brad Pitt er mjög ánægður með nýju myndina sína. Robbie Williams á von á dóttur með eiginkonu sinni Ayda Field. Söngvarinn er mjög spenntur og er þegar farinn að skipuleggja framtíðina. „Ég ætla að kenna henni fótbolta, karate og hnefa- leika,“ sagði Williams, sem er 38 ára. „Líf mitt er yndislegt núna.“ Á sunnudaginn tekur hann þátt í fótboltaleik til að safna pen- ingum fyrir Barnahjálp Sam- einuðu þjóðanna, Unicef. Hann segist vera ákafari en áður í að taka þátt í góðgerðarmálum fyrir börn. „Með því að verða pabbi hefur viðhorf mitt breyst.“ Williams á von á dóttur DÓTTIR Á LEIÐINNI Popparinn Robbie Williams á von á dóttur. Bíó ★★★★ ★ Men in Black 3 Leikstjórn: Barry Sonnenfeld Leikarar: Will Smith, Tommy Lee Jones, Josh Brolin, Jemaine Clement, Michael Stuhlbarg, Emma Thompson, Will Arnett Árið 1997 sló kvikmyndin Men in Black rækilega í gegn, en þar fylgdumst við með leyniþjónustu- mönnunum J (Will Smith) og K (Tommy Lee Jones) lenda í ýmsum ævintýrum og nokkrum árum síðar kom framhalds myndin, Men in Black 2, sem naut einnig vin- sælda. Síðan er liðinn heill ára- tugur og þessar geðþekku pers- ónur hafa fallið í gleymskunnar dá. Í þriðju myndinni, sem kemur nú eins og skrattinn úr sauða- leggnum, sleppur i llræmdi morðinginn Boris skepna úr fang- elsi á tunglinu og ferðast með tímavél aftur til ársins 1969 þar sem hann kemur K fyrir kattar- nef, rétt áður en hann stingur Boris í steininn. Þegar J fær fregnir af því að félagi hans hafi dáið fyrir rúmlega 40 árum eltir hann skepnuna til 7. áratugarins og reynir að breyta atburðarásinni, og fær að lokum hjálp frá sjálfum K sem ungum manni (Josh Brolin). Þristurinn er skemmtileg við- bót við seríuna og er betri fram- haldsmynd en önnur myndin. Will Smith er fæddur í sitt hlutverk og töffaraskapur Tommy Lee Jones hefur ekkert minnkað þó leikarinn sé nú á sjötugsaldri. Josh Brolin er ótrúlegur sem hinn ungi K og nær töktum persónunnar svo vel að á köflum grunaði mig að einhver tölvubrögð væru í tafli, en svo er víst ekki. Ég á erfitt með að setja mig í spor áhorfenda sem ekki hafa séð fyrri myndirnar, en fyrir okkur sem þekkjum persónurnar og sögusviðið er Men in Black 3 prýðileg skemmtun. Brellurnar eru flottar og þrívíddin óvenju safarík, en það er húmorinn og léttleikinn sem gleðja mest. En ekki hvað? Það hefði þó alveg mátt dusta rykið af gamla titil- laginu. Allavega hafði ég búið mig undir að gerast jiggy með ferska prinsinum. Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Afbragðs tímaflakk. Svartklæddu mennirnir hafa engu gleymt. Aftur til 1997 Í HANDHÆG UM UMBÚÐUM NÝJUNG Þræddir, bræddir, snæddir. Í salatið, í nestisboxið, á ostapinnann og út í heita rétti. Það eru nánast engin takmörk fyrir möguleikum ostakubbanna. H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.