Fréttablaðið - 26.05.2012, Síða 102
26. maí 2012 LAUGARDAGUR62
sport@frettabladid.is
Eiríkur Stefán Ásgeirsson íþróttafréttamaður
ÍSLENSKA KVENNALANDSLIÐIÐ Í KÖRFUKNATTLEIK tryggði sér brons-
verðlaun á Norðurlandamótinu. Stelpurnar spiluðu tvo landsleiki í gær. Töpuðu fyrst stórt fyrir
Svíum en lögðu svo Dani, 72-67, en sá sigur dugði fyrir bronsverðlaunum. Stelpurnar spila við
Finnland í dag og sigur þar gæti fleytt þeim í annað sæti mótsins en bronsið er tryggt.
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
skrifar frá Köln
HANDBOLTI Um helgina ráðast úr-
slitin í Meistaradeild Evrópu í Köln
í Þýskalandi. Fjögur bestu félags-
lið Evrópu eru þar saman komin
og má reikna með að boðið verði
upp á handboltaveislu í allra hæsta
gæðaflokki. Íslenskir handbolta-
unnendur eiga sér í lagi von á góðu
þar sem tvö af liðunum fjórum eru
þjálfuð af Íslendingum og alls sex
íslenskir leikmenn spila í þremur
þeirra. Aðeins spænska stórveldið
Atletico Madrid, áður Ciudad Real,
getur komið í veg fyrir að Ísland
eignist Evrópumeistara um helgina
– og það fleiri en einn.
Þýsku liðin Kiel og Füchse Berlin
eru bæði þjálfuð af Íslendingum og
mætast í fyrri undanúrslitaviður-
eigninni í dag. Alfreð Gíslason
þjálfar Kiel og Aron Pálmarsson
spilar með liðinu. Hjá Berlínar-
refunum eru þeir Dagur Sigurðs-
son þjálfari og skyttan öfluga Alex-
ander Petersson.
Danska ofurliðið AG frá Kaup-
mannahöfn er með fjóra íslenska
leikmenn innanborðs – þá Arnór
Atlason, Ólaf Stefánsson, Guðjón
Val Sigurðsson og Snorra Stein
Guðjónsson. Þeir fá það verkefni
að ryðja Madrídarbúum úr vegi í
seinni undanúrslitaleiknum í dag.
Aron Kristjánsson, þjálfari
Hauka, hefur þjálfað bæði í Dan-
mörku og Þýskalandi og hefur
fylgst vel með gangi mála í
Meistara deildinni í vetur. Hann er
vitanlega spenntur fyrir helginni.
„Þetta verður algjör veisla og sú
staðreynd að svo margir Íslend-
ingar verða með um helgina er
frábær vitnisburður um íslenskan
handbolta,“ segir Aron.
Dagsformið skiptir miklu
Í uppgjöri þýsku liðanna reikna
sjálfsagt flestir með sigri Kiel
enda liðið búið að vinna alla leiki
sína í deild og bikar heima fyrir
og þegar tryggt sér sigur í báðum
keppnum. En Aron segir það ekki
sjálfgefið.
„Kiel ynni sjálfsagt sjö af tíu
leikjum þessara liða en þar sem
þetta er bara einn leikur á óháðum
velli er allt opið. Kiel er klárlega
með sterkara lið en ef Dagur nær
fram algjörum toppleik frá sínum
mönnum – sérstaklega í vörn og
markvörslu – eiga þeir möguleika,“
segir Aron sem reiknar þó með
sigri Kiel.
„Í stuttu máli sagt er Alfreð
með stórkostlega leikmenn í öllum
stöðum. Liðið er vel skipulagt,
leikur vörn sem hefur valdið and-
stæðingum sínum erfiðleikum og
ég tel líklegast að þeir vinni í dag.
Stærsti óvissuþátturinn er dags-
formið og hvernig leikmenn muni
mæta stemmdir til leiks. Ef ein-
hver veikleiki er á þessu liði, þá er
það að þeir hitti einfaldlega ekki á
sinn dag.“
Öflug liðsheild í AG
Aron ber miklar taugar til danska
handboltans enda var hann þar
lengi bæði sem leikmaður og
þjálfari. AG er líklega eitt allra
besta handboltalið sem Danir hafa
átt lengi og hefur komið eins og
stormsveipur á sjónarsviðið síðan
skartgripasalinn Jesper Nielsen
gaf það út fyrir nokkrum árum
að hann ætlaði sér að byggja upp
frá grunni besta handboltafélag
heims.
„AG er mjög vel mannað en
þrátt fyrir það hefur komið á
óvart hversu langt það hefur náð
á skömmum tíma. Þetta er í raun
nýtt lið en leikmennirnir hafa náð
að búa til sterka heild á skömmum
tíma. Ber það vitni um hversu
miklir liðsmenn Skandinavar eru,“
segir Aron.
Íslendingarnir fjórir eiga ekki
síst stóran þátt í velgengninni
sem sást einna best á því að þeir
skoruðu 22 af 33 mörkum AG í
síðari leiknum gegn núverandi
Evrópumeisturum Barcelona, sem
AG sló út í fjórðungsúrslitum.
Landsliðsreynslan skilaði sér
„Það var stórkostlegt að fylgjast
með þeim. Samvinna þeirra í
landsliðinu til margra ára skilaði
sér heldur betur fyrir AG og er
ekki ólíklegt að svipað verði upp
á teningnum um helgina.“
Aron hefur trú á AG í dag,
þrátt fyrir að andstæðingurinn sé
ógnar sterkur. „AG er með mjög
fjölhæfa leikmenn í vörn sem geta
spilað ýmsar útfærslur af 6-0 vörn.
Svo í sókninni eru íslensku strák-
arnir áberandi með besta leik-
mann heims, Mikkel Hansen, sér
við hlið. Þeir standa vel að vígi og
eiga góðan séns. Atletico er forn-
frægt lið með marga öfluga leik-
menn og afar klókan þjálfara sem
hefur unnið þessa keppni margoft
áður.“
Undanúrslitaleikirnir hefjast
klukkan 13.15 og 16.00 í dag og
verður ítarlega fjallað um leiki
helgarinnar á íþróttavef Vísis.
Bronsleikurinn og sjálfur úrslita-
leikurinn fara svo fram á morgun.
DANIRNIR EIGA GÓÐAN SÉNS
Aron Kristjánsson reiknar með spennandi handboltahelgi þegar uppgjör fjögurra bestu liða Meistara-
deildar Evrópu þetta tímabilið hefst í Köln í dag. Tveir íslenskir þjálfarar og sex landsliðsmenn verða í eld-
línunni með sínum liðum, THW Kiel, AG Kaupmannahöfn og Füchse Berlin.
ÞEKKIR ÞETTA ALLT SAMAN Ólafur Stefánsson er búinn að vinna Meistaradeildina
fjórum sinnum og verður í lykilhlutverki hjá AG um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Íslenskir handboltaunnendur
eru góðu vanir eftir frábæran
árangur strákanna okkar síðustu
árin og velgengni þeirra með
félagsliðum sínum í bestu og
stærstu deildum heims.
Nú um helgina fara fram loka-
úrslitin í Meistaradeild Evrópu og
í þetta sinn eiga Íslendingar alls
átta fulltrúa í þremur liðum af
fjórum sem komust í undanúr slitin
- sex leikmenn og tvo þjálfara. Það,
eitt og sér, er ótrúlegt afrek.
Í dag eigum við líklega tvo
bestu handboltaþjálfara heims.
Alfreð Gíslason hefur gert nánast
ómennska hluti með Kiel á tíma-
bilinu enda liðið þegar unnið tvö-
falt heima fyrir, auk þess sem
liðið er enn með fullt hús stiga í
deildinni.
Kraftaverkamaðurinn Dagur
Fyrir tveimur árum hefðu afar
fáið giskað á að Füchse Berlin
yrði með allra bestu liðum Evr-
ópu en það virðast nánast engin
takmörk fyrir því hverju Dagur
Sigurðsson getur náð úr sínu liði,
þrátt fyrir að hafa úr umtalsvert
minni fjárráðum að spila en allra
stærstu félög Evrópu.
Þessir tveir þjálfarar munu
etja kappi í dag og verður ekki
síður forvitnilegt að fylgjast með
taktískri baráttu þjálfaranna
af hliðar línunni en baráttu leik-
manna á vellinum.
Þá er ekki annað hægt en að
minnast á þá staðreynd að Ólafur
Stefánsson getur nú unnið sinn
fimmta Evrópumeistaratitil og
það með þriðja félaginu frá jafn-
mörgum löndum. Lið hans, AG
frá Danmörku, ætlar sér að sigra
heiminn og ef einhver getur leitt
þá til sigurs í þeirri baráttu er það
Ólafur. Tölurnar tala sínu máli –
hann er alltaf bestur þegar mest
á reynir og virðist aldrei njóta sín
betur en í úrslitaleikjum.
Síðasta tækifærið til þess að
fylgjast með Ólafi?
Ólafur er á 39. aldursári og hefur
ekki enn gefið út hvort hann ætli
að taka eitt ár til viðbótar með AG
eða ekki. En víst er að þetta er eitt
síðasta tækifærið til að sjá hann
í essinu sínu gegn þeim bestu í
heiminum og vissara að láta það
ekki fram hjá sér fara.
Einstakur íþróttamaður Ólafur
og einn sá allra besti í íþróttasögu
Íslands.
Íslendingar hafa, eins og eðli-
legt er, fyrst og fremst glaðst
yfir góðum árangri strákanna
okkar á stórmótum í handbolta og
notið þess að eiga landslið í allra
fremstu röð í heiminum.
Handboltaunnendur ættu þó
ekki að láta leiki helgarinnar
fram hjá sér fara og njóta þess að
sjá hvað okkar frábæru full trúar
hafa fram að færa á því allra
stærsta sviði sem félagsliðahand-
bolti hefur upp á að bjóða.
Þér er boðið í stærstu veislu ársins
SIGURSTRANGLEGIR Strákarnir hans
Alfreðs Gíslasonar hjá Kiel eru líklegir
til afreka eftir að hafa ekki tapað leik í
Þýskalandi í vetur. NORDIC PHOTOS/BONGARTS
Pepsi-deild kvenna:
Stjarnan-KR 3-1
1-0 Edda María Birgisdóttir (19.), 2-0 Ashley Bares
(50)., 2-1 Alma Rut Garðarsdóttir (62.), 3-1 Gunn-
hildur Yrsa Jónsdóttir (66.).
STAÐAN:
Breiðablik 3 2 1 0 5-1 7
Þór/KA 3 2 1 0 5-2 7
FH 3 1 1 1 6-4 4
Valur 3 1 1 1 7-6 4
Fylkir 3 1 1 1 2-3 4
Selfoss 3 1 1 1 6-8 4
Stjarnan 2 1 0 1 3-3 3
ÍBV 3 1 0 2 5-7 3
KR 2 0 1 1 3-4 1
Afturelding 3 0 1 2 1-5 1
ÚRSLIT
Aðalfundur
Dagskrá
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar Stjörn-
unnar unnu sinn annan sigur
í þremur leikjum í Pepsi-deild
kvenna í gær er KR kom í heim-
sókn.
Sigurinn þó ekki vandræða-
laus en það var fyrirliðinn Gunn-
hildur Yrsa Jónsdóttir sem gull-
tryggði sigurinn.
Stjarnan er í þriðja sæti deild-
arinnar en KR-stúlkur hafa ekki
farið eins vel af stað. Þær sitja í
næstneðsta sæti með aðeins eitt
stig eftir þrjá leiki. - hbg
Pepsi-deild kvenna:
Meistararnir að
komast í gang
BARÁTTA Það var ekkert gefið eftir í
Garðabæ í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL