Fréttablaðið - 16.06.2012, Blaðsíða 18
16. júní 2012 LAUGARDAGUR18
S
pennandi tímar eru fram
undan hjá tölvuleikjafyr-
irtækinu CCP sem mun
síðar á þessu ári gefa
út leikinn DUST 514,
annan fullgerðan tölvu-
leik fyrirtækisins. Síðustu níu ár
hefur CCP haldið úti netleiknum
EVE Online sem hefur vaxið ár
frá ári frá útgáfu og urðu áskrif-
endur að leiknum á miðlurum CCP
í London og Sjanghæ nýverið 400
þúsund í fyrsta skipti. Fréttablað-
ið ræddi við Hilmar Veigar Péturs-
son, framkvæmdastjóra CCP, um
útgáfu nýja leiksins og framtíð fyr-
irtækisins.
Nýr leikur, sá annar sem fyrir-
tækið gefur út, DUST 514 kemur út
síðar á þessu ári. Segja má að leik-
urinn sé að mörgu leyti einstakur
og því óvissa um viðtökurnar við
honum. Hvernig leggst þetta allt
saman í ykkur?
„Þetta er auðvitað mjög spenn-
andi allt saman og það er einmitt
rétt að leikurinn er að mörgu leyti
einstakur. Við höfum því reynt
eftir fremsta megni
að kynna leikinn mjög
vel og fá við honum
viðbrögð fyrir útgáfu.
Við kynntum því leik-
inn núna í byrjun júní
á E3-leikjasýningunni
í Bandaríkjunum sem
er sú stærsta í okkar
geira og svo kynnt-
um við hann fyrir
EVE-spilurum á aðdá-
endahátíð leiksins í
Reykjavík í mars. Þar
að auki höfum við haft
leikinn í prufuspilun í
hálft ár á Playstation-
netinu. Þau viðbrögð
sem við höfum fengið
við prufuspiluninni og
okkar kynningum hafa
síðan í raun verið alveg
ótrúlega góð og erum
við himinlifandi yfir viðtökun-
um. Núna í lok júní verður útgáfan
sem við vorum með á E3 gefin út
til prufuspilara og verður sá hópur
stækkaður mjög á sama tíma. Og
það verður vitaskuld gríðarlega
spennandi að sjá hvort viðbrögð
þessa hóps verði ekki jafn jákvæð
og önnur viðbrögð sem við höfum
fengið á þá útgáfu.“
CCP hefur unnið að gerð DUST
514 í fjögur ár og kostað miklu til.
Hvað leggur fyrirtækið mikið undir
vegna hans?
„Við kannski horfum ekki svo
á að við séum að leggja fjármuni
undir og svo komi í ljós hvort við
unnum eða ekki. Ef við skoðum
til dæmis EVE þá tók tíma fyrir
hann að ná markaðshylli og voru
upphaflegar viðtökur ekki eins
góðar og við höfðum gert okkur
vonir um. Á móti hefur hann hins
vegar vaxið miklu meira en okkur
villtustu draumar sögðu til um. Við
bjuggumst í mesta lagi við 150 þús-
und spilurum sem myndi byrja að
fækka eftir þrjú ár en nú eru um
400 þúsund manns að spila leikinn
sem er enn að vaxa eftir níu ár.
Að því sögðu höfum við vissulega
talsverðar væntingar til Dust en ef
upphaflegu viðtökurnar verða ekki
eins og við áttum von á, þá munum
við einfaldlega halda áfram að
þróa leikinn, finna hvað er að og
laga það, rétt eins og við gerðum
með EVE. CCP er bara þannig fyr-
irtæki að við munum láta þennan
leik virka.“
Ævintýrið um EVE rétt að byrja
Flaggskip CCP síðustu níu ár hefur
verið EVE Online. Ólíkt flestum
öðrum tölvuleikjum er sífellt verið
að endurnýja og bæta við leikinn
sem er fyrir vikið enn að vaxa. Ný
uppfærsla var gefin út í maí og þá
mun leikurinn vafalítið njóta teng-
ingarinnar við DUST 514. Hve lengi
áfram getur EVE vaxið, er leikur-
inn einfaldlega mjólkurkýr fyrir fyr-
irtækið sem er komin til að vera?
„Í fyrst lagi myndi ég aldrei
kalla EVE mjólkurkú. Við hugs-
um ekki um leikinn þannig. Hvað
varðar það að leikurinn
sé kominn til að vera,
þá er EVE svolítið eins
og Facebook og spurn-
ingin er því kannski: er
Facebook komið til að
vera? Okkur finnst ólík-
legt að fólk muni ein-
faldlega afvina alla vini
sína og hætta að nota
Facebook. Galdurinn
við EVE er að fólk spil-
ar hann út af hinu fólk-
inu sem er í leiknum
og því fleiri sem spila
hann, því skemmti-
legra er að vera með.
Þannig að jafnvel þótt
sumum spilurum í EVE
finnist leikurinn ekki
lengur eins skemmti-
legur og í upphafi þá
finnst þeim samt áfram
skemmtilegt að taka þátt í þessum
heimi með vinum sínum. Sökum
þessa er leikurinn orðinn miklu
skemmtilegri núna þegar 400 þús-
und manns eru að spila en þegar
aðeins 50 þúsund voru að því. Fyrir
marga er þetta líkara því að hitta
vinina eitt kvöld í viku til að spila
bridds eða póker saman. Þannig að
við bindum vonir við að ævintýrið
um EVE-heiminn sé rétt að byrja.“
Síðasta sumar vakti nokkra
athygli þegar hópur áskrifenda að
leiknum hætti að spila í mótmæla-
skyni við ákveðnar hugmyndir fyr-
irtækisins. Seinna baðst fyrirtækið
afsökunar á málinu og áskrifend-
um fór fljótlega að fjölga aftur. Er
enn einhver óánægja meðal spil-
ara EVE eða er þetta mál gleymt
og grafið?
„Þetta mál snerist eiginlega um
það að við gáfum út nýja útgáfu
af leiknum sem var einfaldlega
ekki nægilega góð og spilarar
höfðu búist við meiru af okkur.
Við brugðumst þá einfaldlega
við með því að gera breytingar
og bæta okkur og þegar fólkið sá
það unnum við aftur traust spilar-
anna. Eins og þú segir skrifaði ég
bréf til fylgismanna EVE og við
sýndum svo í kjölfarið í verki að
við meintum það sem við höfðum
sagt. Þetta mál sýnir að spilarar
EVE vænta mjög mikils af okkur
og í hvert skipti sem við stöndum
ekki undir þeim væntingum láta
þeir í sér heyra. Ef ég hef einhver
ráð til allra annarra sem eru að
reka hagkerfi þá er það að hlusta á
fólkið í hagkerfinu, viska fjöldans
er mikil.“
CCP mun á næstunni taka allt
að 2,5 milljarða króna skuldabréfa-
lán til fimm ára. Þá munu kaup-
endur hafa valrétt um að breyta
láninu í hlutafé og þannig verður
íslenskum fjárfestum gefinn kost-
ur á að eignast hluti í fyrirtækinu.
Af hverju gefur fyrirtækið út þetta
skuldabréf?
„Við erum búin að vera að þróa
Dust í fjögur ár og nú er komið
að því að setja hann á markað. Þá
er mjög gott að geta fylgt honum
úr hlaði af styrk og með öflugri
markaðssetningu, öflugum vél-
búnaði og svo framvegis. Við
höfum fjármagnað þróun Dust að
mestu með fjárflæði frá EVE og
höfum sterka lausafjárstöðu en
þessir fjármunir munu gera okkur
kleift að standa að útgáfu leiksins
af meiri krafti en ella.“
Fjárhagsstaðan mjög traust
Í haust greip CCP til hagræðing-
araðgerða í rekstri sínum og var
meðal annars fimmtungi starfs-
fólks sagt upp. CCP hefur síðustu
misseri verið að þróa tvo nýja
tölvuleiki sem mikið er lagt í.
Hefur fyrirtækið verið að spenna
bogann of hátt og hvernig er fjár-
hagsstaða þess?
„Ástæðan fyrir því að uppfærsl-
an á EVE síðasta sumar stóð ekki
undir væntingum var kannski sú
að fyrirtækið hafði vaxið mjög
hratt en geta okkar til að framleiða
góða hluti fyrir okkar viðskipta-
vini hafði ekki haldið í við þann
vöxt. Við vorum að gera marga
hluti á sama tíma og þurftum að
grípa til aðgerða. Við hægðum á
þróun þriðja leiksins okkar, World
of Darkness, og þar sem útgáfa
Dust var á næsta leiti vildum við
skerpa á áherslunni á þá útgáfu
ásamt því að halda hinum hefð-
bundnu hliðum af EVE á góðu róli.
Við gripum því til þessara hagræð-
ingaraðgerða, endurskipulögðum
framleiðsluferli og skerptum á
okkar áherslum. Þessar aðgerðir
hafa svo skilað okkur í sterkari
stöðu til að koma Dust á markað.
Ég ætla ekki að draga úr því að
þetta var erfitt en við þurftum að
gera þetta. Hvað varðar fjárhags-
stöðu fyrirtækisins er hún mjög
traust, hvort sem litið er til fram-
legðar eða lausafjárstöðu.“
Hver er staðan á þriðja tölvu-
leiknum sem CCP hefur unnið að;
World of Darkness?
„Vinna við hann stendur enn
yfir af nokkrum krafti í Atlanta
í Bandaríkjunum. Það eru ekki
eins margir að vinna að honum og
þegar mest var en það eru samt
sem áður um sjötíu manns sem er
nokkuð gott. Hvað varðar útgáfu-
tíma gefum við ekkert út um það.“
Gangi allt upp hjá fyrirtækinu á
næstunni verður það innan fárra
ára með þrjá leiki í rekstri í stað
eins nú. Hver er framtíðarsýn fyr-
irtækisins til lengri tíma en það?
Fleiri leikir, fleiri nýjungar?
„Næsta skrefið á eftir útgáfu
og eftirfylgni við Dust er að gefa
út World of Darkness. Ég get líka
greint frá því að við ætlum að
gefa EVE aftur út á Kínamarkaði
á þessu ári í samstarfi við mjög
öflugan kínverskan samstarfs-
aðila. Við gáfum EVE upphaf-
lega út í Kína árið 2006 en þurft-
um að loka leiknum nú í janúar
til að færa hann til öflugri sam-
starfsaðila. Þá erum við að líta til
tækifæra í tengslum við farsíma
og spjaldtölvur. Við viljum að
spilarar geti tengst EVE og Dust í
gegnum snjallsíma og spjaldtölv-
ur og fleiri slík tæki og gert hina
og þessa hluti í leikjunum. Síðan
höfum við hug á að skrá fyrirtæk-
ið á alþjóðlegan hlutabréfamark-
að á næstu árum. Þannig að það
er nóg fram undan og þar að auki
gnótt af öðrum hugmyndum um
framtíðina sem of snemmt er að
tala um.“
CCP er bara
þannig fyrir-
tæki að við
munum láta
þennan leik
virka.
Brautryðjendur í tölvuleikjagerð
Milljónum tölvuleikjaunnenda um allan heim verður á næstu mánuðum gefinn kostur á að hala niður glænýjum tölvuleik CCP að nafni
DUST 514. Leikurinn er að mörgu leyti einstakur en hann er beintengdur EVE-online tölvuleiknum sem CCP hefur haldið úti síðastliðin níu
ár. Magnús Þorlákur Lúðvíksson ræddi við Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóra CCP, um nýja leikinn og áskoranirnar fram undan.
HILMAR VEIGAR PÉTURSSON Hilmar Veigar er menntaður tölvunarfræðingur sem hefur starfað fyrir CCP frá árinu 2000 og þar af
sem framkvæmdastjóri frá árinu 2004. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
DUST 514 er svokallaður fjölspilunar-skotleikur sem
er spilaður á Playstation 3 leikjatölvum frá Sony. Í
leiknum berjast spilarar um landsvæði, auðlindir
og áhrif og nota til þess herkænsku og áræðni.
Leikurinn gerist á plánetum í sama sýndarheimi
og EVE-online og er beintengdur honum þó EVE
sé leikinn á PC-tölvum. Dust verður fáanlegur án
endurgjalds í gegnum netið og verður sá fyrsti
sinnar tegundar til að styðjast við viðskiptalíkan sem
hefur verið kallað „Free to play“. Leikurinn sjálfur er
þá fáanlegur án greiðslu en tekna er aflað með sölu
á varningi og ýmsum viðbótum.
Spilarar í EVE munu, þegar fram líða stundir, gera
samninga við spilara í Dust um að berjast fyrir sig
um ákveðin landsvæði á plánetum í EVE-heiminum.
Takist þeim að sigra hóp annarra spilara eignast
EVE-leikmaðurinn viðkomandi plánetu og Dust-leik-
mennirnir fá ýmislegt fyrir sinn snúð. Þannig geta
spilarar annars leiksins haft áhrif á framvindu mála í
báðum leikjunum. Aldrei áður hafa tveir ólíkir tölvu-
leikir verið tengdir með þessum hætti og hefur því
mikið umtal skapast um leikinn víða um heim.
Hilmar Veigar segir að EVE sé þekktur fyrir að
vera flókinn tölvuleikur sem höfði til margra en þó
ekki allra. Þannig viti CCP til þess að mjög margir
áhugamenn um tölvuleiki hrífist af EVE-heiminum
en finnist leikurinn EVE Online ekki leikur í þeim
stíl sem þeir eru að leita eftir. Með tilkomu DUST
514 verður þessu fólki hins vegar gefið tækifæri til
þess að taka þátt í og kynnast EVE-heiminum á
mun aðgengilegri hátt, með því að spila skotleik á
Playstation tölvunni sinni.
CCP hefur undanfarið kynnt Dust af krafti, meðal
annars á E3-leikjaráðstefnunni sem er sú stærsta í
þessum geira. Er óhætt að segja að leikurinn hafi
vakið mikla lukku á ráðstefnunni og var hann meðal
annars valinn einn af bestu leikjum ráðstefnunnar
af leikjavefsíðunni þekktu IGN. Þá valdi PlayStation
Official Magazine leikinn einn af tíu efnilegustu og
gróðavænlegustu leikjum ráðstefnunnar.
DUST 514 AÐ MÖRGU LEYTI EINSTAKUR TÖLVULEIKUR