Fréttablaðið - 16.06.2012, Page 18

Fréttablaðið - 16.06.2012, Page 18
16. júní 2012 LAUGARDAGUR18 S pennandi tímar eru fram undan hjá tölvuleikjafyr- irtækinu CCP sem mun síðar á þessu ári gefa út leikinn DUST 514, annan fullgerðan tölvu- leik fyrirtækisins. Síðustu níu ár hefur CCP haldið úti netleiknum EVE Online sem hefur vaxið ár frá ári frá útgáfu og urðu áskrif- endur að leiknum á miðlurum CCP í London og Sjanghæ nýverið 400 þúsund í fyrsta skipti. Fréttablað- ið ræddi við Hilmar Veigar Péturs- son, framkvæmdastjóra CCP, um útgáfu nýja leiksins og framtíð fyr- irtækisins. Nýr leikur, sá annar sem fyrir- tækið gefur út, DUST 514 kemur út síðar á þessu ári. Segja má að leik- urinn sé að mörgu leyti einstakur og því óvissa um viðtökurnar við honum. Hvernig leggst þetta allt saman í ykkur? „Þetta er auðvitað mjög spenn- andi allt saman og það er einmitt rétt að leikurinn er að mörgu leyti einstakur. Við höfum því reynt eftir fremsta megni að kynna leikinn mjög vel og fá við honum viðbrögð fyrir útgáfu. Við kynntum því leik- inn núna í byrjun júní á E3-leikjasýningunni í Bandaríkjunum sem er sú stærsta í okkar geira og svo kynnt- um við hann fyrir EVE-spilurum á aðdá- endahátíð leiksins í Reykjavík í mars. Þar að auki höfum við haft leikinn í prufuspilun í hálft ár á Playstation- netinu. Þau viðbrögð sem við höfum fengið við prufuspiluninni og okkar kynningum hafa síðan í raun verið alveg ótrúlega góð og erum við himinlifandi yfir viðtökun- um. Núna í lok júní verður útgáfan sem við vorum með á E3 gefin út til prufuspilara og verður sá hópur stækkaður mjög á sama tíma. Og það verður vitaskuld gríðarlega spennandi að sjá hvort viðbrögð þessa hóps verði ekki jafn jákvæð og önnur viðbrögð sem við höfum fengið á þá útgáfu.“ CCP hefur unnið að gerð DUST 514 í fjögur ár og kostað miklu til. Hvað leggur fyrirtækið mikið undir vegna hans? „Við kannski horfum ekki svo á að við séum að leggja fjármuni undir og svo komi í ljós hvort við unnum eða ekki. Ef við skoðum til dæmis EVE þá tók tíma fyrir hann að ná markaðshylli og voru upphaflegar viðtökur ekki eins góðar og við höfðum gert okkur vonir um. Á móti hefur hann hins vegar vaxið miklu meira en okkur villtustu draumar sögðu til um. Við bjuggumst í mesta lagi við 150 þús- und spilurum sem myndi byrja að fækka eftir þrjú ár en nú eru um 400 þúsund manns að spila leikinn sem er enn að vaxa eftir níu ár. Að því sögðu höfum við vissulega talsverðar væntingar til Dust en ef upphaflegu viðtökurnar verða ekki eins og við áttum von á, þá munum við einfaldlega halda áfram að þróa leikinn, finna hvað er að og laga það, rétt eins og við gerðum með EVE. CCP er bara þannig fyr- irtæki að við munum láta þennan leik virka.“ Ævintýrið um EVE rétt að byrja Flaggskip CCP síðustu níu ár hefur verið EVE Online. Ólíkt flestum öðrum tölvuleikjum er sífellt verið að endurnýja og bæta við leikinn sem er fyrir vikið enn að vaxa. Ný uppfærsla var gefin út í maí og þá mun leikurinn vafalítið njóta teng- ingarinnar við DUST 514. Hve lengi áfram getur EVE vaxið, er leikur- inn einfaldlega mjólkurkýr fyrir fyr- irtækið sem er komin til að vera? „Í fyrst lagi myndi ég aldrei kalla EVE mjólkurkú. Við hugs- um ekki um leikinn þannig. Hvað varðar það að leikurinn sé kominn til að vera, þá er EVE svolítið eins og Facebook og spurn- ingin er því kannski: er Facebook komið til að vera? Okkur finnst ólík- legt að fólk muni ein- faldlega afvina alla vini sína og hætta að nota Facebook. Galdurinn við EVE er að fólk spil- ar hann út af hinu fólk- inu sem er í leiknum og því fleiri sem spila hann, því skemmti- legra er að vera með. Þannig að jafnvel þótt sumum spilurum í EVE finnist leikurinn ekki lengur eins skemmti- legur og í upphafi þá finnst þeim samt áfram skemmtilegt að taka þátt í þessum heimi með vinum sínum. Sökum þessa er leikurinn orðinn miklu skemmtilegri núna þegar 400 þús- und manns eru að spila en þegar aðeins 50 þúsund voru að því. Fyrir marga er þetta líkara því að hitta vinina eitt kvöld í viku til að spila bridds eða póker saman. Þannig að við bindum vonir við að ævintýrið um EVE-heiminn sé rétt að byrja.“ Síðasta sumar vakti nokkra athygli þegar hópur áskrifenda að leiknum hætti að spila í mótmæla- skyni við ákveðnar hugmyndir fyr- irtækisins. Seinna baðst fyrirtækið afsökunar á málinu og áskrifend- um fór fljótlega að fjölga aftur. Er enn einhver óánægja meðal spil- ara EVE eða er þetta mál gleymt og grafið? „Þetta mál snerist eiginlega um það að við gáfum út nýja útgáfu af leiknum sem var einfaldlega ekki nægilega góð og spilarar höfðu búist við meiru af okkur. Við brugðumst þá einfaldlega við með því að gera breytingar og bæta okkur og þegar fólkið sá það unnum við aftur traust spilar- anna. Eins og þú segir skrifaði ég bréf til fylgismanna EVE og við sýndum svo í kjölfarið í verki að við meintum það sem við höfðum sagt. Þetta mál sýnir að spilarar EVE vænta mjög mikils af okkur og í hvert skipti sem við stöndum ekki undir þeim væntingum láta þeir í sér heyra. Ef ég hef einhver ráð til allra annarra sem eru að reka hagkerfi þá er það að hlusta á fólkið í hagkerfinu, viska fjöldans er mikil.“ CCP mun á næstunni taka allt að 2,5 milljarða króna skuldabréfa- lán til fimm ára. Þá munu kaup- endur hafa valrétt um að breyta láninu í hlutafé og þannig verður íslenskum fjárfestum gefinn kost- ur á að eignast hluti í fyrirtækinu. Af hverju gefur fyrirtækið út þetta skuldabréf? „Við erum búin að vera að þróa Dust í fjögur ár og nú er komið að því að setja hann á markað. Þá er mjög gott að geta fylgt honum úr hlaði af styrk og með öflugri markaðssetningu, öflugum vél- búnaði og svo framvegis. Við höfum fjármagnað þróun Dust að mestu með fjárflæði frá EVE og höfum sterka lausafjárstöðu en þessir fjármunir munu gera okkur kleift að standa að útgáfu leiksins af meiri krafti en ella.“ Fjárhagsstaðan mjög traust Í haust greip CCP til hagræðing- araðgerða í rekstri sínum og var meðal annars fimmtungi starfs- fólks sagt upp. CCP hefur síðustu misseri verið að þróa tvo nýja tölvuleiki sem mikið er lagt í. Hefur fyrirtækið verið að spenna bogann of hátt og hvernig er fjár- hagsstaða þess? „Ástæðan fyrir því að uppfærsl- an á EVE síðasta sumar stóð ekki undir væntingum var kannski sú að fyrirtækið hafði vaxið mjög hratt en geta okkar til að framleiða góða hluti fyrir okkar viðskipta- vini hafði ekki haldið í við þann vöxt. Við vorum að gera marga hluti á sama tíma og þurftum að grípa til aðgerða. Við hægðum á þróun þriðja leiksins okkar, World of Darkness, og þar sem útgáfa Dust var á næsta leiti vildum við skerpa á áherslunni á þá útgáfu ásamt því að halda hinum hefð- bundnu hliðum af EVE á góðu róli. Við gripum því til þessara hagræð- ingaraðgerða, endurskipulögðum framleiðsluferli og skerptum á okkar áherslum. Þessar aðgerðir hafa svo skilað okkur í sterkari stöðu til að koma Dust á markað. Ég ætla ekki að draga úr því að þetta var erfitt en við þurftum að gera þetta. Hvað varðar fjárhags- stöðu fyrirtækisins er hún mjög traust, hvort sem litið er til fram- legðar eða lausafjárstöðu.“ Hver er staðan á þriðja tölvu- leiknum sem CCP hefur unnið að; World of Darkness? „Vinna við hann stendur enn yfir af nokkrum krafti í Atlanta í Bandaríkjunum. Það eru ekki eins margir að vinna að honum og þegar mest var en það eru samt sem áður um sjötíu manns sem er nokkuð gott. Hvað varðar útgáfu- tíma gefum við ekkert út um það.“ Gangi allt upp hjá fyrirtækinu á næstunni verður það innan fárra ára með þrjá leiki í rekstri í stað eins nú. Hver er framtíðarsýn fyr- irtækisins til lengri tíma en það? Fleiri leikir, fleiri nýjungar? „Næsta skrefið á eftir útgáfu og eftirfylgni við Dust er að gefa út World of Darkness. Ég get líka greint frá því að við ætlum að gefa EVE aftur út á Kínamarkaði á þessu ári í samstarfi við mjög öflugan kínverskan samstarfs- aðila. Við gáfum EVE upphaf- lega út í Kína árið 2006 en þurft- um að loka leiknum nú í janúar til að færa hann til öflugri sam- starfsaðila. Þá erum við að líta til tækifæra í tengslum við farsíma og spjaldtölvur. Við viljum að spilarar geti tengst EVE og Dust í gegnum snjallsíma og spjaldtölv- ur og fleiri slík tæki og gert hina og þessa hluti í leikjunum. Síðan höfum við hug á að skrá fyrirtæk- ið á alþjóðlegan hlutabréfamark- að á næstu árum. Þannig að það er nóg fram undan og þar að auki gnótt af öðrum hugmyndum um framtíðina sem of snemmt er að tala um.“ CCP er bara þannig fyrir- tæki að við munum láta þennan leik virka. Brautryðjendur í tölvuleikjagerð Milljónum tölvuleikjaunnenda um allan heim verður á næstu mánuðum gefinn kostur á að hala niður glænýjum tölvuleik CCP að nafni DUST 514. Leikurinn er að mörgu leyti einstakur en hann er beintengdur EVE-online tölvuleiknum sem CCP hefur haldið úti síðastliðin níu ár. Magnús Þorlákur Lúðvíksson ræddi við Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóra CCP, um nýja leikinn og áskoranirnar fram undan. HILMAR VEIGAR PÉTURSSON Hilmar Veigar er menntaður tölvunarfræðingur sem hefur starfað fyrir CCP frá árinu 2000 og þar af sem framkvæmdastjóri frá árinu 2004. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR DUST 514 er svokallaður fjölspilunar-skotleikur sem er spilaður á Playstation 3 leikjatölvum frá Sony. Í leiknum berjast spilarar um landsvæði, auðlindir og áhrif og nota til þess herkænsku og áræðni. Leikurinn gerist á plánetum í sama sýndarheimi og EVE-online og er beintengdur honum þó EVE sé leikinn á PC-tölvum. Dust verður fáanlegur án endurgjalds í gegnum netið og verður sá fyrsti sinnar tegundar til að styðjast við viðskiptalíkan sem hefur verið kallað „Free to play“. Leikurinn sjálfur er þá fáanlegur án greiðslu en tekna er aflað með sölu á varningi og ýmsum viðbótum. Spilarar í EVE munu, þegar fram líða stundir, gera samninga við spilara í Dust um að berjast fyrir sig um ákveðin landsvæði á plánetum í EVE-heiminum. Takist þeim að sigra hóp annarra spilara eignast EVE-leikmaðurinn viðkomandi plánetu og Dust-leik- mennirnir fá ýmislegt fyrir sinn snúð. Þannig geta spilarar annars leiksins haft áhrif á framvindu mála í báðum leikjunum. Aldrei áður hafa tveir ólíkir tölvu- leikir verið tengdir með þessum hætti og hefur því mikið umtal skapast um leikinn víða um heim. Hilmar Veigar segir að EVE sé þekktur fyrir að vera flókinn tölvuleikur sem höfði til margra en þó ekki allra. Þannig viti CCP til þess að mjög margir áhugamenn um tölvuleiki hrífist af EVE-heiminum en finnist leikurinn EVE Online ekki leikur í þeim stíl sem þeir eru að leita eftir. Með tilkomu DUST 514 verður þessu fólki hins vegar gefið tækifæri til þess að taka þátt í og kynnast EVE-heiminum á mun aðgengilegri hátt, með því að spila skotleik á Playstation tölvunni sinni. CCP hefur undanfarið kynnt Dust af krafti, meðal annars á E3-leikjaráðstefnunni sem er sú stærsta í þessum geira. Er óhætt að segja að leikurinn hafi vakið mikla lukku á ráðstefnunni og var hann meðal annars valinn einn af bestu leikjum ráðstefnunnar af leikjavefsíðunni þekktu IGN. Þá valdi PlayStation Official Magazine leikinn einn af tíu efnilegustu og gróðavænlegustu leikjum ráðstefnunnar. DUST 514 AÐ MÖRGU LEYTI EINSTAKUR TÖLVULEIKUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.